Morgunblaðið - 07.08.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Um sjötíu þátttakendur frá sjö
löndum sækja Alþjóðlegu tónlistar-
akademíuna þetta árið,“ segir Ari
Vilhjálmsson fiðluleikari sem verið
hefur framkvæmdastjóri Alþjóðlegu
tónlistar-
akademíunnar í
Hörpu (HIMA)
síðustu árin.
Stofnandi og list-
rænn stjórnandi
HIMA er Lin
Wei fiðluleikari
sem einnig kenn-
ir hjá akademí-
unni.
Alþjóðlega tón-
listarakademían,
sem nú er haldin í sjöunda sinn,
hófst 1. ágúst með námskeiði fyrir
nemendur í klassískum hljóðfæra-
leik og stendur til 15. ágúst. „Þátt-
takendur spila kammertónlist og í
strengjasveit og býðst að leika ein-
leiksverk á nemendatónleikaröð
akademíunnar í Hörpu,“ segir Ari og
tekur fram að það sé dýrmætt fyrir
nemendur að fá tækifæri til að koma
fram á tónleikum í Hörpu og spila
bæði kammerverk og sólóverk, enda
gefist ekki tækifæri til þess á hverj-
um degi.
Erum enn að læra
Aðspurður segir Ari nemenda-
fjöldann hafa sveiflast milli ára og
mest farið upp í 130 þátttakendur
fyrir þremur árum. „Sjötíu nem-
endur er mjög passlegur fjöldi.
Fyrstu mörg árin fór kennslan fram
í júní, en sökum þess hversu umsetin
Harpa er í þeim mánuði prófuðum
við að hafa kennsluna í júlí í fyrra og
í ágúst í ár sem hefur sennilega ein-
hver áhrif á fjölda umsókna, enda er
júní sennilega besti mánuðurinn fyr-
ir nemendurna sem klára þá skóla-
árið sitt með því að sækja akadem-
íuna. Við erum því enn að læra þótt
þetta sé sjöunda árið okkar,“ segir
Ari og tekur fram að frá upphafi hafi
meirihluti nemenda ávallt verið frá
Íslandi. „Ég held að það sé mikil-
vægt að á Íslandi sé í boði að
minnsta kosti eitt alþjóðlegt nám-
skeið með alþjóðlegum kennurum
sem erlendir nemendur sækja líka.
Með því móti geta íslenskir nem-
endur sett sig að nokkru í alþjóðlegt
samhengi, borið sig saman við nem-
endur frá öðrum löndum og fengið
kennslu hjá virtum kennurum við
háskóla erlendis. Það víkkar sjón-
deildarhringinn,“ segir Ari og bend-
ir á að hluti þeirra íslensku nemenda
sem sækja HIMA fari í framhaldinu
í nám erlendis. „Ég held að við séum
að bjóða upp á eitthvað gott,“ segir
Ari.
Að vanda verður boðið upp á
nokkurn fjölda masterklassa og tón-
leika sem eru opnir almenningi. Á
opnunartónleikunum í Hörpu í gær-
kvöldi kom hin 19 ára gamla Diana
Adamyan frá Armeníu fram. „Hún
er mjög frambærilegur listamaður,
en hún hlaut fyrstu verðlaun í
alþjóðlegu Menuhin-fiðlukeppninni í
fyrra,“ segir Ari og bendir á að um
sé að ræða eina virtustu fiðlu-
keppnina fyrir unga fiðluleikara.
Adamyan kemur aftur fram á tón-
leikum undir yfirskriftinni Ung-
listakonur í Hörpu 10. ágúst. „Mark-
miðið með samstarfinu við
Menuhin-fiðlukeppnina er að nem-
endur akademíunnar sjái hljóðfæra-
leikara á svipuðum aldri og þau sjálf
sem eru að gera góða hluti.
Unglistakonur á tónleikum
Hinar unglistakonurnar okkar eru
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir
sellóleikari og Jane Ade Sutarjo
píanóleikari sem koma fram á tón-
leikum í Hörpu 11. ágúst,“ segir Ari
og bendir á að Geirþrúður Anna hafi
getið sér gott orð sem einn efnileg-
asti sellóleikari Íslands enda stundi
hún meistaranám við Juilliard-
tónlistarháskólann í New York.
„Jane Ade Sutarjo, sem fæddist í
Jakarta í Indónesíu, flutti til Íslands
árið 2008 og hóf þá framhaldsnám í
tónlist við Listaháskóla Íslands.
Hún starfar nú sem einleikari og
meðleikari við Menntaskóla í tónlist,
Tónskóla Sigursveins og víðar.“
Hágæðaeinkakennsla
Rúmlega tuttugu kennarar kenna
hjá HIMA þetta árið. „Kennarar eru
allir úr fremstu röð íslenskra hljóð-
færaleikara auk valinna gestapró-
fessora frá virtum tónlistarháskól-
um erlendis og leiðara í sinfóníu-
hljómsveitum. Með því að veita
hágæðaeinkakennslu og leggja
áherslu á kammertónlist og hljóm-
sveit styrkir námskeiðið allar undir-
stöður nemandans og hvetur næstu
kynslóð hljóðfæraleikara til dáða,“
segir Ari og bendir á að meðal er-
lendra samstarfsaðila séu Atlanta
Festival Academy og Point
CounterPoint í Bandaríkjunum, hið
amerísk-danska New Music for
Strings, Lin Yao Ji Foundation í
Hong Kong og alþjóðlega Menuhin-
fiðlukeppnin.
Meðal gestakennara í ár eru, að
sögn Ara, Anton Miller fiðluleikari
og Rita Porfiris víóluleikari. „Þau
eru prófessorar við Hartt School í
Bandaríkjunum og hafa mikla
reynslu sem einleikarar, í kammer-
músík og hljómsveitarspili. Með
þeim kemur hópur nemenda sem
mun taka þátt í akademíunni og
strengjakvartettinn Es sem eru
staðarlistamenn 2019.“
Sérstakir kennaratónleikar verða
haldnir í Norðurljósum 11. ágúst.
„Þar koma fram flestir kennararnir
okkar í eldri deildinni og spila
kammertónlist,“ segir Ari og tekur
fram að það sé gaman fyrir kennar-
ana að kynnast betur með því að
spila saman. „Það skiptir líka máli að
nemendurnir heyri í kennurunum
sem eru að kenna þeim,“ segir Ari.
Tekur hann fram að alls verði boðið
upp á níu nemendatónleika þar sem
nemendur akademíunnar láti ljós
sitt skína og fimm masterklass-
námskeið, sem séu opin almenningi.
Bendir hann áhugasömum á að
tryggja sér miða fyrr en seinna. Að-
gangur er ókeypis í Tónskóla Sigur-
sveins og í Flóa Hörpu, en miðaverði
stillt í hóf fyrir tónleikana í Norður-
ljósum Hörpu.
Lokatónleikarnir unnir í sam-
starfi við New Music of Strings
„Lokatónleikana í ár höldum við í
samstarfi við New Music of Strings,“
segir Ari, en tónleikarnir verða
haldnir 15. ágúst. „Á fyrri hluta tón-
leikanna leikur strengjasveit HIMA
fjögur verk. Í sveitinni leika nem-
endur og kennarar úr eldri deild en
fiðluleikarinn víðkunni, Eugene
Drucker úr Emerson-strengjakvart-
ettinum, mun leiða sveitina í gegn-
um efnisskrá þar sem teflt er saman
nýjum verkum, íslenskum og erlend-
um, í bland við meistaraverk fyrri
ára. Á seinni hluta tónleikanna verð-
ur flutt ný og nýleg kammermúsík
að hætti New Music of Strings,“ seg-
ir Ari að lokum. Allar nánari upplýs-
ingar má finna á musicacademy.is og
himafestival.is. Miðar eru seldir á
vef Hörpu, harpa.is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Metnaður Lin Wei, stofnandi Alþjóðlegu tónlistarakademíunar í Hörpu, kenndi masterklassa þar í gær.
Bjóðum upp á „eitthvað gott“
Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu haldin í sjöunda sinn Um 70 nemendur frá sjö löndum
taka þátt Starf sem víkkar sjóndeildarhring tónlistarnemendanna Virtir kennarar að utan
Ari
Vilhjálmsson
Fjöldi tónleika og masterklassa
verður á boðstólum næstu daga á
vegum Alþjóðlegu tónlistaraka-
demíunnar. Aðgangur í Flóa Hörpu
og Tónskóla Sigursveins er ókeyp-
is, en miðar á viðburði í Norður-
ljósum Hörpu eru seldir á vef tón-
listarhússins.
Laugardagur 10. ágúst
Rising Stars: Nemenda-
tónleikar I í Norðurljósum Hörpu
kl. 12
Fiðlumasterklass með Anton
Miller í Tónskóla Sigursveins kl. 14
Víólumasterklass með Ritu
Porfiris í Norðurljósum kl. 14
Rising Stars: Nemenda-
tónleikar II í Norðurljósum kl. 17
Unglistakonur I: Diana Ada-
myan fiðla, Richard Simm píanó í
Norðurljósum kl. 19.30
Sunnudagur 11. ágúst
Píanómasterklass með Daum-
ants Liepins í Norðurljósum kl. 9
Unglistakonur II: Geirþrúður
Anna Guðmundsdóttir selló, Jane
Ade Sutarjo píanó í Norðurljósum
kl. 13
Kennaratónleikar HIMA: Kamm-
ermúsík í Norðurljósum kl. 16
Mánudagur 12. ágúst
Rising Stars: Nemenda-
tónleikar III í Flóa Hörpu kl. 12
FJÖLDI TÓNLISTARVIÐBURÐA OPINN ALMENNINGI
Diana
Adamyan
Geirþrúður Anna
Guðmundsdóttir
Tónleikar og masterklassar
Þriðjudagur 13. ágúst
Rising Stars: Nemendatónleikar
IV í Flóa kl. 12
Sellómasterklass með Henrik
Brendstrup í Tónskóla Sigursveins
kl. 15.30
Rising Stars: Nemendatónleikar
V í Flóa kl. 19.30
Miðvikudagur 14. ágúst
Rising Stars: Nemendatónleikar
VI í Flóa kl. 12
Rising Stars: Nemendatónleikar
VII í Flóa kl. 19.30
Fimmtudagur 15. ágúst
Rising Stars: Píanó og blásarar í
Norðurljósum kl. 12
Dansað á strengjum: Tónleikar
yngri deildar í Norðurljósum kl.
16.30
Hátíðartónleikar HIMA og New
Music of Strings: Strengjasveit og
kammertónlist í Norðurljósum kl.
19.30DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.