Morgunblaðið - 21.08.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019
FYRSTA SKREFIÐ Í DAGLEGRI
NÚLLSTILLINGU HÚÐARINNAR
ENDURVEKUR, MÝKIR, LÝSIR UPP
ABEILLE ROYALE, AFKVÆMI VÍSINDA OG BÝFLUGUNNAR
Kraftur hunangsins, höfgi olíunnar og ferskleiki vatnsins. Lausnin er blönduð hunangskrafti og er
notuð undir dagkrem til að núllstilla húðina og mýkja hana upp. Fullkomnaðu umhirðuna með
nýja dagkreminu til að draga úr einkennum öldrunar. Húðin verður stinnari, mýkri og geislandi.
NÝTT
DAGKREM
Verið velkomin
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
kynning í Snyrtivöruversluninni
Glæsibæ 21.–23. ágúst
Kynnum ný og endurbætt
krem úr Abeille Royale
línunni.
Elsa Þórisd. verður á staðnum
og veitir faglega ráðgjöf.
20%
afsláttur
af Guerlain vörum
kynningardagana
Birgir H. Helgason,
tónlistarkennari á
Akureyri, lést 16. ágúst
sl. eftir stutt veikindi,
85 ára að aldri.
Birgir fæddist 22.
júlí 1934, sonur
hjónanna Helga Stef-
ánssonar, bónda á
Þórustöðum í Önguls-
staðahreppi, og Jó-
hönnu Jónsdóttur.
Hann lauk söngkenn-
araprófi árið 1959 og
starfaði sem tón-
menntakennari við
Barnaskóla Akureyrar
frá 1959 til 1998 og sem kennari við
Tónlistarskólann á Akureyri, auk
þess að gegna stöðu
organista víða, s.s. við
Glæsibæjarkirkju,
Möðruvallakirkju í
Hörgárdal, hjá kaþ-
ólska söfnuðinum á
Akureyri og við sunnu-
dagaskóla Akureyrar-
kirkju.
Birgir stjórnaði Kór
Barnaskóla Akur-
eyrar, söng við jóla-
guðsþjónustur í Akur-
eyrarkirkju og söng
inn á nokkrar hljóm-
plötur. Birgir samdi
einnig mörg laganna
sem barnakórinn söng. Birgir samdi
einnig lag við skólasöng Barnaskóla
Akureyrar, Rís vor skóli hátt við
himin. Kórinn sendi jafnframt frá
sér nokkrar plötur undir stjórn
Birgis og samdi Birgir nokkurn
hluta þess efnis sem á plötunum var.
Lög eftir hann voru t.a.m. á plötu
með kórnum sem innihélt tvo stutta
söngleiki. Þá á Birgir lög á nokkrum
öðrum plötum og hafa nokkrar
nótnabækur komið út með lögum
hans.
Birgir fékk heiðursviðurkenningu
skólanefndar Akureyrarbæjar árið
2013 fyrir að veita nemendum
Barnaskóla Akureyrar ómetanlegt
tækifæri til söngs og hljóðfæranáms
í áraraðir.
Birgir lætur eftir sig fjögur upp-
komin börn.
Andlát
Birgir H. Helgason
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Fólk heldur almennt að það sé
lítil loftmengun á Íslandi enda er
þetta eyja í Atlantshafi og hér er
oft mikill vindur. Staðreyndin er
samt sú að sum efni eiga það til
að fara yfir skammtímaheilsu-
verndarmörk,“ segir dr. Ragn-
hildur Finnbjörnsdóttir, sérfræð-
ingur hjá Umhverfisstofnun.
Ný skýrsla um loftgæði á Ís-
landi var kynnt í gær. Ragnhildur
er höfundur skýrslunnar en í
henni kemur fram að loftgæði eru
heilt yfir nokkuð mikil á Íslandi
og hafa farið batnandi síðustu ár.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Ragnhildur að stefnt hafi verið að
slíkri útgáfu í mörg ár en tími hafi
ekki gefist til fyrr en nú.
„Við viljum taka saman nýj-
ustu upplýsingar um loftgæði og
þróun loftmengunar. Þessi
skýrslugerð er ein þeirra aðgerða
sem nefndar voru í áætlun um
loftgæði til 12 ára, Hreint loft til
framtíðar, sem
umhverfisráðu-
neytið gaf út í
lok árs 2017.“
Styrkur svif-
ryks minnkað
Meðal þess
sem fram kemur
í skýrslu Ragn-
hildar er að árs-
meðaltalsstyrkur
svifryks hefur farið lækkandi á
höfuðborgarsvæðinu frá því að
mælingar á efninu hófust en sólar-
hringsstyrkur efnisins á til að fara
yfir heilsuverndarmörk. Sömu
sögu er að segja um köfnunar-
efnisdíoxíð en ársmeðaltalsstyrkur
köfnunarefnisdíoxíðs er vel undir
heilsuverndarmörkum og hefur
verið frá því að mælingar á efninu
hófust. Þá er styrkur brenni-
steinsdíoxíðs almennt mjög lítill í
þéttbýli en meiri í kringum iðnað.
Styrkurinn hefur þó farið lækk-
andi í kringum iðnað síðustu fimm
ár.
Í skýrslunni er sérstaklega
tiltekið að mikilvægt sé að rann-
saka uppruna svifryks á fleiri
þéttbýlum svæðum en í höfuð-
borginni.
„Utan þéttbýlisstaða eru upp-
sprettur svifryks m.a. sandfok,
eldgos (öskufall/öskufok) og upp-
þyrlun ryks af malarvegum. Utan
þéttbýlis er meiri svifryksmengun
einna helst í moldar-, sand- og/eða
öskufoki sem eykst er snjóa leysir
og jörð nær að þorna. Ryk frá
malarvegum er vandamál víða úti
á landi og þá sérstaklega í þurrk-
um að sumri til. Með auknum
ferðamannastraumi hafa íbúar ná-
lægt þjóðvegum sem ekki er búið
að malbika upplifað meiri styrk
svifryksmengunar og ábendingar
hafa borist Heilbrigðiseftirliti
Norðurlands vestra og Umhverfis-
stofnunar vegna þessa. Umræddir
vegir eru rykbundnir að vori en sú
rykbinding er venjulega úr sér
gengin þegar liðið er á sumarið og
ferðamannaumferðin er hve mest,“
segir í skýrslunni.
Vilja rannsaka svifryk
Ný skýrsla um loftgæði á Íslandi Horft til framtíðar
Ragnhildur
Finnbjörnsdóttir
Sérkennilegt umferðaróhapp varð
á Grandagarði í gærmorgun þegar
kona ók bíl sínum upp á annan
fólksbíl. Tvær konur voru í bílnum,
asískir ferðamenn, og höfðu þær
nýlega tekið bílinn á leigu. Vörubíll
var að koma úr gagnstæðri átt þeg-
ar óhappið varð og svo virðist sem
ökumaðurinn hafi ætlað að víkja en
síðan aukið bensíngjöfina og hafn-
að uppi á kyrrstæðum bíl, sem ýtt-
ist á þriðja bílinn.
„Maður er búinn að sjá margt en
þetta er með því fyndnasta sem ég
hef séð, þó að þetta sé talsvert tjón
fyrir fyrirtækið. Kostnaðurinn
leggst nær eingöngu á okkur því
miður,“ segir Sævar Sævarsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri bíla-
leigunnar Blue Car Rental.
„Tildrögin í þessu tilviki eru
kannski einsdæmi, en þetta nær
ekki metinu í fjarlægð frá bílaleig-
unni frá 2015 eða 2016 þegar óhapp
varð eftir 110 metra. Þá var það að-
ili sem keyrði Yaris á kyrrstæðan
Porsche við hliðina á bílaleigunni.
Þetta er samt algjört einsdæmi,
þetta er bara furðuatvik sýnist
mér,“ segir Sævar. gso@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Árekstur Talsverðan tíma tók að ná bílaleigubílnum ofan af hinum bílnum.
Ók bílaleigubíl upp
á kyrrstæðan bíl
Furðuatvik á Grandagarði
Þrátt fyrir fundahöld hjá Ríkissátta-
semjara í fjórum kjaradeilum stétt-
arfélaga í flugstarfsemi og viðsemj-
enda þeirra, sem vísað hefur verið
til sáttameðferðar, er engin lausn í
sjónmáli enn sem komið er. Þokka-
legur taktur hefur þó verið í viðræð-
unum skv. upplýsingum Bryndísar
Hlöðversdóttur ríkissáttasemjara.
Samninganefndir Flugfreyju-
félags Íslands og Samtaka atvinnu-
lífsins, fyrir hönd Icelandair, komu
saman til sáttafundar um miðjan
dag í gær. „Það hefur verið ágætis
gangur í viðræðunum en það er
ennþá langt í land,“ sagði Berglind
Hafsteinsdóttir, formaður Flug-
freyjufélagsins, eftir fundinn.
Þrettán sáttafundir flugfreyja
og SA/Icelandair
Boðað er til vinnufundar í deil-
unni síðar í vikunni. Flugfreyjur hjá
Icelandair og Air Iceland Connect
hafa verið samningslausar frá ára-
mótum. Kjaradeilunni við Icelandair
var vísað til sáttameðferðar í maí og
eru sáttafundirnir orðnir þrettán
talsins frá því í vor.
Berglind segir að þetta sé orðinn
dágóður tími frá því að samningar
runnu út og segist hún farin að finna
fyrir óþreyju í félagsmönnum.
Í gærmorgun var haldinn sátta-
fundur í deilu Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna og SA fyrir hönd
Air Iceland Connect og í dag er boð-
að til sáttafundar í deilu Flugfreyju-
félagsins og SA fyrir hönd Air Ice-
land Connect. Einnig er kjaradeila
Félags íslenskra flugumferðarstjóra
og Isavia til sáttameðferðar hjá rík-
issáttasemjara.
Bryndís Hlöðversdóttir ríkis-
sáttasemjari sagði í gær um þessar
kjaradeilur viðsemjenda í fluggeir-
anum að fátt væri að frétta af þess-
um viðræðum sem væru að komast í
fullan gang eftir sumarhlé. „Það
hefur verið ágætur taktur í viðræð-
unum en það ber ennþá mikið í
milli.“
Í gær fór einnig fram sáttafundur
í kjaradeilu Blaðamannafélags Ís-
lands og SA og í dag er boðað til
sáttafundar í deilu Starfsgreinasam-
bandsins og Eflingar við samninga-
nefnd Sambands íslenskra sveitar-
félaga. omfr@mbl.is
Enn ber mikið í milli í
kjaradeilum í fluginu
Ágætur taktur sagður á viðræðum þótt enn sé langt í land
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Deila Samninganefndir FFÍ og SA/Icelandair áttu 13. sáttafundinn í gær.