Morgunblaðið - 31.07.2019, Side 15

Morgunblaðið - 31.07.2019, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019 Rústir Mannvirki og vinnuvélar liðinna tíma blasa við þeim sem fljúga yfir landið. Eiga minjar sem þessar langa og merkilega sögu að baki, en sumar þeirra falla í gleymskunnar dá. RAX Öllum kjörnum fulltrúum er hollt – jafnvel skylt – að vega og meta eigin störf. Spyrja sjálfan sig spurninga. Hverju hef ég áork- að? Hef ég komið ein- hverju til leiðar sem til heilla horfir fyrir sam- félagið? Hefur mér tek- ist að nýta þau tæki- færi sem mér eru gefin sem kjörnum fulltrúa til að hrinda stefnumálum í framkvæmd? Með hvaða hætti hef ég staðið undir rétt- mætum væntingum kjósenda? Hef ég verið sjálfum mér samkvæmur og trúr þeim hugsjónum sem ég hef barist fyrir? Allar þessar spurningar og raunar margar fleiri hafa leitað á huga þess er þetta skrifar frá því að hlé var gert á þinghaldi 20. júní síðastliðinn. Magn en ekki gæði Kjörnir fulltrúar líkt og kjósendur styðjast við mismunandi mæli- kvarða. Við sem sitjum á Alþingi er- um langt í frá sammála um hvaða mælistiku best sé að styðjast við þeg- ar störf okkar eru vegin og metin. Að loknum þingvetri hefur mörgum þótt við hæfi að þingmenn séu sæmilega hreyknir af því hversu afkastamikið þingið hafi verið. Því fleiri frumvörp og þingsályktunartillögur sem sam- þykktar eru því betra. Efnislegt inni- hald verður aukaatriði. Hvaða áhrif samþykkt lög hafa á líf einstaklinga og afkomu þeirra, rekstur og efna- hag fyrirtækja er ekki mælikvarðinn – magnið skiptir mestu. Síðasta vetur samþykkti Alþingi 120 lög og 47 þingsályktanir. Lög sem einstaklingum og fyrirtækjum er ætlað að fara eftir og standa und- ir. Þingsályktanir sem oftar en ekki fela í sér kostnað sem skattgreið- endur axla. Engir – ekki fjölmiðlar eða fræðimenn við æðstu mennta- stofnanir landsins – gera tilraun til að meta hvaða áhrif ákvarðanir Al- þingis hafa á samfélagið – á ein- staklinga, heimilin eða fyrirtækin. Aðeins af- markaðar lagasetn- ingar eru skoðaðar og þá oftast af hags- munaaðilum sem mest eiga undir. Þess vegna verður áfram stuðst við mælikvarða þar sem magn ræður mestu þegar þingmenn og störf þeirra eru vegin og metin. Innbyggður hvati til að afgreiða laga- frumvörp og ályktanir er öflugri en margir átta sig á. Sama gildir um ráðherra. Það er hreinlega ætlast til þess að hver og einn ráð- herra leggi fjölda frumvarpa fram á hverjum einasta þingvetri, líkt og það sé heilög skylda að breyta lögum þótt ekkert kalli á slíkt. Með sama hætti þykir það til vitnis um dugnað þegar þingmaður leggur fram fjölda fyrirspurna til ráðherra um allt milli himins og jarðar – jafn- vel um það sem viðkomandi getur hæglega fengið upplýsingar um af eigin rammleik enda öllum aðgengi- legar. En fjölmiðlar hrífast af dugn- aðinum og telja það skyldu sína að greina frá hverri fyrirspurninni á fætur annarri. Þannig fær viðkom- andi staðfestingu á eigin dugnaði sem skiptir þó almenning litlu. Eftirtekjan Þegar ég lít yfir síðasta þingvetur er ég ekki viss hvernig ég svara ofan- greindum spurningum. Ég get auð- vitað bent á ýmsar breytingar á stjórnarfrumvörpum sem ég beitti mér fyrir og voru samþykktar. Allar þær breytingar eru til betri vegar – ýmis lög um skatta og gjöld, ný heildarlög um Seðlabanka, kjararáð eða lög í baráttu gegn kennitölu- flakki. En uppskeran er fremur rýr þegar kemur að þeim málum sem ég lagði sérstaka áherslu á og barðist fyrir með framlagningu frumvarpa. Í september á liðnu ári lagði ég fram frumvarp um lækkun erfða- fjárskatts með því að innleiða þrepa- skipt skatthlutfall þannig að þrepin verði tvö, 5% og 10%. Með breyting- unni hefði verið stígið skref í þá átt að færa álagninguna til þess sem hún var fyrir þau efnahagslegu áföll sem fylgdu í kjölfar á falli viðskiptabank- anna. Allir þingmenn Sjálfstæð- isflokksins stóðu að frumvarpinu. Viðbrögðin við frumvarpinu sýndu hve ranglátur erfðafjárskatturinn er í huga margra enda kemur hann fyrst og síðast niður á venjulegum Íslendingum – millistéttinni. Erfða- fjárskattur er ekki annað en skattur á tilfærslu fjármagns og verðmæta á milli kynslóða. Það voru sár vonbrigði að frum- varpið skyldi ekki ná fram að ganga ekki síst vegna andstöðu þeirra sem við sjálfstæðismenn eigum samstarf við í ríkisstjórn. Ég geri mér grein fyrir að margir urðu fyrir von- brigðum, enda um réttlætismál að ræða sem ekki fékk framgang. Þótt þessi tilraun hafi ekki tekist verður ekki gefist upp. Frumvarpið verður lagt fram að nýju á komandi vetri með breytingum m.a. er varðar frí- tekjumark, þannig að hver og einn erfingi njóti frítekjumarks. Svipaða sögu er að segja af frum- varpi um fulla endurgreiðslu virð- isaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna á byggingarstað íbúðarhúsnæðis. Frumvarpið var lagt fram í október en komst aldrei á dagskrá þingsins, aldrei til nefndar og þar með var ekki hægt að óska umsagna hags- munaaðila. Með samþykkt frum- varpsins hefði byggingarkostnaður lækkað um allt að 3%. En það er ekki hægt að gefast upp. Einnig má benda á frumvarp um skattalega meðferð íbúðarhúsnæðis og að sömu reglur gildi um frístunda- hús. Með samþykkt frumvarpsins er m.a. komið í veg fyrir að eldri borg- arar lendi í skattalegum ógöngum og refsingum hjá almannatryggingum þegar þeir selja sumarhús sem þeir hafa átt jafnvel í áratugi. Frum- varpið fékk ekki framgang frekar en frumvarp um að félög sem eingöngu eru rekin til almannaheilla séu und- anskilin fjármagnstekjuskatti. Listinn er lengri. Ég var meðflutn- ingsmaður að frumvarpi um endur- greiðslu virðisaukaskatts til fé- lagasamtaka til almannaheilla vegna mannvirkjagerðar og annarra fram- kvæmda. Breyting á lyfjalögum sem hefði aukið frelsi þannig að hægt verði að selja ákveðin lausasölulyf í almennri verslun náði ekki til nefnd- ar. Sömu sögu er að segja um afnám stimpilgjalda af skipum yfir fimm brúttótonnum, sem eru einu atvinnu- tækin sem bera slík gjöld. Jafnræð- isfrumvarpið féll í grýttan jarðveg í þingsal. Tilraun til að auðvelda kyn- slóðaskipti í landbúnaði og öðrum at- vinnurekstri fékk sömu örlög. Með stuðningi annarra stjórnarþing- manna lögðum við Haraldur Bene- diktsson fram frumvarp um breyt- ingar á lögum um lax- og silungsveiði sem hefði komið í veg fyrir að sami aðili eða tengdir aðilar geti með upp- kaupum á lögbýlum komist yfir stærri hluta atkvæðisréttar í veiði- félagi en 30%. Ekki var gefið tæki- færi til að mæla fyrir frumvarpinu. Árangur þrátt fyrir mótbyr Mér og félögum mínum hefur orð- ið lítið ágengt í að skera upp kerfið. Eftirlitskerfið lifir góðu lífi og þjónar að því er virðist á stundum fremur sjálfu sér en þeim sem því er ætlað – neytendum og fyrirtækjum. Á hverju einasta ári hafa framlög ríkissjóðs til heilbrigðiskerfisins ver- ið aukin en engu að síður nær það ekki að uppfylla skyldur sínar við okkur öll sem erum sjúkratryggð. Verst er að mér hefur mistekist að koma því til leiðar að fjármunir séu nýttir með eins hagkvæmum hætti og kostur er. Ríkisrekstrarsinnar hafa haft yfirhöndina. Afleiðingin er verri þjónusta og dýrari. Þannig má lengi telja. Einkareknir fjölmiðlar berjast flestir í bökkum en á sama tíma blómstrar ríkisrekinn fjölmiðill. Og mér hefur lítið sem ekkert orðið ágengt í áralangri baráttunni gegn opinberum hlutafélögum sem eru nær ósnertanleg fyrirbæri sem leggja til atlögu við einkaframtakið þegar og ef það hentar. En þrátt fyrir að það blási í mörgu á móti borgaralegum öflum – sjálf- stæðisstefnunni – hefur náðst árang- ur á undanförnum árum en Sjálf- stæðisflokkurinn hefur setið í ríkis- stjórn frá 2013. Staða ríkissjóðs er gjörbreytt og skuldir litlar. Almenn vörugjöld hafa verið felld niður og tryggingagjald lækkað. Milliþrep tekjuskatts einstaklinga fellt niður sem launafólk með millitekjur naut ekki síst góðs af. Fjármagnshöft af- numin og viðskiptaumhverfi landsins komið í eðlilegt alþjóðlegt umhverfi. Erlend staða þjóðarbúsins hefur aldrei verið betri. Verðstöðugleiki hefur ríkt og vextir lækkað. Fátt kemur launafólki betur. Kaupmáttur launa hefur aldrei verið meiri. Fram- lög til heilbrigðismála, trygginga ör- yrkja og lífeyris eldri borgara hafa hækkað um tugi milljarða. Framtíðin er björt og í mörgu öfundsverð. Það er hlutverk stjórnmálamanna að vinna að því að tækifæri framtíð- arinnar séu nýtt. Oft er gripið til þeirrar klisju að stjórnmál séu „list hins mögulega“. Jafnvel í þreyttum frösum geta verið sannleikskorn. Winston Churchill hélt því hins vegar fram að í stjórn- málum væri nauðsynlegt að búa yfir hæfileikanum til að segja fyrir um hvað gerist á morgun, í næstu viku, næsta mánuði og á næsta ári. Og að hafa getu í framhaldinu til að útskýra hvers vegna það gerðist ekki. Kald- hæðni eins mesta stjórnmálaleiðtoga sögunnar er ekki marklaus. Ég bý hins vegar ekki yfir miklum spá- dómsgáfum en hef komist að því að árangur í stjórnmálum snýst ekki að- eins um stefnufestu heldur ekki síður um þolinmæði – að hafa úthald til að halda áfram að vinna að framgangi hugsjóna í þeirri vissu að dropinn holar steininn. Þess vegna heldur baráttan áfram. Eftir Óla Björn Kárason » Því fleiri frumvörp og þingsályktunar- tillögur sem samþykkt- ar eru því betra. Efnis- legt innihald verður aukaatriði. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Til hvers er barist?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.