Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
✝ Arnar Pálma-son fæddist á
Ísafirði 17. ágúst
1986. Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítala 7.
ágúst 2019.
Foreldrar hans
eru Pálmi Kristinn
Jónsson, f. 7. janúar
1960, og Jóhanna
Jóhannesdóttir, f.
30 mars 1967. For-
eldrar Pálma eru Jón Páll Hall-
dórsson, f. 2. október 1929, og
Hulda Pálmadóttir, f. 16. sept-
ember 1927, d. 30. október
2018. Foreldrar Jóhönnu eru
Guðni Ásmundsson, f. 9. sept-
ember 1938, og Sigrún Vern-
harðsdóttir, f. 29. júní 1940.
Áslaug S. Alfreðsdóttir, f. 30.
mars 1950, og Ólafur Örn
Ólafsson, f. 20. desember 1953.
Bræður Kristínar eru Geir
Oddur, f. 1979, og Gylfi, f. 1983.
Arnar ólst upp á Ísafirði og
Mjólkárvirkjun í Arnarfirði þar
sem fjölskyldan bjó í fjögur ár.
Hann gekk í grunnskóla og
menntaskóla á Ísafirði þaðan
sem hann lauk stúdentsprófi og
prófi í húsasmíði árið 2009.
Lengst af vann Arnar sem
nemi og síðar húsasmiður hjá
Vestfirskum verktökum á Ísa-
firði. Auk þess starfaði hann
meðal annars hjá slökkviliði
Ísafjarðarbæjar, hjá Íbúðalána-
sjóði og Húsasmiðjunni. Síðustu
ár stundaði Arnar nám við við-
skiptafræðideild Háskóla Ís-
lands.
Útför Arnars fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 16. ágúst
2019, klukkan 15.
Systkini Arnars
eru: Jón Guðni, f.
15. febrúar 1990,
unnusta Kristín
Greta Bjarnadótt-
ir, f. 12. apríl
1992, dætur
þeirra Hólmfríð-
ur, f. 2011, og
Daníela, f. 2017;
Hulda, f. 28. októ-
ber 1998, sambýl-
ismaður Vilmund-
ur R. Reimarsson, f. 6. maí
1998.
Arnar kvæntist 16. janúar
2016 Kristínu Ólafsdóttur, f. 16.
september 1986. Synir þeirra
eru Ólafur Ernir, f. 16. júní
2011, og Einar Atli, f. 29. júní
2014. Foreldrar Kristínar eru
Þær haldast fast í hendur syst-
urnar; ást og söknuður, og flestir
kynnast þeim á lífsleiðinni. Nú
togast á þessar tilfinningar, að
elska eins mikið og ég elska Arnar
en á sama tíma finna fyrir svona
botnlausum söknuði.
Arnar var gömul sál og það lék
allt í höndum hans. Handlaginn og
úrræðagóður, vandvirkur og hug-
myndaríkur. Mikill áhugamaður
um tónlist, vín, mat og föt. Smekk-
maður.
Af æðruleysi, hugrekki og mikl-
um krafti tókst Arnar minn alltaf
á við sín alvarlegu veikindi. Æðru-
leysi hans og viðhorf til lífsins var
einstakt. Hann gaf alltaf allt í hlut-
ina, sama hvað það kostaði. Allt
sem Arnar ætlaði sér, það gerði
hann og það sem hann ætlaði að
gera með strákunum okkar, það
gerði hann. Hann var alltaf til
staðar fyrir okkur.
Eftir situr mikill tómleiki, sorg
og söknuður og eigum við erfitt og
stórt verkefni fyrir höndum en ég
geymi í hjarta mínu um ókomin ár
minningar um yndislegasta mann-
inn, minn allra besta vin og pabba.
Elsku ástin mín, vináttu okkar
fylgdi óbilandi ást, væntumþykja
og virðing og það geymi ég í hjarta
mínu alla tíð. Ég mun halda fast
utan um drengina okkar, ala þá
upp eftir okkar gildum og minna
þá á hversu mikill Ísfirðingur
pabbi þeirra var.
Þín
Kristín.
Elsku Arnar, nú hefur þú kvatt
okkur í hinsta sinn.
Eftir sitja margar minningar
um yndislegan og umhyggjusam-
an bróður sem ávallt passaði upp á
litlu systur sína. Kenndir mér á líf-
ið og veginn. Þú hafðir mikla þol-
inmæði fyrir mér og nenntir að
kenna mér og hjálpa í hverju sem
var, hvort sem það var skólaverk-
efni eða lífið. Eins og þú sagðir
alltaf; það væri svo gott að hafa
mig því ég hefði svo góða nær-
veru. Þú varst besti bróðir sem
maður getur óskað sér.
Alla mína tíð hef ég litið upp til
þín og reynt að tileinka mér um-
hyggjusemi þína, dugnað og hug-
rekki. Þú hafðir svo einstakt við-
horf til lífsins og marga drauma.
Við áttum einstaka vináttu og
fyrir hana er ég ævinlega þakklát.
Minning þín lifir í hjarta okkar
alla tíð.
Þér ég þakka
vináttu og góðar stundir
Hlýja hönd og handleiðslu,
okkar stundir saman.
Bjartar minningar lifa
ævina á enda.
(Hulda Ólafsdóttir)
Þangað til næst.
Þín
Hulda.
Elsku bróðir. Það er óraun-
verulegt að þú sért farinn frá okk-
ur. Aldrei hugsaði maður til þess
að það yrði raunveruleikinn þrátt
fyrir að hafa alltaf talað opinskátt
um dauðann, alveg frá því við vor-
um unglingar. Oft sagðistu hafa
það á tilfinningunni að þú yrðir
ekki langlífur.
Þú hefur alltaf fyllt mann af
bjartsýni og von í þínum veikind-
um. Það var alveg sama hversu
mikið gekk á; hugurinn var alltaf á
réttum stað, sem lýsti einstöku
geði þínu. Það var alveg sama
hvað menn reyndu að fá þig til að
hugsa svart, þú varst alltaf já-
kvæður fram á hinsta dag.
Þegar ég sest niður og fer að
hugsa til baka rifjast upp fyrir
mér hvernig persónuleiki þinn var
strax frá upphafi. Þolinmæðin
sem þú hafðir fyrir mér og leikn-
um með gröfurnar og bílana þrátt
fyrir að þú værir orðinn tólf ára og
ég átta. Ég gleymi því ekki hvað
ég var sár þegar mamma sagði
eitt sinn við mig að þú hefðir ekki
áhuga á að leika með þetta dót við
mig lengur, þá varstu líklega bú-
inn að sitja á þér lengi. Ég man
líka eftir öllum Lethal Weapon- og
Die Hard-maraþonunum yfir jólin
þar sem smákökurnar og skinku-
hornin voru kláruð í óþökk
mömmu, og ekki má gleyma jóla-
ísnum.
Í seinni tíð, eftir að börnin okk-
ar fæddust, urðum við enn nánari
og samverustundirnar fleiri. Við
heyrðumst í síma daglega og af-
rekuðum að fara í fullt af fjöl-
skyldufríum saman með krakkana
okkar og sköpuðum þannig minn-
ingar sem ég mun alltaf lifa á.
Fyrir það er ég þakklátur.
Það sem ég mun sakna þín,
elsku bróðir minn. Það á eftir að
vera mér erfitt að hafa þig ekki
hér til að leita ráða hjá og það sem
ég á eftir að sakna allra löngu sím-
talanna sem við áttum þegar
krakkarnir voru sofnaðir. Ég mun
standa við það sem ég var búinn
að lofa þér; að halda minningu
þinni á lofti, bæði við mín börn og
þín. Ég mun passa upp á strákana
þína og Kristínu þína, því skal ég
lofa.
Þinn bróðir,
Jón Guðni Pálmason.
Við kynnumst Arnari þegar
Kristín dóttir okkar og hann byrj-
uðu saman árið 2010. Næstu árin
bjuggu þau til skiptis á Ísafirði og
Reykjavík. Fljótlega eignuðust
þau Ólaf Erni. Þegar þau voru á
Ísafirði, meðal annars með yngri
soninn Einar Atla sem brjóst-
mylking, bjuggu þau í kjallaran-
um hjá okkur. Sú sambúð var ein-
staklega góð enda Arnar mikið
ljúfmenni.
Arnar lærði húsasmíði á Ísa-
firði og vann við það um árabil auk
sjúkraflutninga þar til fjölskyldan
flutti til Reykjavíkur. Hugur hans
stefndi í háskólanám og stundaði
hann það meðan heilsa og kraftar
leyfðu.
Krabbameinið sem hann fékk
var mjög sjaldgæft og því lítið um
rannsóknir og lyf. Veikindin hóf-
ust fyrir um áratug og á þeim tíma
skiptust á góð og erfið tímabil.
Arnar tókst á við veikindi sín af
svo miklu æðruleysi að undrum
sætti, eins og raunar allt það sem
hann tókst á við. Lundarfar hans
var einstakt, hann skipti aldrei
skapi og hafði þolinmæði til að
taka öllu með jafnaðargeði. Þau
Kristín voru samstiga í að lifa líf-
inu á heilbrigðan og jákvæðan
hátt og njóta þess tíma sem þau
höfðu.
Arnar var mikill fjölskyldumað-
ur og stórfjölskyldan var honum
allt. Hann var mjög barngóður og
sérlega natinn við syni sína, var
alltaf til staðar þegar á þurfti að
halda. Hann var umhyggjusamur
og hafði mikinn áhuga á fólki og
átti auðvelt með að ræða við fólk á
öllum aldri.
Arnar var einstaklega bóngóð-
ur og þótti aldrei neitt mál að að-
stoða auk þess sem hann var mjög
vandvirkur, mikill dútlari og vildi
gera alla hluti vel.
Áhugamálin voru af ýmsum
toga, öll útivera, skíði og allt sem
tengdist veiði. Hann útbjó sér að-
stöðu í bílskúrnum þar sem hann
gat dundað sér við alls kyns verk-
efni. Hann hafði mikinn áhuga á
myndlist og ljósmyndun og ekki
má gleyma áhuga hans á víni og
mat. Hann þreyttist aldrei á að
tala um og rifja upp gamlar minn-
ingar frá uppáhaldsstöðunum sín-
um í Trostansfirði og Fljótavík.
Það var honum mikil gleði að geta
heimsótt báða þessa staði í fyrra-
sumar.
Allt var í röð og reglu og á sín-
um stað hjá Arnari og hann hafði
smekk fyrir gæðum og fallegum
hlutum og sterkar skoðanir á fatn-
aði og fatamerkjum.
Tónlist skipaði stóran sess hjá
Arnari og þá aðallega tónlist frá
sjöunda og áttunda áratugnum.
Þeir Óli ræddu oft og lengi um
tónlist og fóru ófáar ferðir, bæði
innanlands og utan, til að sjá og
heyra í goðunum m.a. Rolling Sto-
nes, Black Sabbath og Paul
McCartney.
Arnar var stoð og stytta þegar
kom að tæknimálum tengdafor-
eldrana; uppfæra tölvu, tengja eða
leiðrétta eitthvað, alltaf gat hann
komið okkur til bjargar án þess að
pirrast yfir klaufaskapnum.
Það er vart hægt að hugsa sér
betri vin og tengdason, enda kall-
aði Óli hann „Arnar minn“. Hug-
ulsamur, ósérhlífinn og hugsaði
alltaf fyrst um aðra. Hann var allt-
af til staðar með sitt ljúfa skap,
sem breyttist aldrei, sama hvað á
dundi.
Arnar okkar þráði það heitast
að geta notið lífsins með fjölskyld-
unni og fylgt sonum sínum út í líf-
ið, en örlögin urðu önnur og nú
kveðjum við góðan dreng eftir
löng og ströng veikindi.
Ólafur og Áslaug.
Það var fyrir sléttum níu árum
að Kristín mætti með Arnar í sum-
arferð Miðtúnsfjölskyldunnar að
Mývatni. Við fundum strax að um
vandaðan mann var að ræða og
féll hann fljótt og vel inn í fjöl-
skylduna.
Arnar var einstaklega barngóð-
ur og tengdust hann og elsta dótt-
ir okkar, Kristín Lilja, sterkum
böndum. Gekk hann ætíð undir
nafninu uppáhaldsfrændinn. Það
er í raun ekkert skrýtið að hann
hafi hlotið þann titil því Arnar var
einstakur maður, traustur og heill.
Þegar það var flís í tá, eyrnalokks-
festing föst í eyrnasnepli eða laus
tönn var það alltaf Arnar sem
mátti skoða og ákveða hvað gert
yrði í málunum. Börnin treystu
honum enda kom hann alltaf fram
við þau af virðingu, hlýju og ein-
stakri góðmennsku.
Arnari var hjálpsemi í blóð bor-
in og ekkert verkefni var honum
óviðkomandi eða of stórt, hvort
sem um var að ræða fiðrildaköku-
gerð fyrir afmæli eða flutnings-
þrif. Hann vildi taka þátt í lífinu og
tók fagnandi á móti nýjum áskor-
unum, alltaf jákvæður og með
bros á vör. Hann lagði ríka
áherslu á séntilmennsku og var
alltaf snyrtilegur og flottur í
tauinu.
Arnar hafði mikinn og einlæg-
an áhuga á fólki. Hann var nær-
gætinn og átti auðvelt með að
setja sig í spor annarra. Einn af
mörgum mannkostum Arnars var
hversu næmt auga hann hafði fyr-
ir styrkleikum fólks og var hann
afskaplega duglegur að hrósa –
hvort sem það voru hans nánustu
eða aðrir.
Þegar halla tók undan fæti hjá
Arnari tóku þau hjónin hverju
verkefni með opnum hug, já-
kvæðni og æðruleysi. Samband
þeirra var þroskað og einstakt og
skein vináttan, væntumþykjan og
styrkurinn í gegn. Kristín, Arnar
og strákarnir tveir nýttu hvert
tækifæri til að skapa saman góðar
minningar, t.d. með því að fara í
ferðalög, á skíði eða í hjólatúra.
Þrátt fyrir erfið tímabil var ekkert
gefið eftir og þau gáfu enn meira
af sér. Kristín og Arnar hafa
kennt okkur öllum mikið um lífið
og tilveruna og það að geta notið
hvers dags eru forréttindi sem
þakka ber fyrir.
Það er þyngra en tárum taki að
kveðja Arnar okkar en minningin
um yndislegan og einstakan dreng
lifir í hjarta okkar alla tíð.
Geir Oddur, Erla Sigríður
og dætur.
Það er sárt að kveðja þann sem
hefur fylgt manni frá fyrstu minn-
ingum, gengið hlið við hlið í gegn-
um lífið. Drengurinn sem ekkert
vildi nema Honey Nut Cheerios
varð fljótt að rödd skynseminnar
fyrir stóra frænda sinn og var það
allt til enda.
Í millitíðinni höfðum við brasað
svo ótalmargt, allt frá því gera
stíflur í Fljótavík til þess að fá
leyfi til að vaka eftir úrslitakeppni
NBA í körfubolta, tíu og sjö ára
gamlir, á Urðarveginum. Okkur
var það sérstaklega minnisstætt
því þarna sátum við agndofa
frændurnir þegar skipt var af
leiknum í háspennueltingaleik lög-
reglunnar við O.J. Simpson, leik-
inn sáum við ekki en það skipti
engu, þetta var miklu betra.
Arnar var höfðingi heim að
sækja alla tíð. Við félagarnir að
sunnan lögðum í fræga ferð vestur
á ball hvítasunnuhelgina 2004 á
tveimur fullum bílum. Þegar við
vorum komnir í Ísafjarðardjúp
hringir Arnar og segir okkur að
koma beint upp á Engjaveg þar
sem biðu veitingar og grillmatur
sem nægt hefðu að minnsta kosti
helmingi fleirum. Ferðirnar vest-
ur voru ótalmargar þar sem
klukkan var alltaf gleði og margar
stórkostlegar hugmyndir kvikn-
uðu sem flestar áttu það sameig-
inlegt að vera gleymdar daginn
eftir.
Áhugamálin þróuðust í sitt-
hvora áttina og þegar kom að tón-
list voru fáir fróðari. Það átti fyrst
við um tónlist sem gerð hafði verið
fyrir þó nokkru enda heillaði
gamli tíminn Arnar alla tíð. Sög-
urnar af Woodstock og fleiri við-
burðum voru sagðar af einskær-
um áhuga og þekkingu. Það kom
að því að stóri frændi var beðinn
að halda sögum af dönsum okkar
við hljómsveitina Offspring fyrir
sig, sem var að sjálfsögðu sam-
þykkt.
Vináttan var yfir áhugamál haf-
in, frændskapurinn var alltaf
ósnertanlegur og aldrei rifumst
við eða létum okkur leiðast. Stað-
an er aldrei svo slæm að ekki megi
hallmæla vinstriflokkunum eða
ylja sér við mynd úr Clint Eastwo-
od-safninu, það vissum við frænd-
urnir manna best.
Smiðsprófið var tekið með stæl
enda voru handlagnari menn
vandfundnir. Arnar hafði hæfi-
leika, þolinmæði og jafnaðargerð
til að leysa öll þau erfiðu verkefni
sem lögð voru fyrir hann, aldrei af
neinu hálfkáki, heldur svo gott
sem fullkomlega. Þegar kom að
heimferð suður í eitt skiptið kom
Arnar til mín með gjöf í hendinni.
Hann vissi að ég hafði týnt tóbaks-
sprautunni minni sem ég gat illa
án verið í slíkum ferðum og hafði
gert nýja úr varahlutum og tækni-
legó. Sú sprauta virkaði óaðfinn-
anlega en það er fátt sem lýsir
Arnari betur en þetta, því svona
var hann alltaf. Traustur og úr-
ræðagóður drengur sem setti þá
sem honum þótti vænt um alltaf í
fyrsta sæti og gerði alla tíð. Betri
vin og samferðamann mun enginn
finna.
Elsku Arnar, það er þyngra en
tárum taki að rita þessi orð þótt ég
reyni að hafa þitt einstaka æðru-
leysi og jákvæðni að leiðarljósi,
sem er eitt af mörgu sem þú
kenndir mér í öllu þínu ósann-
gjarna mótlæti. Kristínu, strákun-
um og fjölskyldunni sendi ég mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Takk fyrir vináttuna, trygg-
lyndið, trúna og allar ótalmörgu
minningarnar sem munu ylja mér
alla tíð.
Þú varst mér og verður alltaf
sem bróðir.
Einar Jóhannes Finnbogason.
Þá er komið að kveðjustund,
kæri vinur. Sú tilhugsun er bæði
erfið og ósanngjörn en eftir sitja
ógrynni af góðum minningum.
Að eiga þig sem vin voru for-
réttindi. Það var gott að vera í
kringum þig, enda ávallt með bros
á vör og í góðu skapi. Samband
okkar var einlægt og hafðir þú oft
orð á því hversu þakklátur þú
varst fyrir vinskapinn. Sannarlega
varstu höfðingi heim að sækja
hvort sem það var á Engjavegin-
um eða í Safamýrinni. Ætíð verð-
ur það fast í huga okkar hvernig
þú tókst á móti okkur með opnum
örmum í inniskónum og sagðir:
„Sælir vinir, komið inn, má bjóða
ykkur eitthvað?“ Það var bæði
auðvelt og ánægjulegt að ræða við
þig og gátum við spjallað saman
um daginn og veginn svo tímunum
skipti; um heimahagana ástkæru,
matreiðslu, tónlist, gömlu tímana,
málefni líðandi stundar og hvað-
eina annað sem bar á góma. Upp í
hugann koma þær fjölmörgu sög-
ur sem þú sagðir svo skemmtilega
frá af gömlum rokkhundum, en þá
gat maður ekki annað en hangið á
hverju orði. Þú varst aldrei feim-
inn að ræða veikindin þín ef maður
spurði, en ræddir þau ekki að
fyrra bragði enda ávallt svo hóg-
vær. Það er sárt að hugsa til þess
að samræðurnar verði ekki fleiri.
Fyrir okkur varstu alltaf fyrir-
mynd í lífinu og verður það um
ókomna tíð. Jákvæðni þín og þol-
inmæði eru eiginleikar sem við
getum horft til og lært af. Þegar
leiðir ykkar Kristínar lágu loksins
saman og þið eignuðust strákana
ykkar varst þú okkur leiðarljós í
því hvernig á að vera faðir og eig-
inmaður. Það var aðdáunarvert að
sjá hvernig þú umgekkst fjöl-
skylduna af þínum einstaka kær-
leik. Að fylgjast með þér og Krist-
ínu takast á við erfið veikindi er
okkur síðan kennsla í því hvernig
maður tekst á við áskoranir í líf-
inu. Fyrir það allt verðum við þér
ævinlega þakklátir.
Elsku Arnar, það er sárt að
þurfa að kveðja. Eftir situr ein-
stök vinátta, full af gleði, skilningi,
væntumþykju og minningum sem
gleymast aldrei.
Þínir vinir,
Gunnar Ingi og Unnþór.
Arnar Pálmason
Fleiri minningargreinar
um Arnar Pálmason bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
aldrei gleyma. Viðhorfin hafa
svo sannarlega breyst til betri
vegar í búsetumálum fatlaðs
fólks og Sigríður Ósk upplifði
þær breytingar; að flytja frá al-
tækri stofnun, frá sambýli og til
heimilis síns í Blikaási.
Í Klettahrauninu áttum við
samfylgd í 15 ár. Samferðin með
Sigríði Ósk, föður hennar og
systkinum var einstök og minn-
ingarnar frá þessum árum mér
sérstaklega hjartfólgnar. Nokk-
ur minningabrot standa upp úr.
Þar má nefna árlegan laufa-
brauðsútskurð á meðal snillinga
sem faðir Sigríðar Óskar var
upphafsmaðurinn að. Ógleyman-
lega ferð til Ítalíu þar sem dval-
ið var á Hótel María við Garda-
vatn. Hjálpartækin voru ekki af
verri endanum; ítalskir karlar
og við ferðafélagarnir. Sigríður
Ósk og hinar ljóskurnar heilluðu
þá upp úr skónum. Þeir vildu
allt fyrir okkur gera þótt þeim
hafi brugðist bogalistin í aðstoð-
inni og uppskorið hlátrasköll
Sigríðar Óskar, en hún hafði
einstakan húmor fyrir hrakföll-
um. Við létum ekkert stoppa
okkur, gerðum allt sem okkur
datt í hug og tókum þátt í öllum
ferðum sem boðið var upp á.
Þar á meðal fórum við í eintaka
ferð með kláf upp í Ítölsku Alp-
ana og Sigríður Ósk skríkti af
hamingju þegar á tindinn var
komið.
Kæra Haddý, Kristinn og
Halla, ég votta ykkur og fjöl-
skyldum ykkar mína dýpstu
samúð um leið og ég þakka ykk-
ur samfylgdina.
Heimilisfólkinu í Blikaási 1 og
starfsfólki þess, vinnufélögum
og öðrum vinum Sigríðar Óskar
votta ég samúð mína.
Sigríður Kristjánsdóttir.
Fleiri minningargreinar
um Sigríður Ósk Jóns-
dóttir bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
skemmtilegum karakter. Þér var
alveg sama þó að ég væri eldri en
þú, þú lést mig alveg heyra það ef
þér fannst ég pirrandi. Það var
svo lýsandi fyrir þig, ákveðin og
frökk. Svo rann þér fljótt reiðin
og við gátum hlegið og spjallað
um hitt og þetta. Þú varst nefni-
lega líka svo yndislega hlý, góð og
fyndin. Það fyrsta sem kemur ein-
mitt í hugann þegar ég hugsa til
þín er hláturinn þinn. Það var
ekki annað hægt en að hlæja þeg-
ar þú byrjaðir. Þú hlóst svo inni-
lega.
Núna undanfarið hafði ég þó
séð þig minna en áður. Ég fylgdist
með þér úr fjarska og fékk að
heyra það helsta sem var að frétta
frá systur þinni. Svo fékkstu
stundum að koma með henni þeg-
ar hún var að fara að hitta mig og
stelpurnar og það var alltaf eins
og ég hefði hitt þig síðast í gær.
Þess á milli varð mér oft hugsað
til þín og hvernig þú hefðir það.
Það var svo yndislegt þegar mað-
ur heyrði góðar fréttir eða sá þig
setja eitthvað á Facebook um að
hlutirnir gengu vel.
Eins og þegar þú fluttir til
Frakklands og virtist njóta lífsins
eða bara þegar þú gerðir eitthvað
sem veitti þér gleði eins og t.d.
eitthvað sem tengdist listinni. Þú
varst nefnilega svo listræn og
hæfileikarík.
En svo gat lífið reynst þér erf-
itt. Þegar sjúkdómurinn var erf-
iður viðureignar og áföll urðu á
vegi þínum.
Lífið getur verið sorglegt og
óskiljanlegt. En það getur líka
verið fullt af gleði og hamingju.
Gleði og hamingju sem ég vona að
umlyki fjölskyldu þína við fallegar
minningar um þig nú á þessum
erfiðu tímum og í framtíðinni.
Minningar um fallegu skellibjöll-
una sem hló svo hátt og smitandi.
Elsku Lilja mín og fjölskylda,
hugur minn er hjá ykkur á þess-
um erfiðu tímum. Megi fallegar
minningar um einstaka systur og
dóttur ylja ykkur um ókomna tíð.
Guðrún Telma
Þorkelsdóttir.