Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 23
þjóðfræði og hins vegar saman- burðarlögfræði sem er stórkostlegt fag. Það var lengi markmið mitt að kynna mér sem flestar þjóðir og þetta er óþrjótandi viðfangsefni. Ég kenndi samanburðarlögfræði en hún hafði ekki verið mikið stunduð hér á landi svo ég þurfti að ryðja henni braut.“ Páll býst þó ekki við að senda frá sér fleiri bækur. „Er 50 ekki snotur tala?“ Fjölskylda Eiginkona Páls er Sigríður Ólafsdóttir, f. 21.10. 1945, fyrrver- andi héraðsdómari. Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Tryggvason, f. 10.10. 1913, d. 20.6. 1993, læknir í Reykjavík, og Anna Sigríður Lúðvíksdóttir, f. 6.8. 1920, d. 28.5. 2018, húsfreyja. Kjörbörn Páls og Sigríðar eru: 1) Anna Sigríður Pálsdóttir, f. 20.10. 1979 í Beirút í Líbanon, hár- greiðslukona og hönnuður, búsett á Spáni. Dóttir hennar er Ísmey Myrra, f. 25.11. 2007; 2) Ólafur Pálsson, f. 31.10. 1981 í Beirút, við- skiptafræðingur og alþjóðlegur viðskiptastjóri hjá Orf líftækni. Maki hans er Tanja Berglind Hall- varðsdóttir, f. 20.10. 1985, við- skiptafræðingur, með eigið fyrir- tæki. Börn þeirra eru Hrafnhildur Mía, f. 6.1. 2013, og Helena, f. 4.9. 2014. Systkini Páls sammæðra eru Stefán Árnason, f. 18.12. 1952, d. 20.11. 2005, framkvæmdastjóri á Sauðárkróki, og Helga Árnadóttir, f. 16.12. 1956, framhaldsskólakenn- ari, búsett á Svalbarðsströnd. Foreldrar Páls voru Ingibjörg Júlíana Stefánsdóttir, f. 19.7. 1919, d. 14.7. 1972, húsfreyja á Sauðár- króki, og Vigfús Sigurður Jónsson, f. 9.3. 1921, d. 31.12. 1972, birgða- vörður í Reykjavík. Páll Sigurðsson Ingibjörg Jónasdóttir húsfreyja á Bakka og Flugumýri Jón Jónasson bóndi á Bakka í Öxnadal og á Flugumýri í Blönduhlíð Helga Jónsdóttir húsfreyja á Hjaltastöðum og Sauðárkróki Ingibjörg Júlíana Stefánsdóttir húsfreyja á Sauðárkróki Stefán Vagnsson bóndi og kennari á Hjaltastöðum í Blönduhlíð og skrifstofustjóri Kaupfélags Skagfi rðinga á Sauðárkróki Þrúður Aðalbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Miðhúsum Vagn Eiríksson bóndi í Miðhúsum í Blönduhlíð Ólína Ólafsdóttir vinnukona í Ólafsvík Runólfur Guðmundur Oddsson bóndi og sjómaður á Sveinsstöðum undir jökli, Snæf. Margrét Runólfsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Hjörleifsson sjómaður í Reykjavík, síðar á Akureyri Anna Sigurðardóttir húsfreyja í Hellukoti og Reykjavík Hjörleifur Guðmundsson sjómaður og smiður undir Eyjafjöllum, síðar trésmiður í Hellukoti á Vatnsleysuströnd og í Reykjavík Úr frændgarði Páls Sigurðssonar Sigurður Jónsson birgðavörður í Reykjavík Magnús Halldórsson gerir„Stöðumat“ á Boðnarmiði og hver sér ekki þessa mynd fyrir sér? Hjólið er við hlunninn laust, hryggðarmynd og lúi, liggur fallið nærri naust, nagar byrðing fúi. Er á sóknum orðið hlé, enginn snertir hlumma Á sandi orpnu siglutré, sé ég skít úr krumma. Guðmundur Arnfinnsson bregð- ur upp mynd af regnboga í skýjum: Regnboginn í rofi stár röndum skrýddur vænum, gulur, rauður, grænn og blár glitrar yfir bænum. Hér eru stökur úr „Nágrönnum, stuðlamálum og stuttsögum“, hinni nýútkomnu bók Sigurlínar Her- mannsdóttur. Það er góð bók og ég fjallaði um hana hér í Vísnahorni á þriðjudag. Fyrst er „Kvöldstemn- ing“: Hljóðna fuglar, höfuð smá hylur mjúkur vængur. Einnig skríða ýmsir þá undir hlýjar sængur. Dregur yfir dökkan hjúp dag að kveldi lofa. Þögnin liggur þykk og djúp þegar flestir sofa. „Heilræði“: Þegar bjátar eitthvað á aldrei gráta skaltu láttu hlátur lyfta brá lyndi kátu haltu. Og „Ævi manns“: Örskjótt líður ævin hjá ellin svíður, köld og grá. Dauðinn bíður, bregður ljá burt hann sníður fölnuð strá. Og að lokum Leirhnoð: Úr leirnum hnoða ljóðin mín og letra í sand. Vísu skrái í skýjamynd skálda kvæði í sunnanvind. 11. ágúst hlustaði Jón Hlöðver Áskelsson á fréttir í hádegi á RÚV: Eddi Sheeran eykur þrótt Íslendinga í röðum, Þeir bíða bæði dag og nótt, beittir hörðum kvöðum. Uppi á sviði Eddi söng og öllum gleymdist biðin. Brosað, sungið! Og biðin löng burt í gleymsku liðin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Skipsflak, regnbogi og Eddi Sheeran DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is VÍSDÓMSTENNUR ERU TILLITSLAUSAR. „VILTU EKKI BARA ÖSKRA HRESSILEGA OG LJÚKA ÞVÍ AF?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að halda sér á floti á erfiðum tímum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ER ÞÉR NÓGU HLÝTT, PÚKI? BÍDDU ER ÞETTA PEYSAN MÍN? EKKI LENGUR LÆKNIR! ÞAÐ KOM UPP NEYÐARTILVIK Í NÆSTU SÝSLU! Ó! LÆKNIR, ÞÚ ÆTTIR AÐ HASKA ÞÉR! VONANDI ERTU EKKI OF SEINN! ÉG ER VIÐ ÖLLU BÚINN! VÍSDÓMSTENNUR VITA AÐ ÞÆR ERU UPPÁÞRENGJANDI – ÞEIM ER BARA ALVEG SAMA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.