Morgunblaðið - 07.08.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 07.08.2019, Síða 32
emmessis.is Söngsveit frá Dómkirkjunni í Lundi kemur fram með 3 klassískum og 1 prúðbúnum í Hólmavíkurkirkju í kvöld kl. 20 og syngja létt og skemmtileg sumarlög ásamt klass- ískum söngvum og sálmum. 3 klassískar og 1 prúðbúinn eru Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þór- hallsdóttir, Signý Sæmundsdóttir og Bjarni Jónatansson píanóleik- ari. Söngsveit, klassískar og einn prúðbúinn MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 219. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. KR-ingar færðust enn nær Íslands- meistarabikarnum í gærkvöld þeg- ar þeir unnu 5:2-sigur á eina liðinu sem unnið hefur KR í sumar, Grindavík, í Frostaskjóli. KR er nú með 13 stiga forskot á næsta lið, Breiðablik, sem þó á leik til góða. FH og ÍA eru jöfn í 3.-4. sæti eftir að Steven Lennon tryggði FH dísætan 1:0-sigur á ÍA. »26-27 Forskot KR 13 stig og FH komst að hlið ÍA ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Íslenska karlalandsliðið í körfu- bolta hefur komist á EM í síðustu tvö skipti en á fyrir höndum langa og erfiða leið að þriðja Evr- ópumótinu í röð. Ferðalagið hefst í Portúgal í kvöld þar sem Ísland mætir heimamönnum en Svisslend- ingar koma svo í heimsókn í Laug- ardalshöll á laugardag. Íslenska lið- ið teflir fram einum nýliða í hópnum, Frank Aroni Booker, og þá getur Jón Axel Guð- mundsson verið með en hann hefur vakið athygli í bandaríska háskólakörfu- boltanum. »24 Erfiður leiðangur hefst í Portúgal í kvöld Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Mikil spenna er í loftinu í Berlín um þessar mundir en þar eru nú hundr- uð Íslendinga samankomin á heims- meistaramóti íslenska hestsins sem haldið er dagana 4. til 11. ágúst. Hestakonan Þórunn Eggerts- dóttir segir stemninguna vera frá- bæra en hún mætti ásamt eig- inmanni og tveimur dætrum á heimsmeistaramótið í gær. Segir hún alla fjölskylduna vera með „hestabakteríuna“ en Beggi Egg- ertsson bróðir hennar er í landslið- inu og keppir í skeiðgreinum á mótinu. Sat hún ásamt fjölskyldu sinni í ís- lendingastúkunni svokölluðu ásamt öðrum Íslendingum þegar blaða- maður gaf sig á tal við hana símleiðis í gær. Gríðarleg fagnaðarlæti heyrð- ust í stúkunni þegar Íslendingurinn Kristján Magnússon kom í braut en hann keppir fyrir hönd Svíþjóðar. „Þegar Íslendingur kemur í braut er hrópað, kallað og klappað og ís- lenska fánanum er veifað. Mjög margir eru komnir í bláa íslenska landsliðstreyju sem gerð var fyrir mótið þannig að stúkan er svolítið blá hjá okkur,“ segir Þórunn. Telur hún að um 300 Íslendingar hafi verið í stúkunni þegar mest var í gær. Bú- ist er við að yfir 2.000 Íslendingar sæki mótið í ár en flestir mæta á mótið í dag og á morgun. „Þetta er svolítið eins og að vera í stúkunni á heimsmeistaramóti í handboltanum eða fótboltanum. Maður fyllist stolti og stendur upp og allir halda með sínu landi,“ segir hún. „Húh-stemning“ í stúkunni Þórunn staðfestir að íslenska „Húh-ið“, sem frægt varð á HM í fótbolta, hafi verið tekið í íslend- ingastúkunni. „Það var „„Húh-stemning“ hérna áðan. Það varði samt bara stutt því að hestarnir eru hér beint fyrir framan okkur og þegar það er mest- ur hávaði er þetta svolítið mikill há- vaði fyrir hestana. Við reynum að vera tillitssöm líka,“ segir Þórunn og hlær. Segir hún spennuna vera gríð- arlega og að margir áhorfendur í stúkunni séu jafnvel stressaðri yfir keppninni en knaparnir sjálfir. Að sögn Þórunnar byrjar dag- urinn snemma hjá öllum áhorf- endum en þeir verða að vera mættir á völlinn klukkan átta alla morgna. „Maður vill ekki missa af neinu. Við komum snemma og förum seint niður á hótel,“ segir Þórunn. Ýmsir viðburðir eru í boði utan keppnistíma en Helgi Björns mun til að mynda halda uppi fjörinu á ís- lensku sveitaballi á föstudagskvöld- inu og spila á tónleikum á laug- ardagskvöldinu ásamt fleira tónlistarfólki. Áfram Ísland Þórunn, Halldór og dætur þeirra Sigrún og Jóna halda með Íslandi á HM íslenska hestsins. Búist við 2.000 manns á HM íslenska hestsins  Segir stemninguna í stúkunni minna á HM í fótbolta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.