Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 15

Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Fljúgandi Lundastofninn í Vestmannaeyjum og víðar um land hefur verið að braggast eftir nokkur mögur ár, einkum í Eyjum. Þessi lundi tók flugið í Eyjum með munnfylli af æti. Bogi Þór Arason Fundur forsætisráð- herra Norðurlandanna með Angelu Merkel Þýskalandskanslara hér í Reykjavík dagana 19. og 20. ágúst bar annað og friðsamlegra yfirbragð en orðin sem flugu á sama tíma milli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Dana, um Græn- land. Merkel, leiðtogi öflugasta ríkis Evrópusambandsins og öflugasti leiðtogi sambandsins, kom hingað og ræddi loftslagsmál, jafnréttismál og önnur ágreiningslítil málefni á sama tíma og fyrir vestan Ísland flugu skeyti um hvort Trump fengi að kaupa Grænland. Umræðunum um nýtt eignarhald á Grænlandi lauk að kvöldi þriðju- dags 20. ágúst með því að Trump af- lýsti komu sinni til Kaupmanna- hafnar 2. september. Þegar um fyrirhugaðan fund hans þar var rætt hér á þessum stað fyrir tveimur vik- um var hann talinn staðfesta aukinn áhuga og áherslu Bandaríkja- stjórnar á norðurslóðir. Vilji Trumps til að Bandaríkjamenn eignist Græn- land bendir þó til meiri áhuga hans á að treysta stöðu sína þar en áður var vitað. Trump sagði að hann ætti ekkert erindi til Kaupmannahafnar úr því að danski forsætisráðherrann vildi ekki ræða kaup hans á Grænlandi. Með vísan til þess hve Danir hafa staðið þétt við hlið Bandaríkjamanna áratugum saman, ekki síst eftir árás- ina á New York og Washington 11. september 2001, eiga þeir síst skilið að sæta óvirðingu af hálfu Bandaríkja- forseta. Mette Freder- iksen sagði á blaða- mannafundi 21. ágúst að uppákoman breytti engu um einstakt og gott samband ríkjanna. Stjórnir landanna þurfa þó að vinna úr nokkrum vanda sín á milli. Mike Pence í heimsókn Mike Pence, varaforseti Banda- ríkjanna, hefur boðað komu sína hingað 4. september. Hann ætlar að undirstrika strategískt mikilvægi Ís- lands á norðurslóðum og viðleitni NATO til að mæta sókn Rússa á svæðinu, einnig beinist athyglin að tækifærum til að auka gagnkvæm viðskipti og fjárfestingar, sagði í til- kynningu frá embætti varaforsetans. Fréttir herma að staðgengill Katr- ínar Jakobsdóttur í embætti for- sætisráðherra taki á móti varafor- setanum vegna skuldbindinga hennar erlendis. Eins og sannast hefur í samskiptum Trumps við Dani ráða forsetar og forsætisráðherrar eigin dagskrá. Á hinn bóginn hefði í fljótu bragði mátt ætla að Katrín teldi sig eiga erindi við Pence þó ekki væri til annars en skýra honum frá fundinum með Merkel og norður- slóðastefnu Íslands í norrænu ljósi. Mike Pence fer héðan til Bret- lands og Írlands. Stjórn Trumps vill taka af skarið um stuðning sinn við stefnuna sem Boris Johnson, for- sætisráðherra Breta, boðar um brex- it, úrsögn Breta úr ESB. Fari Bretar úr ESB án viðskiln- aðarsamnings 31. október 2019 geta þeir strax hafið viðræður við Banda- ríkjastjórn um fríverslunarsamning. Með framlögðum viðskilnaðarsamn- ingi við ESB verða Bretar hins veg- ar áfram í tollabandalagi við ESB þar til landamæramálin á Írlandi leysast. Erindi Pence til Írlands snertir brexit, meirihluti demókrata á Bandaríkjaþingi segist ekki styðja fríverslunarsamning við Breta nema írska landamæramálið sé leyst. Trumpstjórnin þarf því að leysa mál gagnvart ríkisstjórn Írlands semji hún við Breta. Að veði fyrir brexit Boris Johnson hefur lagt forsætis- ráðherraembættið að veði fyrir brex- it. Hann segist vilja gera nýjan við- skilnaðarsamning, takist það ekki hverfi Bretar samningslausir á brott úr ESB 31. október 2019. Af hálfu ESB er harkan jafn mikil og hjá Johnson. Brusselmenn segj- ast ekki vilja hrófla við samningnum sem Theresa May gerði og breska þingið hafnaði þrisvar. Þeir segja að huga megi að orðalagi á stjórnmála- yfirlýsingunni sem fylgdi samn- ingnum. Yfirlýsingin er 26 bls. að lengd. Sé hún lesin með hliðsjón af EES- samningnum sem Íslendingar gerðu við ESB árið 1992 sést betur en ella hve EES-samstarfið er einstætt, ekki síst tveggja stoða kerfið. Í inngangi stjórnmálayfirlýsingarinnar segir að til frambúðar skuli samskipti ESB og Breta reist á jafnræði þar sem tekið sé tillit til hagsmuna hvors að- ila um sig. Tryggja verði sjálfstæði ESB til ákvarðana um heilleika sam- eiginlega markaðarins og tolla- bandalagsins og óskipt fjórfrelsið. Þá verði einnig að tryggja fullveldi Bretlands og virða niðurstöðu þjóð- aratkvæðagreiðslunnar frá 2016 þar á meðal með tilliti til þróunar sjálf- stæðrar viðskiptastefnu og til að binda enda á frjálsa för fólks milli ESB og Bretlands. Þarna er vikið að ýmsum við- kvæmum málum. Bretar geta til dæmis ekki mótað sjálfstæða við- skiptastefnu sem leiðir til fríversl- unarsamninga við ríki utan ESB nema þeir fari úr tollabandalagi ESB-ríkjanna. Að þeir þurfi að vera í tollabandalagi til að hindra landa- mæri á Írlandi hafnar Boris Johnson alfarið í bréfi til Donalds Tusks, for- seta leiðtogaráðs ESB, mánudaginn 19. ágúst. Sama dag birti breska inn- anríkisráðuneytið tilkynningu um að bundinn yrði endi á frjálsa för fólks til Bretlands í núverandi mynd 31. október 2019. Eftir brexit mundi ríkisstjórnin kynna nýjar sann- gjarnari reglur um för útlendinga þar sem lögð yrði áhersla á fagkunn- áttu og hvað fólk gæti lagt af mörk- um til bresks samfélags frekar en hvaðan það kæmi. Að baki stjórnmálayfirlýsingunni um að virða sameiginlega mark- aðinn liggur skuldbinding um sam- eiginleg úrræði til að tryggja að unnt sé að stunda hindrunarlaus við- skipti á markaðnum. Ætlunin er að koma á fót sameiginlegri nefnd á borð við þá sem starfar á EES- vettvangi og gerðardómi til að eiga lokaorðið. Þar er ráðgert að sé ágreiningur um túlkun ESB- löggjafar skuli leita bindandi álits ESB-dómstólsins. Í þessum áform- um felst að Bretar lúti forræði ESB- dómstólsins án þess að eiga aðild að honum. Hér á landi yrði framsal valds á þennan veg talið óbærilegt enda er það meginstyrkur tveggja stoða EES-kerfisins að EES/EFTA-ríkin skipa stjórnarnefnd Eftirlitsstofn- unar EFTA (ESA) og dómara í EFTA-dómstólinn. Fylgi hugur máli þegar forráða- menn ESB annars vegar og Boris Johnson hins vegar segjast vilja forðast brexit án samnings verður eitthvað undan að láta. Mætist stálin stinn er einsýnt hvert stefnir. Boris Johnson hittir Merkel Donald Trump er til alls vís. Hann hallmælti Theresu May fyrir að fara ekki að ráðum hans í brexit- viðræðunum við ESB. Hvort Trump á útspil til hjálpar Boris Johnson kemur í ljós. Líkist það uppá- komunni vegna Grænlands verður það varla nokkrum til framdráttar. Boris Johnson hóf í vikunni við- ræður við leiðtoga ESB-ríkja með fundum með Angelu Merkel og Emmanuel Macron Frakklands- forseta. Á fundinum með Merkel fékk Johnson 30 daga til að finna nýja lausn á írska landamæravand- anum. Við hlið Merkel minnti breski forsætisráðherrann á skólastrák. Hann á hins vegar allt undir stuðn- ingi þingsins í London, gagnvart því beitir hann „hótuninni“ um kosn- ingar. Eftir Björn Bjarnason » Sumarleyfistími stjórnmálamanna er á enda. Angela Merkel kom til Íslands og Mike Pence er væntanlegur en Donald Trump fer ekki til Kaupmannahafnar. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrverandi ráðherra. Stjórnarleiðtogar á faraldsfæti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.