Morgunblaðið - 21.08.2019, Síða 25
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Í kvöld hefst nýtt keppnistímabil í
þýska handknattleiknum þegar
Flensburg og Kiel eigast við í
meistarakeppninni. Flensburg varð
meistari á síðasta tímabili og THW
Kiel varð bikarmeistari.
Gísli Þorgeir Kristjánsson leikur
sem kunnugt er með Kiel en nú hafa
þau tímamót orðið hjá Kiel að Alfreð
Gíslason er hættur þjálfun liðsins og
Tékkinn Filip Jicha tekinn við.
Keppni í þýsku bundesligunni
hefst annað kvöld og þá verður lið
Nordhorn til dæmis í eldlínunni.
Nordhorn réði Geir Sveinsson sem
þjálfara á mánudaginn en annað
kvöld tekur Nordhorn á móti Berg-
ischer með Arnór Þór Gunnarsson
og Ragnar Jóhannsson innanborðs.
Arnór var geysilega atkvæðamikill á
síðasta tímabili og var væntanlega
hans besta tímabil á ferlinum.
Ragnar er hins vegar nýr leikmaður
hjá Bergischer en hann gekk í raðir
félagsins í sumar frá Hüttenberg.
Þar hafði hann leikið frá árinu 2015.
Geir Sveinsson er eflaust ánægð-
ur með að komast aftur í slaginn í
sterkustu deild heims, en hann þjálf-
aði áður Magdeburg. Augljóslega er
það þó engin draumastaða fyrir
þjálfara að taka við liði þremur dög-
um fyrir fyrsta leik. Ekki þekkir
greinarhöfundur hvernig andrúms-
loftið er hjá Nordhorn en Geir hlýt-
ur að fá góðan tíma hjá sínum yfir-
mönnum til að ná tökum á liðinu.
Annað væri ósanngjarnt.
Kristján stýrir Löwen
Flensburg var á heildina litið
besta liðið á síðasta tímabili. Kiel var
þó geysilega sterkt síðari hluta tíma-
bilsins en erfið byrjun kom í veg fyr-
ir að Kiel tækist að sigra. Spennandi
verður að sjá hvernig Gísla vegnar í
vetur enda einn af framtíðar-
mönnum íslenska landsiðsins. Gísli
var lengi frá í fyrra eftir aðgerð á öxl
en hljóðið var gott í honum þegar
greinarhöfundur spjallaði við hann í
Kiel í byrjun júní. Hvort liðið heldur
dampi sem eitt besta lið Þýskalands
eftir brotthvarf Alfreðs verður svo
tíminn að leiða í ljós.
Rhein-Neckar Löwen hefur verið
á meðal bestu liðanna síðustu árin.
Alexander Petersson er á sínum
stað í leikmannahópi liðsins en Guð-
jón Valur Sigurðsson er farinn til
Parísar. Þá er Kristján Andrésson
tekinn við stjórnartaumunum af
danska landsliðsþjálfaranum Niko-
laj Jacobsen og verður þetta í fyrsta
skipti sem Kristján þjálfar í Þýska-
landi.
Oddur upp um deild
Á meðal þeirra breytinga sem
orðið hafa á högum Íslendinganna í
Þýskalandi er að Bjarki Már Elísson
hefur yfirgefið höfuðborgina Berlín
og er orðinn leikmaður Lemgo.
Hefðin er rík hjá Lemgo og verður
forvitnilegt að sjá hvernig Bjarka
reiðir af, en hann sagðist í samtali
við Morgunblaðið telja að hann fengi
úr meiru að moða í sóknarleik
Lemgo en hjá Füchse, sem verið
hefur sterkt lið síðustu árin, eða frá
því Dagur Sigurðsson reif það upp.
Annar marksækinn vinstri horna-
maður, Oddur Gretarsson, er nú
orðinn leikmaður í efstu deild eftir
að lið hans, Balingen, vann sér sæti í
efstu deild. Oddur var á meðal
markahæstu leikmanna í 2. deild á
síðasta tímabili og verður því
væntanlega áberandi í vetur.
Viggó og Elvar bætast við
Annar Íslendingur sem bætist í
deildina er Viggó Kristjánsson sem
leikur með Leipzig, en hann raðaði
inn mörkunum í Austurríki og fær
nú tækifæri til að sanna sig í mun
sterkari deild.
Þá ákvað Elvar Ásgeirsson að
reyna fyrir sér erlendis og leikur
með Stuttgart í vetur. Elvar hefur
verið lykilmaður hjá Aftureldingu
undanfarin ár en nokkuð óheppinn
með meiðsli.
Aðalsteinn Eyjólfsson er á sínum
stað sem þjálfari Erlangen. Gerði
hann nýjan samning í janúar og er
samningsbundinn út keppnis-
tímabilið sem er að hefjast. Tók
hann við liðinu í október árið 2017 og
ríkir ánægja með hans störf.
Ísland á nú
11 fulltrúa í
1. deildinni
Íslendingar dreifa sér um Þýskaland
Morgunblaðið/Hari
Nordhorn Geir Sveinsson samdi í vikunni um að taka við liðinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stuttgart Elvar Ásgeirsson er kominn til Þýskalands.
AFP
Bergischer Arnór Þór Gunnarsson átti gott tímabil.
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019
Lopapeysa
í sveitina
Verið velkomin í nýja og glæsilega
verslun okkar okkar á Laugavegi 4-6
Álafossvegi 23, Laugavegi 4-6, alafoss.is
Þessi eina sanna sem verður bara betri
eftir því sem þú nota hana meira.