Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Hvernig getur til- vistargrundvöllur fyr- irtækja, ástæða þess að fyrirtækið er til staðar, hjálpað því til þess að ná framúrskar- andi árangri í rekstri og taka þátt í að bjarga heiminum í leiðinni? Samkvæmt rannsókn sem PwC gerði fyrir nokkrum árum þróast fyrirtæki hraðar og eru virkari í ný- sköpun ef þau hafa skýran tilgang eða tilvistargrundvöll. Í rannsókn- inni kom jafnframt fram að 79% leið- toga sem þátt tóku í könnuninni trúa því að tilgangurinn á bak við stofnun fyrirtækisins sé hjartað í árangri þess í rekstri. Þetta eru mjög áhugaverðar niður- stöður en einnig er full- yrt að viðskiptavinir telja fyrirtæki sem leggja mikla áherslu á tilganginn með stofnun þess séu umhyggju- samari og þyki vænna um viðskiptavini sína. Það leiðir af sér að viðskiptavinir eru þeim trygg- ari. Á þessum síðustu og verstu þar sem loftslagsbreytingar ógna tilveru okkar og veðrabreytingar hafa þeg- ar haft áhrif þurfa fyrirtækin að velta enn frekar fyrir sér tilgangi sínum sem getur gert vörumerkið einstakt og hjálpað til við aðgrein- ingu. Það er bæði mögulegt að vera góður í viðskiptum og jafnframt ábyrgur, t.d. að vinna eftir sjálf- bærnistefnu, tryggja tilvist sína til framtíðar og aðstoða við björgun heimsins í leiðinni. Mikilvægast af öllu er að fyrirtæki og sveitarfélög átti sig á því að sjálfbærni verði hluti af stefnunni og tengist gildum þess. Öll viljum við að fyrirtækin sem við skiptum við hafi góða sögu að segja okkur um af hverju þau eru hér og hvert sé þeirra framlag til heimsins. Til þess að breyta reglunum í við- skiptalífinu þurfum við stundum að ákveða að hætta að skipta við fyrir- tæki sem ekki standa sig í þessum efnum. Á samfélagsmiðlunum ferðast fréttir hratt um fyrirtæki sem misnota gjafir náttúrunnar, menga og hugsa illa um starfsmenn sína. Það skiptir því jafn miklu máli fyrir okkur sem rekum fyrirtækin að vera breytingin sem við boðum. Fyrirtæki með engan tilgang ann- an en gróða eru til lengdar ekki lík- leg til að njóta tryggðar okkar í framtíðinni. Á samfélagsmiðlum eru sagðar sögur af litlu búðinni sem sel- ur eingöngu snyrtivörur sem aldrei hafa verið prófaðar á dýrum. Í ann- arri búð geturðu komið og fyllt á þvottaefni og fleira og skilað af þér umbúðum. Þessi litlu fyrirtæki hafa mjög skýran tilvistargrundvöll. Til- vistargrundvöllur sem byggist á sjálfbærni er okkar skýrasta tæki- færi til frekari vöruþróunar í fram- tíðinni og tryggir áframhaldandi til- vist okkar allra. Eftir Evu Magnúsdóttur » Tilvistargrundvöllur sem byggist á sjálf- bærni er okkar skýrasta tækifæri til frekari vöruþróunar. Eva Magnúsdóttir Höfundur er stjórnendaráðgjafi og framkvæmdastjóri Podium ehf. Að hafa viðskiptavit og bjarga heiminum Þetta ætlar að reyn- ast þjóðinni erfiðara en tárum taki. Undir- ritaður er nýkominn af fundi orkunefndar Al- þingis til að kynna þar skýrslu á móti orku- pakkanum fyrir hönd félagsins Orkan okkar. Sú heimsókn var frek- ar dapurleg. Langflestir nefnd- armanna voru hlynntir orkupakk- anum, en vitneskja þeirra um hann næsta fátækleg. Einu rökin fyrir innleiðingu hans var að erindið um að samþykkja hann var komið innan úr EES-samstarfinu og það hefði aldrei gerst að slíkum erindum væri hafnað. Að einhvern tíma sé allt fyrst virðist ekki vera í kortunum á hinu háa Alþingi. Margir þingmenn eru heitir and- stæðingar þess að útlendingar fái að kaupa upp jarðir Íslandi. En þeir virðast ekki átta sig á því að vatns- réttindin fylgja landinu. Það er búið að selja margar jarðir til útlendinga og þeir sitja með vatnsréttindi jarðanna, bæði veiðirétt og virkj- unarrétt. Þetta má skoða í ljósi þess að ESB vill að nýtingarréttur orku verði boðinn út á 30 ára fresti. Stefnum við í, að nýtingarsamn- ingum í vatnsafli og jarðhita verði sagt upp í stórum stíl eftir að orkupakkinn er sam- þykktur? Þeir eru allir eldri en 30 ára. Verður úrskurðað í slíkum mál- um fyrir ESB, ESA, EES eða EFTA með skírskotun til reglu- gerðarákvæða sem fylgja orkupakkanum? Getur einhver fullyrt að svo verði ekki? Lögfræðingar hafa fullyrt að „kraftaverk“ þurfi til að skaðabótamál vegna orkupakkans muni lenda á Íslendingum. Af hverju fara þessir menn ekki til Noregs eða Belgíu eða annarra þeirra landa þar sem kraftaverkið er komið í gang? Kærumál vegna orkupakkans komin af stað. Þeir geta þá skrifað jarð- teiknabók um kraftaverkin og komið fram sem advocatus dei eftir að hafa orðið vitni að kraftaverki. Svo virðist sem fæstir skilji orku- öryggismálin tengd orkupakkanum. Verði orkupakkinn samþykktur mun ESB smám saman sverfa niður and- stöðu Íslendinga við sæstreng, hvort sem það verður í tíð núverandi þing- manna eða arftaka þeirra. Þá marg- faldast orkumarkaður Íslendinga, þeir lenda á stórhættulegum upp- boðsmarkaði með miklum og ófyr- irsjáanlegum verðsveiflum sem út af fyrir sig er nógu slæmt fyrir neyt- endur. En framleiðendur þurfa ekki að sæta því að sitja uppi með óseldar vatnsbirgðir í sínum miðlunarlónum á hverju vori. Þeir geta selt þetta allt í gegnum strenginn og það er þeirra hagur og ábati. Flytja rafmagnið aft- ur til baka svo Íslendingar verði ekki rafmagnslausir? Það kostar um þre- falt heildsöluverð. Slíkt er hægt að hindra með því að taka upp venjulega vatnastjórnun eins og hún tíðkast erlendis en ekki láta raforkuframleiðendur stjórna miðlunarlónunum. Alla löggjöf um slíkt vantar. Og örlar ekki á henni í fyrirhuguðum breytingum á raf- orkulögum. Eins og menn sjá eru ýmsar nýjar hliðar á málinu komnar upp síðan Al- þingi lauk störfum síðast. Þeir sem er fylgjandi orkupakkanum og vilja ekki hafna honum af því að „slíkt hefur aldrei verið gert“ ættu að minnsta kosti að koma honum út á hliðarlínuna, og reyna að hafa hann þar í góðu samkomulagi við EES þangað til ofangreind mál skýrast. Að losna við orkupakka Eftir Jónas Elíasson Jónas Elíasson » Fleiri ástæður eru komnar fram til að hafna orkupakka 3. Höfundur er prófessor. jonase@hi.is Áform eru uppi um að beisla vindinn í stórum stíl á Íslandi. Markmiðið er að framleiða umhverf- isvæna, græna og samkeppnishæfa orku að sögn. Inn- lend og erlend fyrir- tæki kynna áætlanir um ný orkuver. Sam- kvæmt nýlegri vand- aðri úttekt Morgunblaðsins áforma menn að reisa hér mörg hundruð vindmyllur víða um landið. Þetta virðist þeim mun eftirsóknarverð- ara og auðveldara í framkvæmd sem engin lög eru til á Íslandi um vindorku. Fari þetta fram sem horfir verður þetta stórfellt og mjög umfangs- mikið inngrip í náttúru Íslands og breyting á ásýnd landsins. Vind- mylluturnarnir rísa hátt til himins og sjást úr margra tuga kílómetra fjarlægð. Hallgrímskirkja í Reykja- vík er 45 metrar á hæð. Vindmyllu- turnarnir eru 77 metra og allt upp í 135 metra háir. Því hærri sem þeir eru þeim mun meiri er framleiðslu- geta þeirra sögð vera. Þessir risar með spaða sem snú- ast í það óendanlega með dynkjum og skuggavarpi rísa ekki einn og einn yfir mela og móa nei heldur verða þeir tugum og hundruðum saman í stórum fylkingum. Áber- andi mannvirki sem ber við himin og munu setja mark sitt á umhverf- ið. Þessi mannvirki kalla virkj- unarmenn vindmyllulundi eða vind- myllugarða. Vindmyllulund vill Landsvirkjun reisa við Búrfell og annan við Blöndu. Þar er talað um að reisa yfir 100 vindmyllur. Að minnsta kosti þrjú vindmylluver eru boðuð í Dalasýslu. Í landi Sólheima í Laxárdal ætlar fyrirtækið Quadran Iceland Development að setja niður 27 vindmyllur allt að 115 metra á hæð. Á Hróðnýjarstöðum við Hvammsfjörð ætlar fyrirtækið Stormorka að setja niður 24 vind- myllur og í Garpsdal við Gilsfjörð á að reisa vindmylluorkuver í eigu fyrirtækisins EM Orka. Orka náttúrunnar hefur stigið fyrstu rannsóknarskrefin í undir- búningi að vindmyllulundi við sunn- anverðan Hengilinn. Fyrirtækið HS orka hefur augastað á vindmyllu- görðum á Reykjanesi og í landi Grindavíkur. Félag í eigu þess, Vesturverk, sem stendur fyrir hinni umdeildu virkjun Hvalár í Árnes- hreppi á Ströndum, hefur í hyggju að koma allt að 10 vindmyllum 80 metra háum á Eyrarfjall ofan við Flateyri. Þá hafa menn í hyggju að reisa vindmyllur við Lagarfljót. Og á flatlendi Suðurlands hyggst fyrir- tækið Biokraft koma upp vindorku- garði við Austurbæjarmýri, norðan við Þykkvabæ. Þar er áætlað að reisa vindmyllur á 92 metra háum möstrum þar sem hæsti punktur spaða í efstu stöðu yrði tæpir 150 metrar. Norska orkufyrir- tækið Zephyr undirbýr nú að reisa vindmyllur og vindmyllugarða víða á Íslandi. Verið er að skoða allt landið og búið er að gera samninga við landeigendur og tryggja ákveðna staði. Ljóst er að margir sjá mikla gróðavon í rafmagni sem framleiða má með vindi. Vindurinn er jú alls staðar og eyðibýlin mörg og jarðir þar sem erfitt er að afla tekna með hefðbundnum búskap. Fátæk fámenn byggðarlög eiga erfitt með að standa gegn þrýstingi og gylli- boðum orkufyrirtækjanna. Nú þeg- ar tekur tugur orkufyrirtækja þátt í kapphlaupinu og þeim fjölgar hratt sem hafa augastað á landi á hálendi Íslands, í sveitum og við sjó og vilja reisa þar vindmylluturna. Íslendingar eiga nóga orku og nota einungis 5% alls þess rafmagns sem framleitt er með virkjun nátt- úruauðlinda í landinu. Stærstur hlutinn hefur verið fenginn erlend- um stóriðjufyrirtækjum við vægu verði. Því vekur furðu fullyrðing forstjóra Landsnets um yfirvofandi orkuskort og að innan örfárra ára geti þurft að skammta rafmagn til heimilanna á Íslandi. Með slíkum hræðsluáróðri er kannski verið að undirbúa jarðveginn fyrir stórfellda sókn vindmyllufyrirtækjanna sem ekki sinna almannaþjónustu en eru rekin með hámarksgróða að leiðar- ljósi.Vindmyllufyrirtækin ætla að selja orku, kannski inn á sameigin- legan markað Evrópusambandsins þar sem verðið er fjórfalt hærra en á Íslandi. Og þá þarf að hafa dug- mikla þingmenn til þess að sam- þykkja orkupakka 3 og síðan að leggja sæstreng. Getur verið að vindmyllufárið og hugmyndir um að færa Landsvirkjun og alla orkuauð- lindina úr almannaeigu tengist slík- um fyrirætlunum? Rísi vindmyllu- garðar og vindmyllulundir svo sem horfir er fórnarkostnaðurinn sú ómetanlega auðlind sem felst í ásýnd náttúru landsins, fjöllum og firnindum, dölum, fjörðum og eyj- um, sjónræn fegurð sem engan á sinn líka og sem fólk hvaðanæva úr heiminum kemur til að sjá og upp- lifa. Sölumenn vindanna Eftir Þorvald Friðriksson Þorvaldur Friðriksson » Verði vindmyllu- garðarnir reistir víða um land verður það stórfellt og umfangs- mikið inngrip í náttúru Íslands og breyting á ásýnd landsins. Höfundur starfaði um árabil sem fréttamaður á útvarpinu. thorvaldurf@outlook.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.