Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Trump er hættur við að sækjaDani heim. Katrín okkar er
hins vegar á harðahlaupum undan
varaforseta hans til að reyna að róa
niður innanflokksupphlaup hjá sér
og fann hún heldur óburðuga afsök-
un fyrir flótta sínum.
Dönskum fjöl-miðlum brá
nokkuð við tilkynn-
ingu Trumps og
bentu sumir þeirra á
að Danir væru í hópi
allra nánustu
bandamanna stór-
veldisins.
Þá rifjaðist upp erþáverandi for-
sætisráðherra Dana
sótti Obama forseta
heim í Hvíta húsið.
Af því tilefni sagði Obama í ræðu að
Danir væru í hópi allra nánustu
vina og bandamanna Bandaríkj-
anna.
Dönum þótti mjög vænt umþessa einstæðu yfirlýsingu og
var þessi setning spiluð oft og
reglubundið í ljósvakamiðlum.
Þá tóku sig til gamansamir blaða-menn. Þeir skönnuðu nærri 40
ræður Obama að taka á móti er-
lendum fyrirmennum. Í þeim öllum
kom setningin góða að sú þjóð sem
þá átti þar fulltrúa „væri í hópi
allra nánustu vina og bandamanna
Bandaríkjanna“. Danir hafa ekki
spilað setninguna góðu eftir það.
Og nú bentu þeir gamansömu áað Trump væri vorkunn að
orða kaup á landi við Dani. Banda-
ríkjamenn hefðu keypt af þeim
Dönsku Jómfrúareyjar fyrir 25
milljónir dollara í gulli árin 1916-
17. Og Jómfrúareyjar hefðu jú ný-
lega verið nokkuð í umræðu þar
vestra. En það er önnur saga.
Donald Trump
Sögur úr sandkassa
STAKSTEINAR
Mette Fredriksen
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Á annan tug fulltrúa félaga og sam-
taka sem ætla að mótmæla komu
Mike Pence, varaforseta Bandaríkj-
anna, til Íslands í næstu viku hittust
á skipulagsfundi í gærkvöldi.
„Andstaða við stefnu Mike Pence
og ríkisstjórnar hans er það sem
sameinar okkur,“ sagði Guttormur
Þorsteinsson, formaður Samtaka
hernaðarandstæðinga (SHA). Auk
fulltrúa SHA voru á fundinum
fulltrúar Samtakanna ’78 og samtak-
anna Trans Ísland, fulltrúar frá ung-
liðahreyfingum Vinstri grænna og
Samfylkingarinnar, frá Menningar-
og friðarhreyfingu íslenskra kvenna
og frá Sósíalistaflokki Íslands.
Á fundinum voru viðraðar ýmsar
hugmyndir að mótmælaaðgerðum,
að sögn Guttorms. „Við munum boða
til mótmæla 4. september þegar
Mike Pence kemur til landsins. Það
er ekki búið að útfæra dagskrá mót-
mælafundarins nákvæmlega en það
verður vonandi gert fljótlega. Þetta
er enn á skipulagsstigi. Við gerum
ráð fyrir mótmælafundi á Austur-
velli en það er ekki loku skotið fyrir
að eitthvað fleira verði einnig gert,“
sagði Guttormur enn fremur.
Ætla að mótmæla komu Pence
Fulltrúar sjö samtaka hittust á skipulagsfundi Mótmælafundur á Austurvelli
AFP
Varaforseti Pence er á leiðinni.
Nemendur í 2. og 3. bekk hefja nýtt
skólaár við Seljaskóla einum degi
síðar en samnemendur þeirra sök-
um þess að enn var brunalykt af
húsgögnum í tveimur kennslu-
stofum árganganna.
Kennsla átti að hefjast eftir
skólasetningu í gær en daginn áður
fengu foreldrar nemenda í 2. og 3.
bekk tölvupóst þess efnis að nem-
endur færu heim eftir skólasetningu
og kennsla hæfist daginn eftir, í
dag.
Daginn fyrir skólasetningu kom í
ljós að skipta þurfti út húsgögnum í
einni skólastofu vegna reyklyktar
og annarra eftirstöðva brunans sem
varð í skólanum í mars síðast-
liðnum.
Magnús Þór Jónsson, skólastjóri
Seljaskóla, segir að ástand skóla-
stofanna hafi komið flatt upp á
starfsmenn á miðvikudagsmorgun.
„Kennslustofurnar voru fullar af
dóti og við áttum eftir að komast í
gegnum það sem þurfti,“ sagði
hann.
„Við þurftum að skipta út hús-
gögnum sem voru skemmd, sem
varð til þess að við náðum ekki að
byrja af fullum krafti í dag [í gær]
þannig að við byrjum af fullum
krafti á morgun [í dag],“ sagði hann.
Mikill eldur varð í Seljaskóla í
Breiðholti í mars síðastliðnum. Þá
var barist við eld í þaki einnar álmu
hússins, en hluti þess féll niður. Frá
brunanum hafa lagfæringar á hús-
næðinu staðið yfir.
„Það var unnið kraftaverk hérna í
sumar. Síðan kemur upp mál í gær-
morgun alveg óvænt tengt hús-
gögnum. Það var orðið þannig að við
þurftum að breyta áætluninni,“
sagði hann. Krakkarnir hefðu mætt
í skólann í gær og mæti tilbúnir í
slaginn í dag.
Enn brunalykt
á skólasetningu
Skólasetningu hjá
2. og 3. bekk í Selja-
skóla frestað um dag
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Bruni Seljaskóli leit ekki vel út rétt
eftir brunann sem þar varð í mars.
Kringlunni |
SLAMP - CLIZIA
Rafhlöðu lampi
Verð 34.900,-
IITTALA ALVAR AALTO
Vasi SEA BLUE 16 cm
Verð 18.950,-
KARTELL BOURGIE
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 39.900,-
RITZENHOFF
ASPERGO
Verð 4.900,- 6 stk. í pakka
HOLMEGAARD
Kertalukt grey
Verð frá 9.990,- stk.
COMPONIBILI
Hirslur 3ja hæða
Verð frá18.900,-
SPECKTRUM FLOW
Blómavasi - fleiri litir
Verð 4.890,- stk.
SPECKTRUM
Kertastjaki - fleiri litir
Verð frá 7.490,- stk.
Glæsileg gjafavara
BIALETTI
Mokka könnur
Verð frá 2.590,-
KORRIDOR
Steypudýr fleiri tegundir til
Verð frá 6.990,-STELTON
Ferðamál fleiri litir
Verð 0,4L 5.990,- Verð 0,2L 4.590,-
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/