Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 20
✝ Herdís Tryggva-dóttir fæddist í
Reykjavík 29. jan-
úar 1928. Hún lést á
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 15. ágúst
2019.
Foreldrar hennar
voru Herdís Ás-
geirsdóttir, f. 1895,
d. 1982, og Tryggvi
Ófeigsson, f. 1896, d.
1987, útgerðarmaður. Systkini
Herdísar: Páll Ásgeir, f. 1922, d.
2011; Jóhanna f. 1925, d. 2011;
Rannveig, f. 1926, d. 2015; og
Anna, f. 1935, sem er nú ein
eftirlifandi þeirra systkina.
Herdís gekk í hjónaband 7.
nóvember 1953 með Þorgeiri
Þorsteinssyni, sýslumanni og
lögreglustjóra á Keflavíkur-
flugvelli, f. 28. ágúst 1929, d.
27.11. 2013. Þau skildu. For-
eldrar hans: Sigríður Þorvarð-
ardóttir Kjerúlf, f. 1891, d. 1973,
og Þorsteinn Jónsson, kaup-
félagstjóri KHB, f. 1889, d. 1976.
Börn Herdísar og Þorgeirs eru:
A) Herdís, mannréttindalög-
fræðingur, f. 1954. Barn Her-
dísar og fyrri eiginmanns, Stef-
vallagötu 9, og næstum síðustu
40 ár ævinnar á Laugarásvegi
17a. Herdís var við nám í hús-
mæðraskóla Skarhult í Svíþjóð
eftir seinni heimsstyrjöldina og
lærði um skeið leiklist í skóla
Lárusar Pálssonar. Herdís lauk
stúdentsprófi frá Verzlunar-
skóla Íslands og varð stúdent
þaðan vorið 1950. Hún lagði síð-
ar stund á ensku við Háskóla Ís-
lands. Hún vann á skrifstofu
Júpíters og Mars en var heima-
vinnandi eftir það, fyrir utan
nokkur ár sem hún vann hjá
Loftleiðum.
Herdís vann alla tíð að mann-
úðarmálum, ekki síst tengdum
kirkjunni, málefnum kvenna og
náttúru- og dýravernd. Hún
studdi heilsugæsluverkefni á
vegum Kristniboðssambandsins í
Afríku, var stofnaðili að friðar-
sveitum Sameinuðu þjóðanna á
Íslandi, beitti sér innan samtak-
anna Herferð gegn hungri og
átti þátt í stofnun samtaka gegn
limlestingu á kynfærum kvenna,
svo eitthvað sé nefnt. Herdís tók
þátt í starfi bænahóps fyrir sjúka
í Hallgrímskirkju um langt ára-
bil. Hún tók virkan þátt í nátt-
úruverndarbaráttu í upphafi
þessarar aldar og birti fjölda
blaðagreina um hugðarefni sín,
þ.á m. um dýravernd, en hún
neytti ekki kjöts frá unga aldri.
Útför hennar fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag, 23. ágúst
2019, klukkan 15.
áns Erlendssonar:
i) Herdís, f. 1987.
Hennar maður:
Dustin O’Halloran;
barn þeirra: Ísold
Aurelia, f. 2018.
Börn Herdísar og
síðari eiginmanns,
Braga Gunnars-
sonar, þau skildu:
ii) María Elísabet,
f. 1993, iii) Gunnar
Þorgeir, f. 1994, iv)
Hörður Tryggvi, f. 1997. B) Þor-
steinn, hagfræðingur, f. 1955.
Maki: Ásta Karen Rafnsdóttir.
Börn þeirra: i) Ásta Sólhildur, f.
1991. Hennar maður: Kristján
Skúli Skúlason; barn þeirra:
Tryggvi Veturliði, f. 2018, ii) Ás-
geir Þór, f. 1994, Herdís Athena,
f. 1997. C) Sigríður, prófessor, f.
1958, prófessor. Maki: Magnús
Diðrik Baldursson. Barn þeirra:
Elísabet, f. 1986. Maki: Christ-
oph Buller; barn þeirra: Hekla
Lúísa, f. 2018. D) Ófeigur
Tryggvi, læknir, f. 1960. Maki:
María Heimisdóttir. Synir
þeirra: i) Tryggvi, f. 1991, ii)
Gísli, f. 1998.
Herdís ólst upp í Reykjavík,
bjó fyrst á Vesturgötu 32, á Há-
Við kveðjum í dag Herdísi
Tryggvadóttur. Með Herdísi er
gengin einstök kona sem átti
engan sinn líka. Hún var hug-
sjónakona sem barðist fyrir öllu
og öllum sem eru óréttlæti beitt-
ir eða standa höllum fæti; mönn-
um, dýrum, náttúrunni. Baráttu-
þrek sitt sótti Herdís ekki síst í
sannfæringu trúarinnar. En hún
prédikaði ekki trú sína í orði
heldur lifði hana og sýndi í verki.
Þannig var Herdís öllum sem
henni kynntust lýsandi fyrir-
mynd.
Herdís var góða sálin í fjöl-
skyldunni. Hún var kærleiksrík
móðir, tengdamóðir, amma og
langamma. Hún reyndist okkur
fjölskyldunni alla tíð einstaklega
vel, var hjálpsöm, ástrík, nær-
gætin og örlát. Herdís skildi eft-
ir sig mikinn auð með afkom-
endum sínum og gaf þeim
skilyrðislausa ást og umhyggju.
Hún var ætíð hvetjandi og styðj-
andi og vék aldrei styggðaryrði
að nokkrum manni heldur sá það
besta í öllum.
Herdís var falleg ytra sem
innra og í henni sló gullhjarta.
Það var mikil gjöf að fá að verða
samferða henni í 35 ár. Með
hverju árinu sem leið dýpkaði
vinátta okkar. Hún hafði skoð-
anir en var lærdómsfús, ævin-
lega opin fyrir nýjum hugmynd-
um og til í að ræða um hvað sem
var. Og hún var skemmtileg og
fyndin – smitandi hlátur hennar
ómótstæðilegur. Allir sem um-
gengust Herdísi komu betri
manneskjur af hverjum fundi við
hana.
Ég kveð Herdísi Tryggvadótt-
ur tengdamóður mína með sökn-
uði, þakklæti og djúpri virðingu.
Minning hennar mun lifa.
Magnús Diðrik Baldursson.
Elsku amma mín Herdís. Nú
þegar ég kveð þig með trega í
hjarta í hinsta sinn, elsku amma
mín, finnst mér ég þurfa að
kveðja svo miklu meira en bara
þig sem manneskju. Ég þarf
endanlega að kveðja æsku mína
sem þú stóðst vörð um eins og
klettur með óþreytandi já-
kvæðni, uppörvun, áhyggjum um
hvort mér væri kalt eða ég
þreytt, með ást og þolinmæði.
Ömmur og afar eru verndarar
barnsins innra með okkur og það
er ein mesta gjöf lífs míns að
hafa fengið að njóta þess fram á
fullorðinsaldur að eiga eins
merkilega manneskju að og
amma mín Herdís var.
Það voru átök og áskoranir í
lífi ömmu Herdísar sem við
barnabörnin urðum aldrei vör
við í æsku en hún ræddi svo fal-
lega opinskátt um þegar við elt-
umst. Þegar ég hef sjálf þurft á
að halda var hún alltaf traustur
vinur, talaði í mig kjark, dæmdi
aldrei, var hreinskilin og sýndi
mér einlæga og mannlega hlið á
sér. Hún kenndi mér að líta á
erfiðleikana sem eðlilega kafla
lífsins. Ég er ekki viss um að það
sé til manneskja í þessari veröld
sem var jafn full af gleði og
þakklæti og hún – fram á síðustu
ævidaga sína. Amma Herdís elt-
ist og lést með einstakri reisn án
þess að tapa nokkru sinni bjart-
sýni sinni eða fegurð.
Amma Herdís sagðist hafa
getað hugsað sér að verða leik-
kona eða hjúkrunarfræðingur ef
hún hefði farið í frekara nám, en
í stað þess að fyllast eftirsjá lifði
hún gildi þessara starfsstétta;
var geislandi skemmtikraftur og
húmoristi, umhyggjusöm við þá
sem voru hjálparþurfi, gaf sig
alla í umönnun fjölskyldu sinnar,
var örlátari en flestir og sparaði
aldrei hrós. Hún kynnti mig fyr-
ir Albert Schweizer og hug-
myndum sínum um hjálparstarf
þegar ég var lítil stelpa sem gaf
mér kjark til að ferðast á fram-
andi slóðir og velja mér framtíð-
arstarf.
Heimsóknir mínar til Íslands
síðastliðinn áratug hafa ein-
kennst af því að fá að eyða sem
mestum tíma með ömmu Her-
dísi; að fara saman í laugarnar
þar sem hún flaut á bakinu í
pottinum eins og svífandi engill,
drekka 50:50-blöndu af neskaffi
á tröppunum á Laugarásvegin-
um, á Dalbraut og svo Grund,
læra öll lög Sound of Music utan
að, hafa hana sem heiðursgest í
brúðkaupinu mínu, tala um guð-
inn hennar og lífið og allt það
sem skiptir mestu máli, hlæja
saman og skynja léttleika lífsins
í samskiptum við hana. Enginn
hafði jafn smitandi hlátur, eins
og allir sem hana þekktu vita.
Amma sýndi mér að það er í
senn hægt að vera djúpvitur og
bæði einlæg og sjálfstæð í hugs-
un – t.d. með því að hafa mynd
af Línu langsokk á afmælistert-
unni í áttræðisafmæli sínu – og
kenndi mér að í raun sé það einn
og sami hluturinn.
Heimferðirnar munu aldrei
verða samar héðan í frá en
Reykjavík verður eins og þakin
blómabreiðu úr minningum um
ömmu sama hvert ég lít.
Ég hefði aldrei orðið að þeirri
manneskju sem ég er í dag ef
ekki hefði verið fyrir þig, elsku
amma mín. Þú hefur mótað mig
svo miklu meira sem persónu en
þig gæti órað fyrir. Það er ein
stærsta gjöfin í lífi mínu að hafa
fengið að verið barnabarn þitt.
Þakklætið er óendanlegt.
Elísabet Magnúsdóttir
Sigríðardóttir.
Amma mín var tímalaus kona.
Hún lét sér hreyfingar mínútu-
vísisins í léttu rúmi liggja og ég
sá hana aldrei drífa sig. Hún var
líka tímalaus því hún hélt alltaf í
barnið í sér, lífsglöð og forvitin
til hinsta dags. Því þótti mér
aldrei erfitt að ímynda mér hana
á ólíkum æviskeiðum. Sem
myrkfælið og draumlynt barn
sem fletti hugfangið sögunni af
Örkinni hans Nóa, sem ungling
sem keyrði bíl föður síns próf-
laust, sem rúmlega tvítuga konu
sem heimsótti sláturhús með
tengdaföður sínum og borðaði
aldrei kjöt framar. Hún var fal-
leg og trúuð.
Amma mín var hugsjónakona.
Hún klippti út allar greinar sem
tengdust velferð dýra. Hvort
sem umfjöllunarefnið var aðbún-
aður selanna í Húsdýragarðinum
eða siðferðileg hugvekja um
kjötiðnaðinn. Lengi var það
henni kappsmál að fá Kobba,
roskna páfagaukinn í Blómavali,
færðan yfir í stærra búr.
Húsið hennar var ævintýra-
legt eins og hún sjálf. Það var
dulmagnaður og yndislegur stað-
ur. Veggirnir voru klæddir
þykkri furu. Á efri hæðinni var
japanskt vaxblóm, risavaxin hen-
giplanta með ljósbleikum og
hvítum blómaklösum sem
minntu á útskorið kertavax. Fín-
gerðir og mjúkir stilkar héngu
yfir flöskugrænt handrið og
slúttu niður á neðri hæð. Þar
voru stórblómóttar gardínur fyr-
ir gluggum, svo síðar að fald-
urinn lá í konunglegum felling-
um á gólfinu. Hún bakaði
súkkulaðiköku og bræddi suðu-
súkkulaði yfir, steikti pönnukök-
ur með mörgum eggjum, samt
brotnuðu þær þegar maður
reyndi að rúlla þeim. Við sátum
á heitri stétt fyrir utan útihurð-
ina, með ullarteppi og sængur
undir okkur. Ég með valinn hatt
úr safni ömmu á kollinum.
Amma sjálf svo kulsæl að hún
var með alpahúfu og íklædd
tveimur ullarpeysum í sólinni.
Nágrannastrákurinn sló grasið
og amma bað hann að sneiða
framhjá fíflunum því henni
fannst þeir svo fallegir.
Amma mín eignaðist vini
hvert sem hún fór. Hún hafði
einstaka útgeislun og sterka
nærveru sem var uppfull af gleði
og samkennd. Ég get ekki séð
fyrir mér andlitið hennar öðru-
vísi en brosandi. „Þú þarft mikið
að tala, Maja,“ sagði hún við mig
þegar ég var barn. Hrifning
hennar á allri einlægri tján-
ingarþörf var fölskvalaus. Mér
fannst ég geta sagt ömmu allt og
hún hlustaði á mig vaða elginn.
„Ég var aldrei mikið fyrir skóla,
ég var alltaf meira fyrir lífið,“
sagði hún glettin. „Og kannski
verð ég fyrsta konan á Íslandi til
að deyja úr leti,“ sagði hún líka
enda hafði hún mikinn húmor
fyrir sjálfri sér.
Sannleikurinn er sá að amma
mín var frjáls andi. Viðjar kerf-
isins höfðu aldrei roð við henni.
Hún var flugmælsk og þegar ég
varð eldri skrifaði ég oft niður
eftir henni. Í vor sagði amma við
mig orðrétt: „Lífið er ekki að
renna sér eftir sléttu skauta-
svelli. Það getur enginn verið
blómaskraut kyrrt í vasa sem
enginn snertir. Lífið tekur í
mann og tuskar mann til. En út-
koman er oft ágæt.“
Hjartans amma, kvik og ung
sál, frjór hugur og viturt hjarta.
Ég er Guði þakklát fyrir að hafa
átt hana sem ömmu. Ég gleðst
yfir lífi hennar, að hafa fengið að
elska hana og þiggja allar henn-
ar gjafir. Það er í hennar anda.
Guð blessi ömmu.
María Elisabet Bragadóttir.
Elsku Heddý frænka, minn-
ingar streyma fram um góðar
stundir þar sem fjölskyldur okk-
ar nutu hvítu sandstrandanna á
Flórída og æskuminningar frá
flotastöðinni í Keflavík á meðan
faðir minn, flug-skurðlæknir, var
staðsettur þar með Önnu systur
þinni og móður minni. Man eftir
móanum og hrauninu sem var
leikvöllur okkar frændsystkina
og okkur að búa til flugvélar úr
dagblöðum og að bralla ýmis-
legt. Og hvað pabbi minn hafði
gaman af því að stríða þér, bara
til að heyra hlátur þinn og sjá
bros þitt! Hvað tíminn hefur lið-
ið hratt! Man eftir húsinu þínu í
Garðabænum þegar ég var orð-
inn aðeins stærri og okkur
frændsystkinum, krökkunum
þínum, að leika í kríuvarpi í
grenndinni. Þá brosi ég við til-
hugsunina um klikkaða hundinn
þinn á heimili þínu á Laugarás-
vegi, nálægt stóru sundlauginni.
Dásamlegir hádegisverðir og
kvöldverðir á æskuheimili þínu á
Hávallagötunni, skemmtilegar
máltíðir á Hótel Sögu, sem í
minningunni eru sérstakar, ekki
síst vegna nærveru þinnar,
glampans í augunum og brossins
þíns sem var „bjart eins og ný-
sleginn túskildingur“. Hláturinn
smitaði alla viðstadda. Við mun-
um sakna þín sárt og erum öll
betri manneskjur fyrir að hafa
átt þig að í lífi okkar. Ég er ein-
faldlega þakklátur afa Tryggva
Ófeigssyni og ömmu Herdísi Ás-
geirsdóttur fyrir að koma til
manns því afbragðsfólki sem ég
kalla með stolti móðursystur:
Heddý, Rönnu, Hönnu og Pál
móðurbróður. Alveg er ég viss
um að þau brosa breitt, með
hlýju í hjarta og faðminn opinn
þar sem þau bjóða þig nú vel-
komna heim. Guð hraði för þinni
og blessi þig elsku Heddý.
Tryggvi McDonald.
Það var mikil gæfa að fá að
vera samferða Heddý frænku og
hennar fólki alla tíð. Hún og
móðir mín, Rannveig, voru syst-
ur og aldursmunurinn var aðeins
14 mánuðir. Afar kært var með
þeim og áttu þær margt sameig-
inlegt. Ég held ég megi segja að
stuðningur þeirra hvorrar við
aðra hafi verið ómetanlegur en
þær urðu báðar einstæðar mæð-
ur, önnur með fjögur ung börn
og hin fimm. Þetta var á tímum
þegar skilnaðir voru fátíðir og
öryggisnetið ekki eins þéttriðið
og nú er.
Heimili Heddýjar stóð okkur
systkinunum ávallt opið og var
alltaf gaman að koma þangað.
Ekki síst þar sem ég var svo
heppinn að eiga þar jafnaldra og
vin, Ófeig Tryggva, en mæður
okkar fæddu okkur með fimm
daga millibili.
Elskusemi Heddýjar og um-
hyggja fyrir öðrum, ásamt glað-
værð og kímni, var afar einkenn-
andi fyrir hana og ekki síður
hversu vítt og breitt þessir eig-
inleikar teygðu sig. Allir nutu
jafnt, hvort heldur fjölskylda,
menn eða málleysingjar, vinir
eða vandalausir.
Lýsandi dæmi um þetta er
þegar nágranni hennar stóð í
framkvæmdum við heimili sitt
og bað um leyfi til að staðsetja
kaffistofugám á heimreið Hed-
dýjar um nokkurra mánaða
skeið. Var það auðsótt mál, en
hún bætti um betur og bakaði
reglulega kökur ofan í vinnu-
mennina og færði þeim með sínu
breiða brosi.
Einhverju sinni er ég var
u.þ.b. 13 ára ætlaði Heddý sér
að hringja í móður mína en ég
svaraði í símann. Furðaði hún
sig á því að ég væri heima en
ekki í skólanum. Ég svaraði sem
var, að skólasystkinin væru í
skíðaferðalagi, ég ætti ekki skíði
og væri því heima. Henni fannst
það afleitt og sagðist myndu
sækja mig eftir hálftíma, sem
hún og gerði. Því næst fórum við
í Útilíf og þar gerði hún mig að
stoltum skíðaeiganda. Fyrir
þetta og svo margt annað er ég
henni eilíflega þakklátur. Ekki
síst umhyggjusemina gagnvart
börnunum mínum.
Við Þuríður sendum öllum að-
standendum og vinum Herdísar
Tryggvadóttur okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Ég get ekki skilið við þessi
orð án þess að geta þess hversu
trúuð hún var, í fallegustu merk-
ingu þess orðs.
Guð blessi þig Heddý mín og
takk fyrir allt.
Tryggvi Hallvarðsson.
Herdís
Tryggvadóttir
HINSTA KVEÐJA
Sólargeislinn Heddý
frænka passaði mig í
nokkra mánuði þegar ég
var tveggja ára. Hún var
með foreldrum mínum í
Stokkhólmi þar sem faðir
minn var í utanríkisþjón-
ustunni. Sambandið sem
myndaðist þá á milli mín og
föðursystur minnar hélst
alla tíð.
Takk, elsku Heddý
frænka, fyrir skilyrðislausa
ást og vináttu. Samúðar-
kveðjur frá okkur Þórhalli
til fjölskyldunnar. Guð
blessi þig.
Herdís Pálsdóttir.
Fleiri minningargreinar
um Herdísi Tryggvadótt-
ur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Bíó í matsal eftir hádegismat.
Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-
12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. S. 535-2700.
Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöfflukaffi fellur niður í sumar.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Frjálst í Listsamiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30.
Hæðargarðsbíó kl. 13. Þátttökulistarnir liggja í holinu. Síðdegiskaffi kl.
14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Gjábakki Kl. 9 handavinna.
Gullsmári Föstudagur: Handavinnuhópur kl. 9-11.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bíó kl. 13.15 og
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum, sundleikfimi í Grafarvogssund-
laug kl. 10 í dag og bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, hannyrðir
í listasmiðju. Hádegisverður frá kl. 11.30 og kaffiveitingar kl. 14.30 til
15.30. Takk fyrir vikuna og góða helgi.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
bingo kl. 13.30. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Spilað í króknum kl.
13.30. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Ath. nk. fimmtudag 29. ágúst kl.
15 verður árlegt vöfflukaffi og kynning á vetrarstarfi félags og tóm-
stundastarfs eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi. Fólk er hvatt til að mæta,
Munið skráninguna á ,,óvissuferðina" í grasagarðinn og Café Flóru og
einnig leikhúsferðina á Brúðkaup Fígarós.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Dansleikur í Stangarhyl 4 sunnudagskvöld 25. ágúst
kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum.