Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
SANGSIN gæðavara frá Kóreu
BREMSU
VÖRUR
í flestar gerðir bíla
Fótboltinn er orðinn svo
sturlað fyrirbæri. Það virðast
ekki vera nein takmörk fyrir pen-
ingunum sem eru settir í þetta
og nýjasta og besta dæmið er
eflaust vistaskipti Harry Maguire
til Manchester United í vikunni. Í
hvaða heimi kostar Harry Ma-
guire 80 milljónir punda? Svar:
Engum. Rugl verð fyrir leikmann
sem á sínum besta degi væri
ekki 40 milljón punda virði.
Það sem komst hins vegar
næst því að toppa félagaskipti
Maguire til United var fyrirspurn
Leicester varðandi miðvörð Bo-
urnemouth, Nathan Aké. „Já
okei, Leicester seldi bara Ma-
guire fyrir 80 milljónir punda og
þá ættum við allavega að fá 75
milljónir punda fyrir Aké,“ hefur
einhver veruleikafirrtur stjórn-
armeðlimur hjá Bournemouth
hugsað með sér. Ég myndi per-
sónulega ekki borga meira en 10
milljónir punda fyrir þann ágæta
Hollending.
PSG greindi frá því í síðustu
viku að þeir ætluðu sér ekki að
selja Neymar fyrir minna en 300
milljónir evra. Ætla rétt að vona
að það sé enginn að fara að
borga uppsett verð fyrir þann
ágæta leikmann sem er þekktari
fyrir afrek sín utan vallar en inn-
an, svona í seinni tíð í það
minnsta. Peningarnir eru að
skemma fótboltann að einhverju
leyti en svo eru líka til gæjar
sem stressa sig ekki á hlut-
unum.
Ég ætla að gefa Eden Hazard
ákveðinn plús í kladdann. Haz-
ard var búinn að ákveða það fyr-
ir svona tveimur árum að fara til
Real Madrid og lét loks verða af
því í sumar þegar Chelsea
neyddist til að selja hann. Haz-
ard var samt ekkert mikið að
stressa sig á hlutunum og mætti
til Madrid í góðri yfirvigt, svona
eins og menn gera þegar þeir
klára draumaskiptin sín.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslandsmótið í golfi hefst í fyrramálið á Graf-
arholtsvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og stend-
ur fram á sunnudag en leiknar eru 72 holur á
fjórum dögum, venju samkvæmt. Keppt hefur
verið um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki síð-
an 1942 og í kvennaflokki síðan 1967. Löng hefð
er því fyrir mótinu og verður nú keppt í
sautjánda sinn í Grafarholtinu sem er með elstu
golfvöllum á Íslandi. Axel Bóasson og Guðrún
Brá Björgvinsdóttir, bæði úr Keili, eiga titil að
verja í mótinu og bæði eru þau skráð til leiks að
þessu sinni en bæði eru þau atvinnukylfingar og
leika að mestu í Evrópu á sumrin.
Fjörutíu kylfingar eru með 0 í forgjöf eða
betra. Aldrei hafa fleiri sem státa af slíku verið
skráðir til leiks á Íslandsmótinu. Forgjöfin telur
svo sem ekki í mótinu þar sem leikinn er högg-
leikur án forgjafar en hún er notuð til þess að
taka fólk inn í mótið. Færri komust að en vildu
og þá ræður forgjöf því hverjir komast að. Auk
þess er hún ágætt viðmið á getu kylfinga en hjá
atvinnumönnunum er henni þó ekki haldið við
með sama hætti og hjá áhugamönnum. Í karla-
flokki er enginn með hærri forgjöf en 4 en hjá
konunum er hæsta forgjöf 8.
Þessar tölur benda til þess að breiddin sé sí-
fellt að aukast á Íslandsmótinu og æ fleiri geti
blandað sér í baráttuna um sigurinn.
Völlurinn býður upp á sveiflur
Grafarholtsvöllur er vel á sig kominn eins og
svo margir golfvellir landsins eftir afar hagstætt
veður bæði í sumar og raunar strax í vor. Völl-
urinn getur boðið upp á dramatík og það hafa
golfunnendur séð þegar Íslandsmótið hefur verið
haldið á vellinum. Mótið var síðast í Grafarholt-
inu fyrir áratug og endasprettinn má leyfa sér
að kalla epískan, þótt slíkar lýsingar séu ofnot-
aðar. Ólafur Björn Loftsson elti Stefán Má Stef-
ánsson uppi og fékk fugla á síðustu fjórum hol-
unum. Stefán fékk ekki verra skor en par á
þessum kafla en Ólafur knúði fram umspil og
sigraði þar.
Nú er nokkuð skondið að í aðdraganda móts-
ins var mjög um það fjallað (til dæmis hjá þeim
sem hér hamrar á lyklaborð) að fjórar síðustu
holurnar í Grafarholtinu væru afar krefjandi af
meistaraflokksteigum. Þótt því væri haldið fram
að þar gætu orðið sviptingar þá var búist við að
þar væri hægt að tapa höggum frekar en að
safna fuglum. Ólafur lét sér fátt um finnast og
lék þær með sínu nefi á lokahringnum. Við þetta
má bæta að almennt séð er talsverður munur á
Grafarholtinu þegar notast er við öftustu teiga
heldur en þá sem framar eru og meirihluti kylf-
inga notar.
Dramatíkin var einnig mikil á lokakaflanum
árið 1972 þegar Loftur Ólafsson varð Íslands-
meistari eftir baráttu við Björgvin Þorsteinsson.
Loftur er faðir Ólafs sem fetaði í hans fótspor á
sama velli 2009. Loftur var einnig fjórum högg-
um á eftir þegar fjórar holur voru eftir af mótinu
en sigraði með tveggja högga mun.
Guðrún og Ragnhildur líklegar
Fyrir áratug síðan voru heimamenn í GR farn-
ir að gera sér vonir um sigur í karlaflokki. Skilj-
anlega þar sem Stefán virtist ekki líklegur til að
láta forskotið af hendi. Greinarhöfundur hefur
heimildir fyrir því að þáverandi formaður GR
hafi verið búinn að senda starfsmann eftir
kampavíninu þegar nokkrar holur voru eftir.
GR-ingar höfðu þá beðið eftir sigri í karlaflokki
síðan 1985 en þeirri bið lauk árið 2012 þegar
Haraldur Franklín Magnús sigraði.
GR-ingar geta leyft sér að vera nokkuð bjart-
sýnir í aðdraganda þessa Íslandsmóts. Sjöfaldur
Íslandsmeistari, Birgir Leifur Hafþórsson, er
ekki með. GR-ingurinn Guðmundur Ágúst Krist-
jánsson hefur leikið mjög vel á árinu og virðist
til alls líklegur þótt hann hafi einungis einu sinni
barist um Íslandsmeistaratitilinn af alvöru. Har-
aldur Franklín hefur unnið mótið og hafnað í 2.
sæti. Hann veit hvað þarf til og lék á dögunum á
18 undir pari á móti á Nordic-mótaröðinni.
Ryðja þarf Axel Bóassyni úr vegi sem unnið
hefur síðustu tvö ár og þar á undan á Akureyri
var hann höggi á eftir sigurvegaranum.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er líkleg til að
verja titilinn í kvennaflokki en hún hefur leikið í
Evrópu í sumar og ætti að vera í góðu keppn-
isformi. GR-ingar geta gert sér vonir um að
Ragnhildur Kristinsdóttir berjist um sigurinn á
heimavelli en hún er efst á stigalista mótaraðar
GSÍ. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra
Jónsdóttir eru hins vegar ekki með. Valdís varð
meistari í Grafarholtinu árið 2009 og má segja að
þar hafi hennar ferill farið á flug fyrir alvöru.
Björgvin missir af mótinu
Sexfaldur Íslandsmeistari, Björgvin Þor-
steinsson, er ekki með að þessu sinni en hann er
að keppa í golfi erlendis. Ekki eru neinar ýkjur
að segja að þar séu tímamót því Björgvin náði að
keppa á Íslandsmótinu fimmtíu og fimm sinnum
í röð. Sú staðreynd er með ólíkindum og fara
þarf aftur til ársins 1963 til að finna síðasta Ís-
landsmót án Björgvins. Þá voru enn tuttugu og
sjö og þrjátíu og eitt ár þar til Íslandsmeist-
ararnir Axel og Guðrún Brá komu í heiminn.
Dramatík í Grafarholti?
Hvað gera GR-ingar í holtinu? Er tími Guðmundar Ágústs runninn upp?
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Líkleg Haraldur Franklín, Guðmundur Ágúst og Guðrún Brá verða væntanlega í baráttunni um sigur.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hólmar Örn Eyjólfsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, vonast eftir
því að geta byrjað að spila á ný með
Levski Sofia í Búlgaríu síðar í þess-
um mánuði, eftir tíu mánaða fjar-
veru. Hann sleit krossband í hné í
lok október 2018 og missti því af
stórum hluta síðasta keppn-
istímabils og fyrstu umferðunum í
sumar.
„Endurhæfingin hefur gengið
vel, það kom reyndar smá bakslag í
júní en ég er byrjaður að æfa með
liðinu af fullum krafti. Ætli það séu
ekki um það bil tvær vikur í að ég
geti byrjað að spila, mögulega verð
ég tilbúinn um aðra helgi,“ sagði
Hólmar við Morgunblaðið í gær en
hann gæti þá náð útileik gegn Vi-
tosha Bistritsa laugardaginn 17.
ágúst. Annars heimaleik gegn Lo-
komotiv Plodiv viku síðar.
Levski er á toppi búlgörsku 1.
deildarinnar með 10 stig eftir fjór-
ar umferðir, jafnmörg og meist-
ararnir Ludogorets sem unnu Val
5:1 samanlagt í 2. umferð Evr-
ópudeildarinnar á dögunum.
Levski féll hinsvegar út gegn AEK
Larnaca frá Kýpur í sömu umferð.
„Við misstum mann út af með
rautt spjald í fyrri hálfleiknum í
fyrri leiknum, fengum á okkur þrjú
mörk í þeim seinni og þetta var allt-
af erfitt eftir það. Þetta var klaufa-
legt en að öðru leyti er byrjunin á
tímabilinu fín og við verðum eflaust
í baráttu við Ludogorets og CSKA
eins og venjulega,“ sagði Hólmar
sem kom til Levski árið 2017 frá
Maccabi Haifa í Ísrael og samdi til
fjögurra ára.
Fyrsti leikurinn síðar
í ágústmánuði?
Ljósmynd/Levski Sofia
Búlgaría Hólmar Örn Eyjólfsson í
leik með Levski Sofia.