Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 20

Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 20
✝ Herdís Tryggva-dóttir fæddist í Reykjavík 29. jan- úar 1928. Hún lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 15. ágúst 2019. Foreldrar hennar voru Herdís Ás- geirsdóttir, f. 1895, d. 1982, og Tryggvi Ófeigsson, f. 1896, d. 1987, útgerðarmaður. Systkini Herdísar: Páll Ásgeir, f. 1922, d. 2011; Jóhanna f. 1925, d. 2011; Rannveig, f. 1926, d. 2015; og Anna, f. 1935, sem er nú ein eftirlifandi þeirra systkina. Herdís gekk í hjónaband 7. nóvember 1953 með Þorgeiri Þorsteinssyni, sýslumanni og lögreglustjóra á Keflavíkur- flugvelli, f. 28. ágúst 1929, d. 27.11. 2013. Þau skildu. For- eldrar hans: Sigríður Þorvarð- ardóttir Kjerúlf, f. 1891, d. 1973, og Þorsteinn Jónsson, kaup- félagstjóri KHB, f. 1889, d. 1976. Börn Herdísar og Þorgeirs eru: A) Herdís, mannréttindalög- fræðingur, f. 1954. Barn Her- dísar og fyrri eiginmanns, Stef- vallagötu 9, og næstum síðustu 40 ár ævinnar á Laugarásvegi 17a. Herdís var við nám í hús- mæðraskóla Skarhult í Svíþjóð eftir seinni heimsstyrjöldina og lærði um skeið leiklist í skóla Lárusar Pálssonar. Herdís lauk stúdentsprófi frá Verzlunar- skóla Íslands og varð stúdent þaðan vorið 1950. Hún lagði síð- ar stund á ensku við Háskóla Ís- lands. Hún vann á skrifstofu Júpíters og Mars en var heima- vinnandi eftir það, fyrir utan nokkur ár sem hún vann hjá Loftleiðum. Herdís vann alla tíð að mann- úðarmálum, ekki síst tengdum kirkjunni, málefnum kvenna og náttúru- og dýravernd. Hún studdi heilsugæsluverkefni á vegum Kristniboðssambandsins í Afríku, var stofnaðili að friðar- sveitum Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, beitti sér innan samtak- anna Herferð gegn hungri og átti þátt í stofnun samtaka gegn limlestingu á kynfærum kvenna, svo eitthvað sé nefnt. Herdís tók þátt í starfi bænahóps fyrir sjúka í Hallgrímskirkju um langt ára- bil. Hún tók virkan þátt í nátt- úruverndarbaráttu í upphafi þessarar aldar og birti fjölda blaðagreina um hugðarefni sín, þ.á m. um dýravernd, en hún neytti ekki kjöts frá unga aldri. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 23. ágúst 2019, klukkan 15. áns Erlendssonar: i) Herdís, f. 1987. Hennar maður: Dustin O’Halloran; barn þeirra: Ísold Aurelia, f. 2018. Börn Herdísar og síðari eiginmanns, Braga Gunnars- sonar, þau skildu: ii) María Elísabet, f. 1993, iii) Gunnar Þorgeir, f. 1994, iv) Hörður Tryggvi, f. 1997. B) Þor- steinn, hagfræðingur, f. 1955. Maki: Ásta Karen Rafnsdóttir. Börn þeirra: i) Ásta Sólhildur, f. 1991. Hennar maður: Kristján Skúli Skúlason; barn þeirra: Tryggvi Veturliði, f. 2018, ii) Ás- geir Þór, f. 1994, Herdís Athena, f. 1997. C) Sigríður, prófessor, f. 1958, prófessor. Maki: Magnús Diðrik Baldursson. Barn þeirra: Elísabet, f. 1986. Maki: Christ- oph Buller; barn þeirra: Hekla Lúísa, f. 2018. D) Ófeigur Tryggvi, læknir, f. 1960. Maki: María Heimisdóttir. Synir þeirra: i) Tryggvi, f. 1991, ii) Gísli, f. 1998. Herdís ólst upp í Reykjavík, bjó fyrst á Vesturgötu 32, á Há- Við kveðjum í dag Herdísi Tryggvadóttur. Með Herdísi er gengin einstök kona sem átti engan sinn líka. Hún var hug- sjónakona sem barðist fyrir öllu og öllum sem eru óréttlæti beitt- ir eða standa höllum fæti; mönn- um, dýrum, náttúrunni. Baráttu- þrek sitt sótti Herdís ekki síst í sannfæringu trúarinnar. En hún prédikaði ekki trú sína í orði heldur lifði hana og sýndi í verki. Þannig var Herdís öllum sem henni kynntust lýsandi fyrir- mynd. Herdís var góða sálin í fjöl- skyldunni. Hún var kærleiksrík móðir, tengdamóðir, amma og langamma. Hún reyndist okkur fjölskyldunni alla tíð einstaklega vel, var hjálpsöm, ástrík, nær- gætin og örlát. Herdís skildi eft- ir sig mikinn auð með afkom- endum sínum og gaf þeim skilyrðislausa ást og umhyggju. Hún var ætíð hvetjandi og styðj- andi og vék aldrei styggðaryrði að nokkrum manni heldur sá það besta í öllum. Herdís var falleg ytra sem innra og í henni sló gullhjarta. Það var mikil gjöf að fá að verða samferða henni í 35 ár. Með hverju árinu sem leið dýpkaði vinátta okkar. Hún hafði skoð- anir en var lærdómsfús, ævin- lega opin fyrir nýjum hugmynd- um og til í að ræða um hvað sem var. Og hún var skemmtileg og fyndin – smitandi hlátur hennar ómótstæðilegur. Allir sem um- gengust Herdísi komu betri manneskjur af hverjum fundi við hana. Ég kveð Herdísi Tryggvadótt- ur tengdamóður mína með sökn- uði, þakklæti og djúpri virðingu. Minning hennar mun lifa. Magnús Diðrik Baldursson. Elsku amma mín Herdís. Nú þegar ég kveð þig með trega í hjarta í hinsta sinn, elsku amma mín, finnst mér ég þurfa að kveðja svo miklu meira en bara þig sem manneskju. Ég þarf endanlega að kveðja æsku mína sem þú stóðst vörð um eins og klettur með óþreytandi já- kvæðni, uppörvun, áhyggjum um hvort mér væri kalt eða ég þreytt, með ást og þolinmæði. Ömmur og afar eru verndarar barnsins innra með okkur og það er ein mesta gjöf lífs míns að hafa fengið að njóta þess fram á fullorðinsaldur að eiga eins merkilega manneskju að og amma mín Herdís var. Það voru átök og áskoranir í lífi ömmu Herdísar sem við barnabörnin urðum aldrei vör við í æsku en hún ræddi svo fal- lega opinskátt um þegar við elt- umst. Þegar ég hef sjálf þurft á að halda var hún alltaf traustur vinur, talaði í mig kjark, dæmdi aldrei, var hreinskilin og sýndi mér einlæga og mannlega hlið á sér. Hún kenndi mér að líta á erfiðleikana sem eðlilega kafla lífsins. Ég er ekki viss um að það sé til manneskja í þessari veröld sem var jafn full af gleði og þakklæti og hún – fram á síðustu ævidaga sína. Amma Herdís elt- ist og lést með einstakri reisn án þess að tapa nokkru sinni bjart- sýni sinni eða fegurð. Amma Herdís sagðist hafa getað hugsað sér að verða leik- kona eða hjúkrunarfræðingur ef hún hefði farið í frekara nám, en í stað þess að fyllast eftirsjá lifði hún gildi þessara starfsstétta; var geislandi skemmtikraftur og húmoristi, umhyggjusöm við þá sem voru hjálparþurfi, gaf sig alla í umönnun fjölskyldu sinnar, var örlátari en flestir og sparaði aldrei hrós. Hún kynnti mig fyr- ir Albert Schweizer og hug- myndum sínum um hjálparstarf þegar ég var lítil stelpa sem gaf mér kjark til að ferðast á fram- andi slóðir og velja mér framtíð- arstarf. Heimsóknir mínar til Íslands síðastliðinn áratug hafa ein- kennst af því að fá að eyða sem mestum tíma með ömmu Her- dísi; að fara saman í laugarnar þar sem hún flaut á bakinu í pottinum eins og svífandi engill, drekka 50:50-blöndu af neskaffi á tröppunum á Laugarásvegin- um, á Dalbraut og svo Grund, læra öll lög Sound of Music utan að, hafa hana sem heiðursgest í brúðkaupinu mínu, tala um guð- inn hennar og lífið og allt það sem skiptir mestu máli, hlæja saman og skynja léttleika lífsins í samskiptum við hana. Enginn hafði jafn smitandi hlátur, eins og allir sem hana þekktu vita. Amma sýndi mér að það er í senn hægt að vera djúpvitur og bæði einlæg og sjálfstæð í hugs- un – t.d. með því að hafa mynd af Línu langsokk á afmælistert- unni í áttræðisafmæli sínu – og kenndi mér að í raun sé það einn og sami hluturinn. Heimferðirnar munu aldrei verða samar héðan í frá en Reykjavík verður eins og þakin blómabreiðu úr minningum um ömmu sama hvert ég lít. Ég hefði aldrei orðið að þeirri manneskju sem ég er í dag ef ekki hefði verið fyrir þig, elsku amma mín. Þú hefur mótað mig svo miklu meira sem persónu en þig gæti órað fyrir. Það er ein stærsta gjöfin í lífi mínu að hafa fengið að verið barnabarn þitt. Þakklætið er óendanlegt. Elísabet Magnúsdóttir Sigríðardóttir. Amma mín var tímalaus kona. Hún lét sér hreyfingar mínútu- vísisins í léttu rúmi liggja og ég sá hana aldrei drífa sig. Hún var líka tímalaus því hún hélt alltaf í barnið í sér, lífsglöð og forvitin til hinsta dags. Því þótti mér aldrei erfitt að ímynda mér hana á ólíkum æviskeiðum. Sem myrkfælið og draumlynt barn sem fletti hugfangið sögunni af Örkinni hans Nóa, sem ungling sem keyrði bíl föður síns próf- laust, sem rúmlega tvítuga konu sem heimsótti sláturhús með tengdaföður sínum og borðaði aldrei kjöt framar. Hún var fal- leg og trúuð. Amma mín var hugsjónakona. Hún klippti út allar greinar sem tengdust velferð dýra. Hvort sem umfjöllunarefnið var aðbún- aður selanna í Húsdýragarðinum eða siðferðileg hugvekja um kjötiðnaðinn. Lengi var það henni kappsmál að fá Kobba, roskna páfagaukinn í Blómavali, færðan yfir í stærra búr. Húsið hennar var ævintýra- legt eins og hún sjálf. Það var dulmagnaður og yndislegur stað- ur. Veggirnir voru klæddir þykkri furu. Á efri hæðinni var japanskt vaxblóm, risavaxin hen- giplanta með ljósbleikum og hvítum blómaklösum sem minntu á útskorið kertavax. Fín- gerðir og mjúkir stilkar héngu yfir flöskugrænt handrið og slúttu niður á neðri hæð. Þar voru stórblómóttar gardínur fyr- ir gluggum, svo síðar að fald- urinn lá í konunglegum felling- um á gólfinu. Hún bakaði súkkulaðiköku og bræddi suðu- súkkulaði yfir, steikti pönnukök- ur með mörgum eggjum, samt brotnuðu þær þegar maður reyndi að rúlla þeim. Við sátum á heitri stétt fyrir utan útihurð- ina, með ullarteppi og sængur undir okkur. Ég með valinn hatt úr safni ömmu á kollinum. Amma sjálf svo kulsæl að hún var með alpahúfu og íklædd tveimur ullarpeysum í sólinni. Nágrannastrákurinn sló grasið og amma bað hann að sneiða framhjá fíflunum því henni fannst þeir svo fallegir. Amma mín eignaðist vini hvert sem hún fór. Hún hafði einstaka útgeislun og sterka nærveru sem var uppfull af gleði og samkennd. Ég get ekki séð fyrir mér andlitið hennar öðru- vísi en brosandi. „Þú þarft mikið að tala, Maja,“ sagði hún við mig þegar ég var barn. Hrifning hennar á allri einlægri tján- ingarþörf var fölskvalaus. Mér fannst ég geta sagt ömmu allt og hún hlustaði á mig vaða elginn. „Ég var aldrei mikið fyrir skóla, ég var alltaf meira fyrir lífið,“ sagði hún glettin. „Og kannski verð ég fyrsta konan á Íslandi til að deyja úr leti,“ sagði hún líka enda hafði hún mikinn húmor fyrir sjálfri sér. Sannleikurinn er sá að amma mín var frjáls andi. Viðjar kerf- isins höfðu aldrei roð við henni. Hún var flugmælsk og þegar ég varð eldri skrifaði ég oft niður eftir henni. Í vor sagði amma við mig orðrétt: „Lífið er ekki að renna sér eftir sléttu skauta- svelli. Það getur enginn verið blómaskraut kyrrt í vasa sem enginn snertir. Lífið tekur í mann og tuskar mann til. En út- koman er oft ágæt.“ Hjartans amma, kvik og ung sál, frjór hugur og viturt hjarta. Ég er Guði þakklát fyrir að hafa átt hana sem ömmu. Ég gleðst yfir lífi hennar, að hafa fengið að elska hana og þiggja allar henn- ar gjafir. Það er í hennar anda. Guð blessi ömmu. María Elisabet Bragadóttir. Elsku Heddý frænka, minn- ingar streyma fram um góðar stundir þar sem fjölskyldur okk- ar nutu hvítu sandstrandanna á Flórída og æskuminningar frá flotastöðinni í Keflavík á meðan faðir minn, flug-skurðlæknir, var staðsettur þar með Önnu systur þinni og móður minni. Man eftir móanum og hrauninu sem var leikvöllur okkar frændsystkina og okkur að búa til flugvélar úr dagblöðum og að bralla ýmis- legt. Og hvað pabbi minn hafði gaman af því að stríða þér, bara til að heyra hlátur þinn og sjá bros þitt! Hvað tíminn hefur lið- ið hratt! Man eftir húsinu þínu í Garðabænum þegar ég var orð- inn aðeins stærri og okkur frændsystkinum, krökkunum þínum, að leika í kríuvarpi í grenndinni. Þá brosi ég við til- hugsunina um klikkaða hundinn þinn á heimili þínu á Laugarás- vegi, nálægt stóru sundlauginni. Dásamlegir hádegisverðir og kvöldverðir á æskuheimili þínu á Hávallagötunni, skemmtilegar máltíðir á Hótel Sögu, sem í minningunni eru sérstakar, ekki síst vegna nærveru þinnar, glampans í augunum og brossins þíns sem var „bjart eins og ný- sleginn túskildingur“. Hláturinn smitaði alla viðstadda. Við mun- um sakna þín sárt og erum öll betri manneskjur fyrir að hafa átt þig að í lífi okkar. Ég er ein- faldlega þakklátur afa Tryggva Ófeigssyni og ömmu Herdísi Ás- geirsdóttur fyrir að koma til manns því afbragðsfólki sem ég kalla með stolti móðursystur: Heddý, Rönnu, Hönnu og Pál móðurbróður. Alveg er ég viss um að þau brosa breitt, með hlýju í hjarta og faðminn opinn þar sem þau bjóða þig nú vel- komna heim. Guð hraði för þinni og blessi þig elsku Heddý. Tryggvi McDonald. Það var mikil gæfa að fá að vera samferða Heddý frænku og hennar fólki alla tíð. Hún og móðir mín, Rannveig, voru syst- ur og aldursmunurinn var aðeins 14 mánuðir. Afar kært var með þeim og áttu þær margt sameig- inlegt. Ég held ég megi segja að stuðningur þeirra hvorrar við aðra hafi verið ómetanlegur en þær urðu báðar einstæðar mæð- ur, önnur með fjögur ung börn og hin fimm. Þetta var á tímum þegar skilnaðir voru fátíðir og öryggisnetið ekki eins þéttriðið og nú er. Heimili Heddýjar stóð okkur systkinunum ávallt opið og var alltaf gaman að koma þangað. Ekki síst þar sem ég var svo heppinn að eiga þar jafnaldra og vin, Ófeig Tryggva, en mæður okkar fæddu okkur með fimm daga millibili. Elskusemi Heddýjar og um- hyggja fyrir öðrum, ásamt glað- værð og kímni, var afar einkenn- andi fyrir hana og ekki síður hversu vítt og breitt þessir eig- inleikar teygðu sig. Allir nutu jafnt, hvort heldur fjölskylda, menn eða málleysingjar, vinir eða vandalausir. Lýsandi dæmi um þetta er þegar nágranni hennar stóð í framkvæmdum við heimili sitt og bað um leyfi til að staðsetja kaffistofugám á heimreið Hed- dýjar um nokkurra mánaða skeið. Var það auðsótt mál, en hún bætti um betur og bakaði reglulega kökur ofan í vinnu- mennina og færði þeim með sínu breiða brosi. Einhverju sinni er ég var u.þ.b. 13 ára ætlaði Heddý sér að hringja í móður mína en ég svaraði í símann. Furðaði hún sig á því að ég væri heima en ekki í skólanum. Ég svaraði sem var, að skólasystkinin væru í skíðaferðalagi, ég ætti ekki skíði og væri því heima. Henni fannst það afleitt og sagðist myndu sækja mig eftir hálftíma, sem hún og gerði. Því næst fórum við í Útilíf og þar gerði hún mig að stoltum skíðaeiganda. Fyrir þetta og svo margt annað er ég henni eilíflega þakklátur. Ekki síst umhyggjusemina gagnvart börnunum mínum. Við Þuríður sendum öllum að- standendum og vinum Herdísar Tryggvadóttur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ég get ekki skilið við þessi orð án þess að geta þess hversu trúuð hún var, í fallegustu merk- ingu þess orðs. Guð blessi þig Heddý mín og takk fyrir allt. Tryggvi Hallvarðsson. Herdís Tryggvadóttir HINSTA KVEÐJA Sólargeislinn Heddý frænka passaði mig í nokkra mánuði þegar ég var tveggja ára. Hún var með foreldrum mínum í Stokkhólmi þar sem faðir minn var í utanríkisþjón- ustunni. Sambandið sem myndaðist þá á milli mín og föðursystur minnar hélst alla tíð. Takk, elsku Heddý frænka, fyrir skilyrðislausa ást og vináttu. Samúðar- kveðjur frá okkur Þórhalli til fjölskyldunnar. Guð blessi þig. Herdís Pálsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Herdísi Tryggvadótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. 20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Bíó í matsal eftir hádegismat. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40- 12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. S. 535-2700. Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöfflukaffi fellur niður í sumar. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listsamiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Hæðargarðsbíó kl. 13. Þátttökulistarnir liggja í holinu. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Gjábakki Kl. 9 handavinna. Gullsmári Föstudagur: Handavinnuhópur kl. 9-11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bíó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum, sundleikfimi í Grafarvogssund- laug kl. 10 í dag og bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, hannyrðir í listasmiðju. Hádegisverður frá kl. 11.30 og kaffiveitingar kl. 14.30 til 15.30. Takk fyrir vikuna og góða helgi. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, bingo kl. 13.30. Uppl. í s. 4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Ath. nk. fimmtudag 29. ágúst kl. 15 verður árlegt vöfflukaffi og kynning á vetrarstarfi félags og tóm- stundastarfs eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi. Fólk er hvatt til að mæta, Munið skráninguna á ,,óvissuferðina" í grasagarðinn og Café Flóru og einnig leikhúsferðina á Brúðkaup Fígarós. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Dansleikur í Stangarhyl 4 sunnudagskvöld 25. ágúst kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.