Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Grunnskólanemar setjast í hrönnum
á skólabekk í þessari viku. Sam-
kvæmt upplýsingum á vef Hagstofu
Íslands er árgangur þeirra sem
verða sex ára á þessu ári um 4.500
börn samkvæmt tölum frá 1. janúar í
ár. Þær gefa grófa mynd af þeim
barnahópi sem vafalaust er hvað
spenntastur að mæta í skólann.
Undanfarin ár hafa 4.200-4.900 börn
verið í hverjum árgangi og skarinn
allur verið u.þ.b. 42-46 þúsund. Hið
sama verður upp á teningnum í ár
samkvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar.
4.011 nemendur sóttu um skóla-
vist í framhaldsskóla í haust, en þeir
fá allir skólavist. Þessi hópur er 95%
þeirra sem luku grunnskóla á síð-
asta skólaári.
Breyttir tímar
Sífellt fleiri sveitarfélög hafa á
undanförnum árum ákveðið að bjóða
grunnskólabörnum ritföng og papp-
ír endurgjaldslaust.
Á síðustu árum hefur Velferðar-
vaktin staðið fyrir könnunum meðal
sveitarfélaga um þetta og síðasta
haust voru svörin á þann veg að mál-
ið var talið „í höfn“. Þá svöruðu
sveitarfélög þar sem 99% grunn-
skólabarna bjuggu því að þau
myndu á síðasta skólaári útvega
nemunum ritföng og pappír.
Nokkur umferð var um verslun
A4 í Skeifunni þegar blaðamaður og
ljósmyndari litu þar inn skömmu eft-
ir hádegi í gær, en stefna sveitar-
félaganna varðandi kostnaðarþátt-
töku nemenda hefur haft áhrif á
umferð um ritfangaverslanir að sögn
Sigurborgar Þóru Sigurðardóttur
verslunarstjóra. Hún sagði við-
skiptavini hafa verið fyrr á ferðinni
nú en oft áður. „Skólarnir byrja á
misjöfnum tíma. Í MS er t.d. ekki
skólasetning fyrr en á fimmtudag.
Grunnskólarnir byrja held ég flestir
á fimmtudag,“ segir hún.
„Nú erum við hætt að fá börn með
innkaupalista. Bæjarfélögin sjá al-
veg um það, en við erum mjög sterk í
skólatöskum. Explore-töskurnar, til
dæmis, flytjum við inn. Þær henta
vel fyrir þau yngstu,“ segir hún. Þá
koma margir við til þess að fjárfesta
í nestisboxum, sundpokum, brúsum
og ritföngum til að geta sinnt heima-
náminu af krafti.
Innkaupalistar
heyra sögunni til
Sveitarfélögin hafa tekið við Yfir 40 þúsund í grunn-
skóla 4.500 í fyrsta bekk Kaupa inn fyrr en áður
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Innkaup Skólatöskur, nestisbox, sundpokar, brúsar og ritföng eru meðal þess sem fjárfest er í fyrir skólaveturinn.
Alexander Máni Halldórsson hefur í
haust skólagöngu við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, en hann valdi sér
nám á tölvuþjónustulínu. Hann var að
grandskoða námsbækurnar þegar
Morgunblaðið náði af honum tali.
„Ég er að fara í tölvutengt nám,
þannig að ég er spenntur að sjá
hvernig það verður,“ segir Alexand-
er, en margir félagar úr 10. bekk
fara einnig í fjölbrautaskólann. Hann viðurkennir að taugarnar séu örlítið
þandar enda sé um nýjan vettvang að ræða. „Þetta verður eitthvað.“
Spenntur að takast á við tölvutengt nám
Nataníel Ísar Rósarsson verður í ní-
unda bekk í grunnskólanum í Þor-
lákshöfn í haust. Hann gerði sér ferð
í bæinn og fjárfesti í litum í A4 í gær.
Líkt og víðast hvar fá nemendur þar
flest skólagögn afhent í skólanum.
„Hjá okkur er allt innifalið,“ segir
Nataníel Ísar, sem vill þó sjálfur eiga
nóg af góðum litum.
Spurður um mesta tilhlökkunar-
efnið eftir sumarið var það að hitta krakkana á ný í skólanum. „Það er
toppurinn.“
Tilhlökkunarefni að hitta krakkana á ný
Guðný Carmen Þórðardóttir Hjelm
byrjar í 3. bekk í Mýrarhúsaskóla á
Seltjarnarnesi í vikunni. Hún var
ánægð með 2. bekk og hlakkar mest
til þess að hitta nýjan umsjónarkenn-
ara sinn. „Síðan verð ég með bestu
vinkonu minni í bekk,“ segir hún, en
skemmtilegastar eru loturnar í skól-
anum. „Þá lærum við að prjóna og
fleira,“ segir Guðný Carmen, sem
hefur nóg fyrir stafni í haust. Með skólanum ætlar hún að æfa dans og læra
á klarinett í Tónlistarskóla Seltjarnarness.
Hlakkar til að hitta nýjan umsjónarkennara
Íris Marín Stefánsdóttir byrjar í 7.
bekk í Norðlingaskóla í haust. Henni
finnst gott að hafa eigin skriffæri við
höndina í skólanum svo hlutirnir séu
í röð og reglu.
„Ég hlakka mest til að fara í smíði í
vetur,“ segir hún, en í Norðlinga-
skóla er boðið upp á svokallaðar
verksmiðjur þar sem nemendum
býðst að smíða. Íris Marín hefur
sannarlega nóg fyrir stafni í vetur. Hún er í hestamennsku og sinnir hest-
unum í þrjár klukkustundir á dag, sama hvernig viðrar.
Skólinn og hestarnir eiga athyglina í vetur
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Öflugar og
notendavænar
sláttuvélar
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við gerum okkur grein fyrir
rekstrarvanda Póstsins. Þetta er
samt sem áður meira en við bjugg-
umst við og búið var að gefa í skyn,“
segir Sigrún Ómarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Póstmannafélags Ís-
lands, um uppsagnir starfsfólks sem
Íslandspóstur tilkynnti í gær.
Alls var 43 starfsmönnum Íslands-
pósts sagt upp störfum í gær. Boð-
aðar eru frekari uppsagnir því stöðu-
gildum hjá fyrirtækinu mun fækka
um 80 á árinu í heild en það er um
12% starfsfólks.
Liður í hagræðingaraðgerðum
Fram kom í tilkynningu frá fyrir-
tækinu að uppsagnirnar væru liður í
nauðsynlegum hagræðingaraðgerð-
um sem miða að því að tryggja sjálf-
bæran rekstur fyrirtækisins og nú-
tímavæðingu starfseminnar. Upp-
sagnirnar eru fyrst og fremst á
meðal millistjórnenda, á skrifstofu og
í póstmiðstöð.
Íslandspóstur mun bjóða öllum
sem missa vinnuna ráðgjöf sérfræð-
inga við atvinnuleit og sálfræði-
aðstoð. Þeir starfsmenn sem komnir
eru nálægt starfslokaaldri fá einnig
sérstaka ráðgjöf. „Við hörmum
þetta,“ segir Sigrún Ómarsdóttir um
viðbrögð Póstmannafélags Íslands.
Hún segir að 29 starfsmenn sem
nú missa vinnuna séu í Póstmanna-
félaginu en flestir hinna í VR. Þá
segir hún að miðað við tilkynningu
Íslandspósts megi gera ráð fyrir
nærri jafn mörgum uppsögnum á
næstu mánuðum.
„Við erum ekki stórt félag og
þetta er mikill skellur fyrir það.
Aðalskellurinn er þó hjá starfsfólk-
inu sem missir vinnuna. Ég reikna
með að fólkið sé heima í áfalli,“ segir
hún. Um 750 póstmenn í fullri vinnu
eru í félaginu og lætur nærri að um
10% þeirra missi vinnuna. Stöðugildi
hjá Íslandspósti voru 666 fyrir upp-
sagnir og missa um 12% þeirra vinn-
una á árinu.
Sigrún segir að fimm eða sex af
þeim félagsmönnum Póstmanna-
félagsins sem sagt var upp í gær séu
á ellilífeyrisaldri, þar af tveir 69 ára
gamlir. „Það er alltaf erfitt að vera
sagt upp, þótt fólk sé komið á þenn-
an aldur, ef það vill vinna áfram,“
segir Sigrún. Hún segir að félagið
muni bjóða félagsmönnum aðstoð og
kynna þeim rétt þeirra.
500 milljóna kr. sparnaður
Gert er ráð fyrir að uppsagnirnar
leiði til um 500 milljóna króna hag-
ræðingar í rekstri Íslandspósts á ári.
Uppsagnarfrestur starfsfólksins er
þrír til sex mánuðir og því mun hag-
ræðingin byrja að koma fram í upp-
hafi næsta árs.
Fleiri sagt upp hjá Póst-
inum en búist var við
43 sagt upp í gær og frekari uppsagnir eru boðaðar
Morgunblaðið/Hari
Höfuðstöðvar Stjórnendur Íslandspósts standa nú í stórræðum.
„Ég hugsa að menn séu í hálfgerðu
sjokki. Núna eru einmitt margir frí-
merkjasafnarar staddir á stórri
samnorrænni sýningu í Noregi þar
sem Íslendingar sýna verðlauna-
söfn,“ segir Magni R. Magnússon,
frímerkjasafnari og áhugamaður
um almenna söfnun. Leitað var til
hans vegna ákvörðunar Íslands-
pósts um að leggja niður Frí-
merkjasöluna í núverandi mynd.
Vilhjálmur Sigurðsson, forstöðu-
maður Frímerkjasölunnar í 20 ár,
tilkynnti viðskipavinum hérlendis
og erlendis um þetta í gær. Hann
lætur af störfum í lok september og
verður dregið úr starfseminni í
áföngum til áramóta.
Magni telur þessa ákvörðun út í
bláinn. Bendir hann á að Pósturinn
sé með átta þúsund fasta viðskipta-
vini á hverri frímerkjaútgáfu og
sumir kaupi mikið. Þetta hafi oft
verið góð tekjulind fyrir Póstinn og
frímerkin séu auk þess mikil land-
kynning. helgi@mbl.is
Frímerkjasalan lögð niður um áramót