Morgunblaðið - 07.08.2019, Side 11

Morgunblaðið - 07.08.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Lokadagar útsölunnar Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Einhver annálaðasta flugvél síðari ára, hin breska Supermarine Spit- fire, var væntanleg hingað til lands um miðjan dag í gær. Stóð þá til að vélinni yrði flogið til Reykjavíkur frá Skotlandi en vegna óhagstæðra veðurskilyrða yfir Atlantshafið var fallið frá þeim áformum um stund. Koma vélarinnar hingað til lands er liður í hnattflugi sem ætlað er að vekja athygli á flugvélategundinni, sögu hennar og því mikilvæga hlut- verki sem vélar af þessari gerð gegndu í síðari heimsstyrjöld. Bretar framleiddu vel yfir 20.000 eintök af Spitfire á árunum 1938 til 1948 og tóku vélar af þessari gerð þátt í átökum á öllum vígstöðvum seinna stríðs. Þekktust er flugvélin þó fyrir þátttöku sína í orrustunni um Bretland árið 1940. Af þeim mikla fjölda sem framleiddur var er talið að finna megi einungis fáeina tugi Spitfire-véla í heiminum sem enn eru í flughæfu ástandi. Varði sprengjuvélar Sú flugvél sem hér um ræðir var smíðuð í flugvélaverksmiðju Castle Bromwich í Birmingham á Eng- landi árið 1943. Er vélin sögð hafa tekið þátt í 51 vopnuðum leiðangri þegar hún var í þjónustu banda- manna í seinna stríði og var hlut- verk hennar meðal annars að verja sprengjuflugvélar bandamanna fyr- ir orrustuflugvélum Þjóðverja. Í dag má segja að búið sé að draga vígtennurnar úr þessum gamla stríðsfáki því vélbyssurnar eru á bak og burt. Með því að taka vopnin úr vélinni vilja hnatt- flugsmenn beina athyglinni að tíma- lausri hönnun vélarinnar og þeirri miklu fegurð sem hún er sögð búa yfir, að því er fram kemur á heima- síðu um hnattflugið. Kempa Breski flugmaðurinn Steve Brooks sést hér í flugstjórnarklefa vélarinnar og lyftir þumli skömmu fyrir flug- tak frá Englandi. Vélin átti að koma hingað til lands í gær en þurfti að snúa við vegna óhagstæðs veðurs á leiðinni. Félagar Þrjár vélar sömu gerðar fylgja hinni silfruðu Spitfire um breska lofthelgi, en alls smíðuðu Bretar yfir 20 þúsund Spitfire-flugvélar. Ein þekktasta vél seinna stríðs  Hin breska Supermarine Spitfire var væntanleg hingað til lands í gær  Vélin, sem framleidd var árið 1943, þurfti að snúa við vegna veðurs  Tóku þátt á öllum vígstöðvum síðari heimsstyrjaldar AFP Öldungur Spitfire-vélin sést hér taka á loft frá suðausturhluta Englands í tengslum við hnattflug sitt. Fjöldinn allur af töskum, símum, veskjum, lyklum og flíkum úr Herj- ólfsdal er nú í vörslu lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Varsla óskilamuna er órjúfanlegur hluti af Þjóðhátíð í Eyjum, sem lauk nú um helgina, en óskilamunir í Heimaey eru færri um verslunarmannahelgina í ár heldur en í fyrra að mati varðstjóra í lögregl- unnar Vestmannaeyjum. Lögreglan birti myndir af hinum ýmsu óskil- amunum á facebooksíðu embættisins í gær og hafa nokkrir þjóðhátíð- argestir þegar náð að vitja hluta sinna í gegnum síðuna. Munirnir eru ýmist sóttir af gestunum eða póst- lagðir til eigenda, að sögn Hallgríms Helga Hallgrímssonar, lögreglufull- trúa í Vestmannaeyjum. „Það er búið að sækja slatta og okkur hafa borist margar fyr- irspurnir um óskilamuni, segir Hall- grímur og bætir við að þeir sem farn- ir séu frá Eyjum nýti sér myndaalbúm lögreglu á Facebook sem er merkt með yfirskriftinni „Óskilamunir í Eyjum 2019“. „Fólk hringir og ber kennsl á hlut- inn og hann er lagður í póst. Við erum einmitt að fara að póstleggja fullt af veskjum með kortum og öku- skírteinum og öðru. Fólk getur vakt- að það ef það er að leita að ein- hverju,“ sagði hann. Skjáskot/Facebook-síða lögreglunnar í Vestmannaeyjum Óskilamunir Nokkrir heppnir þjóðhátíðargestir geta vitjað muna sinna hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Hlutirnir eru ýmist póstlagðir eða sóttir. Ógrynni óskilamuna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.