Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195  Tvennum sögum fer af því hvað framtíðin ber í skauti sér hjá Heimi Guðjónssyni, þjálfara Færeyjameist- ara HB í knattspyrnu. Forráðamenn fé- lagsins eru vongóðir um að framlengja samning Heimis, en mbl.is hafði áður greint frá því að Heimir væri á heim- leið eftir yfirstandandi leiktíð í Fær- eyjum. Heimir stýrði FH árin 2008- 2017 og vann fimm Íslandsmeistara- titla, en hann er á öðru tímabili sínu í Færeyjum.  Körfuboltamaðurinn Gunnar Ingi Harðarson er genginn til liðs við Hauka frá Val. Gunnar er bakvörður og skilaði 5,5 stigum og 2,2 stoðsend- ingum að meðaltali með Val á síðustu leiktíð, en hann hefur einnig leikið hér á landi með Ármanni, FSu og KR. Gunnar spilaði með háskólaliði í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum áður en hann kom til Vals.  Markvörðurinn Daði Freyr Arnars- son hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við FH. Daði var þriðji markvörður FH fyrir leiktíðina en hefur fest sig í sessi í marki Hafnfirðinga í sumar vegna meiðsla Gunnars Niel- sen og Vignis Jóhannessonar. Daði hefur síðan haldið stöðu aðalmark- varðar og spilað tíu deildarleiki, en síðustu tvö sumur varði hann mark Vestra. Eitt ogannað KÖRFUBOLTI Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í körfu- knattleik getur í kvöld komist áfram í undankeppni Evrópumótsins 2021 þegar liðið heimsækir Sviss í bæn- um Montreux. Aðeins sigurliðið í þessum riðli forkeppninnar kemst áfram í undankeppnina og eftir stór- sigur á Portúgal í Laugardalshöll um liðna helgi, 96:68, er Ísland í kjörstöðu. Raunar algjöru dauða- færi. Staðan fyrir leikinn er afskaplega einföld. Ísland má tapa fyrir Sviss í kvöld með 19 stigum eða minna til að fara samt áfram, en tap með 20 stigum eða meira gerir það að verk- um að Sviss tekur efsta sætið og Ís- land situr eftir þrátt fyrir að liðin verði jöfn í riðlinum. Það er vegna þess að stigatala Íslands er 28 stig í plús, en stigatala Sviss er 12 stig í mínus. Nái Sviss að vinna upp þann mun nær liðið efsta sætinu, annars ekki og þá fer Ísland áfram. Íslensk- ur sigur gulltryggir vitanlega líka efsta sætið. Ekki þarf að taka tillit til þriðja liðsins í riðlinum í þessari jöfnu, því Portúgal er úr leik sama hvað þrátt fyrir að sitja í efsta sæti riðilsins fyrir þennan lokaleik í Sviss. Portú- galar eru með lökustu stigatöluna í riðlinum og geta ekki hafnað í efsta sæti, alveg sama hvernig fer í kvöld. Á hvaða flug fer hausinn? Fyrri leikur Íslands og Sviss í riðlinum endaði með háspennusigri Íslands, 83:82, þar sem Martin Her- mannsson skoraði sigurkörfuna í þann mund sem leiktíminn rann út. Það sem hefur þó einkennt íslenska liðið er að sveiflurnar eru oft miklar á milli heima- og útileikja, eins og sannaðist í leikjunum tveimur gegn Portúgal. Fyrri leikurinn tapaðist með einu stigi ytra en liðið vann 28 stiga sigur á heimavelli. Íslensk landslið eru ekki þekkt fyrir annað en að fara í alla leiki til þess að sigra. Ef stefnt er á tindinn er þó aldrei verra að vera í sterkri öryggislínu. Það er því þægilegt til þess að hugsa að liðið þurfi ekki að sækja sigur til Sviss í dag, þó að það sé að sjálfsögðu stefnan. Að halda leiknum jöfnum er nóg, þar sem allt undir 20 stiga tapi dug- ir til þess að vinna riðilinn. Það er í sjálfu sér stórskrýtið og eina spurn- ingarmerkið má segja að sé hvernig það fer í hausinn á mönnum í undir- búningnum, enda eflaust öðruvísi að gíra sig upp í leik í þessari stöðu. Engu að síður þyrfti í raun eitthvað ótrúlegt að eiga sér stað svo að Ís- land léti þessa stöðu renna sér úr greipum. Ísland bætir í meðalhæðina Ef íslenska liðið vinnur þennan riðil í forkeppninni er þó enn strembin leið fyrir höndum til að komast á þriðju lokakeppni EM í röð. Það sem tæki næst við er sjálf undankeppnin sem hefst í febrúar á næsta ári, en þar færi Ísland í fjög- urra liða riðil með Finnlandi, Georgíu og Serbíu þar sem þrjú efstu liðin komast áfram. Reyndar er það ekki alveg svo einfalt í þessum riðli, því Georgía er örugg áfram sem ein af gestaþjóð- um lokakeppninnar. Ísland berst því um hin tvö sætin við Serbíu, sem teflir fram einu besta liði Evrópu, og Finnlandi sem Ísland hefur mætt þrívegis á síðustu árum. Riðillinn í undankeppninni verður spilaður í þremur landsleikjagluggum, í febr- úar og nóvember 2020 og svo í febr- úar 2021. Áður en hægt er að hugsa svo langt þarf þó að klára dæmið gegn Sviss í kvöld, en ein breyting er á liði Íslands frá hinum leikjunum. Ragnar Ágúst Nathanaelsson kem- ur inn í liðið í stað Hjálmars Stef- ánssonar. Hæð hans og Tryggva Snæs Hlinasonar mun án efa nýtast vel í kvöld, ekki síst gegn hinum há- vaxna Clint Capela, sem leikur með Houston Rockets í NBA-deildinni. Dauðafæri en skrýtin staða á sama tíma  Ísland má tapa með 19 stigum fyrir Sviss en myndi samt fagna í kvöld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Augnablikið Martin Hermannsson skorar sigurkörfuna gegn Sviss. Benjamín Jóhann Johnsen og Fjóla Signý Hannesdóttir urðu um helgina Íslandsmeistarar í fjöl- þrautum, en mótið fór fram á Akur- eyri. Í tugþrautinni var keppnin afar spennandi þar sem Ísak Óli Traustason var aðeins fimm stigum á eftir Benjamín, sem sigraði með 7.012 stig. Benjamín og Ísak unnu báðir fjórar greinar um helgina; Benjamín í hástökki, stangarstökki, spjótkasti og kringlukasti en Ísak í 100 metra hlaupi, 110 metra grindahlaupi, langstökki og kúlu- varpi. Í sjöþraut hlaut Fjóla Signý 4.529 stig og var tíu stigum ofar en María Rún Gunnlaugsdóttir. María vann engu að síður fimm þrautir, en gerði hins vegar öll stökk sín ógild í langstökki og fékk því engin stig fyrir greinina. Dagur Fannar Einarsson vann tugþraut pilta 16-17 ára með 6.291 stig og í sjöþraut stúlkna í sama aldursflokki vann Glódís Edda Þuríðardóttir með 4.688 stig. Morgunblaðið/Eggert Tugþraut Benjamín Jóhann Johnsen. Benjamín og Fjóla fjölþrautameistarar Ljósmynd/FRÍ Sjöþraut Fjóla Signý Hannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.