Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 16.08.2019, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2019 Sænski rithöfundurinn LizaMarklund hefur skrifaðmargar áhugaverðar bæk-ur og spennusagan Svört perla er með þeim betri sem frá henni hafa komið. Ekki er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, nær allur heim- urinn er undir, en höfundi tekst á undraverðan hátt að tengja saman viðbjóðs- lega glæpi um víða veröld, ást og umhyggju, græðgi, nægju- semi, fórnir og ekki síst trú á hið góða. Samtímasagan er um margt merkileg og áhugavert getur verið að kynna sér hitt og þetta. Oft er það svo að eftir því sem dýpra er kafað ofan í hlutina verða þeir frá- hverfari eða með öðrum orðum er ekki allt gull sem glóir. Þótt Svört perla sé skáldsaga er hún þannig úr garði gerð að raunveruleikinn blasir hvarvetna við. Fyrir bragðið er hún sérstaklega trúverðug. Hún er líka þannig uppbyggð að ómögulegt er að hætta í miðju kafi. Liza Marklund leitaði víða fanga áður en skriftir hófust og heimildavinnan hefur skilað sér í frábæru verki. Sagan hverfist um Kionu frá Manihiki, lítilli eyju í Kookseyja- klasanum í Suður-Kyrrahafi. Þar hafa íbúarnir lifað í sátt og sam- lyndi án utanaðkomandi áhrifa, en þegar seglskúta festist í kóralrifj- unum og evrópskum manni er bjargað í land breytist allt. Kiona hafði aðeins kynnst litla samfélag- inu en innan skamms er hún orðin þátttakandi í skuggahliðum mann- lífsins í fjórum heimsálfum. Fjármunir eru sem rauður þráð- ur í sögunni, sérstaklega hin dökka hlið peningavaldsins, allt frá því Júdas sveik Jesú fyrir þrjátíu silfurpeninga að ræningj- um nútímans, sem svífast einskis til þess að komast yfir sem mest, burtséð frá afleiðingunum fyrir menn og samfélög. Græðgin verð- ur enn illskiljanlegri þegar litið er á hvaða perlur er að finna á Mani- hiki, fjarri öllu og öllum. „Það er allt hér,“ segir enda aðkomumað- urinn. „Fólk berst við að læra og vinna allt lífið en kemst aldrei ná- lægt þessu.“ Frásögnin er ekki aðeins spenn- andi heldur hefur hún að geyma svo mikinn og góðan boðskap, þökk sé Kionu, að ekki er annað hægt en hrífast með. Hið illa er þó aldrei langt undan og ekki verður á allt kosið þrátt fyrir góð- an vilja. Réttlætið kostar samt oft æði miklar fórnir og Svört perla getur ekki annað en vakið lesand- ann til umhugsunar um hvert stefnir í lífinu. Ljósmynd/Annika Marklund Bænahús og ræningja- bæli lögð að jöfnu Spennusaga Svört perla bbbbn Eftir Lizu Marklund. Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði. Kilja. 493 bls. Ugla 2019. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Spenna Svört perla eftir Lizu Marklund. er afar spennandi. 40% afsláttur af sjóngleri með styrk við kaup á Cébé útivistargleraugum Eyesland | Grandagarði 13 | Glæsibæ | Sími 510 0110 | www.eyesland.is S’TRACK Sérhönnuð hlaupagleraugu sem standast hörðustu kröfur hlaupara, jafnt götuhlaupara og þeirra sem hlaupa utan vega. Byltingarkennd tækni gerir það að verkum að gleraugun haldast alveg stöðug. Glerin dökkna í sól og henta því við öll birtuskilyrði. Hægt er að fá þau með einfókus og með margskiptum glerjum. CB Wild 6 Einstaklega létt og fíngerð sportgleraugu sem henta vel í alls kyns útivist og við flestallar aðstæður. Gleraugunum fylgja þrenn pör glerja sem auðvelt er að skipta um. Dökk spegilgler eru góð á björtum og sólríkum dögum. Ólituð gler henta vel að næturlagi. Gul henta vel við slæm birtuskilyrði, auka skerpu og draga úr augnþreytu. Njóttu útiverunnar með þínum styrkleika Sýningarrýmið 1.h.v. opnar í dag kl. 17 sýningu á verki eftir Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur og Pétur Magnússon og í tengslum við sýn- inguna kemur út bókverkið Lög. 1.h.v. er í fjölbýlishúsi að Lönguhlíð 19, 105 Reykjavík, og er eins og nafnið gefur til kynna í íbúð á fyrstu hæð vinstra megin. Sýningin er opin á miðvikudög- um kl. 16-18 og einnig eftir sam- komulagi. Um Lög eða Layers segir að þar sé komin litasaga 1.h.v. frá árinu 1949. „Skyggnst var undir máln- ingarlög sýningarrýmisins og lita- flóran dregin fram í herbergjum íbúðarinnar,“ segir á Facebook og eru veggfóður og ljósmyndir efni- viður verka þar sem sjónarhorn og aðferð skapa óvænta möguleika í skynjun umhverfisins, eins og því er lýst. Málningarlög Verk á sýningunni. Skyggnst undir málningarlög 1.h.v. Bandaríski rapparinn A$AP Rocky, sem dæmdur var í Stokkhólmi í fyrradag til tveggja ára skilorðs- bundins fangelsis ásamt tveimur líf- vörðum sínum fyrir að hafa ráðist á 19 ára pilt, tjáði sig um dóms- úrskurðinn á Instagram í gær og þakkaði aðdáendum sínum, vinum og samstarfsmönnum fyrir stuðn- inginn í málaferlunum. Rocky, réttu nafni Rakim Mayers, var handtekinn vegna líkamsárásar 3. júlí auk þriggja annarra í kjölfar slagsmála sem brutust út á götu í Stokkhólmi. Hann var látinn laus úr varðhaldi í byrjun þessa mánaðar og eftir að hafa hlotið skilorðsbundinn dóm í fyrradag hélt hann af landi brott. Tveir lífverðir hans, Bladimir Corniel og David Rispers, hlutu einnig skilorðsbundinn dóm og var því einnig sleppt úr haldi. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að árás- in hefði ekki verið svo alvarleg að dæma ætti þremenningana í fang- elsi. Dæmdur A$AP Rocky hlaut skilorðsbund- inn dóm fyrir líkamsárás í Stokkhólmi. Þakkar aðdáendum stuðninginn Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Anna Gréta Sigurðardóttir, djass- tónskáld og -píanóleikari, hlaut í gær annan af tveimur styrkjum sem veittir eru árlega úr sjóði sem kenndur er við Monicu Zetterlund, þekktustu djasssöngkonu Svíþjóðar fyrr og síðar. Anna Gréta býr og starfar í Svíþjóð, var í námi við Kon- unglega tónlistarháskólann í Stokk- hólmi og hefur leikið með mörgum fremstu djasstónlistarmönnum þar í landi sem og hér á Íslandi. Bjartasta vonin „Það er sérlega gaman að fá eitt- hvað í hennar nafni, hún var ein af þeim sem ég hlustaði á áður en ég flutti til Svíþjóðar,“ segir Anna Gréta um Zetterlund-styrkinn sem er 40.000 sænskar krónur, jafnvirði rúmrar hálfrar milljónar íslenskra króna. Styrkinn hlýtur Anna Gréta sem bjartasta vonin, ungur og efni- legur tónlistarmaður, en hinn styrk- inn hlýtur gamalreyndur tónlistar- maður, saxófónleikarinn Nisse Sandström, sem hlýtur 60.000 sænskar krónur. „Ég hef ekki spilað með honum en hann er þekkt nafn hérna,“ segir Anna Gréta um Sand- ström. Naxos gefur út Anna Gréta og Sandström munu leika með hljómsveit á heiðurs- og minningartónleikum helguðum Zetterlund í Berwaldhallen í Stokk- hólmi 29. september og verða styrk- irnir afhentir þá. En hvað ætlar hún að gera við peninginn? „Ég þarf að kaupa mér svolítið af græjum og svo var ég að taka upp plötu sem kemur út í október,“ svarar Anna Gréta. Styrkurinn sé því kærkominn. Anna Gréta er 24 ára og hefur bú- ið í tæp fimm ár í Svíþjóð. Segja má að tónlistin sé henni í blóð borin því faðir hennar er einn mesti djass- geggjari Íslands, Sigurður Flosason saxófónleikari. „Alveg frá því að ég byrjaði að spila á píanó hefur verið sjálfsagt mál að þetta væri það sem ég vildi gera. Ég hef ekki mikið þurft að velta því fyrir mér,“ segir hún. Platan sem hún nefndi fyrr í samtal- inu er samstarfsverkefni hennar og gítarleikarans Max Schultz. Á henni verða lög eftir þau bæði og er platan gefin út af Prophone, sem heyrir undir hið þekkta útgáfufyrirtæki Naxos. „Það er ferlega spennandi,“ segir Anna Gréta um plötuna. „Gaman að fá eitt- hvað í hennar nafni“  Anna Gréta Sigurðardóttir hlýtur styrk úr sjóði Zetterlund Heiðruð Anna Gréta Sigurðardóttir, tónskáld og píanóleikari, hlaut verð- laun Fasching djassklúbbsins í fyrra og hlýtur nú styrk Zetterlund. Ljósmynd/Magnus Andersen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.