Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Fljúgandi Lundastofninn í Vestmannaeyjum og víðar um land hefur verið að braggast eftir nokkur mögur ár, einkum í Eyjum. Þessi lundi tók flugið í Eyjum með munnfylli af æti.
Bogi Þór Arason
Fundur forsætisráð-
herra Norðurlandanna
með Angelu Merkel
Þýskalandskanslara
hér í Reykjavík dagana
19. og 20. ágúst bar
annað og friðsamlegra
yfirbragð en orðin sem
flugu á sama tíma milli
Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta og
Mette Frederiksen,
forsætisráðherra Dana, um Græn-
land. Merkel, leiðtogi öflugasta ríkis
Evrópusambandsins og öflugasti
leiðtogi sambandsins, kom hingað og
ræddi loftslagsmál, jafnréttismál og
önnur ágreiningslítil málefni á sama
tíma og fyrir vestan Ísland flugu
skeyti um hvort Trump fengi að
kaupa Grænland.
Umræðunum um nýtt eignarhald
á Grænlandi lauk að kvöldi þriðju-
dags 20. ágúst með því að Trump af-
lýsti komu sinni til Kaupmanna-
hafnar 2. september. Þegar um
fyrirhugaðan fund hans þar var rætt
hér á þessum stað fyrir tveimur vik-
um var hann talinn staðfesta aukinn
áhuga og áherslu Bandaríkja-
stjórnar á norðurslóðir. Vilji Trumps
til að Bandaríkjamenn eignist Græn-
land bendir þó til meiri áhuga hans á
að treysta stöðu sína þar en áður var
vitað.
Trump sagði að hann ætti ekkert
erindi til Kaupmannahafnar úr því
að danski forsætisráðherrann vildi
ekki ræða kaup hans á Grænlandi.
Með vísan til þess hve Danir hafa
staðið þétt við hlið Bandaríkjamanna
áratugum saman, ekki síst eftir árás-
ina á New York og Washington 11.
september 2001, eiga þeir síst skilið
að sæta óvirðingu af
hálfu Bandaríkja-
forseta. Mette Freder-
iksen sagði á blaða-
mannafundi 21. ágúst
að uppákoman breytti
engu um einstakt og
gott samband ríkjanna.
Stjórnir landanna
þurfa þó að vinna úr
nokkrum vanda sín á
milli.
Mike Pence
í heimsókn
Mike Pence, varaforseti Banda-
ríkjanna, hefur boðað komu sína
hingað 4. september. Hann ætlar að
undirstrika strategískt mikilvægi Ís-
lands á norðurslóðum og viðleitni
NATO til að mæta sókn Rússa á
svæðinu, einnig beinist athyglin að
tækifærum til að auka gagnkvæm
viðskipti og fjárfestingar, sagði í til-
kynningu frá embætti varaforsetans.
Fréttir herma að staðgengill Katr-
ínar Jakobsdóttur í embætti for-
sætisráðherra taki á móti varafor-
setanum vegna skuldbindinga
hennar erlendis. Eins og sannast
hefur í samskiptum Trumps við Dani
ráða forsetar og forsætisráðherrar
eigin dagskrá. Á hinn bóginn hefði í
fljótu bragði mátt ætla að Katrín
teldi sig eiga erindi við Pence þó ekki
væri til annars en skýra honum frá
fundinum með Merkel og norður-
slóðastefnu Íslands í norrænu ljósi.
Mike Pence fer héðan til Bret-
lands og Írlands. Stjórn Trumps vill
taka af skarið um stuðning sinn við
stefnuna sem Boris Johnson, for-
sætisráðherra Breta, boðar um brex-
it, úrsögn Breta úr ESB.
Fari Bretar úr ESB án viðskiln-
aðarsamnings 31. október 2019 geta
þeir strax hafið viðræður við Banda-
ríkjastjórn um fríverslunarsamning.
Með framlögðum viðskilnaðarsamn-
ingi við ESB verða Bretar hins veg-
ar áfram í tollabandalagi við ESB
þar til landamæramálin á Írlandi
leysast.
Erindi Pence til Írlands snertir
brexit, meirihluti demókrata á
Bandaríkjaþingi segist ekki styðja
fríverslunarsamning við Breta nema
írska landamæramálið sé leyst.
Trumpstjórnin þarf því að leysa mál
gagnvart ríkisstjórn Írlands semji
hún við Breta.
Að veði fyrir brexit
Boris Johnson hefur lagt forsætis-
ráðherraembættið að veði fyrir brex-
it. Hann segist vilja gera nýjan við-
skilnaðarsamning, takist það ekki
hverfi Bretar samningslausir á brott
úr ESB 31. október 2019.
Af hálfu ESB er harkan jafn mikil
og hjá Johnson. Brusselmenn segj-
ast ekki vilja hrófla við samningnum
sem Theresa May gerði og breska
þingið hafnaði þrisvar. Þeir segja að
huga megi að orðalagi á stjórnmála-
yfirlýsingunni sem fylgdi samn-
ingnum.
Yfirlýsingin er 26 bls. að lengd. Sé
hún lesin með hliðsjón af EES-
samningnum sem Íslendingar gerðu
við ESB árið 1992 sést betur en ella
hve EES-samstarfið er einstætt,
ekki síst tveggja stoða kerfið.
Í inngangi
stjórnmálayfirlýsingarinnar segir að
til frambúðar skuli samskipti ESB
og Breta reist á jafnræði þar sem
tekið sé tillit til hagsmuna hvors að-
ila um sig. Tryggja verði sjálfstæði
ESB til ákvarðana um heilleika sam-
eiginlega markaðarins og tolla-
bandalagsins og óskipt fjórfrelsið.
Þá verði einnig að tryggja fullveldi
Bretlands og virða niðurstöðu þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar frá 2016 þar
á meðal með tilliti til þróunar sjálf-
stæðrar viðskiptastefnu og til að
binda enda á frjálsa för fólks milli
ESB og Bretlands.
Þarna er vikið að ýmsum við-
kvæmum málum. Bretar geta til
dæmis ekki mótað sjálfstæða við-
skiptastefnu sem leiðir til fríversl-
unarsamninga við ríki utan ESB
nema þeir fari úr tollabandalagi
ESB-ríkjanna. Að þeir þurfi að vera
í tollabandalagi til að hindra landa-
mæri á Írlandi hafnar Boris Johnson
alfarið í bréfi til Donalds Tusks, for-
seta leiðtogaráðs ESB, mánudaginn
19. ágúst. Sama dag birti breska inn-
anríkisráðuneytið tilkynningu um að
bundinn yrði endi á frjálsa för fólks
til Bretlands í núverandi mynd 31.
október 2019. Eftir brexit mundi
ríkisstjórnin kynna nýjar sann-
gjarnari reglur um för útlendinga
þar sem lögð yrði áhersla á fagkunn-
áttu og hvað fólk gæti lagt af mörk-
um til bresks samfélags frekar en
hvaðan það kæmi.
Að baki stjórnmálayfirlýsingunni
um að virða sameiginlega mark-
aðinn liggur skuldbinding um sam-
eiginleg úrræði til að tryggja að
unnt sé að stunda hindrunarlaus við-
skipti á markaðnum. Ætlunin er að
koma á fót sameiginlegri nefnd á
borð við þá sem starfar á EES-
vettvangi og gerðardómi til að eiga
lokaorðið. Þar er ráðgert að sé
ágreiningur um túlkun ESB-
löggjafar skuli leita bindandi álits
ESB-dómstólsins. Í þessum áform-
um felst að Bretar lúti forræði ESB-
dómstólsins án þess að eiga aðild að
honum.
Hér á landi yrði framsal valds á
þennan veg talið óbærilegt enda er
það meginstyrkur tveggja stoða
EES-kerfisins að EES/EFTA-ríkin
skipa stjórnarnefnd Eftirlitsstofn-
unar EFTA (ESA) og dómara í
EFTA-dómstólinn.
Fylgi hugur máli þegar forráða-
menn ESB annars vegar og Boris
Johnson hins vegar segjast vilja
forðast brexit án samnings verður
eitthvað undan að láta. Mætist stálin
stinn er einsýnt hvert stefnir.
Boris Johnson hittir Merkel
Donald Trump er til alls vís. Hann
hallmælti Theresu May fyrir að fara
ekki að ráðum hans í brexit-
viðræðunum við ESB. Hvort Trump
á útspil til hjálpar Boris Johnson
kemur í ljós. Líkist það uppá-
komunni vegna Grænlands verður
það varla nokkrum til framdráttar.
Boris Johnson hóf í vikunni við-
ræður við leiðtoga ESB-ríkja með
fundum með Angelu Merkel og
Emmanuel Macron Frakklands-
forseta. Á fundinum með Merkel
fékk Johnson 30 daga til að finna
nýja lausn á írska landamæravand-
anum. Við hlið Merkel minnti breski
forsætisráðherrann á skólastrák.
Hann á hins vegar allt undir stuðn-
ingi þingsins í London, gagnvart því
beitir hann „hótuninni“ um kosn-
ingar.
Eftir Björn
Bjarnason » Sumarleyfistími
stjórnmálamanna
er á enda. Angela
Merkel kom til Íslands
og Mike Pence er
væntanlegur en Donald
Trump fer ekki til
Kaupmannahafnar.
Björn Bjarnason
Höfundur er fyrrverandi ráðherra.
Stjórnarleiðtogar á faraldsfæti