Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Tilvalinn með
á völlinn í
sumar
Í FOSSVOGI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Víkingur og FH leika til úrslita
um Mjólkurbikar karla í fótbolta.
Víkingur tryggði sér sinn fyrsta
bikarúrslitaleik síðan liðið varð
meistari í eina skiptið í sögunni
árið 1977 með 3:1-sigri á Breiða-
bliki á sögulegu kvöldi í Víkinni í
gærkvöldi. Alls lögðu 1848 manns
leið sína á Víkingsvöllinn í gær
sem er nýtt áhorfendamet hjá fé-
laginu. Stuðningsmenn Víkings
sjá ekki eftir því, þar sem þeir
fengu mikið fyrir peninginn.
Auk fjögurra marka kom eitt
rautt spjald og var hiti í mönn-
um, enda mikið undir. Víkingar
spiluðu einstaklega vel eftir að
Thomas Mikkelsen kom Breiða-
bliki yfir á 35. mínútu. Tíu mín-
útum síðar var staðan orðin 2:1,
Víkingi í vil, og sigldu heima-
menn verðskulduðum sigri í höfn
í seinni hálfleik. Kári Árnason
lék gríðarlega vel sem djúpur
miðjumaður og riðlaði hann spili
Breiðabliks allan leikinn. Hann
kom í veg fyrir að Gísli Eyjólfs-
son næði nokkurn tímann takti
og voru fáir aðrir líklegir til að
skapa usla í vörn Víkings.
Leikmenn Breiðabliks létu
skapið hlaupa með sig í gönur
undir lokin og Elfar Freyr
Helgason fékk verðskuldað rautt
spjald á 83. mínútu fyrir sóðalega
tæklingu. Hann lét það ekki
nægja, því hann tók rauða spjald-
ið af Þorvaldi Árnasyni, dómara
leiksins, og kastaði því í grasið í
kjölfarið. Elfar er einn reynslu-
mesti útileikmaður Breiðabliks
og hann á að setja betra fordæmi
fyrir yngri liðsfélaga sína. Guð-
jón Pétur Lýðsson, liðsfélagi Elf-
ars, fór ófögrum orðum um Þor-
vald dómara í leikslok og sagði
hann ömurlegan og hræddan. Þor-
valdur átti alls ekki slæman leik,
þótt hann hefði mátt spjalda Kára
Árnason snemma í leiknum fyrir
ljóta tæklingu. Þorvaldur sleppti
honum, en dæmdi leikinn annars
vel. Breiðablik getur sjálfu sér um
kennt, en liðið fór illa að ráði sínu
með 1:0-forystu. Blikar þurfa að
líta í eigin barm, frekar en að
kenna öðrum um.
Víkingur á sæti sitt í bikarúr-
slitum skilið. Óttar Magnús Karls-
son virðist vera púslið sem vantaði
upp á heildarmyndina hjá Vík-
ingum.
Mikil læti á sögulegu
kvöldi á Víkingsvellinum
Áhorfendamet og fyrsti úrslitaleikur Víkinga í 48 ár Blikar misstu hausinn
Morgunblaðið/Arnþór
Áberandi Blikinn Elfar Freyr Helgason fékk rautt spjald og Víkingurinn Óttar Magnús Karlsson skoraði í gær.
0:1 Thomas Mikkelsen 35. (víti)
1:1 Óttar Magnús Karlsson 40.
2:1 Nikolaj Hansen 45.
3:1 Guðmundur A. Tryggvason 69.
I Gul spjöldHalldór Smári Sigurðsson,
Óttar Magnús Karlsson og Dofri
Snorrason (Víkingi), Höskuldur
VÍKINGUR R. – BREIÐABLIK 3:1
Gunnlaugsson og Gunnleifur Gunn-
leifsson (Breiðabliki).
I Rauð spjöldElfar Freyr Helgason (Breiða-
bliki).
Dómari: Þorvaldur Árnason.
Áhorfendur: 1.848.
Fimm Íslendingar eru komnir áfram í 4. umferð Evr-
ópudeildar karla í knattspyrnu en seinni leikirnir í 3.
umferð fóru fram í gær.
Arnór Ingvi Traustason hjá Malmö , Kolbeinn Sig-
þórsson hjá AIK, Willum Þór Willumsson hjá BATE Bor-
isov, Rúnar Már Sigurjónsson hjá Astana og Albert Guð-
mundsson hjá AZ eru komnir áfram í keppninni með
sínum liðum.
Þeir Rúnar Már og Willum munu raunast mætast í 4.
umferðinni ef Astana og BATE tefla þeim fram.
Hjörtur Hermannsson hjá Bröndby, Mikael Anderson
hjá Midtjylland og Guðmundur Þórarinsson hjá Norr-
köping eru hins vegar úr leik í keppninni með sínum liðum en þess má geta
að tveir ungir Skagamenn eru einnig í herbúðum Norrköping: Ísak Berg-
mann Jóhannesson og Oliver Stefánsson.
Úrslitin í leikjunum, úrslitin í rimmunum og þátttöku íslensku leikmann-
anna má sjá í úrslitadálknum hér vinstra megin á síðunni. sport@mbl.is
Fimm íslenskir komnir áfram
Rúnar Már
Sigurjónsson
Njarðvík er áfram á botni Inkasso-
deildar karla í fótbolta eftir 2:0-tap
gegn Fram í Safamýri í gærkvöld.
Njarðvíkingar eru með 11 stig,
tveimur stigum á eftir Magna og
þremur stigum á eftir Haukum.
Framarar eru með 23 stig í 6.
sæti en eru komnir of langt aftur úr
í baráttu um efstu tvö sætin eftir 4
töp í síðustu 6 leikjum.
Hinn tvítugi Helgi Guðjónsson
skoraði sitt 12. mark fyrir Fram í
gær og er næstmarkahæstur í
deildinni.
Helgi með sitt
tólfta mark
Morgunblaðið/Eggert
Markahrókur Helgi Guðjónsson
hefur raðað inn mörkum í sumar.
Evrópudeild UEFA
3. umferð, seinni leikir:
AIK – Sheriff Tiraspol ............................ 1:1
Kolbeinn Sigþórsson var á varamanna-
bekk AIK.
AIK áfram, 3:2 samanlagt.
BATE Borisov – Sarajevo ...................... 0:0
Willum Þór Willumsson var á vara-
mannabekk BATE.
BATE áfram, 2:1 samanlagt.
Zrinjski Mostar – Malmö ........................ 1:0
Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá
Malmö á 68. mínútu.
Malmö áfram, 3:1 samanlagt.
Hapoel Beer Sheva – Norrköping......... 3:1
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn fyrir Norrköping.
Beer Sheva áfram, 4:2 samanlagt.
Valletta – Astana ..................................... 0:4
Rúnar Már Sigurjónsson var í liði Ast-
ana fram á 68. mínútu.
Astana áfram, 9:1 samanlagt.
AZ Alkmaar – Mariupol.......................... 4:0
Albert Guðmundsson var á varamanna-
bekk AZ.
AZ áfram, 4:0 samanlagt.
Braga – Bröndby ..................................... 3:1
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
fyrir Bröndby.
Braga áfram, 7:3 samanlagt.
Rangers – Midtjylland ............................ 3:1
Mikael Anderson var í liði Midtjylland
fram á 69. mínútu.
Rangers áfram, 7:3 samanlagt.
Aris – Molde...............................................3:1
Molde áfram, 4:3 samanlagt e. framl..
Espanyol – Luzern....................................3:0
Espanyol áfram, 6:0 samanlagt.
HM U19 karla
Leikið í Norður-Makedóníu:
8-liða úrslit:
Egyptaland – Ísland .............................35:31
Þýskaland – Ungverjaland...................26:16
Spánn – Danmörk .................................19:23
Frakkland – Portúgal ...........................26:31
Ísland mætir Frakklandi á morgun í
keppni um 5.-8. sæti.
EM U16 karla
B-deild í Svartfjallalandi:
Sæti 9-16:
Ísland – Bretland ..................................83:84
Portúgal – Ungverjaland......................69:63
Finnland – Úkraína...............................76:92
Svíþjóð – Írland .....................................82:74
Ísland leikur um 13.-16. sæti og mætir
Ungverjalandi í dag.
EM U16 kvenna
B-deild í Búlgaríu:
A-riðill:
Ísland – Serbía.......................................49:72
Svartfjallaland – Slóvenía.....................47:60
Bosnía – Rúmenía .................................47:54
Ísland mætir Slóveníu í 2. umferð riðla-
keppninnar í dag.