Fréttablaðið - 18.09.2019, Qupperneq 36
ÞAÐ ER ERFITT AÐ
VERA SJÓVEIKUR Á
BÁTNUM OG ÞURFA AÐ FARA ÚT
Í AÐ SYNDA Í ÞVÍ ÁSTANDI. ÉG
FÉKK LÍKA OLÍUBRÁK UPP Í MIG
Á MEÐAN Á SUNDINU STÓÐ SEM
VAR ÓGEÐSLEGT.
Birna Bragadóttir prófaði sjósund í fyrsta sinn í apríl 2016, þegar Andr-ea Róbertsdóttir vin-kona hennar lagði til að þær æskuvinkonurnar
skelltu sér saman í sjósund í Naut-
hólsvíkinni. „Ég náði nú bara að
dýfa mér í sjóinn í örskamma stund
vegna kulda, enda var ég mjög mikil
kuldaskræfa. En það var samt eitt-
hvað hressandi við þessa upplifun
og ég ákvað að gefa þessu tækifæri.
Frá þessum tíma hef ég stundað
sjósund reglulega og þá aðallega
með Þóreyju Vilhjálmsdóttur úti-
vistarvinkonu minni og Marglyttu,“
útskýrir Birna.
Æfðu sig í kulda og myrkri
innan um marglyttur
Það var svo í september ári síðar
að Birna synti boðsund yfir Skerja-
fjörðinn með góðum hópi kvenna.
„Þá kom upp sú hugmynd að það
væri skemmtileg áskorun og lífs-
markmið að setja saman öf lugt
kvennalið til að synda yfir Ermar-
sundið. Markmiðið var sett á dag-
skrá og ákveðið að nýta sundið til að
styðja við umhverfissamtökin Bláa
herinn.“ Um langtímamarkmið var
þó að ræða enda Ermarsundsleiðin
oft kölluð Mount Everest sjósund-
fólks, kröfur um hæfni sundfólks
eru miklar og áskorunin það vinsæl
að bið er eftir að komast að. „Eftir að
hafa skoðað báta og lesið umsagnir
frá Ermarsundsfólki, varð báturinn
Rowena með feðgunum Peter og
Peter jr. fyrir valinu og dagsetning
negld eftir tvö ár.“ Æfingar hófust
svo af fullum krafti síðasta vor þegar
liðið sem fékk nafnið Marglytt-
urnar var fullmannað. „Við lögðum
áherslu á að undirbúa okkur bæði
andlega og líkamlega. Við reyndum
að búa okkur undir það að synda í
öllum aðstæðum og æfðum okkur í
miklum öldugangi, kulda, myrkri og
syntum með marglyttum.“
Synti áfram axlarbrotin
Það er augljóst að Birna lætur ekkert
stöðva sig en hún lenti í reiðhjóla-
slysi síðastliðið vor og axlarbrotn-
aði sem setti strik í reikninginn
enda segir hún meiðslin ekki aðeins
hafa haft áhrif á æfingatímabilið
heldur einnig sjálfstraustið. „Ég
ákvað þó að reyna að vinna í kring-
um það og halda kuldaþolinu við
með því að synda með blöðkum og
öðrum hjálpartækjum sem gerðu
mér kleift að synda í sjónum án
þess að nota öxlina. Ég var því ótrú-
lega ánægð þegar ég gat farið að
synda skriðsund á ný í lok júlí og er
nokkuð viss um að sjósundið hafið
hjálpað mikið til með batann.“
Veðrið breyttist hratt á sundinu
Hópurinn var með bátinn Rowena
á leigu dagana 4. til 10. september
og beið veðurs í hafnarborginni
Dover. Biðin varð töluverð sem
reyndi á taugarnar og svo fór að þær
syntu af stað að morgni 10. septem-
ber, síðasta mögulega daginn. „Það
reyndi á þolinmæðina að bíða og
var stressandi þar sem maður veit
vel að veðrið getur breyst mjög hratt
á þessari siglingaleið. Það gerðist á
sundinu okkar. Við lögðum af stað í
frábæru veðri. Þegar líða tók á sund-
ið og við nálguðumst Frakkland fór
að hvessa og öldugangurinn varð
mjög mikill, sem gerði sundið enn
erfiðara, auk þess sem við urðum
flestar sjóveikar bæði í bátnum og
á sundi.“
Sjóveikin helsta áskorunin
Birna segist ekki neita því að sundið
hafi verið erfitt. „Straumarnir voru
gríðarlega sterkir og við gáfum allt
okkar í þetta.“ Boðsundið gengur
þannig fyrir sig að hver sundkona
syndir eina klukkustund í einu
en það hlýtur að reyna á andlegu
hliðina jafnt sem líkamlegu að vera
einn í sjónum í svo langan tíma í
erfiðum aðstæðum. „Ég lagði mig
fram við að hugsa jákvæðar og
uppbyggilegar hugsanir. Ég átti líka
góða stund með sjálfri mér á sundi
þegar ég var með einstakt útsýni á
hvítu klettana við Dover. Á köflum
var tíminn samt lengi að líða. Svo
komst maður í gott f læði, náði að
Birna um
borð í bátnum
Rowena sem
hún pantaði
ásamt skip-
stjóra fyrir
tveimur árum.
Á meðan sundkonurnar biðu vegna
veðurs í Dover nýttu þær tíma til
æfinga í sjónum. Hér er Birna ásamt
þeim Þóreyju og Sigrúnu.
Marglytturnar, sundkonur og skipuleggjendur í miðbæ Folkstone: Gréta,
Sigurlaug, Sigrún, Birna, Þórey, Soffía, Brynhildur og Halldóra.
Syntu í
gegnum
grafreit
draumanna
Birna Bragadóttir var mikil kuldaskræfa
þegar hún prófaði sjósund 2016. Ári síðar
myndaði hún kvennahóp til að synda
yfir Ermarsundið og það tókst þegar hún
synti 34 kílómetra boðsund frá Englandi til
Frakklands ásamt fimm öðrum konum.
gleyma sér og láta hugann reika.
Hvatning Marglyttnana og fylgdar-
fólks um borð í bátnum skipti líka
miklu. Þótt maður heyri ekkert í
þeim var gott að ná augnsambandi
og finna samstöðuna. Gréta Ing-
þórsdóttir stóð vaktina allan tím-
ann með spjöld sem sýndi okkur
hvernig tímanum leið. Það var
líka einstakt fyrir okkur að finna
þessa jákvæðu og góðu strauma frá
öllum þeim sem fylgdust með hérna
heima.“ Birna segir sjóveikina hafa
verið helstu áskorunina. „Það er
erfitt að vera sjóveikur á bátnum
og þurfa að fara út í að synda í því
ástandi. Ég fékk líka olíubrák upp í
mig á meðan á sundinu stóð sem var
ógeðslegt.“
Aðstæður mjög erfiðar
Eftir 15 klukkustunda sund var
markmiðinu náð, þegar Halldóra
Gyða náði landi í Cap Gris í Frakk-
landi og segir Birna það hafa verið
tilfinningaríka stund. „Ég er samt
enn að meðtaka það að við höfum
í alvörunni gert þetta og náð því
að synda yfir Ermarsundið. Biðin
eftir að komast af stað var svo löng
að við vorum í fyrsta lagi gríðar-
lega ánægðar með að fá að reyna
við sundið, hvað þá að ná að klára
það. Aðstæður voru orðnar mjög
erfiðar þegar leið á seinni hlutann,
sjórinn úfinn og öldugangur mikill
á erfiðasta svæði sundsins sem kall-
ast „grafreitur draumanna“ þar sem
flest sundfólk sem ekki nær að klára
sundið þarf að hætta. Það var því
gríðarlegur sigur að komast út úr
straumnum sem þar er. Þegar okkur
hafði tekist það vissum við að við
myndum klára þetta. Samvinna,
þrautseigja, samkennd og öflugur
liðsandi Marglyttna og stuðnings-
liðs kom okkur yfir Ermarsundið.“
Eiga eftir að fagna
Aðspurð hvernig þær hafi fagnað
segir Birna þær hafa gert heiðar-
lega tilraun til að skála á heimleið í
bátnum en eftir sundið tók strax við
tveggja og hálfs tíma bátsferð aftur
til Englands. „Það gekk ekkert allt-
of vel. Það var svo vont í sjóinn og
okkur var öllum mjög óglatt.“ Þegar
landi var náð á Englandi fór hópur-
inn beint upp í rútu á f lugvöllinn
til að ná flugi heim til Íslands. „Við
komum því með sjávarseltuna og
þarann úr Ermarsundinu heim,“
segir Birna hlæjandi en bætir við að
þær muni fljótlega gera aðra tilraun
til að fagna saman og skála enda
þakklátar og stoltar af afrekinu.
bjork@frettabladid.is
1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
1
8
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
C
B
-E
7
5
0
2
3
C
B
-E
6
1
4
2
3
C
B
-E
4
D
8
2
3
C
B
-E
3
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K