Morgunblaðið - 21.08.2019, Page 16

Morgunblaðið - 21.08.2019, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn Þorskhnakkar | Glæný lúða | Klausturbleikja Glæný línuýsa | Nýlöguð humarsúpa Ég er á móti þriðja orkupakkanum ein- faldlega vegna þess að ég tel að með honum sé verið að færa okkur enn einu skrefinu nær því að selja orku úr landi og rígbinda okk- ur enn frekar á klafa evrópska reglubákns- ins og alþjóðavæðing- arinnar. Þriðji orku- pakkinn er bara enn ein birtingarmynd þess að við séum að gangast alþjóðavæðingunni á hönd og þá ekki bara sem hugmynda- fræði heldur með bindandi samn- ingum. Með alþjóðavæðingu á ég ekki við þær nokkur hundruð hræður sem þvælast nauðugar eða viljugar til Íslands eða frá því og stuðnings- menn þessarar gjörónýtu hug- myndafræði eru svo duglegir að benda á í barnaskap sínum. Með alþjóðavæðingu á ég við hinn ömurlega arftaka nýlendu- stefnunnar sem gerir stórfyrir- tækjum kleift að fara um heiminn eins og engisprettufaraldur og safna auði á hendur eina prósents- ins. Öll þau fyrirtæki sem í dag menga mest, valda dýrum og mönnum óendanlegum þjáningum, selja ópíóða, ryðja regnskóga og sökkva t.d. hálendi Íslands gera það í skjóli alþjóðavæðingar. Eftir að öllum varð ljóst að gömlu þræla- kistur nýlendanna og öll sú auðsöfnun sem þeim fylgdu voru orðn- ar tabú er eins og ein- hver ímyndarsmiður hafi sest niður og dikt- að upp alþjóðavæðing- una til þess að taka við af henni. Þetta er ekk- ert annað en hug- myndafræðilegt kennitöluflakk. Sama gjaldþrota hugmynda- fræðin með nýtt nafn. Allir sem eru ekki fylgjandi eru rasistar og á móti þeirri fáránlegu og fyllilega óraunhæfu útópíu sem hefur oft ver- ið kölluð „heimsþorpið“. Ég fullyrði að alþjóðavæðingin, sem stjórnað er af ábyrgðarlausum, andlitslausum stórfyrirtækjum með stærra kolefn- isspor en nokkuð annað í heiminum sé það versta sem hefur nokkurn tíman komið fyrir mannkynið og jörðina alla. Alþjóðavæðingin er ekkert annað en nútíma þrælaverslun og rán- yrkja. Hún gengur á auðlindir þjóða og misnotar þegna (eigendur) þeirra auðlinda til verksins. Hvað í veröld- inni er eiginlega að okkur að ætla að fara að gangast þessari handónýtu og hraðlygnu hugmyndafræði enn frekar á hönd? Evrópusambandið sem slíkt er bara einn angi þessa vel lukkaða ímyndaráróðurs. Það á að standa fyrir samvinnu, jöfnuð, frið og mannréttindi en vinnur í raun leynt og ljóst að því að moka undir rassana á örfáum einstaklingum sem kunna að misnota þetta allt of stóra og eftirlitslausa bákn. Nú gætu einhverjir sagt að Ís- lendingar hafi mokgrætt á alþjóða- væðingunni. Við seljum jú fisk og ál og næst mögulega rafmagn til út- landa, getum étið eitthvað annað en soðna ýsu og slátur og flytjum inn gagnslaust drasl sem við köllum Apple, H&M eða D&G og ein- hverjum fínum nöfnum en er í raun ekki annað en nútíma nýlendugóss frá þeim löndum sem alþjóðavæð- ingin misnotar. Svo látum við 1, 2, 3% þjóðarframleiðslunnar í þróun- araðstoð og gerumst heimsforeldri eða leggjum 100 kall í ABC barna- starf og rífumst á torgum yfir einum og einum flóttamanni og höldum að við séum voðalega góð og auðvitað alls engir rasistar af því að við styðj- um alþjóðavæðingu og fjölbreyti- leika. Maður getur ekki annað en dáðst að því að það sé hægt að selja fólki svona dæmalausa þvælu. Ég bara trúi því ekki að við ætl- um í alvöru að fara að framselja þær auðlindir sem við þó eigum eftir og felast í ósnortinni víðáttu, hreinu vatni og lofti og gjöfulum fiski- miðum fyrir skjótfenginn gróða ör- fárra einstaklinga á þeim forsendum að annars séum við heimóttalegir rasistar og einangrunar sinnar. Við þurfum miðstýringu þjóðríkisins til þess að hafa hemil á fyrirtækjum sem annars geta, eins og dæmin sýna, vaðið áfram í skjóli þess eftir- litsleysis sem alþjóðavæðingin býð- ur upp á og bókstaflega eyðilagt heiminn. Við ráðum auðvitað ekki yfir öðr- um löndum en við getum allavega byrjað á sjálfum okkur með góðu fordæmi. Heimurinn allur sem einn markaður er ekki útópía vinstri mannsins heldur dystópía, hvers ör- eigar verða ekki ein stétt innan hvers lands heldur heilu löndin eða jafnvel heimsálfurnar. Það er auðvitað mjög auðvelt að gangast alþjóðavæðingunni á hönd þar sem að hún verður jú til þess að við fáum „nýlenduvörur“ og brauð- molana sem hrynja af borði stór- fyrirtækjanna og getum í leiðinni flokkað okkur sem víðsýna, mann- vini og heimsborgara. Ég vona bara að þeir sem eru fylgjandi þessari ömurlegu stefnu fari að átta sig á því að þeir eru að kjósa gömlu ný- lenduherrana, þeir eru hinir sönnu pilsfaldakapítalistar, þeir eru ekki upplýstir og menntaðir heldur blindaðir og heilaþvegnir, þeir eru hinir sönnu rasistar og umhverfis- sóðar. Segjum nei við öllum orkupökk- um, nei við Evrópusambandinu og nei við alþjóðavæðingunni. Munum að vegurinn til glötunar er varðaður góðum ásetningi, þriðji orkupakkinn er ein slík varða. Ég er á móti þriðja orkupakkanum og því sem hann stendur fyrir Eftir Ásu Hlín Benediktsdóttur » Segjum nei við öllum orkupökkum, nei við Evrópusam- bandinu og nei við alþjóðavæðingunni. Höfundur er skáld og bókmenntafræðingur. Ása Hlín Benediktsdóttur Eitthvað eru þau í Vinstri-grænum óróleg vegna framkvæmda á ör- yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Stutt er síðan flugvélar úr loftrýmis- gæslu sem Nató sér um þurftu að fljúga í veg fyrir langfleygar rúss- neskar flugvélar af þeirri gerð sem nefnist Björninn. Þetta flug rúss- nesku langfleygu flugvélanna upp að landinu sýnir okkur glögglega að Rússar hafa ennþá áhuga á landinu okkar. Við eigum að vera þakklát fyrir að bandamenn okkar í Nató skuli stunda loftrýmisgæslu við landið. Kommatittirnir hafa alltaf verið andvígir því að varnarviðbúnaður væri viðhafður hér á landi. Sigurður Guðjón Haraldsson. Velvakandi Svarað í síma 569- 1100 frá kl. 10-12. VG og varnir landsins Rússnesk herflugvél. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.