Morgunblaðið - 23.08.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
emmessis.is
Guðrún Erlingsdóttir
Arnar Þór Ingólfsson
„Ég hvet þá sem enn eru á lífi og vita
hvað gerðist í Guðmundar- og Geir-
finnsmálinu til að stíga fram og út-
skýra hvað gerðist. Fyrr lýkur þess-
um málum ekki,“ segir Ragnar
Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns
Skarphéðinssonar, eins þeirra sak-
borninga í málinu
sem sýknaðir
voru í Hæstarétti
í fyrra. Ragnar
segir að krafa
Guðjóns sé byggð
á fordæmi í
skyldu máli frá
1983 þegar svo-
kallaðir Klúbbs-
menn fóru í
skaðabótamál en
þeir sátu í gæslu-
varðhaldi í samtals 105 daga. Ragnar
segir að hann hafi framreiknað með
verðlagsvísitölu sambærilegar bæt-
ur og greiddar voru í því máli fyrir
hvern dag, í máli Guðjóns.
Ragnar vinnur nú að undirbúningi
á stefnu Erlu Bolladóttur, gagnvart
íslenska ríkinu til ógildingar á synj-
un enduruppökunefndar á því að
taka mál hennar upp að nýju.
,,Fyrst þarf að ógilda það áður en
Erla getur krafist skaðabóta vegna
230 daga gæsluvarðhalds árið 1976.
Gæsluvarðhalds sem hún hefur aldr-
ei fengið að vita af hverju var,“ segir
Ragnar sem telur að Erla muni að
öllum líkindum gera bótakröfu
vegna gæsluvarðhaldsins. Verði sú
krafa gerð verði hún reiknuð út á
sambærilegan hátt og í máli Guð-
jóns.
Sáttanefnd forsætisráðuneytisins
í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu
hefur afhent ríkisstjórninni skila-
grein og lauk formlega störfum 1.
júlí síðastliðinn, í kjölfar þess að
bótakrafa var lögð fram fyrir hönd
Guðjóns Skarphéðinssonar. Arnar
Þór Stefánsson, lögmaður Kristjáns
Viðars Viðarssonar, staðfesti við
mbl.is að hann hefði lagt fram bóta-
kröfu fyrir hönd skjólstæðings síns.
Arnar segist ósáttur með ákvörð-
unina að leysa upp sáttanefndina,
sem stofnuð var síðasta haust og að
ríkið hafi litið á það að með bóta-
kröfu Guðjóns Skarphéðinssonar
hafi grundvöllur fyrir sameiginlegri
lausn verið brostinn. Arnar segir
nærtækt að ætla að bótakrafa Krist-
jáns Viðars sé sú hæsta sem nokkru
sinni hafi verið lögð fram hérlendis
vegna óréttar í sakamáli.
Þeir sem vita út-
skýri hvað gerðist
Hæsta bótakrafa óréttar í sakamáli
Ragnar
Aðalsteinsson
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Belgíska ferðamannsins Björn De-
becker, sem talinn er hafa fallið í
Þingvallavatn fyrir um 13 dögum, var
leitað í gær eftir nokkurra daga hlé á
leit. Sérstakur kafbátur í eigu tækni-
fyrirtækisins Teledyne Gavia var
settur út við Miðfell til þess að skanna
botn vatnsins með sónartæki og taka
um 50 þúsund ljósmyndir af dýpstu
hlutum vatnsins. Leitin að Debecker
hefur staðið yfir frá 10. ágúst, þegar
tilkynning barst um fljótandi hlut í
vatninu. Við nánari könnun þyrlu-
áhafnar Landhelgisgæslunnar
reyndist hluturinn vera mannlaus
bátur.
Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi
var Debecker á uppblásnum kajak
sem vegur einungis þrjú kíló. Rúm-
lega 70 manns tóku þátt í leitinni
fyrsta daginn en bakpoki og bátur
Debecker er það eina sem hefur fund-
ist. Fimm manna teymi sem saman-
stóð af fólki frá Björgunarsveit Ár-
borgar, köfurum frá sérsveit ríkis-
lögreglustjóra og tæknifræðingi frá
Teledyne Gavia stýrði leitinni með
kafbátnum í gær.
Leitað á dýpsta svæði vatnsins
Um er að ræða sjálfstýrðan kafbát
sem fylgir fyrir fram teiknuðu korti
um hvert hann á að fara og hvað hann
á að gera. „Þetta leitarsvæði sem við
erum að taka núna er dýpsti hlutinn á
þessu skilgreinda leitarsvæði í
tengslum við þetta mál. Þessir leitar-
kassar sem við erum að fara í eru
tveir, og hvor kassi um sig tekur um
fjóra til fjóra og hálfan tíma,“ sagði
Arnar Egilsson, kafari hjá sérsveit
ríkislögreglustjóra, í gærmorgun.
Kafbáturinn er með tveggja mega-
pixla myndavél að framan sem tekur
svarthvítar myndir. Sónartæki kaf-
bátsins er á bakhliðinni og var stillt á
að senda út í 20 metra til hvorrar
hliðar. Kafbáturinn er einnig búinn
framvísandi sónartæki til að koma í
veg fyrir árekstur, en kafbáturinn
sigldi um þrjá metra frá botni Þing-
vallavatns við leit sína. Að sögn
Arnars hefur leitin gengið vel síðustu
vikur en hann segir svæðið vera stórt
og dýpið mikið. „Það er helsti tak-
markandi þátturinn og úrræði okkar
til leitar á þessu sviði eru takmörkuð.
Því þurfum við að leita víða eftir hjálp.
Þar af leiðandi hefur Teledyne, sem
býr yfir þessum búnaði, komið okkur
til aðstoðar,“ sagði Arnar.
Kafbáturinn er íslensk hönnun og á
rætur sínar að rekja til verkefnis við
Háskóla Íslands fyrir um 20 árum.
Ekki er hægt að skoða myndir frá
kafbátnum í rauntíma, þar sem ein-
ungis hljóðmerki nær í gegnum vatnið
í svona mikilli dýpt. Reiknað var með
að kafbáturinn myndi fara í allt að 60
m dýpi í gær. „Við kíkjum á þetta eftir
á; það er engin leið að hafa samskipti
með svona mikinn gagnastraum í
gegnum vatnið. Það er bara hljóð-
merki sem drífur þar í gegn. Þannig
að við getum bara haft samband við
hann en við getum ekki skoðað gögn-
in,“ sagði Erlendur Geirdal, tækni-
fræðingur hjá Teledyne Gavia.
Hafði róið til Héðinsfjarðar
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á Suðurlandi, hefur
verið í samstarfi við belgísku lögregl-
una í tengslum við málið.
„Þar hafa menn verið að vinna
ákveðna þætti fyrir okkur í upplýs-
ingaöflun og það hefur verið frábært
samstarf,“ sagði Oddur. Hann sagði
að vitað væri að Debecker hefði verið
á bátnum á Norðurlandi áður en hann
fór á Þingvallavatn. „Við höfum upp-
lýsingar um að hann hafi róið frá
Siglufirði yfir í Héðinsfjörð en farið
þar að landi og þaðan fór hann
suður,“ sagði Oddur.
Hann sagði að leit hefði gengið vel
þrátt fyrir hvassviðri fyrstu dagana.
„Þá eru menn í raun bara að leita við
fjöruna og í því sem rekur á land. Við
fundum strax búnað sem tilheyrði
þessum ferðamanni, sem rak á land.
Báturinn og eitthvað sem hann missti
úr bátnum. Síðan hefur verið leitað
með ýmsum úrræðum í vatninu. Við
teljum fullvíst að hann sé í vatninu.“
Áfram fylgst með vatninu
Spurður hvaða aðgerðir færu af
stað ef maðurinn fyndist á botni Þing-
vallavatns svaraði Oddur að það færi
eftir aðstæðum.
„Það fer eftir dýpi. Það kemur ekk-
ert í ljós strax. Við sjáum það sem
kemur frá kafbátnum ekki í raun-
tíma. Það er heilmikil yfirferð á því
efni sem þeir eru að taka upp núna, 40
til 50 þúsund ljósmyndir og svo
sónargögn. Það er einhverra daga
vinna að fara í gegnum það. Ef það er
eitthvað að sjá tekur bara við allt ann-
ar fasi og úrræði í samræmi við það
dýpi.“
Síðdegis í gær var ákveðið að gera
hlé á formlegri leit. Áfram verður
fylgst sérstaklega með vatninu en
komi ekkert nýtt upp verða bakkar
þess gengnir eftir 3-4 vikur til að
kanna hvort eitthvað tengt leitinni
hafi rekið að landi.
Grandskoðuðu botn Þingvallavatns
Belgísks ferðamanns leitað með sérútbúnum kafbáti „Við teljum fullvíst að hann sé í vatninu,“ segir
yfirlögregluþjónn á Suðurlandi Ferðamaðurinn var í uppblásnum báti Formlegri leit hefur verið hætt
Morgunblaðið/Eggert
Siglt af stað Bátur frá Björgunarsveit Árborgar sá um að koma kafbátnum út í Þingvallavatn. Kafbáturinn er
gríðarlega þungur og þurfti fjóra menn til þess að koma honum í bátinn. Hann sigldi síðan sjálfur við botn vatnsins.
Morgunblaðið/Eggert
Undirbúningur Allir eiginleikar kafbátsins voru skoðaðir fyrir brottför.
Arnar Egilsson, kafari hjá sérsveit ríkislögreglustjóra, sést í forgrunni.