Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 1
Spánýir bílar stóðu í röðum á athafnasvæði Eim- skips í gær þegar ljósmyndari átti þar leið hjá. Af myndinni verður ekki annað séð en að rauðir, svartir, gráir og hvítir bílar séu einna helst á óskalistum kaupenda. Samkvæmt tölum FÍB um aldur bílaflotans fór hann lækkandi undanfarin ár, þar til á síðasta ári, en þá var meðalaldur fólksbílaflotans 12,4 ár, þ.e. aldur allra skráðra fólksbíla. Nýjustu upplýsingar frá Evrópu eru frá árinu 2016. Það ár var meðalaldur fólksbíla um 11 ár og meðalaldur atvinnubifreiða var 12 ár. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bifreiðar bíða í röðum eftir nýjum eigendum M I Ð V I K U D A G U R 7. Á G Ú S T 2 0 1 9 Stofnað 1913  183. tölublað  107. árgangur  FYRIRTAKS HÚM- OR OG HASAR Í NÝRRI BÍÓMYND EIN ÞEKKT- ASTA VÉL STRÍÐSINS FJÁRFESTA FYRIR TUGI MILLJARÐA Á LEIÐ TIL ÍSLANDS 11 VIÐSKIPTAMOGGINNDÓMUR 29 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is 500 SÆTI Á 5.000 KR. Bókanlegt í dag frá kl. 10:00 til miðnættis. Ferðatímabil: September 2019. Ævintýri síðsumars Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Bílaumboðið BL mun nú bjóða viðskiptavinum sín- um bílafjármögnun sem er um helmingi ódýrari en hagstæðustu bílalán á markaðnum í dag. Viðskipta- vinum stendur frá og með morgundeginum til boða að taka lán á föstum 3,95% óverðtryggðum vöxtum þegar keyptar eru bifreiðar frá umboðinu. Að sögn Brynjars Elefsen Óskarssonar, framkvæmdastjóra sölusviðs, er verkefnið unnið í samstarfi við Lykil fjármögnun. „Til að byrja með verður þetta í boði fyrir alla nýja bíla hjá okkur. Þetta er afar skyn- samleg og örugg fjármögnun, en lauslega á litið munar um 50% á okkar lánum og því sem best býðst á markaðnum. Þetta eru einnig vextir sem standa töluvert neðar en húsnæðislánavextir,“ segir Brynjar en til samanburðar má nefna að hagstæð- ustu föstu vextir óverðtryggðra húsnæðislána eru 4,85% og standa til boða hjá Birtu lífeyrissjóði. Viðskiptavinir BL þurfa engin lántökugjöld að greiða þegar tekin eru lán vegna bifreiðakaupa hjá umboðinu. Þess utan er ekkert hámark á lánum til viðskiptavina, en lánstíminn fer þó eftir því hversu mikið eigið fé viðskiptavinurinn getur lagt fram. Mest verða veitt 90% lán og eru þau til þriggja ára. Eiginfjárkrafan eykst jafnt og þétt eftir því sem lánstíminn lengist, en lánin eru lengst veitt til sjö ára. Lánin geti breyst í framtíðinni Brynjar segir að lánin séu komin til að vera þótt þau muni hugsanlega standa til boða á öðru formi í framtíðinni. „Það kunna að vera aðrar vaxtapró- sentur og þess háttar. Mögulega verða lægri vextir síðar meir í einhverjum tilvikum. Þetta er allt í skoðun ,“ segir Brynjar. Bjóða bílafjármögnun á kjörum sem hvergi finnast á markaði  BL býður viðskiptavinum sínum lán á föstum 3,95% óverðtryggðum vöxtum MViðskiptaMogginn „Hlýindin nú í sumar eru óvenjuleg suðvestanlands, en annars ekki. Hlýtt var um nær allt land 1939. Sumarið nú er frekar í ætt við norð- austanáttarsumur fyrri tíma – en þó áberandi hlýrra – líka í „kuldanum“ norðaustanlands.“ Þetta segir Trausti Jónsson veð- urfræðingur aðspurður hvort sum- arið 2019 líktist annáluðum góðviðrissumrum fyrri ára, eins og t.d. sumrinu 1939. Þegar sumarið til þessa er metið frá sumardeginum fyrsta 25. apríl, fjórtán vikur, reynist tímabilið hið hlýjasta í Reykjavík. „Meðalhiti var 10,5 stig, næsthæstur var hann 10,3 stig 1941. Þá bar sumardaginn fyrsta upp á 24. apríl – þannig að ár- in keppa nokkurn veginn á jafnrétt- isgrundvelli hvað þetta varðar,“ seg- ir Trausti. »4 Óvenjuleg hlýindi suð- vestanlands Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Sumarið Veðurblíðan ekki verið meiri suðvestanlands í áratugi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.