Fréttablaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 2
Veður Suðaustan og austan 8-15 m/s í dag, en 15-20 með suðurströndinni þangað til síðdegis. Víða rigning, talsverð á suðurhelmingi landsins. Hiti 6 til 11 stig yfir daginn. SJÁ SÍÐU 14 Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 51.900 KR. FLUG OG GISTING NÁNAR Á UU.IS EÐA Í SÍMA 585 4000 TENERIFE SÍÐUSTU SÆTIN Urð og grjót upp í mót HEILBRIGÐISMÁL Rúmlega 15 pró- sent 10. bekkinga á Íslandi eru hugsanlega háðir rafrettum. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu um heilsu og líðan grunnskólanemenda sem var lögð fyrir fund skóla- og frí- stundasviðs Reykjavíkurborgar á dögunum. Alls svöruðu 7.159 nem- endur um land allt könnuninni sem hefur verið lögð fyrir um árabil að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar. Um 65 prósent nemenda hafa aldrei prófað að reykja rafrettu en um 20 prósent hafa fiktað mismik- ið við slíkt. 15,2 prósent segjast hafa reykt rafrettur oftar en 30 daga yfir ævina og eru því hugsanlega háðir reykingunum. „Þetta eru ótrúlegar tölur og eitthvað sem við þurfum að taka alvarlega,“ segir Ársæll, M. Arnarson, annar skýrsluhöfunda. Að hans mati er sorglegt að sjá svo háar tölur meðal ungra krakka í ljósi þess árangurs sem hafi unnist í baráttunni gegn hefðbundnum tóbaksreykingum á undanförnum árum. „Þetta gengur þvert á allt sem við höfum verið að berjast fyrir. Það eru engar rannsóknir sem hafa sýnt fram á skaðleysi rafrettna en sífellt f leiri vísbendingar benda til þess að fólk sé að fara illa út úr þessu.“ Hann segir greinilegt að raf- retturnar höfði til ungmenna. „Við leggjum til að bann við rafrettum verði tekið til alvarlegar athug- unar,“ segir Ársæll. - bþ Hvetja til banns gegn rafrettum Farðu á frettabladid.is Þetta eru ótrúlegar tölur sem við þurfum að taka alvarlega. Ársæll M. Arnarson, prófessor SAMGÖNGUMÁL Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu á fundi borgarstjórnar í gær til að opnunar- tími stofnana og fyrirtækja Reykja- víkurborgar yrði gerður sveigjan- legri til þess að létta á umferð á höfuðborgarsvæðinu. Þá yrði þess freistað gera þetta í samvinnu við atvinnurekendur og ríkið. Til- lögunni var vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. „Það hefur ekkert gerst í þessum málum í fimm ár,“ sagði Eyþór L. Arnalds, oddviti Sjálfstæðisf lokksins, þegar hann lýsti vonbrigðum þar sem lausnin væri ódýr og mætti vinna hratt. – bþ Vilja rýmri opnunartíma Eyþór L. Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins DÓMSMÁL Lögmaður Jóhanns Helga- sonar gagnrýnir harkalega tónlistar- fræðing sem samdi greinargerð fyrir vörn tónlistarfyrirtækjanna Uni- versal og Warner í lagastuldarmáli Jóhanns vegna lagsins Söknuðar. Eins og fram kom í Fréttablaðinu 8. júlí hafnaði Lawrene Ferrara, tón- listarprófessor sem samdi greinar- gerð fyrir hönd fyrirtækjanna sem Jóhann Helgason hefur stefnt, lík- indum milli Söknuðar og You Raise Me Up, eftir Rolf Lövland. „Það eru engin slík líkindi milli laganna sem gefa til kynna að You Raise Me Up sé stæling á Söknuði,“ sagði í greinargerð fyrir hönd War- ner Music og Universal Music. „Sérfræðingur hinna stefndu fórnaði trúverðugleika sínum með því að halda fram að lögin líkist ekki og með því að nota gallaða aðferða- fræði,“ segir hins vegar í greinar- gerð lögmanns Jóhanns, Michaels Machat, sem lögð var fram á föstu- dag við dómstól í Los Angeles. Á föstudag var einnig lögð fram greinargerð doktor Judith Finell, tónlistarfræðings og sérfræðings fyrir hönd lögmanns Jóhanns Helga- sonar. Segir þar að líkindin milli Söknuðar og You Raise Me Up séu mikil. Þau séu meiri en milli þess- ara tveggja laga innbyrðis heldur en milli þeirra hvors um sig og eldri tón- smíða sem Ferrara nefnir. Líkt og Ferrara hefur Finell komið sem sérfræðingur að fjölmörgum dómsmálum. Hún var meðal ann- ars sérfræðivitni fyrir fjölskyldu Marvins Gay í tímamótamáli þar sem dæmt var að lagið Blurred Lines væri stuldur á laginu Got to Give It Up eftir Gay. „Dr. Finell segir að tilvist London- derry Air þýði á engan hátt að You Raise Me Up hafi verið samið sjálf- stætt,“ vitnar Machat í niðurstöðu Finells. Þar er vísað til röksemda Ferrara um að bæði Söknuður og You Raise Me Up byggi á írska þjóð- laginu Danny Boy – öðru nafni Londonderry Air. Í greinargerð sinni segir Finell að Ferrara noti annars vegar gríðarlega þrönga skilgreiningu í samanburði á Söknuði og You Raise Me Up en beiti hins vegar miklu víðari skil- greiningu í samanburði á lögunum tveimur við eldri verk. „Þessi mótsögn leiðir lesandann og ályktanirnar að rangri og óáreið- anlegri niðurstöðu,“ segir hún. Lögmenn Universal og Warner hafa krafist frávísunar málsins. Michael Machat segir að þar sem þeir beri hvorki brigður á höfundarrétt Jóhanns að Söknuði né dragi í efa að Rolf Lövland hafi haft aðgang að íslenska laginu snúist málið um líkindi milli laganna. „Sérfræðiskýrsla stefndu er byggð á gallaðri aðferðafræði og skilgrein- ingum sem beitt er á mismunandi veg. Í henni tekst ekki að afsanna hin augljósu líkindi milli Söknuðar og You Raise Me Up,“ segir Machat. Því beri að hafna kröfunni um frávísun. „Ferrara beitir vafasömum rök- semdum vegna þess að honum er borgað fyrir það,“ segir í greinargerð lögmanns Jóhanns. Og um mikla peninga er að tefla því samkvæmt frétt á vefsíðu Universal frá 2016 er You Raise Me Up eitt tekjuhæsta lag allra tíma. gar@frettabladid.is Prófessor sagður tapa trúverðugleika sínum Tónlistarprófessor sem gerði samanburðargreiningu á lögunum Söknuði og You Raise Me Up er sagður hafa fórnað trúverðugleikanum með vinnubrögðun- um. Þetta kemur fram í andsvörum lögmanns Jóhanns Helgasonar fyrir dómi. Málsókn Jóhanns var kynnt í apríl á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Ferrara beitir vafasömum rök- semdum vegna þess að honum er borgað fyrir það. Michael Machat, lögmaður Jóhanns Helgasonar Franska klifuríþróttakonan Svana Bjarnason hefur notið þess að undanförnu að iðka íþrótt sína í bröttu og sprungnu íslensku bergi þar sem víða leynist dýrmætt grip sem getur bjargað glöggum og góðum fjallageitum þegar hvergi virðist hægt hönd að festa. Mánudeginum eyddi hún með fylgdarliði sínu undir hinu formfagra Vestrahorni og tilþrifin minntu helst á sjálfan Sylvester Stallone í Cliff hanger. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 C B -C 4 C 0 2 3 C B -C 3 8 4 2 3 C B -C 2 4 8 2 3 C B -C 1 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.