Fréttablaðið - 18.09.2019, Síða 24
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Íslenska fjártæknifyrirtækið indó mun á næsta ári bjóða Íslendingum upp á veltu-reikninga sem verða að fullu tryggðir með ríkisskulda-bréfum og innistæðum í
Seðlabankanum. Vinnur indó þessa
dagana að því að sækja um leyfi
fyrir viðskiptabankastarfsemi og er
vonast til þess að starfsemin verði
komin á skrið á fyrri hluta næsta
árs. Fyrirtækið hefur lokið tveimur
umferðum af fjármögnun og stefnir
að því að ljúka þeirri síðustu þegar
starfsleyfið er í höfn.
„Hugmyndin snýst um valdef l-
ingu viðskiptavina. Þú færð launin
þín inn á bankareikning og átt að
hafa heilmikið um það að segja
hvernig þeim er ráðstafað. Þá ætti til
dæmis ekki að nota hann til að fjár-
magna eitthvað sem þér er á móti
skapi,“ segir Haukur Skúlason, sem
stofnaði indó ásamt Tryggva Birni
Davíðssyni en þeir hafa báðir víð-
tæka reynslu úr fjármálageiranum.
Mun indó bjóða upp á veltu-
reikninga sem hægt er að tengja
við debetkort og verður þjónustan
alfarið á snjallsímaforriti. Ólíkt
hefðbundinni bankastar fsemi
verða innistæður viðskiptavina
indó ekki lánaðar út nema til ríkis-
ins. Þannig verða öll innlán hjá indó
lögð inn á reikning hjá Seðlabank-
anum eða þau verða fjárfest í ríkis-
skuldabréfum. Undirbúningsvinna
að verkefninu hófst fyrir um einu og
hálfu ári. Að sögn Hauks og Tryggva
er slíkt algert nýnæmi í bankastarf-
semi þar sem innlánseigendur geta
í fyrsta skipti treyst því að innlán
þeirra séu algerlega örugg óháð
fjárhæð, og eins munu þeir vita
nákvæmlega hvar peningar þeirra
eru á hverjum tíma.
„Við höfðum báðir fundið fyrir
togstreitunni sem er á milli deilda
í bönkum og þeim áskorunum sem
fylgja aukinni samkeppni, tækni-
breytingum og regluverkinu. Við
settumst niður til að greina banka-
starfsemina eins og hún leggur sig
og veltum fyrir okkur hvort hægt
væri að vera banki án þess að bjóða
upp á alla þá þjónustu sem bankar
í dag bjóða upp á með öllum þeim
kostnaði sem því fylgir,“ segir
Tryggvi. Á endanum ákváðu þeir
að fara inn á veltuinnlánamarkað-
inn með nýja og einfaldari nálgun.
indó gekk frá fyrstu fjármögnun-
Undirbúa innreið á bankamarkaðinn
Fjártæknifyrirtækið indó vinnur að umsókn um leyfi fyrir viðskiptabankastarfsemi. Fyrirtækið hyggst bjóða innlán sem eru
tryggð að fullu með ríkisskuldabréfum og alfarið stafræna þjónustu. Stofnendurnir með víðtæka reynslu úr fjármálageiranum.
arumferð haustið 2018 og hóf í kjöl-
farið að byggja upp teymi í kringum
verkefnið.
„Fram að því höfðum við verið
í bílskúrum, fundarherbergjum á
Þjóðarbókhlöðunni og ótal kaffi-
húsum bæjarins að vinna að stofn-
un fyrirtækisins,“ segir Tryggvi. Þá
var gengið frá annarri fjármögnun-
arumferð í ágúst og stefnt er að síð-
ustu umferðinni eftir að starfsleyfið
er komið í hús.
Haukur segir að starfsemi indó
muni einnig skera sig frá stóru
íslensku bönkunum með því að búa
til samfélag í kringum þjónustuna.
„Við ætlum að feta í fótspor erlendra
banka á borð við Monzo með því
að hanna þjónustuna þannig að
hún hvetji til jákvæðrar hegðunar
og markmiðasetningar, hvort sem
það er í fjármálum eða á öðrum
sviðum lífsins,“ segir Haukur og
tekur dæmi.
„Segjum sem svo að þú ætlir að
byrja í ræktinni og mæta tvisvar í
viku, þá gætirðu sett þér markmið
í gegnum appið og ef þú nærð þeim
standa þér fríðindi til boða. Þannig
er hægt að stuðla að jákvæðri hegð-
Við höfðum báðir
fundið fyrir tog-
streitunni sem er á milli
deilda í bönkum og þeim
áskorunum sem fylgja
aukinni samkeppni, tækni-
breytingum og regluverkinu.
Tryggvi Björn Davíðsson,
annar stofnenda indó
Alltaf til taks
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Algjörlega
hnökralaust
Vodafone hentar mínum rekstri
best. Þau hafa þjónustað okkur
með allt sem þarf, algjörlega
hnökralaust.
un og að því að viðskiptavinum
finnist þeir tilheyra samfélagi.“
Hvenær verður starfsemin komin
á fullt skrið?
Haukur: „Það eru margir þættir
sem spila þar inn í og þeir eru ekki
allir á okkar valdi. Við erum búin að
teikna upp alla kerfisinnviðina og
vel á veg komin með að ljúka smíði
þeirra, og erum núna að vinna
að því að ganga frá umsókn um
starfsleyfi til Fjármálaeftirlitsins. Í
kjölfarið hefst samtal við eftirlits-
stofnanir um hvernig reksturinn
geti uppfyllt öll skilyrði. Þegar það
er frágengið munum við byrja á því
að veita þjónustuna til prufuhópa
þannig að við getum stýrt aðgeng-
inu og fjölda notenda. Við erum nú
þegar að taka á móti skráningum í
prufuhóp á heimasíðu okkar. Ef allt
gengur vel þá sjáum við fram á að
starfsemin verði komin á fullt skrið
á fyrri hluta næsta árs.“
Munuð þið einblína á íslenska
markaðinn?
Haukur: „Við horfum fyrst og
fremst á markaðinn á Íslandi og
einskorðum starfsemi fyrirtækis-
ins við hann. En seinna meir, ef
nálgunin hér á landi gengur vel,
munum við skoða það að hefja
starfsemi í öðrum Evrópulöndum
þar sem regluverkið er svipað. En ef
við förum með viðskiptamódelið út
fyrir landsteinana verður starfsem-
in þar aðskilin frá starfseminni hér
heima. Kjarninn í rekstrarmódelinu
er að peningarnir séu alltaf öruggir
og að hlutirnir séu framkvæmdir
með einföldum og gegnsæjum
hætti.“
Það hljóta að felast ýmsar áskor-
anir í því að hefja viðskiptabanka-
starfsemi, ekki satt?
Tryggvi: „Stærsta áskorunin, og
sú sem hefur verið skemmtilegast að
yfirstíga, var sú að hlusta ekki á þá
sem sögðu að þetta væri ekki hægt.
En þetta er víst hægt, við erum að
framkvæma hugmyndina og það
hefur skipt sköpum að vera hluti af
teymi sem hefur sama hugarfar.“
Með víðtæka reynslu úr fjármálum og tækni
Báðir stofnendur indó hafa
starfað á fjármálamarkaði um
langt skeið. Haukur starfaði í tíu
ár hjá Íslandsbanka þar sem hann
var m.a. forstöðumaður framtaks-
fjárfestinga og forstöðumaður
greiningar og stefnumótunar á
viðskiptabankasviði. Tryggvi Björn
var framkvæmdastjóri Markaða
hjá Íslandsbanka á árunum 2011 til
2017 en fyrir það starfaði hann hjá
Barclays Capital í London við að
byggja upp skuldabréfafjárfest-
ingasvið breska bankans.
„Fjártæknin hefur að mestu
leyti verið til hliðar og feimin við
það að fara inn í eftirlitsskyldan
rekstur. Við komum báðir úr eftir-
litsskyldum rekstri og okkar sýn
er sú að til þess að fjártækni geti
haft raunveruleg áhrif þá þurfi að
fara alla leið,“ segir Tryggvi.
Starfsmenn indó eru sex talsins
að stofnendunum meðtöldum.
Þeir sem vinna að hugbúnaðar-
þróun fyrirtækisins hafa meðal
annars starfað hjá Plain Vanilla,
Reiknistofu bankanna og upp-
byggingu á tölvukerfum WOW air.
„Í bankastarfsemi þarf þekking
á ólíkum sviðum að koma saman.
Það þarf þekkingu á regluum-
hverfinu, fjármálamörkuðum,
kerfisinnviðum og markaðs-
setningu svo dæmi séu tekin,“
segir Tryggvi.
Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson hafa þekkst frá því í grunnskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
1
8
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
C
B
-F
6
2
0
2
3
C
B
-F
4
E
4
2
3
C
B
-F
3
A
8
2
3
C
B
-F
2
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K