Fréttablaðið - 18.09.2019, Page 10
Um leið og ég fór að
hlaupa leið mér
ömurlega daginn eftir. Eftir
þennan mánuð tóku við
tveir mánuðir þar sem ég var
alltaf að prófa að æfa en
varð alveg ónýtur í nokkra
daga á eftir.
1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
að spila aftur fótboltaleik var ótrú-
lega stór sigur fyrir mig á þessum
tíma.
Síðan þá hef ég verið að spila
þótt ég hefði viljað spila betur oft
á tíðum en síðustu leikir hafa verið
fínir og ég er mjög ánægður.“
Vildi taka næsta skref
Skúli er hluti af mögnuðum árgangi
KR sem vann f lest mót í yngri
f lokkum. Hann kom snemma inn
í KR-liðið, eða fyrir 14 árum. Þá
spilaði hann tvo leiki enda rétt
nýfermdur en var nánast orðinn
fastamaður tveimur árum síðar.
Eftir ótrúlegt ár 2011, þar sem KR
fagnaði titlinum, gekk hann í raðir
Elfsborg í Svíþjóð og kom svo heim
í Vesturbæinn árið 2015 þar sem
hann hann hefur spilað síðan. Alls
hefur hann leikið 241 leik fyrir KR
og skorað átta mörk. Þá eru lands-
leikirnir fjórir og yngri landsleik-
irnir hartnær þrjátíu.
Hann er aðeins 31 árs og gengur
nú burt úr félagi sínu sem Íslands-
meistari. „Ég spilaði lengi hérna
heima og ég ætlaði aldrei að spila
fyrir neitt annað félag en KR. Ég tók
þessa ákvörðun um að setja skóna
upp í hillu þannig að þegar ég kom
heim 2015 ætlaði ég að stoppa í
eitt ár og fara þá aftur út í atvinnu-
mennsku.
Ég sá ekki fram á að fara að spila
hérna í einhver tíu ár í viðbót.
Fannst eins og ég þyrfti að breyta til
í lífinu og gera eitthvað annað. Taka
næsta skref. Það var aðdragandinn.
Það hefur reyndar ekkert hjálpað
til að mér hefur aldrei fundist jafn
gaman og núna í sumar. Úrslitin,
strákarnir í liðinu og þjálfarateymið
– það er gaman að vera í kringum
klúbbinn núna.
Þetta var erfið ákvörðun en samt
er ég ótrúlega sáttur við hana.“
Rúnar kom með ró
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR,
hefur náð ótrúlegum árangri með
KR-liðið frá því hann snerti fyrst á
þjálfun hér heima. Sex titlar á sex
árum og það var einhvern veginn
nánast vitað að KR myndi gera
atlögu að titlinum fyrir sumarið
með Rúnar í brúnni. Enda ber Skúli
Jón honum góða söguna.
„Hann hefur, eins og f lestir vita,
gríðarlegt vit á knattspyrnu. Hann
er góður fótboltaþjálfari en það sem
gerir hann sérstakan er hvað hann
er auðmjúkur og góð manneskja.
Hann fær alla til að vinna fyrir sig
því hann sýnir leikmönnum traust.
Hann vinnur þetta vel með öllum
einstaklingum og er góður vinur
strákanna í liðinu og styður það
sem þeir eru að gera. Hann hjálpar
þeim líka utanvallar og það held ég
gefi þetta litla extra sem gerir það
að verkum að menn eru tilbúnir að
fórna sér fyrir hann.“
KR-ingar fögnuðu vel og lengi á
Valsvelli á mánudag og skelltu sér
svo yfir í sitt eigið félagsheimili
þar sem leikmenn, velunnarar og
sjálf boðaliðar hittust og áttu gleði-
stund. Nokkrir fóru svo á Gumma
Ben sportbarinn til að mála bæinn
svarthvítan.
„Þessi hópur, sem er núna hér í
KR hefur orðið til undanfarin tvö
til þrjú árin. Við héldum nánast
öllum frá því í fyrra og þeir sem
komu smellpassa inn í liðið og hóp-
inn. Það er búið að búa til hóp af
mönnum sem eru góðir vinir og róa
í sömu átt. Flestir eru á svipuðum
aldri og á svipuðum stað í lífinu og
vita út á hvað þetta gengur.
Það er búið að vera of boðslega
gaman í langan tíma en þegar úrslit-
in detta inn og það fer að ganga vel
þá kemur allur klúbburinn með.
Þjálfarateymið núna er frábært
og þetta verður bara betra. Það
kom stöðugleiki með Rúnari og
hann Bjarni og Stjáni eru búnir að
búa eitthvað til sem virkar. Þegar
það er þannig þá sé ég ekki annað
í kortunum en að það sé bjart fram
undan.“ benediktboas@frettabladid.is
SPORT
FÓTBOLTI „Það var ekkert annað
í stöðunni, þegar ég tók þessa
ákvörðun um að hætta, en að enda
tímabilið með titli. Það yrði auð-
veldari sigling inn í framtíðina með
það á bakinu. Af mörgum ánægð-
um í liðinu þá er ég einn af þeim
ánægðustu. Þetta var mér mikil-
vægt,“ segir Skúli Jón Friðgeirsson
leikmaður Íslandsmeistara KR.
Fari svo að Skúli spili síðustu tvo
leiki KR í deildinni mun hann spila
alls 243 leiki með KR á sínum ferli
því skórnir eru komnir upp í hillu.
Hann er 31 árs og er sestur á skóla-
bekk í Stokkhólmsháskóla og ætlar
að klára mastersnám í markaðs-
fræði. „Ég byrjaði þar fyrir tveimur
vikum og fór út eftir leikinn við ÍA
og er búinn að vera þar síðan. Kom
til landsins aftur síðastliðinn föstu-
daginn. Rúnar var svo almennilegur
að gefa mér færi á því og svo fer ég
eftir síðasta leikinn alfarið til Sví-
þjóðar.
Kærastan mín, Jennifer, er sænsk
og þetta var ákvörðun hjá okkur.
Við vildum breyta til og mig lang-
aði að fara í nám og þetta einhvern
veginn passaði.
Hún er fyrirsæta og það er betra
fyrir hana að vera þar en hér á
Íslandi. Hún vann ekkert á Íslandi
og vinnur þannig lagað lítið í Sví-
þjóð en það eru betri tengingar
til þeirra staða sem hún þarf að
komast til upp á sína vinnu. Þetta
gat verið smá vesen fyrir hana að
komast á staðina.“
Grét gleðitárum í Krikanum
Skúli kom inn í lið KR þann 23. júní í
sigurleik gegn FH á Kaplakrikavelli.
Þá hafði hann verið frá æfingum og
keppni í hartnær þrjá mánuði vegna
höfuðhöggs.
„Það var algjört slys á æfingu.
Ég og Arnór Sveinn hlupum á hvor
annan á fullri ferð. Sáum ekki hvor
annan og vorum meira að segja
saman í liði á æfingunni. Skullum
alveg svakalega saman og ég dett
alveg út og var alveg frá í smá stund.
Ég fékk mjög alvarlegan heilahrist-
ing sem ég var að fást við í hartnær
þrjá mánuði.“
Skúli segist hafa verið slæmur af
verkjum í mánuð og gat lítið hreyft
sig. „Um leið og ég fór að hlaupa leið
mér ömurlega daginn eftir. Eftir
þennan mánuð tóku við tveir mán-
uðir þar sem ég var alltaf að prófa
að æfa en varð alveg ónýtur í nokkra
daga á eftir. Svo prófaði ég aftur og
það var sama sagan. Þannig gekk
þetta í tvo mánuði þangað til að allt
í einu gekk þetta.
Ég var í sambandi við lækna og
þetta var það sem þeir mæltu með.
Ég var náttúrulega bara að skokka
og þurfti að trappa mig vel upp
þegar ég byrjaði. Þetta var erfitt,
bæði af því ég vissi að þetta yrði
síðasta tímabilið mitt og einnig af
því að þetta var ekki alveg eins og
ég hafði séð mitt síðasta tímabil
fyrir mér.“
Hann segist hafa óttast það
versta á tímabili. Hvort líf hans
yrði þjakað af höfuðverk og hreyf-
ingarleysi. „Þetta var erfiður tími
og mánuðirnir langir þannig að
þegar ég komst loksins aftur af
stað og spilaði fyrsta leikinn minn
á móti FH í Kaplakrika þá gekk ég
út af, inn í klefa og brotnaði algjör-
lega niður. Það er langt síðan ég hef
grátið svona. En þetta voru gleðitár.
Mér var svo létt að þetta væri
ekki, eins og ég var orðinn hræddur
um, að ferillinn væri búinn. Að ná
Sigraði jafnt innan vallar sem utan
Skúli Jón Friðgeirsson, leikmaður KR, var manna ánægðastur á Valsvelli þar sem KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Skúli
glímdi við afleiðingar höfuðhöggs í byrjun tímabils og brotnaði niður og grét gleðitárum eftir að hafa spilað fyrsta leikinn í sumar.
Skúli kom inn í lið KR þann 23. júní í sigurleik gegn FH á Kaplakrikavelli. Þá hafði hann verið frá æfingum og keppni í hartnær þrjá mánuði vegna höfuð-
höggs. Hann sest á skólabekk til að leggja stund á meistaranám í markaðsfræði eftir tímabilið í Svíþjóð og skórnir fara því upp í hillu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Skúli ásamt kærustu sinni Jennifer Berg.
1
8
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
C
B
-D
3
9
0
2
3
C
B
-D
2
5
4
2
3
C
B
-D
1
1
8
2
3
C
B
-C
F
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K