Morgunblaðið - 31.07.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
• 2 svefnherbergi
• 2 baðherbergi
• Sameiginlegur sundlaugargarður
• Svalir, þakverönd eða sér garður
• Stæði í bílakjallara
• Stutt í ótal golfvelli
• Stutt í verslanir og veitingastaði
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
VILLAMARTIN - ÍBÚÐIR Á GÓÐU VERÐI
Verð frá 18.900.000 Ikr.
(139.000 evrur, gengi 1evra/136Ikr.)
50 ára Elín er fædd og
uppalin á Höfn í Horna-
firði en býr nú í Reykja-
vík. Hún er stúdent frá
Menntaskólanum á
Laugarvatni og útskrif-
aðist sem hjúkr-
unarfræðingur frá Háskóla Íslands árið
1994 og sem ljósmóðir úr sama skóla ár-
ið 2010. Hún starfar nú á fæðingardeild-
inni á Sjúkrahúsinu á Akranesi og hjá
fyrirtækinu 9 mánuðum.
Eiginmaður: Kristinn Pétursson flug-
virki, f. 1968 í Reykjavík.
Börn: Þórhildur, f. 1995, Ragnheiður
Ása, f. 2000, og Helena Gróa, f. 2001.
Foreldrar: Gunnar Ásgeirsson útgerð-
armaður, f. 1943 á Höfn í Hornafirði, og
Ásgerður Arnardóttir húsmóðir, f. 1946 á
Höfn í Hornafirði.
Elín Arna Gunnarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Kæti þín er smitandi svo þú ert
hrókur alls fagnaðar hvar sem þú kemur.
Einbeittu þér að því að taka hlutunum eins
og þeir koma fyrir.
20. apríl - 20. maí
Naut Hjálpaðu öðrum að koma sínum
málum áleiðis. Þú færð tilboð frá ein-
hverjum sem kemur þér í uppnám.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er engin ástæða til að láta
minniháttar rifrildi komast upp á milli
vina. Njóttu þess að vera í fríi og geta gert
það sem þú vilt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gerðu það sem þú getur til að
brjóta upp hversdagsleikann. Þú stendur á
krossgötum. Framtíðin er björt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er hætt við að spenna sem hefur
verið að safnast upp í þér að undanförnu
brjótist fram í dag. Þú fetar í fótspor ein-
hvers sem þú leist alltaf upp til.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ástæðulaust að láta draum
sinn halda fyrir sér vöku. Þig vantar ein-
hverja tilbreytingu í lífið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert á réttri hillu í vinnunni. Reynsla
þín fleytir þér langt. Einhver af hinu kyninu
veitir þér athygli í dag og þér leiðist það
ekki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er greinilegt að roskinn
vinur eða ættingi sér hreinlega ekki sólina
fyrir þér og lætur þig finna það með ýms-
um hætti. Þú ert næturhrafn sem verður
að passa upp á hvíldina.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vinir / hópar sem þú átt sam-
skipti við eru uppörvandi. Reyndu að nýta
tímann til skynsamlegra verka í stað þess
að sitja með hendur í skauti.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er ekki rétti dagurinn til
þess að þræta við aðra. Staldraðu stund-
um við og andaðu djúpt. Þér liggur ekki
svona lífið á.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Temdu þér að fara vel með þá
hluti sem þú eignast hvort sem þeir eru
smáir eða stórir. Nú er komið að því að
láta ljós sitt skína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sálfræðingar segja að þegar á að
bæta hegðun barns þurfi að hæla sex
sinnum fyrir hverjar skammir. Stundum
séðu ekki skóginn fyrir trjánum.
stæðisflokksins. „Þar vann ég svo í
góð fimm ár. Sjálfstæðisflokkurinn
hafði síðan orðið fyrir áfalli í kosn-
ingum árið 1987 og árið 1990 var
hann kominn í stjórnarandstöðu,
þannig að þá fór ég að líta í kringum
mig og ákvað að fara að dusta rykið
af lögfræðibókunum,“ segir Sigur-
björn. Hann hlaut héraðsdóms-
lögmannsréttindi árið 1990 og var frá
1990-1991 fulltrúi á lögfræðiskrif-
stofu en frá árinu 1991 hefur Sig-
urbjörn rekið sína eigin lögmanns-
stofu og 1996 fékk hann leyfi til
málflutnings fyrir Hæstarétti. Nú
rekur hann lögmannsstofuna Juris í
Borgartúni í félagi við aðra lögmenn.
Samhliða lögmannsstörfum hefur
Sigurbjörn setið í stjórnum ýmissa
fyrirtækja. Þar ber helst að nefna
stjórnarformennsku í Árvakri hf., út-
gáfufélagi Morgunblaðsins, mbl.is og
annarra miðla. Hann tók við stjórn-
artaumunum þar árið 2009, þegar
nýir eigendur keyptu Árvakur.
„Þetta er viðburðaríkur og skemmti-
legur vettvangur. Á tíu árum höfum
við viðhaldið öflugri útgáfu blaðsins í
harðri samkeppni við aðra fjölmiðla,
segir Sigurbjörn. Hann átti síðar eft-
ir að eiga sæti í sömu stjórn nema þá
ráðherraskipaður 1986-1990, þar af
sem formaður stjórnarinnar 1988-
1990. Hann var formaður Vöku 1982-
1983, formaður Heimdallar 1984-
1986 og varaformaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna 1985-1987.
Áður en Sigurbjörn útskrifaðist úr
lagadeild vorið 1985 var hann ráðinn
framkvæmdastjóri þingflokks Sjálf-
S
igurbjörn Magnússon
fæddist í Reykjavík 31.
júlí 1959 og fór viku-
gamall til Grundar-
fjarðar, þar sem faðir
hans var prestur, og þar ólst Sig-
urbjörn upp til fimmtán ára aldurs.
„Það var mjög gott að alast upp
þarna undir fjöllunum með því góða
fólki sem þarna bjó,“ rifjar Sigur-
björn upp. Hann fluttist suður þegar
faðir hans lét af prestskap, tók lands-
próf í Reykjavík árið 1975 og hóf svo
nám við Menntaskólann í Reykjavík.
Þar var hann virkur í félagslífinu eins
og ýmsir hafa verið og var meðal
annars forseti Málfundafélagsins
Framtíðarinnar tímabilið 1977-78.
Sigurbjörn innritaðist í lagadeild
Háskóla Íslands strax haustið eftir
útskrift úr MR árið 1979. „Laganám
lá nokkuð beint við og var ef til vill af-
leiðing af miklum á áhuga mínum á
stjórnmálum á þessum árum. Árið
1981 fór ég í framboð til Stúdenta-
ráðs og þá felldum við vinstrimeiri-
hlutann, sem hafði ráðið ríkjum síð-
asta áratuginn, og mynduðum stjórn
með framboði umbótasinna. Ég tók
sæti í stjórn Stúdentaráðs og stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna,“
við höfum hafið útvarpsrekstur og
vefurinn mbl.is hefur vaxið og dafn-
að. Má segja að á þessum tíma hafi
Árvakur breyst úr því að vera út-
gáfufélag og prentsmiðja í að vera
fjölmiðlafyrirtæki,“ segir Sig-
urbjörn.
Ekki verður æviferill Sigurbjörns
rakinn með góðu móti án þess að
hestamennsku beri á góma. Hann
hefur verið viðloðandi hesta frá ung-
lingsárum, þegar hann fór fyrst að
fara á hestbak hjá frændum sínum á
Kiðafelli í Kjós, jörð sem afi hans
Sigurbjörn Þorkelsson, iðulega
kenndur við verslunina Vísi, hafði
keypt 1938. „Svo kaupi ég minn
fyrsta hest af Sveini Jóhannssyni á
Varmalæk árið 1976 og þá varð ekki
aftur snúið. Síðan þá hef ég verið
hestamaður og m.a. ferðast vítt og
breitt um landið á hestum. Það má
segja að mér semji ekkert síður við
hross en menn og mér finnst mjög
gott að hafa þetta sem mótvægi við
önnur störf. Að geta brugðið sér í að
sinna hrossum jafnt vetur sem sum-
ar gefur manni góða jarðtengingu og
svo er ekki verri félagsskapurinn
sem maður eignast í fólki sem deilir
þessu áhugamáli,“ segir hann.
Það voru líka hestarnir sem leiddu
til þess að Sigurbjörn kynntist seinni
eiginkonu sinni Hlíf, sem hann
kvæntist síðasta sumar. Hann missti
fyrri eiginkonu sína, Kristínu, úr
krabbameini árið 2012. „Það var mik-
ið áfall fyrir mig, börnin og alla fjöl-
skylduna. En lífið heldur áfram.
Börnin eru uppkomin og Hlíf á líka
tvö börn og öll eru þau á góðum stað í
lífinu. Þegar ég staldra við nú get ég
ekki annað en tekið undir orð Sig-
urbjörns afa, sem voru yfirskrift ævi-
sögu hans: Himneskt er að lifa,“ seg-
ir Sigurbjörn, sem ekki síður
minnugur afa síns fagnar sextugs-
afmælinu í sumarbústað sínum Brek-
kuskála á Kiðafelli í Kjós, en það var
Sigurbjörn Magnússon, lögmaður og stjórnarformaður Árvakurs ehf. – 60 ára
Við upphaf veislu Frá vinstri eru Nína Kristín, Birta, Hlíf, Sigurbjörn, Áslaug, Andri og Magnús.
Himneskt er að lifa
Nýgift Riðið frá kirkju til veislu á brúðkaupsdaginn.
Mæðgur Kristín heitin og Áslaug dóttir hennar í hestaferð í Þjórsárdal 2004.
Morgunblaðið/Árni SæbergMorgunblaðið/Árni Sæberg
60 ára Árni Daníel er
fæddur í Reykjavík en
uppalinn í Svarfaðardal.
Hann er stúdent úr MA.
Hann er með BA- og
MA-próf í sagnfræði frá
HÍ 1991 og doktorspróf
frá Kaupmannahafnarháskóla 1997. Árni
hefur stundað kennslu og ritstörf einkum
á vettvangi ReykjavíkurAkademíunnar.
Eiginkona: Birna Gunnarsdóttir, f. 1965 í
Reykjavík, verkefnastjóri hjá Háskóla Ís-
lands.
Börn: Ari Júlíus Árnason, f. 1990, d. 2013,
María Árnadóttir, f. 1992, Pétur Xiaofeng
Árnason, f. 2007.
Foreldrar: Júlíus Jón Daníelsson, f. 1925,
d. 2017, ritstjóri í Reykjavík, og Þuríður
Árnadóttir, f. 1933, d. 2016, íþróttakennari.
Þau bjuggu í Reykjavík og Svarfaðardal.
Árni Daníel Júlíusson
Til hamingju með daginn