Morgunblaðið - 16.08.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Op i ð v i r k a d a g a 11 -18 / l a u g a r d . 11 -17 / s u nnud . 12 -17 / S ím i 5 6 2 0 0 16
T Í S K A & L Í F S S T Í L L
S k ó l a v ö r ð u s t í g 1 6 a
Rýmingar-
SALA
50% afslátturaf fatnaði
VERSLUNIN HÆTTIR
Þeir sem vilja klífa tind Everest,
hæsta fjalls jarðar, þurfa að sýna
fram á að þeir séu reyndir fjall-
göngumenn verði tillögur
ráðgjafarnefndar á vegum stjórn-
valda í Nepal samþykktar.
Nefndin leggur til að fjallgöngu-
menn verði að klífa a.m.k. 6.500
metra hátt fjall í Nepal áður en
þeim verði heimilað að ganga á tind
Everest sem er 8.848 metra hátt.
Fjallgöngumennirnir þurfi einnig
að leggja fram vottorð um að þeir
séu við góða heilsu og sýna að þeir
hafi ráðið reynda leiðsögumenn.
Gjaldið sem greiða þarf fyrir leyfi
til að klífa fjallið verður hækkað í
jafnvirði 4,4 milljóna króna úr 1,4
milljónum.
Yogesh Bhattari, ferðamála-
ráðherra Nepals, sagði að stefnt
væri að því að breyta lögunum í
samræmi við tillögur nefndarinnar.
Markmiðið með þeim væri að auka
öryggi göngumanna á fjallinu. Ell-
efu manns dóu á Everestfjalli í ár,
þar af níu á leiðinni frá Nepal.
A.m.k. fjögur dauðsfallanna voru
rakin til of mikils fjölda göngu-
manna á fjallinu í einu, að sögn
fréttaveitunnar AFP. Hún hefur
eftir sérfræðingum að mörg dauðs-
fallanna megi einnig rekja til
reynsluleysis göngumanna.
Alls klifu 885 manns Everestfjall
í ár, fleiri en nokkru sinni fyrr.
Heimildir: 8000ers/RichardSalisbury/HimalayanDatabase/yfirvöld í Nepal
Everestfjall
1. búðir
6.035 m
3. búðir
7.158 m
Khumbu-
skriðjökullinn
4. búðir
7.906 m
Hillary-þrepLeiðin um Suðurskarð
frá Nepal
Grunnbúðir
5.364 m
Tindur
8.848 m
Katmandú
Everestfjall
INDLAND
KÍNA
60 km
NEPAL
2. búðir
6.474 m
2004 19*17151311200907
Dauðsföll á fjallinu
Fjöldi dauðsfalla á ári frá 2004
7
6
5 5
14**
11
17
8
10
4
3
5
1
7
11
6
Leið frá Nepal
*skv. uppl. frá 29. maí
Leið frá Tíbet
**að frátöldum fjórum dauðsföllum í grunnbúðunum
Reglur um göngu á Everest hertar
Innanríkisráðuneyti Ísraels tilkynnti í
gær að það hefði ákveðið að meina
tveimur bandarískum þingkonum að
ferðast til landsins vegna þess að þær
hefðu hvatt fólk til að sniðganga ísr-
aelskar vörur.
Gert hafði verið ráð fyrir því að
þingkonurnar tvær, Ilhan Omar og
Rashida Tlaib, færu til Ísraels um
helgina. Þær hugðust fara á svæði
Palestínumanna á Vesturbakkanum
og Austur-Jerúsalem.
Omar og Tlaib hafa báðar hvatt til
þess að ísraelskar vörur verði snið-
gengnar vegna mannréttindabrota
Ísraela á svæðum Palestínumanna.
Lög í Ísrael heimila að þeim sem beita
sér gegn landinu með þessum hætti
verði meinað að ferðast þangað en ísr-
aelskir embættismenn höfðu sagt að
þingmönnum frá Bandaríkjunum yrði
veitt undanþága.
Innanríkisráðuneytið tilkynnti
ákvörðun sína skömmu eftir að Don-
ald Trump Bandaríkjaforseti hvatti til
þess að þingkonunum yrði meinað að
ferðast til Ísraels. Hann sagði á Twitt-
er að það væri til marks um „mikinn
veikleika“ ef stjórnvöld í Ísrael heim-
iluðu bandarísku þingkonunum að
ferðast þangað. „Þær hata Ísrael og
alla gyðingaþjóðina,“ sagði hann.
Óvirðing við þingið?
Áhrifamikill þrýstihópur stuðn-
ingsmanna Ísraels í Bandaríkjunum,
AIPAC, kvaðst vera andvígur ákvörð-
un ísraelskra stjórnvalda. Þótt hann
væri ósammála viðhorfum þing-
kvennanna tveggja til Ísraels teldi
hann að leyfa ætti öllum kjörnum
fulltrúum bandarísku þjóðarinnar að
ferðast þangað.
Tlaib er af palestínskum ættum en
fæddist í Michigan. Omar fæddist í
Sómalíu og var kjörin í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings fyrir Minnesota í
síðustu kosningum. Þær hafa báðar
neitað því að þær hati gyðinga.
Palestínski embættismaðurinn
Hanan Ashrawi sagði að ákvörðun
Ísraelsstjórnar væri „svívirðileg at-
laga að bandarísku þjóðinni og fulltrú-
um hennar“ og „hættulegt fordæmi“
sem samræmdist ekki venjum í sam-
skiptum ríkja.
Trump hafði áður gagnrýnt Tlaib
og Omar harkalega og hvatt þær til að
fara aftur til landa sinna.
Tom Malinowski, demókrati í full-
trúadeildinni, sagði að ákvörðun Ísr-
aela væri óvirðing við þing Bandaríkj-
anna og gagnrýndi ummæli Trumps
um þingkonurnar. „Fyrst sagði hann
þingkonunni Tlaib að „fara aftur“ til
landsins „hennar“ en svo segir hann
því landi að hleypa henni ekki þang-
að.“ bogi@mbl.is
Meina þingkonum
að fara til Ísraels
Ísraelar fara að ráði Donalds Trumps
Rashida Tlaib Ilhan Omar