Morgunblaðið - 21.08.2019, Page 12

Morgunblaðið - 21.08.2019, Page 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 ER BROTIÐ Á ÞÉR? Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur. Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst. Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn. HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT. botarettur.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ný skoðanakönnun í Færeyjum bendir til þess að landstjórnin missi meirihluta sinn á lögþinginu í kosn- ingum sem fara fram 31. ágúst. Samkvæmt Gallup-könnun fyrir Kringvarpið missir landstjórnin tvö sæti og fær 15 af alls 33 þingsætum. Fólkaflokkurinn, sem er í stjórnar- andstöðu, verður stærstur, bætir við sig tveimur sætum og fær átta, gangi niðurstöður könnunarinnar eftir. Fylgi hans mælist nú 24,1% og 5,2 prósentustigum meira en í síðustu kosningum til lögþingsins árið 2015. Jafnaðarmenn og Þjóðveldis- flokkurinn missa sæti Jafnaðarflokkurinn er næst- stærstur, missir eitt sæti og fær sjö þingmenn, ef marka má könnunina. Hann var stærstur í síðustu kosn- ingum þegar hann fékk 25,1% at- kvæðanna en fylgi hans mælist nú 21,2%, að sögn færeyska útvarpsins. Jafnaðarflokkurinn er í land- stjórninni með Þjóðveldisflokknum og Framsókn, flokki sem klauf sig úr Fólkaflokknum. Þjóðveldisflokkur- inn, undir forystu Høgna Hoydal, fékk 20,7% atkvæðanna og Fram- sókn 7,0% í síðustu kosningum. Sam- kvæmt Gallup-könnuninni minnkar fylgi Þjóðveldisflokksins í 18,2% og hann missir eitt sæti, fær sex. Fram- sókn fær jafnmikið fylgi og í síðustu kosningum og heldur báðum þing- sætum sínum, ef marka má könnun- ina. Sambandsflokkurinn mælist nú með 20,1% fylgi, 1,4 prósentustigum meira en fyrir fjórum árum. Sam- kvæmt þessu bætir hann við sig einu sæti og fær sjö þingmenn. Miðflokkurinn mælist með svipað fylgi og í síðustu kosningum, um 5,0%, og heldur báðum þingsætum sínum gangi niðurstöður könnunar- innar eftir. Nýju flokkarnir fá ekki þingsæti Flokkurinn Sjálfstýri er með 3,5% fylgi, 0,6 prósentustigi minna en fyrir fjórum árum, og missir annað þingsæta sinna, ef marka má könn- unina. Auk flokkanna sjö sem tóku þátt í kosningunum árið 2015 bætast tveir nýir flokkar við en könnunin bendir til þess að þeir fái ekkert þingsæti. Annar þeirra, Framtakið fyri rætt- inum at velja kannabis, hefur beitt sér fyrir því að kannabis verði lög- leyft í lækningaskyni. Hinn flokkur- inn, Færeyjaflokkurinn, hefur m.a. boðað aukið frjálsræði í atvinnulíf- inu. Könnunin var gerð 12.-16. ágúst og skekkjumörkin eru 1,8 prósentu- stig. Um 540 manns voru í úrtakinu, að sögn fréttavefjar Kringvarpsins. Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja og formaður Jafnaðar- flokksins, boðaði til kosninganna við setningu lögþingsins á þjóðhátíðar- degi Færeyinga 29. júlí. Hann kvaðst vilja að stjórnarflokkarnir þrír héldu samstarfinu áfram. Stefnir í að landstjórnin falli  Stjórnarflokkarnir í Færeyjum missa tvö þingsæti ef marka má nýja skoðanakönnun  Fólka- flokkurinn mælist með mest fylgi og bætir við sig tveimur sætum  Fylgi Jafnaðarflokksins minnkar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þinganes Skip siglir við Þinganes, elsta hluta Þórshafnar, þar sem fær- eyska landstjórnin hefur aðsetur. Þar var þing Færeyinga haldið til forna. Bangun. AFP. | Bros færist yfir veðurbarið andlit Kemans þegar hann segir frá því að ruslið sem hann safnaði og seldi gerði hon- um kleift að koma börnum sínum til mennta. Hann er einn af mörgum íbúum indónesíska bæjarins Bangun sem hafa notið góðs af sístækkandi ruslahaugum í landinu. Umhverfisverndar- sinnar hafa hins vegar áhyggjur af mikilli mengun sem fylgir sorpinu. Bann kínverskra stjórnvalda við nær öllum innflutningi á plastúrgangi hefur orðið til þess að plastið hefur hlaðist upp á Vesturlöndum og plastúrgangur hefur verið fluttur í miklum mæli til landa í Suðaustur-Asíu þar sem endurvinnslan einkennist af glundroða. „Ruslið er eins og fjársjóður hérna,“ sagði Keman, 52 ára íbúi í Bangun þar sem um tveir þriðju íbúanna lifa á því að flokka rusl og selja fyrirtækjum plastflöskur, umbúðir, bolla og fleira sem þeir finna í haugunum. „Ég á þrjú börn – þau ganga öll í háskóla,“ sagði Keman stoltur. „Erfiðið sem ég hef lagt á mig hér á haugunum hefur gert allt þetta mögulegt.“ Innflutningur á úrgangi stórjókst Bangun er á meðal nokkurra bæja á eyjunni Jövu þar sem stór hluti íbúanna lifir á því að nýta rusl sem er flutt þangað frá vestrænum löndum á borð við Bandaríkin, England og Belgíu og Mið-Austur- lönd. Innflutningur á plastúrgangi hefur stóraukist á Indónesíu á síð- ustu árum, úr 10.000 tonnum á mánuði árið 2017 í 35.000 tonn und- ir lok síðasta árs, samkvæmt op- inberum tölum. Dag hvern er allt að 40 vörubíl- um ekið inn í Bangun til að sturta rusli fyrir utan heimili íbúanna eða í risastóra sorphauga. Ruslið sem ekki er hægt að endurnýta er selt nálægum verk- smiðjum sem nota það í brennslu- ofna sína. „Úrgangurinn er mjög nytsamlegur fyrir íbúa bæjarins og hefur bætt efnahag hans,“ sagði M. Ikhsan, einn forystumanna bæjar- ins. Mengar loftið og örplast berst í sjó og vötn Umhverfisverndarsinnar hafa aðra sögu að segja. Þeir benda á að verkmiðjurnar brenna óendur- vinnanlegt plast og menga and- rúmsloftið með eiturgufum, auk þess sem örplast berst í vötn á eyj- unni og í sjóinn. Indónesía er nú í öðru sæti á eftir Kína á lista yfir ríki sem valda mestri mengun sjávar. Indónesíska stjórnin hefur lofað að minnka plastmengunina við strendur landsins um 70% ekki síðar en árið 2025. „Þetta verður dýrt fyrir okkur – dýrt fyrir heilbrigðiskerfið okkar og komandi kynslóðir sem þurfa að koma umhverfinu í viðunandi horf,“ sagði Prigi Arisandi, handhafi Goldman-verðlaunanna sem veitt eru fyrir grasrótarstarf í þágu umhverfisverndar í heiminum. Stjórnvöld í Indónesíu hafa hert eftirlitið með sorpinnflutningnum á síðustu mánuðum og endursent gáma, sem innihalda meðal annars plastúrgang og hættuleg efni, til Frakklands, Hong Kong, Ástralíu og Bandaríkjanna. Ruslið „eins og fjársjóður“  Veldur mengun en er einnig tekjulind AFP Græðir á sorpinu Keman, 52 ára Indónesi, situr á haug af plastúrgangi í bænum Bangun á Jövu. Hann segir tekjur sínar af því að selja það sem nýtilegt er í ruslinu hafa gert sér kleift að koma þremur börnum sínum í háskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.