Fréttablaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 36
ÞAÐ ER ERFITT AÐ VERA SJÓVEIKUR Á BÁTNUM OG ÞURFA AÐ FARA ÚT Í AÐ SYNDA Í ÞVÍ ÁSTANDI. ÉG FÉKK LÍKA OLÍUBRÁK UPP Í MIG Á MEÐAN Á SUNDINU STÓÐ SEM VAR ÓGEÐSLEGT. Birna Bragadóttir prófaði sjósund í fyrsta sinn í apríl 2016, þegar Andr-ea Róbertsdóttir vin-kona hennar lagði til að þær æskuvinkonurnar skelltu sér saman í sjósund í Naut- hólsvíkinni. „Ég náði nú bara að dýfa mér í sjóinn í örskamma stund vegna kulda, enda var ég mjög mikil kuldaskræfa. En það var samt eitt- hvað hressandi við þessa upplifun og ég ákvað að gefa þessu tækifæri. Frá þessum tíma hef ég stundað sjósund reglulega og þá aðallega með Þóreyju Vilhjálmsdóttur úti- vistarvinkonu minni og Marglyttu,“ útskýrir Birna. Æfðu sig í kulda og myrkri innan um marglyttur Það var svo í september ári síðar að Birna synti boðsund yfir Skerja- fjörðinn með góðum hópi kvenna. „Þá kom upp sú hugmynd að það væri skemmtileg áskorun og lífs- markmið að setja saman öf lugt kvennalið til að synda yfir Ermar- sundið. Markmiðið var sett á dag- skrá og ákveðið að nýta sundið til að styðja við umhverfissamtökin Bláa herinn.“ Um langtímamarkmið var þó að ræða enda Ermarsundsleiðin oft kölluð Mount Everest sjósund- fólks, kröfur um hæfni sundfólks eru miklar og áskorunin það vinsæl að bið er eftir að komast að. „Eftir að hafa skoðað báta og lesið umsagnir frá Ermarsundsfólki, varð báturinn Rowena með feðgunum Peter og Peter jr. fyrir valinu og dagsetning negld eftir tvö ár.“ Æfingar hófust svo af fullum krafti síðasta vor þegar liðið sem fékk nafnið Marglytt- urnar var fullmannað. „Við lögðum áherslu á að undirbúa okkur bæði andlega og líkamlega. Við reyndum að búa okkur undir það að synda í öllum aðstæðum og æfðum okkur í miklum öldugangi, kulda, myrkri og syntum með marglyttum.“ Synti áfram axlarbrotin Það er augljóst að Birna lætur ekkert stöðva sig en hún lenti í reiðhjóla- slysi síðastliðið vor og axlarbrotn- aði sem setti strik í reikninginn enda segir hún meiðslin ekki aðeins hafa haft áhrif á æfingatímabilið heldur einnig sjálfstraustið. „Ég ákvað þó að reyna að vinna í kring- um það og halda kuldaþolinu við með því að synda með blöðkum og öðrum hjálpartækjum sem gerðu mér kleift að synda í sjónum án þess að nota öxlina. Ég var því ótrú- lega ánægð þegar ég gat farið að synda skriðsund á ný í lok júlí og er nokkuð viss um að sjósundið hafið hjálpað mikið til með batann.“ Veðrið breyttist hratt á sundinu Hópurinn var með bátinn Rowena á leigu dagana 4. til 10. september og beið veðurs í hafnarborginni Dover. Biðin varð töluverð sem reyndi á taugarnar og svo fór að þær syntu af stað að morgni 10. septem- ber, síðasta mögulega daginn. „Það reyndi á þolinmæðina að bíða og var stressandi þar sem maður veit vel að veðrið getur breyst mjög hratt á þessari siglingaleið. Það gerðist á sundinu okkar. Við lögðum af stað í frábæru veðri. Þegar líða tók á sund- ið og við nálguðumst Frakkland fór að hvessa og öldugangurinn varð mjög mikill, sem gerði sundið enn erfiðara, auk þess sem við urðum flestar sjóveikar bæði í bátnum og á sundi.“ Sjóveikin helsta áskorunin Birna segist ekki neita því að sundið hafi verið erfitt. „Straumarnir voru gríðarlega sterkir og við gáfum allt okkar í þetta.“ Boðsundið gengur þannig fyrir sig að hver sundkona syndir eina klukkustund í einu en það hlýtur að reyna á andlegu hliðina jafnt sem líkamlegu að vera einn í sjónum í svo langan tíma í erfiðum aðstæðum. „Ég lagði mig fram við að hugsa jákvæðar og uppbyggilegar hugsanir. Ég átti líka góða stund með sjálfri mér á sundi þegar ég var með einstakt útsýni á hvítu klettana við Dover. Á köflum var tíminn samt lengi að líða. Svo komst maður í gott f læði, náði að Birna um borð í bátnum Rowena sem hún pantaði ásamt skip- stjóra fyrir tveimur árum. Á meðan sundkonurnar biðu vegna veðurs í Dover nýttu þær tíma til æfinga í sjónum. Hér er Birna ásamt þeim Þóreyju og Sigrúnu. Marglytturnar, sundkonur og skipuleggjendur í miðbæ Folkstone: Gréta, Sigurlaug, Sigrún, Birna, Þórey, Soffía, Brynhildur og Halldóra. Syntu í gegnum grafreit draumanna Birna Bragadóttir var mikil kuldaskræfa þegar hún prófaði sjósund 2016. Ári síðar myndaði hún kvennahóp til að synda yfir Ermarsundið og það tókst þegar hún synti 34 kílómetra boðsund frá Englandi til Frakklands ásamt fimm öðrum konum. gleyma sér og láta hugann reika. Hvatning Marglyttnana og fylgdar- fólks um borð í bátnum skipti líka miklu. Þótt maður heyri ekkert í þeim var gott að ná augnsambandi og finna samstöðuna. Gréta Ing- þórsdóttir stóð vaktina allan tím- ann með spjöld sem sýndi okkur hvernig tímanum leið. Það var líka einstakt fyrir okkur að finna þessa jákvæðu og góðu strauma frá öllum þeim sem fylgdust með hérna heima.“ Birna segir sjóveikina hafa verið helstu áskorunina. „Það er erfitt að vera sjóveikur á bátnum og þurfa að fara út í að synda í því ástandi. Ég fékk líka olíubrák upp í mig á meðan á sundinu stóð sem var ógeðslegt.“ Aðstæður mjög erfiðar Eftir 15 klukkustunda sund var markmiðinu náð, þegar Halldóra Gyða náði landi í Cap Gris í Frakk- landi og segir Birna það hafa verið tilfinningaríka stund. „Ég er samt enn að meðtaka það að við höfum í alvörunni gert þetta og náð því að synda yfir Ermarsundið. Biðin eftir að komast af stað var svo löng að við vorum í fyrsta lagi gríðar- lega ánægðar með að fá að reyna við sundið, hvað þá að ná að klára það. Aðstæður voru orðnar mjög erfiðar þegar leið á seinni hlutann, sjórinn úfinn og öldugangur mikill á erfiðasta svæði sundsins sem kall- ast „grafreitur draumanna“ þar sem flest sundfólk sem ekki nær að klára sundið þarf að hætta. Það var því gríðarlegur sigur að komast út úr straumnum sem þar er. Þegar okkur hafði tekist það vissum við að við myndum klára þetta. Samvinna, þrautseigja, samkennd og öflugur liðsandi Marglyttna og stuðnings- liðs kom okkur yfir Ermarsundið.“ Eiga eftir að fagna Aðspurð hvernig þær hafi fagnað segir Birna þær hafa gert heiðar- lega tilraun til að skála á heimleið í bátnum en eftir sundið tók strax við tveggja og hálfs tíma bátsferð aftur til Englands. „Það gekk ekkert allt- of vel. Það var svo vont í sjóinn og okkur var öllum mjög óglatt.“ Þegar landi var náð á Englandi fór hópur- inn beint upp í rútu á f lugvöllinn til að ná flugi heim til Íslands. „Við komum því með sjávarseltuna og þarann úr Ermarsundinu heim,“ segir Birna hlæjandi en bætir við að þær muni fljótlega gera aðra tilraun til að fagna saman og skála enda þakklátar og stoltar af afrekinu. bjork@frettabladid.is 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 C B -E 7 5 0 2 3 C B -E 6 1 4 2 3 C B -E 4 D 8 2 3 C B -E 3 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.