Fréttablaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 1 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Októberfest Finndu okkur á Miðvikudagur 18. sept. Tilboð dagsins Änglamark hreinsiklútar 25 stk 99 KR/PK ÁÐUR: 198 KR/PK HEI LSU DAG AR 50% AFSLÁTTUR Ísland fer fyrir Norrænu ráðherranefndinni sem stendur fyrir ráðstefnu um áhrif #metoo- hreyfingarinnar í samvinnu við rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við HÍ. Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra opnaði ráðstefnuna í Hörpu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VIÐSKIPTI Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia ohf., telur að skoða ætti aðkomu fjárfesta að félaginu til að tryggja fagþekkingu í rekstri og fyrirhugaðri uppbyggingu Kefla- víkurflugvallar. „Ég tel skynsamlegt að horfa með jákvæðum augum til þess að sækja viðbótarfjármögnun með viðbótarhlutafé,“ segir Svein- björn í viðtali við Markaðinn. Hann telur æskilegt að það fjármagn komi frá fagfjárfestum. „Ef það kæmi hér inn erlendur fjárfestir sem sérhæfir sig í að fjárfesta í alþjóðlegum flug- völlum þá kemur með honum mikil þekking sem væri mjög jákvæð fyrir okkur.“ Í kortunum kunna að vera tals- verðar skipulagsbreytingar á Isavia. Forstjórinn segir að huga verði að því að skilja samkeppnishluta félags- ins frá öðrum þáttum. „Við verðum líka að viðurkenna þá staðreynd að rekstur Keflavíkurflugvallar er sú eining sem ber langmestu áhættuna og er í raun eina einingin sem getur haft veruleg neikvæð áhrif á eigin fé Isavia. Það þarf því að meðhöndla þá áhættu í samræmi við það,“ segir hann en segir að ekki sé tímabært að svo stöddu að útlista í smáatriðum hvað í því felst. Hann segir að áhugasamir f lug- fjárfestar hafi verið í sambandi við Isavia. „Við tökum vel á móti öllum og það fá allir kynningu á því sem við erum að gera. Það er mikill áhugi á að koma að fjármögnun slíkra inn- viðaverkefna. Það er okkar mat að það sé ekki stórkostlega erfitt að fá inn fjárfesta í verkefnin sem fram undan eru á Keflavíkurflugvelli.“ Á næstu þremur árum er gert ráð fyrir um 30 milljarða króna fram- kvæmdum Isavia á Keflavíkurflug- velli. Sveinbjörn segir þetta vera risa- vaxin verkefni. „Í peningum verður fjárhæðin vel norðan við hundrað milljarða króna þegar uppbygg- ingaráætlunin er fullframkvæmd.“ Sveinbjörn segir mun meiri verð- mæti felast í því fyrir Isavia að fá inn fagfjárfesta sem hafa þekkingu á rekstri flugvalla en í fjármununum sem slíkum. „Það er auðveldara að sækja fjármagnið en þekkinguna. En ef það kæmi hér inn erlendur fjár- festir sem sérhæfir sig í að fjárfesta á alþjóðlegum flugvöllum þá kemur með honum mikil þekking sem væri mjög jákvæð fyrir okkur. Við höfum á tiltölulega fáum árum vaxið úr litlum flugvelli í alþjóðlegan flug- völl með öllum þeim tækifærum og áskorunum sem því fylgir,“ segir hann. Að sögn Sveinbjörns hefur stjórn Isavia ekki rætt þetta sérstaklega. Þeir viti þó af heimsóknum áhuga- samra fjárfesta. Aðspurður um hvort einhver vinna í þessa veru sé í gangi í fjármálaráðuneytinu telur hann svo ekki vera. – ds / sjá Markaðinn Vill aðkomu fagfjárfesta að flugvellinum Á næstu þremur árum er gert ráð fyrir um 30 millj- arða króna framkvæmdum Isavia á Keflavíkur- flugvelli. Flugvallarfjárfestar hafa sýnt áhuga. Auðveldara að sækja fjármagn en þekkinguna. Stjórn Isavia hefur ekki rætt málið sérstaklega. Ef það kæmi hér inn erlendur fjárfestir sem sérhæfir sig í að fjár- festa í alþjóðlegum flug- völlum þá kemur með honum mikil þekking sem væri mjög jákvæð fyrir okkur. Sveinbjörn Ind- riðason, forstjóri Isavia ohf. VIÐSKIPTI Almenna leigufélagið, næststærsta leigufélag landsins, hefur hætt við áform um skráningu félagsins á Aðalmarkað. Þá verður sett á fót sérstakt fimm manna fjárfestingarráð, skipað full- trúum sumra af stærstu hluthöfum sjóðsins sem á og rekur Almenna leigufélagið, en sjóðurinn er í stýr- ingu Kviku, sem mun í kjölfarið einnig tilnefna tvo nýja fulltrúa í stjórn félagsins. Á meðal þeirra sem taka sæti í ráðinu eru fulltrúar frá TM og sjóðastýringarfélaginu Stefni. Aðkoma sjóðfélaga kemur til vegna vaxandi undiröldu margra úr röðum þeirra með rekstur sjóðsins, einkum hvað varðar rekstrarkostn- að. Hlutverk fjárfestingarráðsins verður að leggja mat á stöðu leigu- félagsins, sem skilaði um þrettán milljóna hagnaði á fyrri árshelmingi, og taka ákvarðanir um næstu skref. Þar er til skoðunar að sjóðnum verði slitið áður en líftími hans renn- ur út, sem er um mitt næsta ár, og að hluthafarnir eignist beint hlutabréf í leigufélaginu og taki við rekstrinum. Eignasafn Almenna telur 1.200 íbúðir en heildareignir félagsins eru 48 milljarðar. – hae / sjá Markaðinn Fallið frá skráningu Almenna leigufélagsins 13 milljónir var hagnaður fé- lagsins á fyrri árshelmingi. +PLÚS 1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 C B -B F D 0 2 3 C B -B E 9 4 2 3 C B -B D 5 8 2 3 C B -B C 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.