Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
✝ Elínborg ÁsaIngvarsdóttir
fæddist á Skaga-
strönd 17. apríl
1950. Hún lést 5.
ágúst 2019.
Elínborg Ása
var dóttir hjón-
anna Ingvars Jóns-
sonar, f. 1917, d.
2003, og Elínborg-
ar Ásdísar Árna-
dóttur, f. 1920, d.
1979. Bræður Elínborgar Ásu
eru: Jón Ingi, f. 1943, og Árni
Björn, f. 1948.
Elínborg Ása giftist Guðjóni
Einarssyni frá Ásgarði í
Grindavík árið 1969 og eiga
þau fimm syni: 1) Ingólfur, gift-
ur Guðbjörgu Þórisdóttur og
eiga þau þrjú börn, þau eru
Hanna Rún, Valgerður og Ólaf-
ur Þór. 2) Ingvar, giftur Stein-
unni Óskarsdóttur og eiga þau
þrjú börn, þau eru Elínborg,
Ingi Steinn og Þórdís Ásta. 3)
Einar, giftur Ást-
rúnu Jónasdóttur
og eiga þau tvær
dætur, þær eru
Dröfn og Ása
Björg. 4) Leifur, í
sambúð með Guð-
rúnu Maríu Brynj-
ólfsdóttur og eiga
þau þrjú börn, þau
eru Hlynur Ægir,
Helgi Leó og Eldey
Una. 5) Egill, lést
6. febrúar 2018, börn hans eru
Elín Björt og Einar Logi.
Elínborg Ása fæddist og ólst
upp á Skagaströnd en síðan lá
leið hennar suður og hefur hún
búið í Grindavík síðan 1969,
eða í um 50 ár. Hún starfaði
nánast allan sinn starfsferil hjá
Vísi hf. í Grindavík, eða um
það bil 40 ár, sem matráðs-
kona.
Útför hennar fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag, 16.
ágúst 2019, klukkan 14.
Elsku besta mamma mín, þú
varst söngurinn um lífið, ljósið
og styrkurinn fyrir okkur öll.
Það varst þú sem gerðir okkur
öll að því sem við erum, sam-
heldin og ástrík – undirbúning-
ur þinn tókst fullkomlega fyrir
áfall sem þetta. Ekki hefði ég
trúað því, jafnvel þótt þú hefðir
sagt mér það, hversu sárt þetta
yrði.
Þú varst fyrirmynd okkar
allra, heiðarleg og falleg alveg í
gegn.
Það sem kemur mér helst til
hugar er ég segi nokkur orð til
að kveðja þig er hógværð. Því-
líkt jafnaðargeð og sú mildi
sem þú hafðir var einstök. Er
ég halla aftur augunum og
reyni að muna eftir einhverju
slæmu eða að þú hafir tekið í
okkur eða skammað, þá kemur
ekki eitt einasta tilvik upp en
það þýðir ekki að þú hafir ekki
leiðbeint okkur á rétta braut,
heldur gerðir þú það á þinn
einstaka hátt.
Þú áttir eintóma mömmu-
stráka sem voru hjá þér dag-
lega, ef ekki í mat þá allavega í
spjalli og að sækja styrk þinn
og visku. Þú varst einstök
amma sem sýndi sig best í því
hvað öll barnabörnin sóttu í þig
og þú í þau, þú hafðir einhvern
veginn tíma fyrir alla. Tengda-
móðir varstu einstök og tókst
upp hanskann fyrir þær í einu
og öllu, þú vissir alveg að við
drengirnir gátum stundum
verið baldnir, þeirra missir er
mikill.
Ég man aldrei eftir að þú
hafir nokkurn tímann talað illa
um neinn mann. Þú sagðir að
dagar manna væru misjafnir
og trúðir bara á það góða í öll-
um. Þú varst einstakur vinur
og þótt þú værir forvitin hafð-
irðu aldrei þörf fyrir að end-
urspegla það sem þér var
treyst fyrir. Þú varst klettur-
inn okkar allra.
Þér þótti ákaflega vænt um
fólkið þitt að norðan og lofa ég
þér því að við munum rækta
það áfram. Við munum passa
upp á Elínu Björtu og Einar
Loga og sjá til þess að standa
öll þétt saman þér til heiðurs
því það er sennilega það sem
þú hefur áhyggjur af núna.
Pabba munum við umvefja ást
og hugsa um líkt og þú hefur
gert í yfir 50 ár. Þú varst skip-
stjórinn okkar allra.
Sérstakar þakkir vil ég
Elínborg Ása
Ingvarsdóttir
✝ SigurðurBjörgvin
Viggósson fæddist
á Flateyri 13. sept-
ember 1941. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Grund 1.
ágúst 2019.
Foreldrar hans
voru Viggó Ferdin-
and Sigurðsson, f.
29. september
1914, d. 12. júlí
1975, sjómaður og verkamaður í
Kópavogi, og Valgerður Sóley
Ólafsdóttir, f. 26. mars 1913, d.
8. febrúar 2009, húsfreyja og
verkakona á Flateyri og í Kópa-
vogi. Systkini: Jörgen, f. 3. ágúst
1938, d. 29. júlí 1963, maki
Soffía Guðbjörg Sveinsdóttir, f.
30. maí 1941, Sigurður, f. 20.
ágúst 1939, d. 25. september
1940, Eiríkur Einar, f. 9. októ-
ber 1943, maki Jóhanna Hauks-
dóttir, f. 9. ágúst 1945, Alda, f.
27. desember 1945, maki Sig-
urður Páll Sigurjónsson, f. 7.
björg Dagrún Þorbjarnardóttir,
f. 17. febrúar 1966, d. 1. júní
2017. Dætur þeirra eru Anna
Lilja, f. 24. júlí 1982, Kristín
Elva, f. 5. janúar 1988, og Esther
Ósk, f. 7. júlí 1995. 3) Rakel Ár-
dís viðskiptafræðingur, f. 22.
ágúst 1972, maki Ragnar Ólafs-
son, f. 17. desember 1962. Synir
Rakelar eru Skúli Þór, f. 28.
ágúst 1992, og Viktor Aron, f.
27. apríl 1999. Synir Ragnars
eru Sveinn og Jón Þór. Langafa-
börn Sigurðar eru sex talsins.
Sigurður ólst upp á Flateyri
til átta ára aldurs, flutti þá með
fjölskyldu sinni á Sólbakka í
Keflavík og svo á Borgarholts-
braut í Kópavogi árið 1959.
Hann fór ungur á vinnumark-
aðinn eins og þá tíðkaðist en
settist á skólabekk eftir að hann
var kominn með fjölskyldu og
lærði járnsmíðar hjá Runtal-
ofnum. Hann lauk prófi sem
járniðnaðarmaður frá Iðnskól-
anum í Reykjavík. Hann starfaði
lengst af við skipaviðgerðir og
fleira tengt fiskiðnaði hjá Ísbirn-
inum á Seltjarnarnesi, Hafsíld á
Seyðisfirði og HB Granda í
Reykjavík.
Útför Sigurðar fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag,
16. ágúst 2019, klukkan 13.
nóvember 1933,
Björg, f. 13. janúar
1952, Ólafur Agn-
ar, f. 5. febrúar
1960, maki Theo-
dóra Sigurlaug
Þorsteinsdóttir, f.
2. september 1969.
Sigurður kvænt-
ist 18. nóvember
1962 Önnu Sig-
urbjörgu Sigurðar-
dóttur, f. 31. júlí
1940, og bjuggu þau í Reykjavík.
Þau skildu. Sambýliskona Sig-
urðar var Sigrún Ársælsdóttir,
f. 9. febrúar 1944, d. 18. maí
2012. Þau bjuggu í Hafnarfirði.
Börn Önnu og Sigurðar eru:
1) Valgerður Lísa, ljósmóðir og
hjúkrunarfræðingur, f. 25. apríl
1962, maki Jón Steingrímsson, f.
5. nóvember 1960. Börn þeirra
eru Arna Hrund, f. 5. maí 1989,
Erla Björk, f. 9. september 1991,
og Birkir Valur, f. 2. nóvember
1998. 2) Sigurður Elvar sjómað-
ur, f. 7. júní 1964, maki Krist-
Elsku pabbi, þá er komið að
kveðjustund.
Fyrir okkur sem eftir sitjum
verða hér þáttaskil. Við lítum
um öxl og okkur er efst í huga
þakklæti fyrir allar minning-
arnar sem við eigum saman.
Það hefur eflaust mótað per-
sónuleika þinn og haft áhrif á
lífshlaup þitt að þú varst fædd-
ur á stríðsárunum. Ungur
fórstu á vinnumarkaðinn því
lífsbaráttan var hörð í þá tíð og
allir urðu að draga björg í bú,
enda varstu alla tíð dugnaðar-
forkur til vinnu, vandvirkur og
ósérhlífinn. Það fór ekki
framhjá samferðamönnum þín-
um hversu mikill karakter þú
varst, stríðinn, glettinn og
hreinskilinn. Þrautseigja ein-
kenndi þig alla tíð og uppgjöf
var ekki til í þinni orðabók. Það
sást vel í gegnum veikindi og
áföll sem þú hefur glímt við síð-
astliðin níu ár. Oft var þér ekki
hugað líf en þú stóðst það allt
af þér og snerir rækilega á
læknavísindin. Þrautseigju þína
munum við hafa að leiðarljósi í
komandi verkefnum lífsins.
Þú varst ekki allra – en hver
er það? Hreinskilni þín og
stríðni gat farið misvel í sam-
ferðamenn þína en þú hélst
þínu striki og reyndir ekki að
vera neitt annað en þú sjálfur,
fylginn þér og tryggur þínum
ástvinum og vinum. Þér var
einkar lagið að gleðjast yfir
litlu hlutunum í lífinu og vildir
hafa allt í röð og reglu. Það
þurfti að lotta í hverri viku, 10
raðir án Jókers.
Á árum áður áttirðu sér
keyrsluskó sem voru ósjaldan
dregnir fram þegar farið var á
rúntinn og ekki má gleyma því
að með hverju skópari fylgdu
sér sokkar.
Sjálfstæður varstu og máttir
ekki heyra á það minnst að
vera upp á aðra kominn. Þú
lést ekkert stoppa þig, alltaf
voru fundnar lausnir. Þegar þú
gast ekki lengur keyrt bíl
fékkstu þér bara rafskutlu. Ef-
laust muna margir Hafnfirðing-
ar eftir þér þeysandi um á
rauðu skutlunni á leið í laugina
eða búðina.
Þú elskaðir að fara út að
borða með þínum nánustu og
hélst fast í þá hefð að fara með
okkur öll út að borða á afmæl-
inu þínu, aðalmálið var að ná
öllum afkomendum þínum sam-
an.
Það sást langar leiðir hversu
mikið það gaf þér. Þessari hefð
verður haldið á lofti, elsku
pabbi, við vitum að þú verður
áfram með okkur í anda, bros-
andi út að eyrum með prakk-
arasvipinn þinn og hrókur alls
fagnaðar.
Ferðalög voru þitt líf og
yndi, þér þótti erfitt að sætta
þig við að komast ekki í fleiri
utanlandsferðir eftir að þú
veiktist. En nú ertu kominn í
Sumarlandið, elsku pabbi, við
trúum að þar fáir þú tækifæri
til að ferðast aftur til heitu
landanna og ganga um léttur í
spori með Sigrúnu þinni.
Því miður eru ekki alltaf
sanngjarnar leikreglur í lífinu.
Síðustu árin barðist þú drengi-
lega við veikindin en þau sigr-
uðu að lokum. Eftir að þú gast
ekki lengur búið einn heima
fluttirðu á Grund, þar sem þú
endaðir þína ævidaga. Það var
okkur ástvinum þínum erfitt að
horfa upp á hve lífsgæðum þín-
um hrakaði mikið undir það
síðasta og ljóst var í hvað
stefndi. Við systkinin erum
óendanlega þakklát fyrir að
hafa setið hjá þér síðustu
stundirnar, haldið í hönd þína
og fylgt þér síðustu skrefin.
Takk fyrir allt, elsku pabbi,
hvíl í friði.
Valgerður, Elvar og Rakel.
Í dag fylgjum við elskulegum
tengdaföður mínum til grafar.
Andlátið var ekki óvænt. Það
hefur verið ljóst síðustu vik-
urnar að hverju stefndi en það
breytir því ekki að kveðju-
stundin er sár.
Ég kynnist Sigga fyrir um
þrjátíu árum þegar ég hóf sam-
band við eldri dóttur hans.
Kynni okkar hafa verið
ánægjuleg og góð alla tíð. Milli
okkar var gott samband þrátt
fyrir að vera um flest afar ólík-
ir.
Siggi reyndist mér og fjöl-
skyldunni alla tíð einstaklega
vel og að leiðarlokum er margs
að minnast og fyrir margt að
þakka.
Siggi var góður maður sem
vildi öllum í kringum sig vel.
Hann hafði einfalda sýn á lífið
og var í eðli sínu jákvæður og
lífsglaður. Hann hafði ýmis við-
horf til samfélagsins sem ekki
eru endilega normið nú til
dags, án þess að baki hafi búið
mikil alvara. Hann hafði alla tíð
sterkar og ákveðnar skoðanir á
þjóðmálum og íslenskum
stjórnmálamönnum sem hann
hafði gaman af því að rökræða.
Þær umræður voru oft mjög
áhugaverðar þótt sjaldnast
værum við sammála.
Siggi var járniðnaðarmaður
og vann sem slíkur alla tíð
lengst af hjá HB Granda hf.
Hann var stoltur af fagi sínu og
starfi.
Að hans mati voru það al-
vöru menn í þjóðfélaginu sem
unnu „með höndunum“. Við
skrifstofumennirnir vorum ekki
á sama stalli.
Hann kallaði okkur alltaf
„lappadinglara“ í stríðnislegum
tón. Ég hef sennilega valdið
honum hvað mestum vonbrigð-
um í lífinu þegar ég, nýútskrif-
aður úr háskóla og sjálfstætt
starfandi fjölskyldufaðir,
hafnaði einstöku tilboði hans
um að sinna loksins alvöru
starfi. Hann bauð mér að taka
vertíð í hrognavinnslu á vinnu-
stað hans hjá HB Granda. Það
þótti mjög eftirsóknarvert að
komast í það verkefni því það
var mikil vinna og góðar tekjur
á stuttum tíma. Ég var hins
vegar með önnur plön og ég
held að hann hafi aldrei skilið
þessa ákvörðun mína. En fjöl-
skyldan fékk uppreisn æru
þegar eldri dóttir okkar tók
meirapróf og gerðist keyrandi
leiðsögumaður fyrir útlendinga
á ferð um landið. Það var mjög
gaman að fylgjast með því síð-
ustu mánuðina hversu stoltur
og ánægður hann var með dótt-
urina. Stelpa að keyra rútu var
alvöru starf og loksins var ein-
hver af okkar ætt farinn að
vinna ærlega vinnu.
Kynni mín af Sigga hafa gert
mig að betri manni. Hann hafði
t.d. þann einstaklega góða eig-
inleika að geta glaðst einlæg-
lega yfir litlum hlutum í dag-
lega lífinu og var manna
kátastur á góðri stund. Það var
uppljómun fyrir mig að upp-
götva mikilvægi þess að rækta
litlu hlutina í daglega lífinu.
Síðustu æviárin voru honum
erfið vegna veikinda og heilsu-
brests. Hann tók aðstæðum
sínum af æðruleysi og já-
kvæðni, og kvartaði ekki yfir
hlutskipti sínu.
Hann naut góðrar umönnun-
ar og ríkrar umhyggju frá
börnum sínum, systkinum og
barnabörnum.
Að leiðarlokum þakka ég ein-
læglega fyrir að hafa kynnst
Sigga og verið honum samferða
stóran hluta af lífi mínu. Hans
verður sárt saknað. Í ljósi að-
stæðna hans síðustu mánuðina
er hann eflaust hvíldinni feg-
inn, en minningin um góðan
mann mun lifa í fjölskyldunni.
Jón Hólmar Steingrímsson.
Húmoristi, stríðnispúki og
umhyggjusemi eru fyrstu orðin
sem koma upp í huga okkar
systkinanna þegar við hugsum
til afa. Kveðjustundir eru ávallt
erfiðar, en við minnumst afa
með brosi út í annað þegar við
hugsum til þeirra ótal samveru-
stunda sem við höfum átt
saman.
Okkur systrunum eru sér-
staklega minnisstæðir ótal-
margir bíltúrar á róló þegar við
vorum börn, þeir voru í sér-
stöku uppáhaldi. Eins gaman
og okkur fannst að fara á róló
með afa var mesta sportið bíl-
ferðin sjálf, þar sem afi setti
tónlistina í botn og við sungum
saman hástöfum alla leið. Afi
var okkur alltaf fyrirmynd og
það hlakkaði í okkur þegar við
fengum að fara í heimsókn.
Sem dæmi um hversu vænt
okkur þótti um afa kröfðumst
við þess að geyma skinnið utan
af lifrarpylsunni og eplakjarn-
ana í poka dögunum saman – til
þess að gefa afa næst þegar við
myndum hitta hann – því
mamma hafði eitt sinn látið út
úr sér að afi borðaði allt í epl-
inu og lifrarpylsuna með öllu.
Við vildum jú gefa afa eitthvað
sem honum þætti gott.
Allir sem hafa hitt afa vita að
hann var sætindagrís. Það voru
ætíð til súkkulaðibirgðir í kíló-
atali heima hjá honum og gest-
um boðinn moli innan nokkurra
mínútna frá komu.
Eitt atvik sem stendur upp
úr í minningarflóðinu er skond-
ið atvik þegar nammigrísinn
læddist yfir afa og hann laum-
aðist í skápinn heima á Grýtu-
bakkanum að næla sér í súkku-
laði. Eftir stutta stund heyrist
fuss innan úr eldhúsi yfir þessu
vonda súkkulaði sem hafði ver-
ið keypt. Ekki leið á löngu þar
til fjölskyldan lá í hláturskasti
því hann hafði jú verið að gæða
sér á hundasúkkulaði.
Okkur er minnisstæð hin
margsagða saga af hetjudáðum
afa á fótboltavellinum í æsku,
þar sem enginn annar leikmað-
ur var með tærnar þar sem
hann hafði hælana. Hann gat
spilað allar stöður á vellinum,
vörn jafnt sem sókn, skoraði öll
mörkin og var mikilvægasti
leikmaðurinn á vellinum. Við
munum seint gleyma svipnum
sem oft fylgdi á eftir, sem var
hin fullkomna blanda af stolti
gríni, svipur sem einkenndi afa
að okkar mati. Þetta glott sem
lýsti upp andlit hans og blikkið
sem fylgdi á eftir þessari og
hinum ótalmörgu hetjusögum
sem hann sagði okkur barna-
börnunum.
Það er augljóst að við barna-
börnin áttum sérstakan stað í
lífi afa. Við höfðum betra lag á
honum en margur annar. Flest-
ir sem hafa umgengist hann
vita að hann gat verið þrjóskur
og fastur fyrir með skoðanir
sínar en undantekningarlaust
gaf hann eftir við okkur. Hann
hafði sterkar skoðanir á hlut-
unum en væntumþykja fyrir
hagsmunum okkar og velferð
fékk hann oft til þess að gefa
eftir, endurmeta skoðanir sínar
og sýna umburðarlyndi fyrir
nýrri hefðum sem áður fyrr
tíðkuðust ekki.
Þessi upptalning er langt frá
því að vera tæmandi. Í huga
okkar sitja eftir ótal dýrmætar
minningar sem við munum
varðveita það sem eftir er.
Minningar um samverustundir,
bílferðir, samtöl, ferðalög, hóp-
ferðir á Kjúklingastaðinn í Suð-
urveri, ofát á súkkulaði, hlátur
og glens munu ylja okkur á
þessum erfiðu tímum.
Elsku afi, við munum sakna
þín innilega. Hvíldu í friði.
Arna Hrund, Erla Björk og
Birkir Valur.
Sigurður Björgvin
Viggósson
Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita.
✝ Björn Hall-dórsson fædd-
ist á Siglufirði 5.
október 1942.
Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Akureyri 8. ágúst
2019.
Foreldrar hans
voru Halldóra
Hólmfríður Björns-
dóttir, f. 1917, d.
1978, og Halldór
Kristinn Bjarnason, f. 1919, d.
2005.
Systur Björns eru: 1) Guð-
munda Ólöf Halldórsdóttir, f.
1944. Eiginmaður hennar er
Jón Jóhannsson. Þau eru búsett
í Ólafsfirði. 2) Þorbjörg Hall-
dórsdóttir, f. 1952. Eiginmaður
hennar er Önundur Haralds-
son. Þau eru búsett í Grinda-
vík.
Björn kvæntist Kristínu
Trampe árið 1967. Þau skildu.
Synir Björns og Kristínar
eru: 1) Ragnar
Þór, f. 1967,
kvæntur Kamillu
Ragnarsdóttur, f.
1967. Þau eru bú-
sett í Ólafsfirði.
Börn þeirra eru:
Stefán Björn,
Kristín og Aðal-
steinn. Barnabörn
Ragnars Þórs og
Kamillu eru þrjú:
Aron Breki 14 ára,
Elísabet Ír 3 ára og Viktoría
Rut 5 mánaða. 2) Bergur Rún-
ar, f. 1974, búsettur í Ólafsfirði.
Sonur hans er Grétar Áki.
Björn var fæddur á Siglufirði
en flutti tveggja ára gamall til
Ólafsfjarðar, þar sem hann ólst
upp og bjó alla tíð. Hann stund-
aði sjómennsku og var um tíma
með sína eigin útgerð.
Útför Björns verður gerð frá
Ólafsfjarðarkirkju í dag, 16.
ágúst 2019, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Elsku besti afi minn.
Ég veit ekki hvar ég á að byrja.
Ég er svo tóm, sár og sorgmædd.
Ég er ekki alveg að sætta mig við
það að þú sért farinn frá okkur, að
ég fái aldrei að tala við þig aftur.
Ég er virkilega þakklát fyrir þessi
27 ár sem við áttum saman. Ég er
virkilega þakklát fyrir það að þú
varðst afi minn. Ég er virkilega
þakklát fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig.
Ég er virkilega þakklát fyrir
þig!
Ég á eftir að sakna þess að
heyra tóninn sem kom alltaf þeg-
Björn Halldórsson