Fréttablaðið - 18.09.2019, Page 26

Fréttablaðið - 18.09.2019, Page 26
Skotsilfur Stefna þýskra stjórnvalda í loftslagsmálum kostar tugi milljarða evra Útblástur stígur upp úr kæliturnum þýsks orkuvers sem knúið er af brúnkolum. Víðtæk stefna þýskra stjórnvalda sem ætlað er að draga verulega úr losun kolefnis gæti kostað 40 milljarða evra, jafnvirði 5.480 milljarða íslenskra króna, á næstu fjórum árum. NORDICPHOTOS/GETTY Katrín Olga Jóhannesdóttir formaður Viðskiptaráðs Agla Eir Vil- hjálmsdóttir sérfræðingur á lögfræðisviði Viðskiptaráðs Í litlu og opnu hagkerfi eins og á Íslandi skiptir virk sam-keppni miklu máli. Hún er drifkraftur framleiðnivaxtar og verðmætasköpunar í þjóð-félaginu, sem um leið eykur almenna velsæld. Við erum öll sam- mála um að reglur sem koma í veg fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu og mismunun á markaði, t.d. vegna opinberra afskipta, eru því af hinu góða. Á sama tíma er þó mikil- vægt að stjórnvöld tryggi að ekki sé gengið of langt í slíkri reglusetningu og að íslensk fyrirtæki verði ekki undir í alþjóðlegri samkeppni vegna þeirrar framkvæmdar samkeppnis- yfirvalda sem tíðkast hér á landi. Breytingar á samkeppnislögum og bætt framkvæmd þeirra hafa lengi verið til umræðu. Slíkt tal er ekki að undra þar sem samkeppnislöggjöfin og framkvæmd samkeppnismála hérlendis er strangari en á Norður- löndunum og í Evrópu. Það getur rýrt samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja, sem bitnar ekki aðeins á viðskiptalífinu, heldur einnig á neytendum. Viðskiptaráð Íslands fer yfir stöðu samkeppnismála í nýrri Skoðun sinni, þar sem þessi atriði eru tekin fyrir. Ósamkeppnishæf löggjöf Fyrirtæki hafa til dæmis gagnrýnt málsmeðferðartíma Samkeppniseft- irlitsins, þar sem þeim hefur reynst erfitt að sjá fyrir með einhverri vissu hvenær niðurstaða eftirlitsins berst. Málsmeðferð hjá SKE hefur oft á tíðum tekið bagalega langan tíma, jafnvel fjölda ára, með tilheyrandi tjóni fyrir fyrirtæki. Mikill tími eftir- litsins fer í að sinna samrunamálum, en þau njóta lögbundins forgangs hjá eftirlitinu. Samkeppniseftir- litið varði til að mynda 40% af tíma sínum í samrunamál árið 2018. Á sama tíma hafa veltuviðmið fyrir tilkynningarskylda samruna, sem segja til um hvaða mál SKE verður að skoða, haldist óbreytt frá 2008. Síðan þá hefur verðlag hækkað og hagkerfið stækkað með auknum efnahagsumsvifum. Veltuviðmiðin hafa því í raun lækkað um nær helming án þess að tekin hafi verið ákvörðun um það. Þannig er sífellt meiri tíma eftirlitsins varið í sam- runamál. Sé litið til annarra Evrópulanda er ljóst að veltuviðmið eru endurskoð- uð með reglulegu millibili og upp- færð með tilliti til verðbólgu en einn- ig stækkun hagkerfisins sem birtist í stækkun markaða og auknum við- skiptum. Hækkun þessara viðmiða myndi draga úr áherslu á smærri samrunamál og gæti þannig stytt málsmeðferðartíma, öllum aðilum til hagsbóta. Ekki síst Samkeppnis- eftirlitinu sjálfu sem hefði þá aukið svigrúm til að sinna öðrum málum. Úrbóta er þörf Samkeppniseftirlitið hefur þar að auki heimild til að grípa inn í lögmætan rekstur fyrirtækis og krefjast breytinga á skipulagi þess og rekstri, án þess að viðkomandi fyrirtæki hafi gerst brotlegt við samkeppnislög. Heimild þessi hefur verið harðlega gagnrýnd og hafa sérfræðingar í samkeppnis- rétti dregið í efa að hún standist stjórnarskrárvarinn eignarrétt. Samkeppnisreglur sem stuðla að virkri samkeppni eru af hinu góða. Kröfur og gagnrýni viðskiptalífsins snúast ekki um það að fá að starfa án eftirlits eða utan laga. Því fer fjarri og slíkt væri engum til hags- bóta. Gagnrýnin snýst um það að heimildir Samkeppniseftirlitsins ganga lengra en víðast hvar í Evrópu og lengra en þörf krefur. Ef íslensk fyrirtæki eiga að vera samkeppnis- hæf á alþjóðamarkaði verður að bæta úr því. Um leið og gagnrýnis- raddir heyrast um vinnubrögð SKE birtast gjarnan harðorðir pistlar frá forstjóra eftirlitsins, kostaðir á sam- félagsmiðlum fyrir skattfé almenn- ings. Það er því ekki að undra að atvinnulífið sé tortryggið í garð eftirlits, sem rígheldur með slíkum hætti í óþarflega íþyngjandi heim- ildir. Það er í höndum stjórnvalda að bregðast við og skapa hér sann- gjarnt og samkeppnishæft umhverfi fyrir fyrirtæki til að starfa innan og stofnanir að hafa eftirlit með, í þágu viðskiptalífsins og almenn- ings. Það er því ánægjulegt að sjá að samkeppnislöggjöfin er komin á málefnaskrá Alþingis – og áhugavert verður að fylgjast með viðbrögðum SKE við slíku – mun eftirlitið átta sig á breyttum heimi viðskipta eða ríghalda í forræðishyggju fortíðar? Hvað er að SKE? Útþensla ríkisvaldsins á und-anförnum árum er áfellis-dómur yfir þeim sem haldið hafa um stjórnartaumana. Ríkisút- gjöldin aukast ár frá ári, reglugerðir margfaldast og eftirlitsstofnanir þenjast út. Á sama tíma hafa opin- berir starfsmenn leitt launaþróun á vinnumarkaði. Þegar öllu er á botn- inn hvolft eru þetta helstu mæli- kvarðarnir á árangur þeirra stjórn- málamanna sem tala fyrir öflugu atvinnulífi. Þróunin á síðustu árum vekur óhjákvæmilega spurningar um hvort forysta f lokksins sem talar hvað mest um markaðsfrelsi og minni ríkisafskipti hafi burði til að þess að glíma við stjórnkerfið. Kerfið er hannað til þess að þenj- ast út vegna þess að það grundvall- ast á því að ávinningur dreifist á fáa en kostnaður á marga. Kostnaður- inn við fyrirhugaðar niðurgreiðslur á einkareknum fjölmiðlarekstri mun kannski nema um 1.500 krón- um á hvern landsmann. Það tekur því varla að kynna sér áformin og hvað þá andæfa þeim. Ávinningur- inn fyrir hvern fjölmiðil nemur hins vegar allt að 50 milljónum króna. Kemur því ekki á óvart að sumir fjöl- miðlar hafi notað vettvanginn sem þeir hafa til að mála dökka mynd af stöðu íslenskrar fjölmiðlunar. Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum. Þrýstingurinn kemur úr öllum áttum, bæði frá ríkisstofn- unum og atvinnulífinu. Hönnunar- galli kerfisins leiðir til þess að allir reyna að lifa á kostnað annarra. Því er stærsta pólitíska prófraun þeirra stjórnmálamanna, sem vilja stuðla að öflugu atvinnulífi, sú að spyrna á móti öllum þeim kröftum sem verka í áttina að auknum umsvifum ríkis- ins. Það er heljarinnar prófraun sem krefst staðfestu og leiðtogahæfni. Á síðustu árum hefur enginn staðist þessa prófraun sem er grafalvarlegt í ljósi þess að sífellt erfiðara verður að snúa þróuninni við. En í vonleysinu er ein vonarglæta og hana má finna í Íslandspósti þar sem nýr forstjóri er í meiriháttar til- tekt. Þar hefur 12 prósentum starfs- manna verið sagt upp og óskyldur rekstur settur í sölu. Forstjórinn virðist starfa eftir allt öðrum lög- málum en hinir ríkisforstjórarnir og má ætla að hann hafi fengið skýr tilmæli frá ráðherra um að hagræða í rekstrinum. Líklega voru þau skýr- ari en tilmæli stjórnvalda um launa- kjör æðstu stjórnenda sem stjórnir ríkisfyrirtækja hafa hunsað. Hvort Íslandspóstur verði fordæmi eða einsdæmi á hins vegar eftir að koma í ljós. Vonarglæta í vonleysinu Þorsteinn Friðrik Halldórsson SKOÐUN Efst á lista Ásdís Kristjáns- dóttir, forstöðu- maður efna- hagssviðs SA, var ein af þeim sem sóttu um að stýra fjármála- stöðugleikasviði Seðlabankans. Hún og Ásgeir Jóns- son seðlabankastjóri hafa áður unnið saman, fyrst í greiningar- deild Arion á árunum fyrir og eftir fall bankanna og síðan við gerð skýrslu um framtíð íslenskrar pen- ingastefnu. Ásgeir, sem mun leiða sameiningu Seðlabankans og FME, er líklegur til að vilja fá sér til halds og trausts einhvern í forystu sem hann treystir og þekkir vel til. Átján ár hjá Goldman Gunnar Jakobsson var annað nafn sem birtist á listanum yfir þá sem vilja stýra fjármálastöðugleika- sviði en hann hefur starfað hjá bandaríska fjár- festingarbank- anum Goldman Sachs í meira en 18 ár. Gunnar, sem er ættaður af Vestfjörðum, nam lögfræði við Há- skóla Íslands áður en hann hélt til Bandaríkjanna í MBA-nám við Yale. Eftir útskrift hóf hann starfsnám hjá Goldman og stýrir hann nú sviði lausafjáráhættu hjá bank- anum í London. Áhuginn á starfinu í Seðlabankanum bendir til þess að Gunnar vilji nú snúa aftur heim. Bras með Basko Eftir yfirtöku Skeljungs á Basko lýkur aðkomu framtakssjóðsins Horns III að smásölurekstri fé- lagsins. Horn keypti 80 prósenta hlut í Basko 2016 fyrir um 1,5 milljarða. Söluverðið nú var rétt yfir 300 milljónum og bendir til þess að sjóðurinn hafi ekki komið sérlega vel út úr fjárfestingunni en í millitíðinni hafði félagið einnig selt frá sér verslanir til Samkaupa. Endurskipulagning félagsins kostaði sitt og tapaði Basko milljarði á rekstrarárinu sem lauk í febrúar í fyrra. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, ætti að þekkja smáatriðin enda var hann forstjóri Basko þegar Horn keypti eignar- hlutinn en nú situr hann hinum megin við samningaborðið. 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN 1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 C B -F 1 3 0 2 3 C B -E F F 4 2 3 C B -E E B 8 2 3 C B -E D 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.