Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
GÆÐA AXIR FRÁ ÍTALÍU
augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Vefverslun brynja.is Fagmennska í 100 ár
L
Opi
dag
a frá
9
lau
frá 1
0-16
ð vi
rka
-18
3.019.20
Verð kr. 4.890
3.016.e
Verð 24.900
3.043.e
Verð 7.590
3.043.d
Verð 7.590
3.003.d
Verð 7.340
3.051.d
Verð 4.790
3.038.t
Verð 5.900
Íslands- og bikarmeistarar Breiða-
bliks munu komast að því í hádeginu
í dag hver andstæðingur liðsins
verður í 32-liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í fótbolta. Ljóst
er að erfitt einvígi bíður þeirra.
Blikakonur eru í neðri styrk-
leikaflokki, ásamt meðal annars sjö
öðrum liðum sem komust áfram úr
undankeppni mótsins í vikunni. Á
meðal þeirra liða sem þær gætu
mætt eru Evrópumeistarar Lyon,
Þýskalandsmeistarar Wolfsburg
með Söru Björk Gunnarsdóttur inn-
anborðs, PSG, Barcelona sem lék til
úrslita gegn Lyon síðasta vor, og
Manchester City. Þessi lið koma
einnig til greina:
Bayern München (Þýs), Slavia
Prag (Ték), Bröndby (Dan), Fortuna
Hjörring (Dan), Zürich (Svi), Kazyg-
urt (Kas), Glasgow City (Sko), Atlé-
tico Madrid (Spá), Sparta Prag
(Ték), Twente (Hol), Fiorentina
(Íta). Twente og Kazygurt eru einu
liðin úr undankeppninni sem fengu
sæti í efri styrkleikaflokki.
Í 32-liða úrslitunum er leikið
heima og að heiman og fá liðin úr
efri styrkleikaflokki að leika seinni
leikinn á heimavelli. Leikið verður
11.-12. og 25.-26. september. Leik-
irnir gætu því truflað Blikakonur
nokkuð í baráttunni við Val um Ís-
landsmeistaratitilinn en til stendur
að Breiðablik og Valur mætist í
næstsíðustu umferð Íslandsmótsins
15. september.
Lengst komist í 8-liða úrslit
Breiðablik náði sínum besta ár-
angri í Meistaradeildinni, eða for-
vera hennar, þegar liðið komst í 8-
liða úrslit tímabilið 2006-07, en tap-
aði þar fyrir Arsenal. Liðið lék síðast
í keppninni tímabilið 2016-17 og féll
þá úr leik í 32-liða úrslitum eftir
samanlagt aðeins 1:0-tap gegn
Mörtu og stöllum í Rosengård.
Þór/KA komst í 32-liða úrslit í
fyrra en tapaði þar samanlagt 3:0
fyrir Wolfsburg. Stjarnan komst í
16-liða úrslit fyrir tveimur árum en
tapaði þar 2:1 fyrir Slavia Prag.
sindris@mbl.is
Einvígi við Söru eða Lyon?
Örlög Breiðabliks skýrast í dag Dregið í 32-liða úrslit
Ljósmynd/Ingibjörg Auður
Ferð til fjár Breiðablik gerði góða ferð til Sarajevo í undankeppninni.
„Við erum virkilega hamingjusamir
yfir því að Alfreð Finnbogason hafi
ákveðið að lengja dvöl sína hérna,“
sagði Martin Schmidt, þjálfari
Augsburg, í gær eftir að tilkynnt
var að Alfreð hefði skrifað undir
nýjan samning við þýska félagið
sem gildir til ársins 2022.
Alfreð hefur verið hjá Augsburg
frá ársbyrjun 2016 og skorað 32
mörk í 67 deildarleikjum. Hann hef-
ur verið meiddur síðustu mánuði en
er óðum að komast í form. Augs-
burg mætir Dortmund á morgun í
1. umferð þýsku deildarinnar.
Alfreð í Augsburg
næstu þrjú ár
Ljósmynd/Augsburg
2022 Alfreð Finnbogason bendir á
gildistíma nýja samningsins.
Leikmenn bandaríska kvennalands-
liðsins í knattspyrnu, sem urðu
heimsmeistarar annað mótið í röð
fyrr í sumar, munu halda málsókn
sinni á hendur bandaríska knatt-
spyrnusambandinu til streitu. Leik-
menn stefndu sambandinu vegna
launamisréttis. Mál var höfðað í
mars og í vikunni varð endanlega
ljóst að engin sátt myndi nást í mál-
inu og fer það því fyrir dómstóla.
Liðið fékk 1,7 milljónir dollara
fyrir sigur á HM 2015 en karlaliðið
5,4 millj-ónir dollara fyrir að kom-
ast í 16-liða úrslit HM ári áður.
Þær bandarísku
fara í dómsmál
AFP
Fyrirliði Megan Rapinoe í fagn-
aðarlátunum í New York.
Það er kannski eins og að
bera í bakkafullan lækinn að
hneykslast á tilburðum Geoffrey
Castillion, framherjans öfluga í
liði Fylkis, í sigrinum gegn
Grindavík á mánudag. Ég verð
samt að segja að það að fara
svona augljóslega gegn anda
íþróttarinnar myndi ég aldrei
fallast á að sé einhvern veginn
„klókt“ eða „sniðugt“. Það er
einfaldlega skammarlegt, fyrir
Castillion sjálfan en einnig Fylki.
Það er miður að reglur KSÍ
gefi ekki kost á að refsa leik-
mönnum fyrir að sækja sér vís-
vitandi gult spjald til að hagnast
á því, eins og Castillion svo
sannarlega gerði. Þar hefur eitt-
hvað klikkað því þegar Sergio
Ramos reyndi það sama í Meist-
aradeild Evrópu á síðustu leiktíð
var honum refsað fyrir það með
lengra leikbanni en ella. Það var
eitthvað fallegt við það að Ra-
mos skyldi fá sína lexíu með því
að Real Madrid félli svo úr
keppni.
Það er erfitt að sjá að Ca-
stillion eða Fylki hefnist með svo
hressilegum hætti fyrir atvikið á
mánudag. Hann sparkaði bolt-
anum í burtu frá brotstað til að
ná í sína fjórðu áminningu í sum-
ar, því hann vissi að samkvæmt
samkomulagi Fylkis og FH í
tengslum við lán á leikmanninum
mætti hann hvort sem er ekki
spila næsta leik, við FH. Svona
samkomulög hafa stundum verið
kölluð heiðursmannasam-
komulög en það er rangnefni.
Það er ekkert heiðursmannalegt
við það að skekkja keppni á Ís-
landsmótinu með því að banna
liði að nota leikmann gegn einu
liði, en leyfa að hann spili svo
gegn hinum tíu. Ímyndið ykkur
bara ef félög stunduðu þetta
með enn grófari hætti, og að til
dæmis þrír mikilvægir leikmenn
Fylkis mættu ekki spila gegn FH
en gætu gert öðrum liðum í bar-
áttu um Evrópusæti skráveifu.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik, skipað leikmönnum 19
ára og yngri, tapaði fyrir Egypta-
landi í átta liða úrslitum á HM
U19 í Skopje í Norður-Makedóníu
í gær. Leiknum lauk með 35:31-
sigri Egypta sem fara áfram í
undanúrslit keppninnar.
Egyptar sem tefla fram mörgum
stórum og stæðilegum leik-
mönnum tóku völdin í fyrri hálf-
leik. Staðan að honum loknum var
21:14, Egyptalandi í vil, og tókst
íslenska liðinu ekki að brúa það
bil að ráði í seinni hálfleik. Hauk-
ur Þrastarson og Tumi Steinn
Rúnarsson voru markahæstir í ís-
lenska liðinu með átta mörk hvor.
Íslenska liðið mun leika um 5.-8.
sætið á mótinu ásamt miklum
handboltaþjóðum: Frakklandi,
Spáni og Ungverjalandi. Ísland
mætir Frakklandi í næsta leik.
Liðið sem vinnur mætir sigurlið-
inu hjá Spáni og Ungverjalandi í
leik um 5. sætið en tapliðin leika
um 7. sæti.
sport@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Atkvæðamikill Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 8 mörk í gær.
Ísland leikur um
5.-8. sætið á HM
Kári Jónsson,
landsliðsmaður í
körfuknattleik,
var í gær sagður
hafa samið við úr-
valsdeildarlið
Helsinki Sea-
gulls, samkvæmt
netmiðlinum
Sportando sem
fjallar um körfu-
knattleik.
Liðið er í Finnlandi eins og nafnið
gefur til kynna og hafnaði í 7. sæti á
síðasta tímabili. Miklar breytingar
hafa orðið á leikmannahópnum í
sumar og Kári bætist við fríðan flokk
leikmanna ef af verður. Antti Ka-
nervo, sem varð bikarmeistari með
Stjörnunni síðasta vetur, er genginn
í raðir félagsins sem og landsliðs-
maðurinn Shawn Huff sem kemur
frá Frankfurt. Huff hefur mætt Ís-
lendingum í landsleikjum á undan-
förnum árum en Kanervo hefur einn-
ig leikið A-landsleiki fyrir Finnland.
Kári er uppalinn hjá Haukum í
Hafnarfirði en hann var samnings-
bundinn Barcelona á síðustu leiktíð.
Meiðsli settu stórt strik í reikning-
inn hjá Kára síðasta vetur og fór
hann í umfangsmiklar aðgerðir á
báðum fótum eftir að hann kom út til
Katalóníu. kris@mbl.is
Verða Kári og
Antti Kanervo
samherjar?
Kári
Jónsson