Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
✝ Karítas Jó-hannsdóttir
fæddist á Húsavík
25. desember 1961.
Hún varð bráð-
kvödd á heimili
sínu í Þorlákshöfn
9. ágúst 2019.
Karítas ólst upp
hjá foreldrum sín-
um og systkinum á
Húsavík og gekk
þar í barna- og
gagnfræðaskóla. Foreldrar
hennar eru Jóhann Helgason,
fæddur 29. apríl 1943, og Helga
Þórey Jónasdóttir, fædd 23. júlí
1942. Karítas var önnur í röð
sex systkina en þau eru: Jónas
Jóhannsson, f. 26. janúar 1959
og á hann tvo syni, Hildiþór og
Unnstein Almar. Helgi Jóhanns-
Karítas byrjaði ung að vinna.
Hún vann við fiskvinnslu á sín-
um yngri árum, einnig var hún
háseti og kokkur á loðnuskipi
nokkrar vertíðir og vann við
matseld og ýmis þjónustustörf í
landi. Hún bjó nokkur ár í Vest-
mannaeyjum og starfaði þá
meðal annars sem þerna og
kokkur á Herjólfi. Hún bjó í nær
áratug í Portúgal og stundaði
þar ýmis þjónustustörf.
Karítas eignaðist tvær dætur
og tvö barnabörn. Dætur henn-
ar eru: Thelma Eyfjörð Jóns-
dóttir, f. 26. júlí 1987, maki
hennar er Þór Rúnar Þórisson,
dóttir Thelmu frá fyrra sam-
bandi er Alexandra Guðný og
synir Þórs eru Alexander og
Guðmundur Þórir. Jóhanna
Helga Gunnlaugsdóttir, f. 29.
apríl 1992, maki hennar er
Örvar Elíasson og dóttir þeirra
Thelma Björk, sonur Örvars er
Matthías Bent.
Útförin fer fram frá Grafar-
vogskirkju í dag, 23. ágúst 2019,
klukkan 13.
son, f. 17. maí 1963,
maki hans er Selma
Dröfn Birgisdóttir
og eiga þau fimm
börn, Jónu Lind,
Hörpu Rún, Jóhann
Örn, Ásgeir Snæ og
Birgi Þór. Krist-
jana Laufey Jó-
hannsdóttir, f. 25.
júní 1967, maki
hennar er Pétur
Ólafur Pétursson
og börn hennar eru Laufey
Sunna, Huginn Frár og Auður
Ísold. Jóhann Jóhannsson, f. 15.
apríl 1977, maki hans er Katrín
Ósk Björnsdóttir og eiga þau
tvö börn, Ylfu og Styrmi. Tinna
Jóhannsdóttir, f. 1. júlí 1980.
Börn hennar eru Gabríela og
Elmar Daði.
Í dag fylgi ég elskulegri frænku
minni Kæju síðasta spölinn. Líf
okkar Kæju hefur einhvern veginn
alltaf fléttast saman í gegnum árin
þar sem við ólumst upp saman á
Húsavík. Þar sem feður okkar eru
bræður og mæður okkar systur þá
var aldrei haldin sú veisla eða ætt-
armót í fjölskyldunni að þessar
tvær fjölskyldur hittust ekki. Eftir
að við urðum unglingar og fluttar á
höfuðborgarsvæðið áttum við
margar skemmtilegar stundir. Það
var aldrei nein lognmolla í kringum
Kæju á þeim árunum enda alveg
sérstaklega léttlynd og með
skemmtilegan húmor. Hún var um
leið alveg einstaklega hlý mann-
eskja og sparaði ekki faðmlögin,
knúsin og hrósið til fólksins í kring-
um sig. En það var þó ekki svo að
lífshlaup Kæju hafi allt verið á léttu
nótunum því að í gegnum lífið tók
hún margar dýfurnar sem sumar
hverjar voru óafturkræfar og
reyndist lífshlaupið því ansi flókið
og þyrnum stráð. Hún náði ein-
hvern veginn ekki stöðugleika í líf
sitt og ró í sálina nema ef vera
skyldi allra síðustu ár. Ekki hitti ég
Kæju án þess að hún nefndi hve
þakklát hún væri og stolt af stelp-
unum sínum, Thelmu og Jóhönnu
Helgu, og hvað þær væru dugleg-
ar, heilbrigðar og yndislegar ungar
konur þrátt fyrir mikið mótlæti og
áföll í æsku. Hún sá ekki sólina fyr-
ir ömmustelpunum sínum, Alex-
öndru Guðnýju og Thelmu Björk,
og hlakkaði mikið til að fá að fylgj-
ast með þeim vaxa og dafna í fram-
tíðinni. En henni var það ekki
ætlað.
Kveð ég þig með miklum sökn-
uði, mín kæra.
Elsku Thelma, Jóhanna Helga
og fjölskyldur, Jói, Helga, Jónas,
Helgi, Kristjana, Jóhann, Tinna og
fjölskyldur, ég sendi ykkur mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Jóney.
Karitas frænka mín, oftast köll-
uð Kæja, var mikill sólargeisli. Hún
var glaðvær, hress og kát, einstak-
lega hjartahlý og tilbúin að styðja
og aðstoða aðra. Hún var orðhepp-
in með þvílíkan húmor að ég man
varla slíka. Hún gat komið heilum
matsölustað til að hlæja, en það
gerðist einmitt hjá okkur í Portú-
gal í fyrra. Þá vorum við frænk-
urnar í sólarlandaferð saman, sem
ég er nú afar þakklát fyrir. Við
höfðum ekki hist mikið undanfarin
ár þar sem hún bjó ekki í bænum
og var alltaf með annan fótinn er-
lendis, en þrátt fyrir allt var alltaf
sterk tenging á milli okkar. Þarna
fengum við tækifæri til að hittast
og vera saman.
Við mældum okkur mót á sólar-
strönd þar sem hún hafði búið og
þekkti vel til, en var þessi elska al-
talandi á portúgölsku. Hún var þá
að koma frá Póllandi þar sem hún
hafði dvalið í nokkra mánuði.
Það var notalegt að spjalla sam-
an úti á svölum langt fram eftir
kvöldi, hlæja og deila með hvor
annarri innstu leyndarmálum.
Kæja var næm og góður vinur
sem var alltaf tilbúin að hlusta á all-
ar mans raunir.
Hún var góðhjörtuð og hjálpsöm
við aðra þótt hún ætti sjálf við
ýmsa erfiðleika að stríða. Þessi
gleðigjafi lét ekki sitt ekki eftir
liggja við fórnaði sér fyrir allt og
alla sem voru hjálparþurfi. Það eru
ófáir hér og erlendis sem hafa notið
góðs af hjálpsemi hennar. Í þeirra
hópi eru margir sem áttu erfitt
uppdráttar og stóðu höllum fæti í
tilverunni.
Síðasta árið var ekki létt hjá
elsku frænku. Hún var búin að
vera á faraldsfæti og átti í raun
engan fastan stað í tilverunni, en
ömmubörnin skiptu hana öllu máli
og nálægt þeim vildi hún vera.
Þannig var að hún kom með mér
heim frá Portúgal og var hjá mér í
rúman mánuð á meðan hún leitaði
að húsnæði. Þegar hún tók saman
dótið sitt eftir að hafa fundið her-
bergi hjá indælishjónum sagði hún
við mig „ég vona að þetta verði í síð-
asta skiptið sem ég flyt“. Mér
fannst það afar ósennilegt þar sem
herbergið var inni á öðrum, en þessi
orð voru samt sögð með sanni.
Lífið var flókið fyrir elsku
frænku og hún orðin þreytt. Hún
átti trú á Drottin Jesú sem þekkir,
sér og skilur allt og hún hefur feng-
ið að fara heim í hvíldina, kærleik-
ann og gleðina í faðm föðurins á
himnum.
Elsku Kæja mín tók ekki alltaf
rétt á málum eða réttar ákvarðanir,
en hún vildi vel þótt hún réði ekki
alltaf við hlutverkið, það verður
henni ekki reiknað til ranglætis
vegna góðra meininga og fallegs
hjartalags.
Það var alltaf gaman að hringja í
Kæju frænku og spjalla við hana í
símann. Hennar hlýju, húmors,
hjálpsemi og föðurlandsástar verð-
ur sárt saknað og alls góða spjalls-
ins sem við höfum átt saman.
Já, elsku kæra Kæja mín. Ég
ætlaði einmitt að fara hringja í þig í
þessari viku. Þú varst nánasta
frænka mín og það vissir þú. Ég á
eftir að sakna þín mikið, en ég veit
og við vitum báðar að nú ertu á betri
stað þar sem þér er tekið opnum
örmum.
Knús og kveðja frá mér til þín,
elsku fallega frænka mín. Það verð-
ur leiðinlegt að geta ekki hringt í
þig, en við sjáumst síðar og það
verður eintóm gleði. Elska þig.
Inga Guðrún
Halldórsdóttir.
Mig langar að minnast góðrar
vinkonu minnar, Karitasar Jó-
hannsdóttur sem kölluð var Kæja.
Ég og Kæja vorum vinkonur til
margra ára. Mig setti hljóða þegar
ég frétti af andláti hennar. Ég mun
sakna hennar mikið. Hún skrifaði
alltaf svo fallega til mín. „Flott ertu
mín kæra.“ Þessa setningu mun ég
varðveita alltaf. Elsku Kæja mín,
takk fyrir allar góðu stundirnar sem
við áttum saman, takk fyrir allt.
Guð veri með þér.
Ég votta dóttur Kæju, Thelmu
Eyfjörð, og fjölskyldu, foreldrum,
systkinum og fjölskyldunni allri
mína dýpstu samúð. Guð veri með
ykkur öllum.
Ykkar vinkona,
Guðrún Lára Pálsdóttir.
Karítas
Jóhannsdóttir
✝ Sigurður Jóns-son fæddist 13.
desember 1946 á
Akureyri. Hann lést
á heimili sínu 17.
ágúst 2019.
Foreldar hans
voru Jón Matthías
Hauksson, f. 4.
ágúst 1923, og Hall-
dóra Ingibjörg
Kristjánsdóttir, f.
15. janúar 1920.
Bræður Sigurðar eru Kristján
Jónsson og sammæðra Árni
Haukur Harðarson sem er lát-
inn.
Fyrri kona Sigurðar var
Oddný B. Vatnsdal Axelsdóttir
og eignuðust þau dótturina Guð-
rúnu Dóru. Maki Guðrúnar er
Óskarsson. Synir Júlíu frá fyrra
hjónabandi eru Sigurjón Einars-
son og Jóhann Ingi Einarsson.
Eiginkona Sigurjóns er Guðlaug
Þóra Reynisdóttir. Dætur þeirra
eru Júlía Rós og Aldís Ösp.
Sonur Júlíu Rósar er Nóel Breki
Júlíuson. Eiginkona Jóhanns er
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir.
Dætur þeirra eru Júlíana Mist
og Sara Mjöll.
Sigurður ólst upp á Akureyri.
Hann lærði vélvirkjun og lauk
meistaranámi árið 1972 og vann
við þá iðn um tíma. Nam hann
síðan húsasmíði og lauk meist-
aranámi árið 1979. Vann hann
við þá iðn til starfsloka. Hann
var nokkuð virkur í hesta-
mannafélaginu Létti og stundaði
hestamennsku í mörg ár. Vann
hann ýmis störf fyrir félagið.
Útför Sigurðar Jónssonar fer
fram frá Akureyrarkirkju í dag,
23. ágúst 2019, klukkan 13.30.
Peter E. Nielsen.
Börn Guðrúnar eru
H. Alexander
Harðarson, Telma
Lovísa Harðar-
dóttir og Isabella
Oddný Nielsen.
Sambýlismaður
Telmu er Ólafur
Pálsson og eiga þau
dótturina Júlíu
Hrafney Ólafs-
dóttur. Seinni kona
Sigurðar heitir Júlía Sjöfn
Sigurjónsdóttir. Dóttir þeirra er
Sigrún Ásdís og eiginmaður
hennar er Óskar Bragason.
Börn Sigrúnar eru Sigurður
Orri Sigurðarson, Ingimar
Andri Ómarsson, Ísabella Júlía
Óskarsdóttir og Bragi Dór
Elsku afi minn.
Eins ósátt og ég er yfir því
hversu alltof snemma þú varst
tekinn frá okkur þá er ég um leið
svo óendanlega þakklát fyrir allar
stundirnar okkar saman.
Afi var alveg sér á báti. Stríðinn
og markmiðin hans voru alltaf að
reyna að ljúga mann fullan af alls-
konar rugli.
Það var alltaf líf og fjör hjá
ömmu Diddu og afa Sigga og öll
mín unglingsár tók maður partíin
hjá ömmu og afa fram yfir bæjar-
lífið, blandaði sér landa í kók, Villi
Vill í spilarann og sungið langt
fram á nótt.
Við eigum óteljandi minningar
fullt af göngutúrum, tónleikum,
hestaferðalögum og þá sérstak-
lega á Sörlastaði sem afa þótti allt-
af svo vænt um.
Við gátum setið endalaust og
talað um allt og ekkert og ég elsk-
aði að heyra þig tala um öll dýrin
sem þú hafðir átt í gegnum tíðina
og sem þér þótti svo vænt um.
Þegar ég keypti mér íbúðina
mína kom aldrei neitt annað til
greina en að afi Siggi kæmi með
mér að skoða hana, svo nenntir þú
að brasast endalaust með mér í að
græja hana og gera.
Þú varst alltaf svo góður við
mig og vildir alltaf allt fyrir mig
gera. Það eru fáir sem hafa hrósað
mér jafn mikið í gegnum tíðina og
þú og þá sérstaklega sem móður.
En þú hlakkaðir alltaf svo til að sjá
mig sem mömmu og ég er svo glöð
að þið Nóel Breki, Nói þinn, hafið
átt þessi tæp þrjú ár hans saman
og mun ég passa að halda minn-
ingu þinni í hjörtum okkar alla
okkar tíð.
Hvíldu í friði, elsku besti afi
minn, þangað til næst.
Á litlum skóm ég læðist inn
og leita að þér, afi minn.
Ég vildi að þú værir hér
og vært þú kúrðir hjá mér.
Ég veit að þú hjá englum ert
og ekkert getur að því gert.
Í anda ert mér alltaf hjá
og ekki ferð mér frá.
Ég veit þú lýsir mína leið
svo leiðin verði björt og greið.
Á sorgarstund í sérhvert sinn
ég strauminn frá þér finn.
Ég Guð nú bið að gæta þín
og græða djúpu sárin mín.
Í bæn ég bið þig sofa rótt
og býð þér góða nótt.
(S.P.Þ.)
Júlía Rós.
Elsku Siggi minn, það sem ég er
heppin að hafa fengið að kynnast
þér. Þú ert sá allra besti vinur og
tengdapabbi sem hægt er að hugsa
sér. Strax urðum við miklir vinir og
félagar. Þú kenndir mér svo ótrú-
lega mikið. Alltaf, alltaf gat ég leit-
að til þín, alveg sama hvað var. Er-
um við búin að eiga margar
yndislegar stundir saman, með
hestana okkar, hunda, smíða, mála
og margt fleira. Þú hafðir svör við
öllu, ef ekki þá laugstu því bara, þér
og öðrum til skemmtunar. Sérstak-
lega hafðir þú gaman af að fíflast í
krökkunum, þau áttu nú oft erfitt
með að vita hvort þú værir að gant-
ast eða ekki. Einnig var svo gaman
þegar við ferðuðumst saman, síðast
fórum við í desember saman til
Reykjavíkur. Það sem við vorum
búin að hlæja og hafa gaman. Þú
sást alltaf spaugilegu hliðarnar á
öllu. Mikið sem ég á eftir að sakna
þín. En næst þegar við hittumst þá
dönsum við saman. Efast ekki um
að Sámur minn hafi tekið vel á móti
þér. Elsku Siggi, hvíldu í friði.
Kveðja,
Guðlaug Þóra
Reynisdóttir (Lauga).
Sigurður Jónsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
vinarhug og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegrar móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÖNNU VIGNIS
frá Siglufirði.
Sérstakar þakkir færir fjölskyldan starfsfólki Hornbrekku á
Ólafsfirði sem og öðrum þeim sem komu að hjúkrun hennar og
umönnun.
Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir Sveinn Ingi Sveinsson
K. Haraldur Gunnlaugsson Alda María Traustadóttir
Guðný Gunnlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar,
SVALA MARKÚSDÓTTIR
læknaritari,
Berjavöllum 6, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
17. ágúst. Jarðarför fer fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju í dag, föstudag, klukkan 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Markús Bergmann Leifsson
Sonja Leifsdóttir
Ástkær móðir okkar, amma, langamma og
langlangamma,
FRÚ ANNA VALDIMARSDÓTTIR,
Bakkahlíð 3, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 17. ágúst.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Innilegar þakkir til starfsfólks Aspar- og Beykihlíðar
fyrir frábæra umönnun.
Þröstur Magnússon
Ívar Sigurjónsson
Stefán Sigurjónsson
Nathathai Sigurjónsson
og ömmubörnin
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT SVEINSDÓTTIR,
Baldursgötu 26,
sem andaðist á Hrafnistu Laugarási
fimmtudaginn 15. ágúst, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju mánudaginn 26. ágúst klukkan 13. Blóm
vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Gigtarfélagið.
Gunnar V. Guðmundsson Pétrína Ó. Þorsteinsdóttir
Karl B. Guðmundsson Guðrún Vilhjálmsdóttir
Björgvin G. Guðmundsson Hildur Pálmadóttir
Þórir B. Guðmundsson Hafdís Ingimundardóttir
barnabörn og langömmubörn
Kær vinkona hef-
ur fengið hvíld eftir
löng og erfið veikindi.
Í gegnum árin höf-
um við oft setið og spjallað sam-
an, í seinni tíð var hún í hjóla-
stólnum sínum eða þá komin upp
í rúm þegar ég birtist í fimmtu-
dagsheimsókninni minni.
Umræðuefnin voru næg og
viskubrunnur Hafdísar var bæði
stór og djúpur.
Dagbókin hennar fékk með
tímanum aukið vægi og var gott
að geta stuðst við hana þegar við
vorum að rifja upp og setja hlut-
ina í samhengi.
Saman bættum við svo nýjum
texta í bókina þann daginn.
Á tímabili ferðuðumst við sam-
✝ Hafdís Hannes-dóttir fæddist
19. febrúar 1950.
Hún lést 24. júlí
2019.
Útför Hafdísar
fór fram 2. ágúst
2019.
an með Heimsatlas-
inn hennar fyrir
framan okkur.
Þannig var hægt
að skoða fjarlæg lönd
og staði sem voru
Hafdísi kærir. Oft
skruppum við til
Noregs.
Hafdís tókst á við
hvert áfallið á fætur
öðru en hún bar ekki
byrðar sínar ein, til
þess voru þær of þungar. Hún
lagði þær í hendur Guði og það,
ásamt hennar einstaka upplagi,
bjartsýni og þrautseigju, gerði
henni mögulegt að takast á við
daglegt líf.
Hafdís skilur ótalmargt eftir
sig fyrir okkur sem eftir sitjum.
Hún sá gleðina og jákvæðu hlið-
arnar svo víða. Hún dáði blómin
og dásamlega sumarbirtuna og
bláa Esjuna gat hún séð út um
stofugluggann sinn.
Það var gott að eiga vináttu
Hafdísar. Hvíli hún í friði.
Sigríður Ísleifsdóttir.
Hafdís Hannesdóttir