Morgunblaðið - 07.08.2019, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
HITAVEITU-
SKELJAR
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Með vísan til 12. gr. girðingalaga nr. 135/2001 vill sveitarstjórn Langanesbyggðar hvetja alla eigendur eyðijarða í sveitarfélaginu til að
fjarlægja allar ónýtar girðingar á landareignum sínum. Skv. þessari grein girðingarlaga er sveitarfélaginu skylt að láta hreinsa ónýtar
girðingar á kostnað landeigenda bregðist þeir ekki við sjálfir. Á sveitarfélagið þá lögveð í jörðum fyrir áföllnum kostnaði. Bréf þessa
efnis hafa áður verið send öllum landeigendum í Langanesbyggð á árunum 2015, 2017 og 2018.
Í samræmi við ofangreinda aðgerðaráætlun er landeigendum hér með gefinn lokafrestur til og með 26. ágúst 2019 til að gera grein fyrir
áætlunum sínum um hvernig og hvenær þeir muni standa að hreinsun ónýtra girðinga á jörðum sínum, þar sem það á við. Eins er þeim
landeigendum sem það vilja gefinn kostur á að óska eftir því að sveitarfélagið sjái um hreinsun ónýtra girðinga að undangengnu mati á
kostnaði. Frestur til að gefa svar við þessu boði er sá sami, eða til 26. ágúst nk.
Að afloknum þessum fresti mun sveitarfélagið láta fara fram mat á kostnaði við að fjarlægja ónýtar girðingar af jörðum þeirra sem hlut
eiga að máli, með vísan til áðurnefndrar 12. gr. girðingalaga. Það kostnaðarmat verður kynnt hlutaðeigandi landeigendum.
Í girðingarlögum segir:
Þegar lögð er girðing af ábúanda fer um skyldur jarðeiganda við burtför ábúandans eftir sömu reglum og um hús á jörðinni sé
að ræða, sbr. 16. gr. ábúðarlaga, nr. 64/1976.
Öllum umráðamönnum lands er skylt að hreinsa burtu af landi sínu ónothæfar girðingar og girðingarflækjur. Nú vanrækir um-
ráðamaður lands þessi fyrirmæli í eitt ár eftir að lög þessi öðlast gildi og er þá sveitarstjórn skylt að framkvæma verkið á hans
kostnað að fengnu mati búnaðarsambands og á sveitarstjórn þá lögveð í jörðinni fyrir greiðslu kostnaðar. Það sama gildir um
eyðijarðir.
Í kjölfarið mun sveitarfélagið hefja aðgerðir við að hreinsa ónýtar girðingar eins og því er skylt skv. ofangreindum ákvæðum girðinga-
laga
Landeigendur eða umráðamenn þurfa senda tilkynningar til skrifstofu sveitarfélagsins á netfangið: skipulag@langanesbyggd.is eða
með bréfi á skrifstofu sveitarfélagsins, að Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn. Þar þarf að koma fram hvenær þeir hyggjast hreinsa ónýtar
girðingar af jörðum sínum eða óska eftir við sveitarfélagið að það verði gert fyrir þá.
Sveitarstjóri.
Auglýsing um að fjarlægja skuli ónýtar girðingar
á eyðijörðum í Langanesbyggð
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Auglýsing um skipulagsmál í
Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur
að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum
Svínhagi SH-20, deiliskipulag.
Byggðaráð í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 25.7.2019 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi fyrir spildu úr landi Svínhaga. Gert verði ráð fyrir byggingareit fyrir íbúðarhús, gestahús og
skemmu. Aðkoman er sameiginleg frá Þingskálavegi eða lóðunum Svínhagi SH-19 og Svínhagi II.
Svínhagi L164560, deiliskipulag.
Byggðaráð í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 25.7.2019 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi fyrir Svínhaga L164560. Gert verði ráð fyrir 20-25 gistiskálum sem hvert um sig verður um 70 m²
að stærð og hýsi 2-4 gesti. Auk þess verði gert ráð fyrir miðlægu þjónustuhúsi um 550 m² að stærð. Fyrirhugað
ferðaþjónustusvæði er í svokölluðu Suðurhrauni og er aðkoman frá Þingskálavegi. Breyting á landnotkun hefur
þegar verið samþykkt þar sem svæðið verður skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði í aðalskipulagi.
Árbæjarhjáleiga 2, deiliskipulag.
Byggðaráði í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 25.7.2019 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi fyrir spildu úr landi Árbæjarhjáleigu 2. Gert verði ráð fyrir íbúðarhúsi til viðbótar því sem fyrir er
ásamt 2-4 starfsmannahúsum sem samhliða geta nýst til ferðaþjónustu. Aðkoma er frá Árbæjarvegi.
Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra,
www.ry.is Frestur til að skila inn athugasemdum er til 18. september 2019.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra
í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
skipulagsfulltrúi
Rangárþing ytra
Félagsstarf eldri borgara
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30.
Salatbar kl. 11.30-12.15. Miðvikufjör, óvænt uppákoma kl. 11.50. Gáfu-
mannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í
síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Postulínsmálun kl. 9. Göngutúr um
hverfið kl. 13. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30 alla daga vikunnar, kaffi kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Nánari
upplýsingar í síma 411-9450. Verið hjartanlega velkomin á Vitatorg.
Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist.
Gullsmári Myndlist kl. 9-11.30, postulínsmálun kl. 13, kvennabrids kl.
13.
Korpúlfar OPIÐ HÚS í Borgum í dag kl. 10-16. Félagsvist, hannyrðir
gleði og gaman. Hádegisverður kl. 11.30-12.30, Korpúlfar sjá um kaffi-
veitingar kl. 14.30. Sumaropnun í Borgum til 13. ágúst 2019. Allir vel-
komnir. Minnum einnig á gönguhópa Korpúlfa, gengið frá Borgum
mánudag, miðvikudag og föstudag kl. 10 í allt sumar, ganga við allra
hæfi, bætir, hressir kætir, allir velkomnir.
Seltjarnarnes Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. á morgun fimmtudag
verður spiluð félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30.
✝ Kristín Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
7. maí 1926. Hún
lést á hjúkrunar-
deild aldraðra á
Akranesi 25. júlí
2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Guð-
mundur Björnsson
kaupmaður, f. 10.
ágúst 1876, d. 31.
mars 1934, og Una Guðrún Þur-
íður Þorsteinsdóttir, f. 22. maí
1896, d. 6. mars 1974. Systur
Kristínar voru Ragnhildur, f.
1919, d. 1984, og Birna, f. 1920,
d. 2003.
Kristín giftist 5. júlí 1947
Guðmundi Ófeigssyni skrif-
stofustjóra, f. 8. nóvember 1915,
d. 7. október 2004. Foreldrar
hans voru Jóhanna Guðrún Frí-
mannsdóttir, f. 16. desember
1871, d. 28. maí 1952, og Ófeig-
ur Ófeigsson bóndi, f. 23. ágúst
1858, d. 31. maí 1942. Börn
Kristínar og Guðmundar: 1) Jó-
hann, vélfræðingur, f. 10. mars
1948, kvæntur Guðrúnu G.
Kristinsdóttur, f. 28. september
1948. Synir þeirra eru a) Krist-
inn, f. 1975, kvæntur Erlu
Ágústsdóttur. Dætur þeirra eru
Hekla Dís og Vaka Líf. b) Ólaf-
ur, f. 1976, sambýliskona Mar-
grét Sigvaldadóttir. Dóttir
þeirra er Eva. Dóttir Ólafs er
Lísa. c) Guðmundur, f. 1980,
kvæntur Kristínu Viktors-
dóttur. Dætur þeirra eru Mar-
grét Dúna og Guðrún Eva. 2)
Helga, lífeindafræðingur, f. 10.
september 1949. Giftist Børre
Martin Sørdal, f. 3. apríl 1949,
d. 5. október 1988. Börn þeirra
eru a) Kristín, f. 1976, gift Guð-
mundi Kristmundssyni. Börn
þeirra eru Martin Orri og Þór-
dís Helga. Dóttir Kristínar er
Sara. b) Eirik, f. 1979, kvæntur
Anaïs Senli. c) Marthe, f. 1986,
sambýlismaður Karl Jóhann
Gunnarsson. d) Nina, f. 1986,
gift Gesti Ingva Kristinssyni.
Börn þeirra eru
Helga Kristín og
Kristinn Þór. Son-
ur Ninu er Guð-
mundur Ómar. 3)
Bjarnfríður,
hjúkrunar-
fræðingur, f. 5.
febrúar 1953, gift
Guðmundi Inga
Haraldssyni, f. 8.
ágúst 1951. Börn
þeirra eru a) Har-
aldur, f. 1978, kvæntur Ceciliu
Rose Collins. Synir þeirra eru
Guðmundur Philip og Magnús
Benjamin. b) Kristín, f. 1983. c)
Björg, f. 1987, gift Ármanni
Guðjónssyni. Synir þeirra eru
Rúnar Ingi og Björn Einar. 4)
Ófeigur, skrifstofumaður, f. 1.
febrúar 1958. Sambýliskona
hans er Friðgerður María Frið-
riksdóttir, f. 12. september
1965. Dætur Ófeigs eru: a)
Oddný, f. 1984. b) Jóhanna
Helga, f. 1988, gift Daniel Má
Bonilla. Dóttir þeirra er Diljá
Karen. Börn Friðgerðar eru
Andri, Birna og Sigurður Már.
Eftir andlát föður síns árið
1934 ólst Kristín upp á Vatns-
nesi í Keflavík hjá hjónunum
Bjarnfríði Sigurðardóttur og
Jóhanni Guðnasyni útvegs-
bónda og kaupmanni. Auk
hennar ólu þau upp Fal Guð-
mundsson, Helgu Þorsteins-
dóttur og Sigríði Jónsdóttur.
Kristín hélt alltaf góðu sam-
bandi við móður sína og systur.
Eftir skólagöngu í Keflavík
stundaði hún nám við Hús-
mæðraskólann í Reykjavík.
Síðan lærði hún kjólasaum og
starfaði við það í um tíma.
Kristín og Guðmundur voru alla
tíð skátar af lífi og sál. Kristín
gekk í Oddfellowregluna árið
1972, í Rb.st.nr. 4, Sigríði, og
lagði sitt af mörkum áratugum
saman með vinnu í fjáröflunar-
starfi stúkunnar til líknarmála.
Kristín verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í dag, 7. ágúst
2019, klukkan 13.
Elsku amma Kristín okkar
hefur kvatt þennan heim, södd og
sæl lífdaga og fyrir margt löngu
tilbúin að kveðja, henni fannst
ekki mjög fínt að vera orðin
svona gömul og ekki frjáls ferða
sinna.
Amma okkar var hlý og góð
kona, vildi okkur allt hið besta og
gladdist yfir öllum sigrum okkar í
lífinu, smáum sem stórum.
Amma var fín frú í orðsins
fyllstu merkingu og heimsborg-
ari. Alltaf vel tilhöfð í nýjustu
tísku en var að sama skapi mikill
töffari með bein í nefinu. Afi var
oft sendur í tískuvöruverslanir
bæjarins til að staðgreiða flíkur
sem hún hafði tekið frá fyrr um
daginn og kvatt með orðunum
„Guðmundur kemur og greiðir
fyrir mig“ sem auðvitað alltaf
stóðst.
Amma Kristín var stoltur
Keflvíkingur þó að við deilum
ekki endilega því stolti hennar
enda Keflavík í okkar huga helst
körfuboltalið sem einn okkar
þurfti of oft að lúta í lægra haldi
fyrir. Hún sagði margar sögur
frá uppvaxtarárum sínum í
Keflavík og Vatnsnesið var alltaf
ofarlega í huga hennar. Að koma
þangað með ömmu er góð minn-
ing, þá vaknaði hún til lífsins og
varð að Stínu á Vatnsnesi og
henni leiddist ekki að sýna okkur
alla króka og kima í húsinu sem
hún ólst upp í.
Að koma í Brekkugerði til
ömmu og afa var alltaf heimsókn
sem skildi eitthvað eftir sig. Það
var þó oft ekki fyrr en seinna sem
maður skildi hversu lærdómsrík-
ar þær voru. Hjá ömmu og afa
lærði maður að skilja að heimur-
inn væri ekki einsleitur og að lífið
væri ekki alltaf auðvelt og ef
maður kæmi hreint fram og legði
sig fram væru manni allir vegir
færir. Við lærðum líka að meta
fegurðina í svo mörgu, hvort sem
það væri í Pétri og úlfinum, al-
fræðiorðabókum, skák eða í pútt-
keppni á ganginum í Brekku-
gerði.
Amma og afi höfðu bæði upp-
lifað margt í gegnum lífið og vissu
að hlutirnir voru ekki sjálfsagðir,
maður þarf að vinna fyrir þeim.
Og best væri að vinna fyrir sér í
lífinu með heiðarleika og réttsýni
að leiðarljósi. Þau lögðu bæði
mikla áherslu á að við viðuðum að
okkur þekkingu, þekking væri
lykillinn að því að opna dyr að
betra og innihaldsríkara lífi.
Amma þekkti afa vel, svo vel
að hún fékk okkur oftar en einu
sinni til að vera kylfusveinar hjá
honum í tíðum golfferðum.
Amma vissi nefnilega að bensín-
fóturinn væri léttari hjá afa ef
dýrmætur farmur eins og barna-
barn væri um borð. Ekki gátum
við mikið ráðlagt afa um kylfur
eða lestur á flötum, en mannlegar
bremsur vorum við og afi kom
heill heim eftir góðan dag í
Grafarholti, Hellu eða hvar sem
hægt var að spila þeirra uppá-
haldsíþrótt.
Við eigum eftir að sakna
ömmu, hún var alltaf til staðar og
kom í flest boð þrátt fyrir heilsu-
brest því hún vildi hitta fólkið
sitt, gleðjast með barna- og
barnabarnabörnum. Amma var
stolt af sínu fólki, öll höfum við
komist klakklaust í gegnum lífið
og með nokkrum sóma, þá er hún
sátt og glöð. Ef við villumst af leið
finnur hún svo eflaust leið til að
koma þeim skilaboðum til okkar.
Kristinn, Ólafur og Guð-
mundur Jóhannssynir.
Kristín
Guðmundsdóttir