Morgunblaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17. JAPANSKIR HNÍFAR Allt fyrir eldhúsið Hágæða hnífar og töskur Allir velkomnir Einstaklingar og fyrirtæki Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin! Stjórnvöld og stjórnarmeirihlut-inn á alþingi eru mjög viðkvæm fyrir lögfræðiáliti Stefáns Más Stef- ánssonar prófessors og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst lands- réttarlögmanns um þriðja orku- pakkann. Þegar þeir tjá sig, eins og til dæmis fyrir þingnefnd í fyrradag, er kallað eftir bréfi frá þeim með nánari útskýringum til að „leiðrétta“ um- fjöllun fjölmiðla.    Þessar ítrekuðubréfapantanir sýna, þó að það sé ekki ætlunin, að stjórnvöld hafa slæma samvisku gagnvart lögfræði- áliti Stefáns Más og Friðriks Árna.    Ástæðan fyrirslæmri samvisku er að stjórnvöld ætla ekki að fara að ráðum Stefáns Más og Friðriks Árna, sem hafa bent á að sú leið sem stjórnvöld vilja fara sé ekki gallalaus.    Þeir hafa bent á að lögfræðilegarétta leiðin sé að hafna innleið- ingunni. Slík synjun yrði til þess að málið færi aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar til nýrrar með- ferðar.    Þeir hafa líka bent á að það sé súleið sem EES-samningurinn geri ráð fyrir að sé farin og að best væri að berjast á þeim vígvelli, eins og Stefán Már orðaði það fyrir þing- nefnd í vor.    Það er sama hversu mörg bréf erupöntuð með flóknum laga- tæknilegum útskýringum á því sem stjórnvöld hyggjast fyrir, þessir sér- fræðingar hafa mælt með annarri leið. Stefán Már Stefánsson Spuninn breytir ekki álitinu STAKSTEINAR Friðrik Árni Friðriksson Hirst Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is ,,Við höfum ekki heildarmyndina en kröfurnar hlaupa á tugum milljóna. Hæstu kröfurnar gætu hugsanlega verið á bilinu ein til fjórar milljónir króna,“ segir Helena Þ. Karlsdóttir, forstöðumaður stjórnsýslu- og um- hverfissviðs Ferðamálastofu, um stöðuna vegna gjaldþrots Gaman- ferða (Gaman ehf.). Helena segir all- ar tölur gefnar upp með fyrirvara, þar sem enn sé verið að fara yfir gögn og kröfur. Í einhverjum tilfell- um hafi verið sendar inn fleiri en ein krafa vegna sömu ferðar og í öðrum vanti enn gögn. 1.038 kröfur höfðu borist í tryggingafé Gamanferða þegar kröfufrestur rann út 20. júní. Að sögn Helenu bárust þrjár kröfur eftir að kröfufresti lauk en þær voru ekki teknar gildar. Helena vonast til þess, ef ekkert óvænt kemur upp, að hægt verði að senda út tilkynningu til kröfuhafa um miðjan september. Eftir það taki við fjögurra vikna kærufrestur áður en hægt verði að greiða út kröfurn- ar. Einnig vonast Helena til þess að tryggingafjárhæð Gamanferða dugi fyrir öllum kröfum. Ef svo verði ekki þurfi að skoða hvaða aðrar leiðir séu færar í stöðunni. Kröfur hlaupa á tugum milljóna  Vonast til að kröfuhafar hjá Gaman- ferðum fái svör um miðjan september Árni Torfason Íþróttaleikir Gamanferðir buðu m.a. upp á ferðir á HM í Rússlandi. „Húsnæði lögreglunnar í Neskaup- stað er algjörlega ófullnægjandi, enda um að ræða íbúðarhúsnæði á tveimur hæðum og það hentar því alls ekki þessari starfsemi,“ segir Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, í samtali við Morgunblaðið, en ráðið lýsir yfir furðu sinni á viðbrögðum embættis- manna úr dómsmálaráðuneytinu við eftirfylgni sveitarfélagsins vegna bágrar húsnæðisstöðu lögreglunnar. Um langt skeið hefur sveitarfélag- ið, í samstarfi við lögreglustjórann á Austurlandi, rætt við ráðuneytið um þá þörf að flytja lögregluna í Nes- kaupstað í annað og hentugra hús- næði þar sem núverandi húsnæði uppfyllir illa hlutverk sitt sem lög- reglustöð. „Hefur þessi umleitan engan árangur borið hvorki í sam- skiptum við ráðherra dómsmála né þingmenn kjördæmisins og helst að skilja í þessum samskiptum að horft sé til þess að fækka frekar lögreglu- stöðvum en hitt,“ segir í fundargerð bæjarráðs. Segir ráðið það skjóta skökku við að dómsmálaráðuneytið vilji helst horfa til að draga úr lög- gæslu á sama tíma og ljóst sé að hana þurfi að efla og bæta. Embættismenn á öðru máli Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir embættis- menn ráðuneytisins, þ.á m. ráðu- neytisstjóra, leggja áherslu á færri lögreglustöðvar og öflugri lögreglu- bíla. „Ég bind bara vonir við að nýr dómsmálaráðherra skoði þetta mál á ný,“ segir Karl Óttar og bætir við að sveitarfélagið sé langt frá höfuð- borginni og þurfi því greiðan aðgang að hentugu húsnæði fyrir störf lög- reglunnar. khj@mbl.is Húsnæði lögreglu sagt ófullnægjandi  Sveitarfélagið gagnrýnir dóms- málaráðuneytið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Handtaka Málefni lögreglu og að- búnaður eru reglulega til umræðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.