Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 32
Næstsíðustu sumartónleikar
kammerkórsins Schola cantorum á
Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgríms-
kirkju eru í dag kl. 12 undir stjórn
Harðar Áskelssonar. Flutt verður
falleg, hátíðleg og skemmtileg dag-
skrá sem spannar vítt litróf frá
miðöldum á Íslandi til vorra daga
með viðkomu í íslenskum tvísöng
auk þess sem nokkrar þekktar perl-
ur evrópskra tónbókmennta verða
teknar til kostanna. Þetta er tíunda
sumarið sem Schola cantorum
stendur fyrir hádegistónleikaröð
alla miðvikudaga í júlí og ágúst.
Tónleikaröð senn búin
MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 233. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Íslenska karlalandsliðið í körfu-
knattleik spilar í kvöld síðasta
leik sinn í riðlinum í forkeppni EM
2021 þegar liðið heimsækir Sviss.
Ísland er í kjörstöðu fyrir leikinn
með bestu stigatöluna í riðlinum og
má tapa með allt að 19 stiga mun
án þess að það komi í veg fyrir sig-
ur í riðlinum. Aðeins toppsætið gef-
ur sæti í undankeppninni. »27
Ísland má tapa með 19
stigum en fagna samt
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Ísland á ellefu fulltrúa í efstu deild
karla í handboltanum í Þýskalandi,
þrjá þjálfara og átta leikmenn, en
deildin hefst á morgun. Á hinn bóg-
inn eru þekktir kappar farnir. Alfreð
Gíslason er hættur hjá Kiel og Guð-
jón Valur Sigurðsson
farinn til PSG.
Kristján Andrésson
reynir nú fyrir sér í
Þýskalandi hjá
stórliðinu
Rhein-Neckar
Löwen en hin-
ir tveir þjálf-
ararnir eru
Geir Sveins-
son og Aðal-
steinn
Eyjólfsson.
» 25
Íslendingar eru enn
áberandi í Þýskalandi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar Garðar Ólafsson hafði starf-
að sem úrsmiður í um hálfa öld og
hætti með samnefnda verslun sín á
Lækjartorgi, þar sem hann hóf eig-
in rekstur 1956, tók hann upp
penslana af alvöru og hefur einbeitt
sér að málverkinu undanfarin 16 ár.
„Ég er heppinn með að vera heil-
brigður og frískur og það er gaman
að hafa eitthvað fyrir stafni, en auð-
vitað skiptir stórfjölskyldan mestu
máli. Ég hef haft áhuga á því að
teikna og mála nær alla ævi, eða
síðan foreldrar mínir fóru fyrst með
mig á málverkasýningu,“ rifjar
Garðar upp og bendir á að listafólk
sé í fjölskyldunni.
Nína Tryggvadóttir var föður-
systir hans og margir frændur hans
voru liðtækir í listinni. Hann segist
sjálfur ekki hafa stundað formlegt
nám í myndlist. „Ég var heppinn
með myndlistarkennara í barna-
skóla og Sigurður K. Árnason leið-
beindi mér í Myndlistarklúbbi Sel-
tjarnarness í nokkur ár. Það var
mjög lærdómsríkt og við héldum
margar sýningar en það eru um 40
ár síðan.“
Litadýrð
Garðar segist mest hafa málað
með olíulitum. „Núna er ég einkum
í vatnslitum og allskonar litum, en
það getur verið erfitt að skapa eitt-
hvað þegar maður er alltaf að reyna
að finna upp hjólið. Það tefur svolít-
ið fyrir mér.“
Myndlistin veitir Garðari mikla
gleði. „Mér finnst gaman að mála
og jafnvel, þegar mig langar til
þess að lesa einhverja bók, tek ég
stundum penslana fram yfir.“
Garðar lærði úrsmíði hjá fyrir-
tækinu Magnúsi Benjamínssyni &
Co við Veltusund í miðbæ Reykja-
víkur. Ólafur Tryggvason, faðir
hans, var þar meðeigandi. „Fljót-
lega eftir að ég var búinn að læra
langaði okkur hjónin til þess að
vera með sjálfstæðan rekstur og
opnuðum litla verslun á Lækj-
artorgi, í miðdepli borgarinnar. Þar
stoppuðu margir strætisvagnar,
klukkan á torginu var helsti stefnu-
mótastaður bæjarins og símaklef-
inn var óspart notaður. Þarna stóð
ég upp á endann í búðinni í hálfa
öld og það var vissulega mikil vinna
að gera við og vera með verslun en
þetta tókst allt saman vel með að-
stoð eiginkonunnar, Guðlaugar
Ingólfsdóttur.“
Úrverkið er aldrei langt undan,
en Garðar segist aldrei hafa lagt
áherslu á að safna úrum og klukk-
um. „Ég reyni að halda mér við sem
fagmaður og geri enn við það sem
bilar hjá okkur í fjölskyldunni og
vinum en annars fer frítíminn að
mestu í litina og málverkið. Áður
málaði ég mest húsamyndir en
verkin hafa smám saman færst út í
abstrakt eins og hjá svo mörgum.
Ósjálfrátt færist viðfangsefnið yfir í
að mála litafleti. Það skiptir svo
sem ekki öllu, aðalatriðið er að
velta hlutunum fyrir sér og hafa
eitthvað að gera.“
Spurður hvort einkasýning sé á
döfinni segist hann ekki hafa hugs-
að svo langt, enda sé hann bara 84
ára. „Ég er alltaf ánægðastur með
þá mynd sem ég lýk við hverju
sinni. Svo líður einhver tími og önn-
ur mynd verður að veruleika. Þá
verður hún best og fyrri myndir
ómögulegar. Ætli ég láti börnin
ekki um að halda yfirlitssýningu
eftir að ég verð floginn á brott.“
Morgunblaðið/RAX
Listamaður Garðar Ólafsson í vinnuherberginu á heimilinu.
Fagmaður með úr og
liti fram í fingurgóma
Garðar Ólafsson fór úr úrsmíðinni í málverkið
Litir Spóar með augum Garðars.