Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 20

Morgunblaðið - 16.08.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógum 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Bíó í matsal, spennumyndin Taken með Liam Neeson, kl. 13.15. Opið fyrir innipútt og 18 holu úti- púttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöfflukaffi fellur niður í sumar. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Þátttökulistarnir komnir fram fyrir haustið. ATHUGIÐ engin bíósýning í dag. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Föstudaghópurinn hittist kl. 10. Botsía í setustofu 2. hæðar kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30, vöfflukaffi kl. 14.30. Opin handverksstofa. Verið hjartanlega velkomin á Vitatorg. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jóns- húsi kl. 13, bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30, og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Gjábakki Kl. 9 handavinna. Gullsmári Handavinnuhópur kl. 9-11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, fyrsta bingó vetrarins kl. 13.15, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Gönguhópar leggja af stað kl. 10 í dag frá Borgum, allir velkomnir, ganga við allra hæfi. Gengið mánudag, miðvikudag og föstudag kl. 10 í allt sumar, bætir hressir kætir. Hádegisverður kl. 11.30-12.30. Bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Kaffiveitingar kl. 14.30-15.30 í Borgum og gleðileg samvera alla daginn, góða helgi. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest- ur kl. 11, föstudagsskemmtun kl. 14. Uppl. í s. 4112760. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansleikur í Stangarhyl 4 sunnu- dagskvöld 18. ágúst kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 með morgun- Vantar þig hjólbarða? FINNA.is ✝ Helga Berg-þórsdóttir fæddist í Reykjavík 19. júlí 1925. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Mörk 28. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Bergþór Pálsson, f. 1901, d. 1968, og Þórdís Jóhannes- dóttir, f. 1904, d. 1998. Systkini Helgu eru Har- aldur, f. 1926, d. 2011, Guðlaug, f. 1927, Hjördís, f. 1935, og Helgi, f. 1937. Helga giftist 31. ágúst 1946 Guðjóni G. Guðjónssyni, f. 11. des- ember 1921. Foreldrar hans voru hjónin Guðjón Jónsson, f. 1878, d. 1964, og Steinunn Magnúsdóttir, f. 1891, d. 1981. Helga og Guðjón eignuðust fjóra syni. Þeir eru: 1) Bergþór, f. 30. júní 1947, maki Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 26. janúar 1952. Börn þeirra eru Helga, f. 1974, d. 1993, og Guð- mundur Orri, f. 1979. Fyrir átti Ingibjörg Brynhildi, f. 1970. 2) Hafsteinn, f. 11. september 1949, maki Anna Mýrdal Helgadóttir, f. 15. september 1950. Synir þeirra eru Arnar, f. 1974, og Helgi, f. 1978. 3) Birgir, f. 11. janúar 1956, maki Sigrún Bærings Kristjáns- dóttir, f. 14. nóv- ember 1956. Dætur þeirra eru Kristín Helga, f. 1983, og Hrafnhildur, f. 1987. 4) Guðjón Þór, f. 24. ágúst 1963, maki Kari Brekke, f. 15. febrúar 1963, börn þeirra eru Kristján Þór, f. 1990, og Anna Louise, f. 1993. Barna- barnabörn eru 11. Helga lauk prófi frá Hús- mæðraskólanum í Reykjavík 1945. Hún starfaði á á yngri ár- um í Kjötbúðinni Borg. Seinna starfaði hún hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga í mörg ár. Síðustu starfsár sín starfaði hún hjá Þýsk-íslenska. Útför Helgu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 16. ágúst 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Mig langar að minnast minn- ar elskulegu tengdamömmu sem er fallin frá, nýorðin 94 ára. Margar minningar fara í gegnum hugann því árin eru orðin mörg frá okkar fyrstu kynnum. Ég og Bergþór, sonur hennar, byrjuðum okkar búskap í kjallaranum í Samtúni og kom ég með Brynhildi, dóttur mína, sem þá var á þriðja ári. Helga tók okkur strax vel og var sú stutta fljót að hverfa upp á efri hæðina í kökurnar hjá henni. Helga var góður kokkur og síbakandi og ótrúlega orkumik- il. Ólatari manneskju hef ég ekki þekkt, alltaf tilbúin að hjálpa okkur. Einnig hafði hún gaman af að sauma út og eru margir fallegir munir eftir hana, en hún hafði lært í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur. Helga var há og glæsileg kona, alltaf vel til fara og heim- ilið hennar glæsilegt og elskaði hún fallega hluti. Fórum við hjónin með henni og tengda- pabba tvisvar til Þýskalands, Helga elskaði búðir með falleg- um fötum og postulíni og var tengdapabbi ótrúlega duglegur að fylgja henni búð úr búð. Eft- ir að Guðjón féll frá fórum við nokkrum sinnum með henni til Guðjóns sonar þeirra og fjöl- skyldu í Bandaríkjunum og hafði Helga alltaf mikla ánægju af þeim ferðum. Helga átti góða ævi með tengdapabba en stuttu eftir að hann dó fór sjónin hjá henni að dofna og varð hún að treysta á sína nánustu með alla hluti og var það henni erfitt. Helga datt og brotnaði fyrir tveimur árum og eftir það vistaðist hún á Vífilsstaði og seinna á Mörk- inni. Þar var vel hugsað um hana og vil ég þakka þeim sem önnuðust hana þar. Mig dreymdi draum í vetur þar sem tengdapabbi kom til mín og spurði ég hvenær hann ætlaði að koma að sækja Helgu sína því hún væri orðin mjög lé- leg, hann svaraði þá að hann væri að leita að íbúð og þegar hann væri búinn að því kæmi hann að sækja hana. Svo hann hefur greinilega fundið góða íbúð handa þeim í Sólarlandinu og Helga litla nafna hennar hef- ur ábyggilega tekið vel á móti ömmu sinni þar líka. Með þessum fáu orðum vil ég kveðja hana og þakka henni fyr- ir allt og þegar ég minnist hennar kemur þetta ljóð til mín: Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Þín tengdadóttir, Ingibjörg. Mig langar að minnast Helgu Bergþórsdóttur tengdamóður minnar með nokkrum orðum og þakka henni allt það góða sem hún gerði mér og fjölskyldu minni. Helga og tengdapabbi, Guð- jón Guðjónsson, voru alltaf boð- in og búin að aðstoða okkur unga fólkið þegar eftir því var leitað. Allir fjórir synirnir fengu um lengri eða skemmri tíma að búa í kjallaraíbúðinni í húsi þeirra við Samtún 6. Oft var boðið í mat, einkum á sunnu- dögum, og voru þá ættmæðurn- ar Þórdís og Steinunn einnig með. Á fyrsta búskaparári okkar Hafsteins eftir fæðingu Arnars eldri sonar okkar gætti hún hans, svo við foreldrarnir gæt- um ótrauð haldið áfram námi. Seinna, þegar kom að því að hann fór í nám í Reykjavík, fékk hann að búa í kjallaranum hjá afa og ömmu og njóta góðs við- urgjörnings hjá þeim. Helga var mikill fagurkeri og prýddu þau hjónin heimili sitt með málverkum og fallegum hlutum, en ekki síst útsaumuð- um myndum og mublum eftir hana. Þau voru einnig mjög höfðingleg og smekkleg í gjöf- um til barna og barnabarna og eru gjafir þeirra meðal falleg- ustu hluta í búi okkar. Helga var mjög heimakær og fór ekki mikið af bæ, en hún hafði yndi af að baka til að gefa með kaffinu, þegar einhver kom í heimsókn. Þeim sið hélt hún til streitu á Mörkinni og urðu allir gestir hennar að fá kaffi í bolla og eitthvað með því. Síðustu ár voru Helgu erfið meðan andlegt og líkamlegt þrek hennar þvarr. En hún naut góðrar umönnunar á hjúkrunar- heimilinu Mörk, sem fjölskyld- an er þakklát fyrir. Þegar dags er þrotið stjá þróttur burtu flúinn. Fátt er sælla en sofna þá syfjaður og lúinn. (Rögnvaldur Björnsson) Takk fyrir samfylgdina. Anna Mýrdal Helgadóttir. Ég eyddi miklum tíma í Sam- túninu hjá Helgu ömmu og Guð- jóni afa í minni æsku. Þar fékk ég að vera í dekri í skólafríum. Það sem ég man best eftir frá þeim tíma er að amma kenndi mér að sauma út, þar sem hún var mikil handverkskona. Hún fór reglulega með mér í hann- yrðaverslanir og við völdum saman ný saumaverkefni. Ég dáðist að öllum fallegu púðun- um og myndunum sem hún hafði saumað um ævina og lang- aði að verða jafn flink og hún. Amma lagði mikið stolt í það að gefa gestum vel að borða og hélt áfram að baka kökur langt fram eftir aldri, þrátt fyrir að vera orðin nánast blind. Ég fékk að njóta þess þegar ég var í pössun í Samtúninu þegar ég var ung. Þar var borinn fram heitur matur í hádeginu – kál- bögglar með soðnu hvítkáli voru mitt uppáhald – og svo voru auðvitað kökur með kaffinu. Í búrskápnum var svo hægt að finna nammi til að narta í þess á milli. Helga amma var hörkudug- leg kona, vinnusöm og ákveðin. Ég mun minnast hennar með hlýjum hug. Hvíl í friði, elsku amma, Kristín Helga. Elsku Helga amma, þegar ég hugsa til þín er það fyrst og fremst þakklæti sem kemur upp í hugann. Þakklæti fyrir konu sem tók mig inn í líf sitt og gerði mig að sínu eigin barna- barni, en ég fylgdi mömmu þeg- ar hún giftist Bergþóri, elsta syni ykkar afa. Við fjölskyldan og þá sér- staklega ég og mamma heim- sóttum ykkur afa oft í Samtún- ið. Þar var alltaf fullt búr af góðgæti handa litlum nammi- grís sem fannst Helga amma vera heimsins besti bakari. Kökurnar þínar eru ógleyman- legar og ég get ennþá fundið bragðið af möndlukökunni þinni þegar ég loka augunum og hugsa aftur í tímann. Þú varst mikill fagurkeri og heimili ykkar afa var afskaplega fallegt. Ég fékk aldrei nóg af því að virða fyrir mér alla fal- legu hlutina sem þú hafðir safn- að að þér í tímans rás. Einnig fannst þér gaman að klæðast fallegum fötum og það var ekki ósjaldan að við mamma fengum smá tískusýningu hjá þér þegar þú varst búin að kaupa þér fína flík. Þær minningar sem tengjast þér hvað sterkast eru þær sem ég upplifði við eldhúsborðið hjá þér í litla eldhúsinu ykkar þeg- ar ég sat og fylgdist með mömmu setja í þig rúllur og greiðslu. Þá var ýmislegt skraf- að og mér fannst gaman að hlusta á ykkur tala saman um lífið og tilveruna. Þú og afi voru ætíð miklir höfðingjar heim að sækja og það voru ófáar veislur og mat- arboð sem okkur var boðið í. Ég minnist sérstaklega brúnu sós- unnar þinnar. Ég hafði mikla matarást á þér sem var vel verðskulduð. Þú varst fyrst og fremst al- veg einstök amma og ég mun alltaf hugsa til þín af mikilli hlýju og væntumþykju. Þú sýndir mér og mínum alltaf mikinn áhuga og það var ein- stakt að fá að hafa þig í öll þessi ár í lífi mínu. Hafðu þakkir fyrir allt og ég bið Guð að geyma þig. Þín Brynhildur (Binna). Elsku Helgamma. Flestar minningar okkar um þig snúa að kökum og nammi. Þú áttir alltaf góðgæti handa okkur, nýbakaðar kökur eða nammimola. Svo þegar þú varst flutt á Mörkina var alltaf til ís og gos. Við höfðum mikla matarást á þér. Jólaboðin og kósístundir við eldhúsborðið rifja upp ljúfar minningar. Dótakassinn með dúkkunum gladdi líka litlar ömmustelpur. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson) Takk fyrir allt, elsku langamma, Bríet Helga og Tinna María Jónsdætur, Helga Berglind og Sólveig María Guðmundsdætur. Kynni mín af Helgu Berg- þórsdóttur komu þegar sonur hennar Bergþór Guðjónsson og tengdadóttirin Ingibjörg fluttu í Logalandið í Fossvogi, þar sem við Kolbrún höfðum stofnað heimili. Með okkur tókst góð og ein- læg vinátta sem stendur enn. Eiginmann Helgu, Guðjón G. Guðjónsson, þekkti ég frá starfsárum mínum hjá SÍS – Sambandi íslenskra samvinnu- félaga. Þar starfaði Guðjón í forystuhlutverki í áratugi við afar góðan orðstír. Það kom því ekki á óvart þegar hann var beðinn um að taka við banka- stjórastöðu í Samvinnubankan- um, enda kom á daginn að þar nýtist reynsla, þekking og hæfi- leikar hans afburðar vel. Helga og Guðjón gæddu hversdaginn töfrum, sem við vinir þeirra og samstarfsfólk fékk að njóta. Það var bjartur dagur í byrj- um sumars að ég fékk boð um að fá Helgu til starfa í fyrirtæki mínu í Múlahverfinu í Reykja- vík. Það tók mig ekki langan tíma að segja já takk. Þar starfaði hún sem veitingastjóri í mörg ár og fylgdi síðan fyrirtækinu í Árbæinn, þar sem verkefni hennar varð stæra og meira. Helgu tókst að gæða hversdag- inn töfrum, sem starfsmenn og viðskiptavinir fundu fyrir. Með góðu fordæmi sýndi hún sjálfs- traust og heiðarleika sem tekið var eftir. Hún var alltaf ung í anda. Saman voru Helga og Guðjón góð fyrirmynd í framkomu sinni og verkum. Nú þegar komið er að kveðjustund rifjast upp margar skemmtilegar minningar. Efst í huga okkar Kollu er þakklæti fyrir allt það sem þú varst okk- ur og fjölskylda þín. Við yljum okkur við óteljandi minningarn- ar, sem ekki gleymast. Náðartími ævin er. Að því, Drottinn, lát mig hyggja, sú að nauðsyn mest er mér miskunn þína’ í tíma‘ að þiggja. Yfirbótar unn mér, Herra, ævidagar fyrr en þverra (Sb. 1886 - Helgi Hálfdánarson) Kolbrún og Ómar Kristjánsson. Helga Bergþórsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.