Morgunblaðið - 16.08.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 16.08.2019, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 ✝ Arnar Pálma-son fæddist á Ísafirði 17. ágúst 1986. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítala 7. ágúst 2019. Foreldrar hans eru Pálmi Kristinn Jónsson, f. 7. janúar 1960, og Jóhanna Jóhannesdóttir, f. 30 mars 1967. For- eldrar Pálma eru Jón Páll Hall- dórsson, f. 2. október 1929, og Hulda Pálmadóttir, f. 16. sept- ember 1927, d. 30. október 2018. Foreldrar Jóhönnu eru Guðni Ásmundsson, f. 9. sept- ember 1938, og Sigrún Vern- harðsdóttir, f. 29. júní 1940. Áslaug S. Alfreðsdóttir, f. 30. mars 1950, og Ólafur Örn Ólafsson, f. 20. desember 1953. Bræður Kristínar eru Geir Oddur, f. 1979, og Gylfi, f. 1983. Arnar ólst upp á Ísafirði og Mjólkárvirkjun í Arnarfirði þar sem fjölskyldan bjó í fjögur ár. Hann gekk í grunnskóla og menntaskóla á Ísafirði þaðan sem hann lauk stúdentsprófi og prófi í húsasmíði árið 2009. Lengst af vann Arnar sem nemi og síðar húsasmiður hjá Vestfirskum verktökum á Ísa- firði. Auk þess starfaði hann meðal annars hjá slökkviliði Ísafjarðarbæjar, hjá Íbúðalána- sjóði og Húsasmiðjunni. Síðustu ár stundaði Arnar nám við við- skiptafræðideild Háskóla Ís- lands. Útför Arnars fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 16. ágúst 2019, klukkan 15. Systkini Arnars eru: Jón Guðni, f. 15. febrúar 1990, unnusta Kristín Greta Bjarnadótt- ir, f. 12. apríl 1992, dætur þeirra Hólmfríð- ur, f. 2011, og Daníela, f. 2017; Hulda, f. 28. októ- ber 1998, sambýl- ismaður Vilmund- ur R. Reimarsson, f. 6. maí 1998. Arnar kvæntist 16. janúar 2016 Kristínu Ólafsdóttur, f. 16. september 1986. Synir þeirra eru Ólafur Ernir, f. 16. júní 2011, og Einar Atli, f. 29. júní 2014. Foreldrar Kristínar eru Þær haldast fast í hendur syst- urnar; ást og söknuður, og flestir kynnast þeim á lífsleiðinni. Nú togast á þessar tilfinningar, að elska eins mikið og ég elska Arnar en á sama tíma finna fyrir svona botnlausum söknuði. Arnar var gömul sál og það lék allt í höndum hans. Handlaginn og úrræðagóður, vandvirkur og hug- myndaríkur. Mikill áhugamaður um tónlist, vín, mat og föt. Smekk- maður. Af æðruleysi, hugrekki og mikl- um krafti tókst Arnar minn alltaf á við sín alvarlegu veikindi. Æðru- leysi hans og viðhorf til lífsins var einstakt. Hann gaf alltaf allt í hlut- ina, sama hvað það kostaði. Allt sem Arnar ætlaði sér, það gerði hann og það sem hann ætlaði að gera með strákunum okkar, það gerði hann. Hann var alltaf til staðar fyrir okkur. Eftir situr mikill tómleiki, sorg og söknuður og eigum við erfitt og stórt verkefni fyrir höndum en ég geymi í hjarta mínu um ókomin ár minningar um yndislegasta mann- inn, minn allra besta vin og pabba. Elsku ástin mín, vináttu okkar fylgdi óbilandi ást, væntumþykja og virðing og það geymi ég í hjarta mínu alla tíð. Ég mun halda fast utan um drengina okkar, ala þá upp eftir okkar gildum og minna þá á hversu mikill Ísfirðingur pabbi þeirra var. Þín Kristín. Elsku Arnar, nú hefur þú kvatt okkur í hinsta sinn. Eftir sitja margar minningar um yndislegan og umhyggjusam- an bróður sem ávallt passaði upp á litlu systur sína. Kenndir mér á líf- ið og veginn. Þú hafðir mikla þol- inmæði fyrir mér og nenntir að kenna mér og hjálpa í hverju sem var, hvort sem það var skólaverk- efni eða lífið. Eins og þú sagðir alltaf; það væri svo gott að hafa mig því ég hefði svo góða nær- veru. Þú varst besti bróðir sem maður getur óskað sér. Alla mína tíð hef ég litið upp til þín og reynt að tileinka mér um- hyggjusemi þína, dugnað og hug- rekki. Þú hafðir svo einstakt við- horf til lífsins og marga drauma. Við áttum einstaka vináttu og fyrir hana er ég ævinlega þakklát. Minning þín lifir í hjarta okkar alla tíð. Þér ég þakka vináttu og góðar stundir Hlýja hönd og handleiðslu, okkar stundir saman. Bjartar minningar lifa ævina á enda. (Hulda Ólafsdóttir) Þangað til næst. Þín Hulda. Elsku bróðir. Það er óraun- verulegt að þú sért farinn frá okk- ur. Aldrei hugsaði maður til þess að það yrði raunveruleikinn þrátt fyrir að hafa alltaf talað opinskátt um dauðann, alveg frá því við vor- um unglingar. Oft sagðistu hafa það á tilfinningunni að þú yrðir ekki langlífur. Þú hefur alltaf fyllt mann af bjartsýni og von í þínum veikind- um. Það var alveg sama hversu mikið gekk á; hugurinn var alltaf á réttum stað, sem lýsti einstöku geði þínu. Það var alveg sama hvað menn reyndu að fá þig til að hugsa svart, þú varst alltaf já- kvæður fram á hinsta dag. Þegar ég sest niður og fer að hugsa til baka rifjast upp fyrir mér hvernig persónuleiki þinn var strax frá upphafi. Þolinmæðin sem þú hafðir fyrir mér og leikn- um með gröfurnar og bílana þrátt fyrir að þú værir orðinn tólf ára og ég átta. Ég gleymi því ekki hvað ég var sár þegar mamma sagði eitt sinn við mig að þú hefðir ekki áhuga á að leika með þetta dót við mig lengur, þá varstu líklega bú- inn að sitja á þér lengi. Ég man líka eftir öllum Lethal Weapon- og Die Hard-maraþonunum yfir jólin þar sem smákökurnar og skinku- hornin voru kláruð í óþökk mömmu, og ekki má gleyma jóla- ísnum. Í seinni tíð, eftir að börnin okk- ar fæddust, urðum við enn nánari og samverustundirnar fleiri. Við heyrðumst í síma daglega og af- rekuðum að fara í fullt af fjöl- skyldufríum saman með krakkana okkar og sköpuðum þannig minn- ingar sem ég mun alltaf lifa á. Fyrir það er ég þakklátur. Það sem ég mun sakna þín, elsku bróðir minn. Það á eftir að vera mér erfitt að hafa þig ekki hér til að leita ráða hjá og það sem ég á eftir að sakna allra löngu sím- talanna sem við áttum þegar krakkarnir voru sofnaðir. Ég mun standa við það sem ég var búinn að lofa þér; að halda minningu þinni á lofti, bæði við mín börn og þín. Ég mun passa upp á strákana þína og Kristínu þína, því skal ég lofa. Þinn bróðir, Jón Guðni Pálmason. Við kynnumst Arnari þegar Kristín dóttir okkar og hann byrj- uðu saman árið 2010. Næstu árin bjuggu þau til skiptis á Ísafirði og Reykjavík. Fljótlega eignuðust þau Ólaf Erni. Þegar þau voru á Ísafirði, meðal annars með yngri soninn Einar Atla sem brjóst- mylking, bjuggu þau í kjallaran- um hjá okkur. Sú sambúð var ein- staklega góð enda Arnar mikið ljúfmenni. Arnar lærði húsasmíði á Ísa- firði og vann við það um árabil auk sjúkraflutninga þar til fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. Hugur hans stefndi í háskólanám og stundaði hann það meðan heilsa og kraftar leyfðu. Krabbameinið sem hann fékk var mjög sjaldgæft og því lítið um rannsóknir og lyf. Veikindin hóf- ust fyrir um áratug og á þeim tíma skiptust á góð og erfið tímabil. Arnar tókst á við veikindi sín af svo miklu æðruleysi að undrum sætti, eins og raunar allt það sem hann tókst á við. Lundarfar hans var einstakt, hann skipti aldrei skapi og hafði þolinmæði til að taka öllu með jafnaðargeði. Þau Kristín voru samstiga í að lifa líf- inu á heilbrigðan og jákvæðan hátt og njóta þess tíma sem þau höfðu. Arnar var mikill fjölskyldumað- ur og stórfjölskyldan var honum allt. Hann var mjög barngóður og sérlega natinn við syni sína, var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda. Hann var umhyggjusamur og hafði mikinn áhuga á fólki og átti auðvelt með að ræða við fólk á öllum aldri. Arnar var einstaklega bóngóð- ur og þótti aldrei neitt mál að að- stoða auk þess sem hann var mjög vandvirkur, mikill dútlari og vildi gera alla hluti vel. Áhugamálin voru af ýmsum toga, öll útivera, skíði og allt sem tengdist veiði. Hann útbjó sér að- stöðu í bílskúrnum þar sem hann gat dundað sér við alls kyns verk- efni. Hann hafði mikinn áhuga á myndlist og ljósmyndun og ekki má gleyma áhuga hans á víni og mat. Hann þreyttist aldrei á að tala um og rifja upp gamlar minn- ingar frá uppáhaldsstöðunum sín- um í Trostansfirði og Fljótavík. Það var honum mikil gleði að geta heimsótt báða þessa staði í fyrra- sumar. Allt var í röð og reglu og á sín- um stað hjá Arnari og hann hafði smekk fyrir gæðum og fallegum hlutum og sterkar skoðanir á fatn- aði og fatamerkjum. Tónlist skipaði stóran sess hjá Arnari og þá aðallega tónlist frá sjöunda og áttunda áratugnum. Þeir Óli ræddu oft og lengi um tónlist og fóru ófáar ferðir, bæði innanlands og utan, til að sjá og heyra í goðunum m.a. Rolling Sto- nes, Black Sabbath og Paul McCartney. Arnar var stoð og stytta þegar kom að tæknimálum tengdafor- eldrana; uppfæra tölvu, tengja eða leiðrétta eitthvað, alltaf gat hann komið okkur til bjargar án þess að pirrast yfir klaufaskapnum. Það er vart hægt að hugsa sér betri vin og tengdason, enda kall- aði Óli hann „Arnar minn“. Hug- ulsamur, ósérhlífinn og hugsaði alltaf fyrst um aðra. Hann var allt- af til staðar með sitt ljúfa skap, sem breyttist aldrei, sama hvað á dundi. Arnar okkar þráði það heitast að geta notið lífsins með fjölskyld- unni og fylgt sonum sínum út í líf- ið, en örlögin urðu önnur og nú kveðjum við góðan dreng eftir löng og ströng veikindi. Ólafur og Áslaug. Það var fyrir sléttum níu árum að Kristín mætti með Arnar í sum- arferð Miðtúnsfjölskyldunnar að Mývatni. Við fundum strax að um vandaðan mann var að ræða og féll hann fljótt og vel inn í fjöl- skylduna. Arnar var einstaklega barngóð- ur og tengdust hann og elsta dótt- ir okkar, Kristín Lilja, sterkum böndum. Gekk hann ætíð undir nafninu uppáhaldsfrændinn. Það er í raun ekkert skrýtið að hann hafi hlotið þann titil því Arnar var einstakur maður, traustur og heill. Þegar það var flís í tá, eyrnalokks- festing föst í eyrnasnepli eða laus tönn var það alltaf Arnar sem mátti skoða og ákveða hvað gert yrði í málunum. Börnin treystu honum enda kom hann alltaf fram við þau af virðingu, hlýju og ein- stakri góðmennsku. Arnari var hjálpsemi í blóð bor- in og ekkert verkefni var honum óviðkomandi eða of stórt, hvort sem um var að ræða fiðrildaköku- gerð fyrir afmæli eða flutnings- þrif. Hann vildi taka þátt í lífinu og tók fagnandi á móti nýjum áskor- unum, alltaf jákvæður og með bros á vör. Hann lagði ríka áherslu á séntilmennsku og var alltaf snyrtilegur og flottur í tauinu. Arnar hafði mikinn og einlæg- an áhuga á fólki. Hann var nær- gætinn og átti auðvelt með að setja sig í spor annarra. Einn af mörgum mannkostum Arnars var hversu næmt auga hann hafði fyr- ir styrkleikum fólks og var hann afskaplega duglegur að hrósa – hvort sem það voru hans nánustu eða aðrir. Þegar halla tók undan fæti hjá Arnari tóku þau hjónin hverju verkefni með opnum hug, já- kvæðni og æðruleysi. Samband þeirra var þroskað og einstakt og skein vináttan, væntumþykjan og styrkurinn í gegn. Kristín, Arnar og strákarnir tveir nýttu hvert tækifæri til að skapa saman góðar minningar, t.d. með því að fara í ferðalög, á skíði eða í hjólatúra. Þrátt fyrir erfið tímabil var ekkert gefið eftir og þau gáfu enn meira af sér. Kristín og Arnar hafa kennt okkur öllum mikið um lífið og tilveruna og það að geta notið hvers dags eru forréttindi sem þakka ber fyrir. Það er þyngra en tárum taki að kveðja Arnar okkar en minningin um yndislegan og einstakan dreng lifir í hjarta okkar alla tíð. Geir Oddur, Erla Sigríður og dætur. Það er sárt að kveðja þann sem hefur fylgt manni frá fyrstu minn- ingum, gengið hlið við hlið í gegn- um lífið. Drengurinn sem ekkert vildi nema Honey Nut Cheerios varð fljótt að rödd skynseminnar fyrir stóra frænda sinn og var það allt til enda. Í millitíðinni höfðum við brasað svo ótalmargt, allt frá því gera stíflur í Fljótavík til þess að fá leyfi til að vaka eftir úrslitakeppni NBA í körfubolta, tíu og sjö ára gamlir, á Urðarveginum. Okkur var það sérstaklega minnisstætt því þarna sátum við agndofa frændurnir þegar skipt var af leiknum í háspennueltingaleik lög- reglunnar við O.J. Simpson, leik- inn sáum við ekki en það skipti engu, þetta var miklu betra. Arnar var höfðingi heim að sækja alla tíð. Við félagarnir að sunnan lögðum í fræga ferð vestur á ball hvítasunnuhelgina 2004 á tveimur fullum bílum. Þegar við vorum komnir í Ísafjarðardjúp hringir Arnar og segir okkur að koma beint upp á Engjaveg þar sem biðu veitingar og grillmatur sem nægt hefðu að minnsta kosti helmingi fleirum. Ferðirnar vest- ur voru ótalmargar þar sem klukkan var alltaf gleði og margar stórkostlegar hugmyndir kvikn- uðu sem flestar áttu það sameig- inlegt að vera gleymdar daginn eftir. Áhugamálin þróuðust í sitt- hvora áttina og þegar kom að tón- list voru fáir fróðari. Það átti fyrst við um tónlist sem gerð hafði verið fyrir þó nokkru enda heillaði gamli tíminn Arnar alla tíð. Sög- urnar af Woodstock og fleiri við- burðum voru sagðar af einskær- um áhuga og þekkingu. Það kom að því að stóri frændi var beðinn að halda sögum af dönsum okkar við hljómsveitina Offspring fyrir sig, sem var að sjálfsögðu sam- þykkt. Vináttan var yfir áhugamál haf- in, frændskapurinn var alltaf ósnertanlegur og aldrei rifumst við eða létum okkur leiðast. Stað- an er aldrei svo slæm að ekki megi hallmæla vinstriflokkunum eða ylja sér við mynd úr Clint Eastwo- od-safninu, það vissum við frænd- urnir manna best. Smiðsprófið var tekið með stæl enda voru handlagnari menn vandfundnir. Arnar hafði hæfi- leika, þolinmæði og jafnaðargerð til að leysa öll þau erfiðu verkefni sem lögð voru fyrir hann, aldrei af neinu hálfkáki, heldur svo gott sem fullkomlega. Þegar kom að heimferð suður í eitt skiptið kom Arnar til mín með gjöf í hendinni. Hann vissi að ég hafði týnt tóbaks- sprautunni minni sem ég gat illa án verið í slíkum ferðum og hafði gert nýja úr varahlutum og tækni- legó. Sú sprauta virkaði óaðfinn- anlega en það er fátt sem lýsir Arnari betur en þetta, því svona var hann alltaf. Traustur og úr- ræðagóður drengur sem setti þá sem honum þótti vænt um alltaf í fyrsta sæti og gerði alla tíð. Betri vin og samferðamann mun enginn finna. Elsku Arnar, það er þyngra en tárum taki að rita þessi orð þótt ég reyni að hafa þitt einstaka æðru- leysi og jákvæðni að leiðarljósi, sem er eitt af mörgu sem þú kenndir mér í öllu þínu ósann- gjarna mótlæti. Kristínu, strákun- um og fjölskyldunni sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Takk fyrir vináttuna, trygg- lyndið, trúna og allar ótalmörgu minningarnar sem munu ylja mér alla tíð. Þú varst mér og verður alltaf sem bróðir. Einar Jóhannes Finnbogason. Þá er komið að kveðjustund, kæri vinur. Sú tilhugsun er bæði erfið og ósanngjörn en eftir sitja ógrynni af góðum minningum. Að eiga þig sem vin voru for- réttindi. Það var gott að vera í kringum þig, enda ávallt með bros á vör og í góðu skapi. Samband okkar var einlægt og hafðir þú oft orð á því hversu þakklátur þú varst fyrir vinskapinn. Sannarlega varstu höfðingi heim að sækja hvort sem það var á Engjavegin- um eða í Safamýrinni. Ætíð verð- ur það fast í huga okkar hvernig þú tókst á móti okkur með opnum örmum í inniskónum og sagðir: „Sælir vinir, komið inn, má bjóða ykkur eitthvað?“ Það var bæði auðvelt og ánægjulegt að ræða við þig og gátum við spjallað saman um daginn og veginn svo tímunum skipti; um heimahagana ástkæru, matreiðslu, tónlist, gömlu tímana, málefni líðandi stundar og hvað- eina annað sem bar á góma. Upp í hugann koma þær fjölmörgu sög- ur sem þú sagðir svo skemmtilega frá af gömlum rokkhundum, en þá gat maður ekki annað en hangið á hverju orði. Þú varst aldrei feim- inn að ræða veikindin þín ef maður spurði, en ræddir þau ekki að fyrra bragði enda ávallt svo hóg- vær. Það er sárt að hugsa til þess að samræðurnar verði ekki fleiri. Fyrir okkur varstu alltaf fyrir- mynd í lífinu og verður það um ókomna tíð. Jákvæðni þín og þol- inmæði eru eiginleikar sem við getum horft til og lært af. Þegar leiðir ykkar Kristínar lágu loksins saman og þið eignuðust strákana ykkar varst þú okkur leiðarljós í því hvernig á að vera faðir og eig- inmaður. Það var aðdáunarvert að sjá hvernig þú umgekkst fjöl- skylduna af þínum einstaka kær- leik. Að fylgjast með þér og Krist- ínu takast á við erfið veikindi er okkur síðan kennsla í því hvernig maður tekst á við áskoranir í líf- inu. Fyrir það allt verðum við þér ævinlega þakklátir. Elsku Arnar, það er sárt að þurfa að kveðja. Eftir situr ein- stök vinátta, full af gleði, skilningi, væntumþykju og minningum sem gleymast aldrei. Þínir vinir, Gunnar Ingi og Unnþór. Arnar Pálmason  Fleiri minningargreinar um Arnar Pálmason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. aldrei gleyma. Viðhorfin hafa svo sannarlega breyst til betri vegar í búsetumálum fatlaðs fólks og Sigríður Ósk upplifði þær breytingar; að flytja frá al- tækri stofnun, frá sambýli og til heimilis síns í Blikaási. Í Klettahrauninu áttum við samfylgd í 15 ár. Samferðin með Sigríði Ósk, föður hennar og systkinum var einstök og minn- ingarnar frá þessum árum mér sérstaklega hjartfólgnar. Nokk- ur minningabrot standa upp úr. Þar má nefna árlegan laufa- brauðsútskurð á meðal snillinga sem faðir Sigríðar Óskar var upphafsmaðurinn að. Ógleyman- lega ferð til Ítalíu þar sem dval- ið var á Hótel María við Garda- vatn. Hjálpartækin voru ekki af verri endanum; ítalskir karlar og við ferðafélagarnir. Sigríður Ósk og hinar ljóskurnar heilluðu þá upp úr skónum. Þeir vildu allt fyrir okkur gera þótt þeim hafi brugðist bogalistin í aðstoð- inni og uppskorið hlátrasköll Sigríðar Óskar, en hún hafði einstakan húmor fyrir hrakföll- um. Við létum ekkert stoppa okkur, gerðum allt sem okkur datt í hug og tókum þátt í öllum ferðum sem boðið var upp á. Þar á meðal fórum við í eintaka ferð með kláf upp í Ítölsku Alp- ana og Sigríður Ósk skríkti af hamingju þegar á tindinn var komið. Kæra Haddý, Kristinn og Halla, ég votta ykkur og fjöl- skyldum ykkar mína dýpstu samúð um leið og ég þakka ykk- ur samfylgdina. Heimilisfólkinu í Blikaási 1 og starfsfólki þess, vinnufélögum og öðrum vinum Sigríðar Óskar votta ég samúð mína. Sigríður Kristjánsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Sigríður Ósk Jóns- dóttir bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. skemmtilegum karakter. Þér var alveg sama þó að ég væri eldri en þú, þú lést mig alveg heyra það ef þér fannst ég pirrandi. Það var svo lýsandi fyrir þig, ákveðin og frökk. Svo rann þér fljótt reiðin og við gátum hlegið og spjallað um hitt og þetta. Þú varst nefni- lega líka svo yndislega hlý, góð og fyndin. Það fyrsta sem kemur ein- mitt í hugann þegar ég hugsa til þín er hláturinn þinn. Það var ekki annað hægt en að hlæja þeg- ar þú byrjaðir. Þú hlóst svo inni- lega. Núna undanfarið hafði ég þó séð þig minna en áður. Ég fylgdist með þér úr fjarska og fékk að heyra það helsta sem var að frétta frá systur þinni. Svo fékkstu stundum að koma með henni þeg- ar hún var að fara að hitta mig og stelpurnar og það var alltaf eins og ég hefði hitt þig síðast í gær. Þess á milli varð mér oft hugsað til þín og hvernig þú hefðir það. Það var svo yndislegt þegar mað- ur heyrði góðar fréttir eða sá þig setja eitthvað á Facebook um að hlutirnir gengu vel. Eins og þegar þú fluttir til Frakklands og virtist njóta lífsins eða bara þegar þú gerðir eitthvað sem veitti þér gleði eins og t.d. eitthvað sem tengdist listinni. Þú varst nefnilega svo listræn og hæfileikarík. En svo gat lífið reynst þér erf- itt. Þegar sjúkdómurinn var erf- iður viðureignar og áföll urðu á vegi þínum. Lífið getur verið sorglegt og óskiljanlegt. En það getur líka verið fullt af gleði og hamingju. Gleði og hamingju sem ég vona að umlyki fjölskyldu þína við fallegar minningar um þig nú á þessum erfiðu tímum og í framtíðinni. Minningar um fallegu skellibjöll- una sem hló svo hátt og smitandi. Elsku Lilja mín og fjölskylda, hugur minn er hjá ykkur á þess- um erfiðu tímum. Megi fallegar minningar um einstaka systur og dóttur ylja ykkur um ókomna tíð. Guðrún Telma Þorkelsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.