Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 15
Orkupakkinn gæti leitt til milljarðatjóns fyrir ríkissjóð 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019 Flug Morgunvél Air Iceland Connect í aðflugi á Ísafjarðarflugvöll. Nýjar snjóflóðavarnir í bakgrunni. Árni Sæberg Hinn 14. júní birtist grein undirritaðra í Morg- unblaðinu þar sem vakin er athygli á lagalegri óvissu og áhættu sem fylgir því að samþykkja þriðja orkupakkann. Í greininni kom fram sú skoðun að mikilvægt væri að fresta meðferð málsins á Alþingi þar til viss atriði yrðu könnuð til hlítar. Alþingi ákvað að fresta málinu til hausts og það er mikilvægt að stjórnvöld nýti þann tíma til að kanna til hlítar hættu á samningsbrotamálum og skaða- bótamálum sem stafað gætu af samþykkt orkupakkans. Hinn 19. júní sl. rituðu nokkrir lögmenn svar við um- ræddri grein. Grein þeirra byggist að miklu leyti á mis- skilningi en niðurstaða þeirra var að engin áhætta væri til staðar „eins og málið er lagt upp“. Þeir telja að valdheim- ildir erlendra stofnana nái ekki til ákvarðana um hvort sæstrengur verði lagður hingað til lands og heimildir þeirra gildi einungis þegar slík tenging er til staðar og því sé öllu óhætt. Lögmennirnir virðast ekki átta sig á því að íslenska rík- inu gæti verið nauðugur sá kostur að heimila lagningu sæ- strengs eða greiða skaðabætur ella. Á þessa hættu benda þeir Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst í álitsgerð sem þeir unnu fyrir utanríkisráðuneytið í mars sl. Rafmagn er vara samkvæmt EES-reglum og fellur því undir fjórfrelsið svonefnda, sem tryggir frjálst flæði á fólki, vörum, fjármagni og þjónustu innan svæðisins. Með þriðja orkupakkanum skuldbindur Ísland sig til að inn- leiða reglur um flutning raforku yfir landamæri þar á meðal um sæstrengi. Án gildistöku þriðja orkupakkans verður ekki lagt í fjármögnun, lagningu og rekstur sæ- strengs milli Íslands og ESB-ríkis. Taki orkupakkinn hins vegar gildi er sú fyrirstaða horfin. Bann við lagningu sæ- strengs eða tilraunir til að leggja stein í götu slíks verk- efnis gætu talist til ólögmætra viðskiptahindrana og hags- munaaðilar gætu átt rétt á skaðabótum neiti Alþingi eða íslensk stjórnvöld þeim um leyfi til lagningar sæstrengs. Skaðabótakröfur í slíku máli gætu hlaupið á milljörðum og það hlýtur að teljast glapræði að innleiða orkupakkann án þess að kanna til hlítar þá lagalegu óvissu og efnahags- legu áhættu sem málið hefur í för með sér. Eftir Atla Ingibjargar Gíslason, Björgvin Þor- steinsson, Jón Magnússon og Tómas Jónsson. Höfundar eru hæstaréttarlögmenn. Enginn hagfræð- ingur, viðskiptafræð- ingur eða fjár- málaverkfræðingur er þess umkominn að skera úr um hver sé hagkvæmasta stærð sveitarfélaga. Enginn sveitarstjórnarmaður, þingmaður eða ráð- herra, hefur forsendur til að ákveða hver skuli vera lágmarks fjöldi íbúa í hverju sveitarfélagi svo íbúarnir fái notið þeirrar þjónustu sem þeir gera kröfu til og eiga rétt á samkvæmt lögum. Í byrjun þessa árs voru 72 sveit- arfélög á landinu og fækkaði þeim um tvö á liðnu ári. Samkvæmt tölum Hagstofunnar eru sjö sveitarfélög með færri íbúa en 100 og 40 með undir 1.000. Aðeins tíu sveitarfélög eru fjölmennari en 5.000. Árið 1990 voru sveitarfélög 204 talsins þannig að þeim hefur fækkað hressilega á undanförnum áratugum og þar hafa íbúarnir sjálfir fyrst og síðast ráðið ferðinni. Ekki frumlegar hugmyndir Reglulega koma fram hugmyndir um að rétt sé og skylt að þvinga fá- menn sveitarfélög til að sameinast öðrum. Lærðir og leiknir taka til máls og færa fyrir því (misjöfn) rök að það sé lífsnauðsynlegt að fækka sveitarfélögum til að ná fram hag- kvæmni stærðarinnar. Tillögur um fækkun sveitarfélaga eru ekki frum- legar enda byggjast þær á þeirri trú að það sem er lítið sé veikburða og aumt en hið stóra og fjölmenna sterkt og burðugt. Sem sagt: Stórt er betra en lítið og fjölmenni er hag- kvæmara en fámenni. Samtök atvinnulífs- ins (SA) gáfu út skýrslu árið 2016 þar sem lagt var til að stefnt yrði að umfangs- mikilli sameiningu þannig að sveitarfélög yrðu tíu. Með stærri og öflugri sveitarfélögum ykjust möguleikar á að flytja fleiri verkefni frá ríkinu til sveitarfélag- anna og hagkvæmni í rekstri einnig. Skýrsla SA er fróðleg en sá er þetta skrifar var og er fullur efasemda þótt það skuli ekki dregið í efa að í mörgum tilfellum þjóni sameining sveitarfélaga hagsmunum íbúanna. Í júlí 2017 var birt skýrsla verk- efnastjórnar á vegum ráðherra sveitarstjórnarmála um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga. Nið- urstaðan var að fækka yrði sveit- arfélögum og skilgreina þau verk- efni sem sveitarfélögin verði að geta sinnt. Vegna þessa sé nauðsynlegt að hækka lágmarks íbúafjölda í þrepum þannig að í ársbyrjun 2026 verði íbúar ekki færri en eitt þús- und. Verkefnastjórnin taldi rétt að sameiningar sveitarfélaga vegna lögbundins lágmarks fjölda verði ekki bornar undir íbúa í atkvæða- greiðslu. Með öðrum orðum: Íbú- arnir eiga ekki að ráða för. „Hagkvæmni stærðarinnar“ Í lok apríl síðastliðins birti sam- göngu- og sveitarstjórnarráðuneytið Grænbók – stefnu um málefni sveit- arfélaga. Bókin er gott innlegg í nauðsynlega umræðu og stefnumót- un en hún var sérstaklega kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og þar gátu allir komið með athugasemdir og ábendingar. Grænbókin er m.a. byggð á fyrrnefndri skýrslu verk- efnastjórnar. Í frétt Ríkisútvarpsins í síðustu viku kom fram að stefnt er að því að leggja fram í haust þings- ályktunartillögu um stefnumarkandi áætlun ríkisins í málefnum sveitar- félaga. Rauði þráðurinn í röksemdum þeirra sem vilja fækka sveit- arfélögum – gera þau fjölmennari – er „hagkvæmni stærðarinnar“. Vænthagkvæmni og von um lægri stjórnsýslukostnað á hvern íbúa get- ur hins vegar ekki markað stefnuna í þessum efnum. Excel-skjöl og reiknilíkön geta verið ágæt til síns brúks en aðeins samfélagsverkfræð- ingar taka þau sem algild sannindi. Reykvíkingar vita það öðrum Ís- lendingum betur að „stærðarhag- kvæmnin“ tryggir ekki að fjármunir íbúanna séu nýttir með skyn- samlegum hætti og að þeir fari til þeirra verkefna sem þeir leggja áherslu á. Ánægja er ekki í beinu samhengi við fjölda. Hvernig kjörn- um fulltrúum í sveitarstjórnum tekst að uppfylla skyldur sínar við íbúana ræðst heldur ekki af stærð og fjölmenni. Þá verða rök fyrir „hag- kvæmni stærðarinnar“ ekki sótt í rekstur og efnahag sveitarfélaga – það er hreinlega ekki hægt að draga þá ályktun að árangur sé best tryggður með stórum einingum. „Rétt“ tala ekki til Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hittir naglann á höfuðið í umsögn um Grænbókina. Það er engin „rétt“ tala til um lágmarksfjölda íbúa: „Sameining og/eða samstarf sveit- arfélaga verður að byggjast á fjár- hagslegum, félagslegum og land- fræðilegum forsendum en ekki bara á höfðatölu. Fyrst og síðast á þó vilji íbúa að ráða ferð svo sem verið hef- ur. Engin „rétt“ tala er til fyrir lág- marks íbúafjölda í sveitarfélögum á Íslandi. Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hafnar alfarið hugmyndum um lög- þvingaða sameiningu sveitarfélaga og hvetur ráðamenn til að virða hagsmuni íbúa og sjálfsákvörð- unarrétt í eigin málefnum.“ Hér er tekið undir með sveit- arstjórn Grýtubakkahrepps. Ég hef haldið því fram að eftir því sem fjarlægðin verður meiri milli íbúanna og stjórnsýslunnar séu auknar líkur á því að sameiginlegir fjármunir sveitarfélagsins finni sér annan farveg en vilji íbúanna stend- ur til. Engin hverfisráð eða rafræn- ar kosningar koma í stað þess aga sem fólginn er í nálægð íbúanna við kjörna fulltrúa og stjórnsýslu. (Graf- arvogsbúar hafa margir velt því fyr- ir sér hvort hagsmunum þeirra sé ekki betur borgið í sjálfstæðu sveit- arfélagi en að tilheyra Reykjavík. Af sjónarhóli meirihluta borgarstjórnar virðist útsýni til úthverfa borg- arinnar vera takmarkað.) Skortur á samkeppni Í allri umræðunni um sameiningu sveitarfélaga fer lítið sem ekkert fyrir þeirri hugsun að það kunni að þjóna hagsmunum landsmanna að ýtt sé undir samkeppni sveitarfé- laga. Samkeppni um íbúa og fyrir- tæki kemur aga á rekstur og stuðlar um leið að betri þjónustu. Lögmál samkeppninnar gilda um sveit- arfélög líkt og aðra starfsemi. Skort- ur á samkeppni, ekki síst í þjónustu hins opinbera og fyrirtækja ríkis og sveitarfélaga, er vandamál sem við Íslendingar glímum við. Þegar mörkuð er stefna til langrar fram- tíðar um málefni sveitarfélaga er fráleitt annað en að huga að þessum þætti. Það skiptir okkur öll miklu hvern- ig til tekst við rekstur sveitarfé- lagsins, sem við höfum valið að búa í. Mörg sveitarfélög eru til fyrirmynd- ar og hafa náð að samþætta öfluga þjónustu og hófsemd í álögum á ein- staklinga og fyrirtæki. Því miður er fjölmennasta sveitarfélagið ekki fyr- irmynd í þessum efnum. Sameining og fækkun sveitarfé- laga getur verið ákjósanleg og skyn- samleg. Það á hins vegar ekki að vera sérstakt markmið í sjálfu sér að fækka sveitarfélögum – markmiðið er standa vel að þjónustu við borg- arana. Excel-skjal sem unnið er í Kvosinni í Reykjavík getur ekki orð- ið leiðarvísir heldur aðeins vilji íbú- anna sjálfra. Eftir Óla Björn Kárason » Lögmál samkeppn- innar gilda um sveit- arfélög líkt og aðra starfsemi. Skortur á samkeppni ekki síst í þjónustu hins opinbera er vandamál. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Íbúarnir eiga að ráða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.