Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 3. Á G Ú S T 2 0 1 9
Stofnað 1913 197. tölublað 107. árgangur
LÍFIÐ GETUR VERIÐ
EINS OG EINN
STÓR RÚSSÍBANI
TÓNVERK ER
SPANNA
FIMMTÍU ÁR
32 SÍÐNA SÉRBLAÐ UM HEILSU TVEIR GÓÐIR 29
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Hún hefði átt að nýta tækifærið,
taka á móti honum og ræða brýn
málefni á borð við loftslagsmál og ör-
yggis- og varnarmál. En hún for-
gangsraðar auðvitað verkefnum
sínum,“ segir Hanna Katrín
Friðriksson, formaður þingflokks
Viðreisnar, við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til þess að
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hefur lýst því yfir að hún muni
fremur sækja norrænt verkalýðs-
þing en taka á móti Mike Pence,
varaforseta Bandaríkjanna, sem
væntanlegur er hingað til lands 4.
september. Morgunblaðið setti sig í
samband við þingflokksformenn á
Alþingi og leitaði viðbragða við þess-
ari ákvörðun forsætisráðherra.
Fulltrúar Samfylkingar og Mið-
flokks tóku í svipaðan streng og
Hanna Katrín. Þingflokksformaður
Miðflokksins segir ákvörðun Katrín-
ar „í besta falli stórundarlega.“
Fulltrúar stjórnarflokka auk Pírata
og Flokks fólksins voru á annarri
skoðun. Einn þeirra sagðist ekki
heldur myndu vilja hitta Pence.
Þá segir Ólafur Þ. Harðarson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, fjarveruna „óvenjulega“.
Fjarveran gagnrýnd
Átti að nýta tækifærið, segir þingflokksformaður Viðreisnar um þá ákvörðun
Katrínar Jakobsdóttur að hitta ekki Mike Pence „Í besta falli stórundarlegt“
MFjarvera forsætisráðherra »14
Athygli erlendis
» Ákvörðun Katrínar Jakobs-
dóttur hefur vakið athygli er-
lendra fjölmiðla, m.a. Russia
Today, Washington Post og AP.
» Haft er eftir Þór Whitehead í
frétt AP að ákvörðunin eigi sér
ekki hliðstæðu. Í Russia Today
er því velt upp hvort Katrín sé
að sýna samnorrænum ráð-
herrum stuðning.
Mike
Pence
Katrín
Jakobsdóttir
Nói-Síríus hf. og Orkla ASA hafa
komist að samkomulagi um kaup
þess síðarnefnda á 20% hlut í Nóa-
Síríusi, að undangengnu samþykki
Samkeppniseftirlitsins.
Orkla er skráð á hlutabréfamark-
að í Noregi og hefur fjárfest umtals-
vert í matvælafyrirtækjum á
Norðurlöndum. Á síðasta ári nam
velta fyrirtækisins nær 570 millj-
örðum íslenskra króna, en Orkla er
með ríflega 18 þúsund starfsmenn.
Til samanburðar starfa um 150
manns hjá Nóa-Síríusi og er velta fé-
lagins rétt um 0,6% af veltu Orkla.
Athygli vekur að í tilkynningu
sem Orkla sendi frá sér vegna yfir-
vofandi kaupa kemur fram að sæl-
gætisframleiðandinn rótgróni geti
með öllu verið kominn í eigu fyrr-
nefnda félagsins árið 2021. »12
Norðmenn kaupa
hlut í Nóa-Síríusi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Eldislax hefur
ekki veiðist í lax-
veiðiám í sumar
og ekki sést við
myndaeftirlit. Er
það mikil breyt-
ing frá síðasta
ári þegar stað-
fest var að tólf
eldislaxar hefðu
veiðist í lax-
veiðiám. Þess ber
þó að geta að eldislax gæti átt eftir
að ganga í ár í haust. Ekki hafa orð-
ið stór áföll í sjókvíaeldinu í ár og
ekki er talið líklegt að lax hafi
strokið í þeim tveimur tilvikum sem
göt hafa fundist á netpokum. »4
Eldislax ekki veiðst
Sjókví Ekki er vit-
að um strok í ár.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Lögreglan ákvað síðdegis í gær að
gera hlé á formlegri leit að belgíska
ferðamanninum Björn Debecker.
Hann er talinn hafa fallið í Þing-
vallavatn fyrir um 13 dögum. Áfram
verður fylgst með vatninu, en leitað
var þar í gær. Kafbátur í eigu Tele-
dyne Gavia var settur út við Miðfell
til að skanna botninn með sónar og
taka um 50 þúsund ljósmyndir af
dýpstu hlutum vatnsins.
Oddur Árnason, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi,
hefur verið í samstarfi við belgísku
lögregluna. Hann sagði vitað að De-
becker hefði verið á báti sínum á
Norðurlandi áður en hann fór á
Þingvallavatn. „Við höfum upplýs-
ingar um að hann hafi róið frá Siglu-
firði yfir í Héðinsfjörð en farið þar
að landi og þaðan fór hann suður,“
sagði Oddur. Hann sagði að gögnin
frá kafbátnum sæjust ekki í raun-
tíma. „Það er heilmikil yfirferð á því
efni sem þeir eru að taka upp núna
40 til 50 þúsund ljósmyndir og svo
sónargögn. Það er einhverra daga
vinna að fara í gegnum það,“ sagði
Oddur. »6
Fylgjast áfram vel með vatninu
Morgunblaðið/Eggert
Við Þingvallavatn Tvö leitarsvæði í vatninu voru könnuð í gær með kafbáti frá Teledyne Gavia. Hann er búinn sónartækjum og öflugri myndavél.
Leitað með kafbáti á Þingvallavatni í gær Belginn reri áður á Norðurlandi
Stefnt er að því
að tilkynna um
nýjan dómsmála-
ráðherra í ríkis-
stjórninni í stað
Þórdísar Kol-
brúnar R. Gylfa-
dóttur. Ríkis-
ráðsfundur hefur
verið boðaður á
Bessastöðum 6.
september.
Viðmælendur Morgunblaðsins
nefna nokkur nöfn þingmanna
Sjálfstæðisflokksins sem koma til
greina í stól dómsmálaráðherra.
Meðal þeirra sem eru nefnd eru Ás-
laug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari
Sjálfstæðisflokksins, Sigríður Á.
Andersen, fv. dómsmálaráðherra,
Birgir Ármannsson þingflokks-
formaður, Bryndís Haraldsdóttir
og Brynjar Níelsson. Stjórnmála-
fræðiprófessor telur líklegt að kona
verði fyrir valinu. »4
Nokkur ráðherraefni
nefnd til sögunnar
Bjarni
Benediktsson