Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.09.2019, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 18.09.2019, Qupperneq 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Bjarna Karlssonar BAKÞANKAR 990 KR/KG 1.990 Verð áður: LÍFIÐ ER GOTTERÍ 50% AFSLÁTTUR 990 KR/KG 1.990 Verð áður: Síðustu ár hef ég einkum starfað við sálgæslu meðfram rann-sóknarnámi við HÍ. Erfitt er að segja hvort vinnan eða námið hefur kennt mér meira. Eitt sem ég hef nýlega lært af fólki og tel eiga erindi við almenning er Fjögurra ára reglan. Það sem upphaflega vakti athygli mína í hjónaráðgjöf- inni var það hve algengt það virðist vera að hjón steyti á skeri í sam- bandi sínu einmitt þegar yngsta barnið er á þeim aldri. Ég tel að einhver stærstu tíma- mót í lífi hverrar móður verði þegar um fjögur ár eru liðin frá fæðingu yngsta barnsins. Þetta kann að koma einhverjum spánskt fyrir sjónir og líklega hefði ég ekki tekið eftir þessu ef barnabörnin mín hefðu ekki verið að fæðast hvert af öðru síðustu árin. Við karlar munum seint ná að setja okkur inn í það hvers konar fram- sal á sjálfum sér og eigin lífi það er að ala í sér, af sér og á sér heilt barn. Hvað þá ítrekað. Ég tek fram að þessi kenning er byggð á reynslu en ekki rannsóknum en jafnframt á samtölum við annað fagfólk sem staðfestir að það taki konu um fjögur ár að endurheimta sjálfa sig til líkama og sálar eftir barnsburð. Ég hygg að pör mættu vel vera meðvituð um þau þöglu tímamót sem verða í lífi móður þegar yngsta barn er orðið fjögurra ára og tíma framsalsins er varanlega lokið í lífi konunnar. Þá vaknar hjá mörgum sterk þrá eftir því að lifa af alefli, finna rödd sína heyrast og eiga innihaldsríkt ástarsamband. En einmitt á sama skeiði eru hjón gjarnan komin í þægilega rútínu með svo margt, makinn áttar sig ekki á breyttum forsendum og telur hjónabandið komið í varan- legan farveg. Einmitt þá verða áföllin. Hjónaband er skip sem er smíðað á siglingu. Fjögurra ára reglan Einlægir þættir um rómantík, sambönd, skilnað og allt þar á milli Allt sem þú þarft að vita um ástina! Þáttaröðin kemur í heild sinni í Sjónvarp Símans Premium á morgun. siminn.is 1 8 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 C B -B F D 0 2 3 C B -B E 9 4 2 3 C B -B D 5 8 2 3 C B -B C 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.