Morgunblaðið - 16.08.2019, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019
TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
GARÐABÆR/AKUREYRI
Edda Garðarsdóttir
Baldvin Kári Magnússon
Stjarnan tryggði sér mikilvæg stig í
gærkvöldi þegar liðið lagði ÍBV 2:1
í 14. umferð Pepsí Max-deildar
kvenna í knattspyrnu.
Fyrri hálfleikur var frekar
bragðdaufur af hálfu beggja liða,
það var bersýnilega taugatitringur í
loftinu og margir háloftaboltar
þeyttu kerlingar þvers og kruss um
völlinn. Stjarnan var þó meira með
boltann og hin efnilega Hildigunnur
Ýr náði oft að skapa usla í víta-
teigskraðaki Eyjamanna, oftast eft-
ir undirbúning Shameeku. Vest-
mannaeyingar áttu engin opin færi
en þónokkur langskot sem oft röt-
uðu í hendur Birtu.
Stjörnukonur byrjuðu fjörugan
seinni hálfleik með því að taka for-
ystuna. Þar var að verki hin leikna
Jana Sól en hún hljóp af miklum
móði af vinstri vængnum fyrir mitt
markið og kláraði meistaralega í
netið. Vonbrigði kvöldsins voru við-
brögð Vestmannaeyinga við lyk-
ilaugnablikum leiksins. Sú eina sem
var að valda verulegum usla var
Clara Sigurðardóttir með áhlaupum
og hörku. Sóknarlína ÍBV var takt-
laus og dönsuðu þær engan veginn
saman í opnum leik. Það þurfti haf-
sentinn van Slambrouck til að fá
jöfnunarmarkið, en hún átti fína
sendingu á Brenna Lovera eftir
fast leikatriði við vítateig Stjörn-
unnar. Sú síðarnefnda skallaði bolt-
ann í tómt mark Stjörnunnar en
Birta átti óþarfa úthlaup úr mark-
inu.
Varnarlína ÍBV datt oft á tíðum
alveg niður á endalínu og þ.a.l. náði
miðjan náði ekki að aðstoða við
varnarleikinn en það varð þeim
dýrkeypt í tvígang. Stjarnan
tryggði sér sigurinn aðeins fáeinum
mínútum eftir jöfnunarmarkið.
Hildigunni Ýri tókst þá loksins að
koma boltanum í netið af stuttu
færi eftir fyrirgjöf af hægri vængn-
um. Aðeins fjórar umferðir eru eftir
og allir leikir skipta máli fyrir liðin
í neðri hlutanum. ÍBV þarf að bæta
leik sinn til að halda sér í deildinni.
Góðar 45 mínútur ekki nóg
Þór/KA vann 3:1 sigur á Keflavík
á Akureyri. Keflavíkurliðið spilaði
virkilega vel í fyrri hálfleik. Þór/KA
liðið fékk nokkur færi í upphafi
leiks en það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks var lítið að frétta í sókn-
arleik heimakvenna. Keflavíkur lið-
ið beitti skyndisóknum og varn-
armenn Þór/KA réðu illa við
hraðann á framherjum Keflavíkur.
Sveindís Jane kom liðinu verð-
skuldað yfir á 36. mínútu. Staðan
var 0:1 í hálfleik og hefðu Keflvík-
ingar jafnvel getað bætt við öðru
marki í fyrri hálfleik.
Í seinni hálfleik var allt annað að
sjá Þór/KA liðið. Arna Sif jafnaði
leikinn með skalla eftir um 50. mín-
útna leik og þá var eins og allur
vindur væri úr gestunum. Andrea
Mist kom Þór/KA yfir stuttu síðar
áður en Arna bætti við öðru marki
sínu og þriðja marki Þór/KA. 3:1
sigur heimakvenna staðreynd, sig-
urinn kemur liðinu upp fyrir Sel-
fyssinga í þriðja sæti sem þó eiga
leik til góða.
Það er svekkjandi fyrir Keflvík-
inga að þrátt fyrir góða spila-
mennsku í fyrri hálfleik fari liðið
tómhent heim. En þegar minni lið
spila gegn Þór/KA dugar ekki að
eiga einn góðan hálfleik. Eins og
vill oft loða við lið sem eru í fallbar-
áttu fór allt sjálfstraust úr leik liðs-
ins um leið og heimakonur náðu að
jafna leikinn og eftir jöfn-
unarmarkið var aldrei spurning
hvernig leikar myndu enda. Liðið
getur þó tekið margt jákvætt úr
leiknum. Fram undan eru fjórir
leikir sem skera úr hvort Keflavík
verði áfram meðal þeirra bestu á
næsta ári. En liðið er nú aðeins
einu stigi frá öruggu sæti í deild-
inni.
Hvorki ÍBV
né Keflavík
náði í stig
Fallbaráttan harðnar hjá þessum liðum
Morgunblaðið/Arnþór
Vandvirkni Shameeka Fishley skallar boltann í Garðabænum í gær.
2 mörk Fyrirliðinn Arna Sif Ásgrímsdóttir í leiknum í gær.
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í
fótbolta, gæti verið á leið aftur til Ítal-
íu en hann er í leit að nýju félagi eftir
að hafa rift samningi sínum við Aston
Villa. Umboðsmaður Birkis, Norðmað-
urinn Jim Solbakken, mun hafa tjáð
ítalska miðlinum Europa Calcio að
Birkir sé með tilboð frá tveimur fé-
lögum í ítölsku A-deildinni; Spal og
Genoa, sem enduðu í 13. og 17. sæti
deildarinnar á síðustu leiktíð. Birkir
lék með Pescara og Sampdoria á ár-
unum 2012-2015.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís-
landsmeistari í golfi síðustu tvö ár,
missti naumlega af því að komast í
gegnum niðurskurðinn á Bossey La-
dies mótinu í Frakklandi, sem er hluti
af LET Access mótaröðinni. Guðrún
lék á +7 höggum í gær og var því á +11
eftir tvo daga, tveimur höggum frá
niðurskurðarlínunni.
Eitt
ogannað
1:0 Jana Sól Valdimarsdóttir 47.
1:1 Brenna Lovera 68.
2:1 Hildigunnur Ýr Benediktsd. 72.
I Gul spjöldViktoría V. Guðrúnardóttir og
Kristján Guðmundsson (þjálfari)
(Stjörnunni), Caroline Van Slambro-
uck (ÍBV).
STJARNAN – ÍBV 2:1
Dómari: Elías Ingi Árnason, 6.
Áhorfendur: 187.
M
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir
(Stjörnunni)
Shameeka Fishley (Stjörnunni)
Anna María Baldursdóttir
(Stjörnunni)
Clara Sigurðardóttir (ÍBV)
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Víkingsvöllur: HK/Víkingur – Fylkir..19.15
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Extra-völlurinn: Fjölnir – Grótta .............18
Nettóvöllurinn: Keflavík – Víkingur Ó.....18
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Þróttur R. .....18
Þórsvöllur: Þór – Haukar ..........................18
2. deild karla:
Jáverk-völlur: Selfoss – Dalvík/Reynir....18
Akraneshöllin: Kári – ÍR ......................19.15
HANDKNATTLEIKUR
UMSK-mót karla:
Kórinn: Grótta – HK..................................18
Kórinn: Afturelding – Stjarnan ................20
UMSK-mót kvenna:
Kórinn: Stjarnan – Afturelding ................18
Kórinn: HK – Grótta..................................20
Ragnarsmót karla:
Hleðsluhöllin: Valur – ÍR......................18.30
Hleðsluhöllin: Haukar – ÍBV ...............20.15
Í KVÖLD!
0:1 Sveindís Jane Jónsdóttir 36.
1:1 Arna Sif Ásgrímsdóttir 50.
2:1 Andrea Mist Pálsdóttir 57.
3:1 Arna Sif Ásgrímsdóttir 65.
I Gul spjöldHulda Björg Hannesdóttir,
Stephany Mayor og Arna Sif Ás-
grímsdóttir (Þór/KA).
Dómari: Sveinn Arnarsson 8.
ÞÓR/KA – KEFLAVÍK 3:1
Áhorfendur: 211.
MM
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
M
Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Þór/KA)
Sveindís Jane Jónsdóttir (Keflavík)
Sophie Groff (Keflavík)
Aníta Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
Natasha Anasi (Keflavík)