Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 ÁRMÚLA 26 – 108 REYKJAVÍK 60 ára Lilja ólst upp í Auðbrekku í Hörgárdal en býr í Reykjavík. Hún er móttökuritari í Orku- húsinu og fv. bóndi í Auðbrekku. Maki: Hörður Haf- steinsson, f. 1958, skó- smiður í Stoð í Hafnarfirði og rak áður ásamt Lilju Skóvinnustofu Harðar á Akureyri. Börn: Davíð, f. 1978, Andri, f. 1983, Björk, f. 1985, og Heiðrún, f. 1990. Barnabörnin eru nýorðin átta, það átt- unda fæddist 24.7. sl. á Englandi og er Lilja stödd þar í heimsókn. Foreldrar: Stefán Valgeirsson, f. 1918, d. 1998, þingmaður og bóndi í Auðbrekku, og Fjóla Guðmundsdóttir, f. 1928, d. 2011, húsfreyja. Lilja Stefánsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Áætlanir ganga eftir, ekki síst með fulltingi trausts vinar. Gleymdu þó ekki að vera til staðar og aðstoða aðra vini þína sem á því þurfa að halda. 20. apríl - 20. maí  Naut Njóttu meðbyrsins meðan hann varir og vertu viðbúinn mótbyrnum sem óhjá- kvæmilega kemur. Þú getur ekki búist við því að hlutirnir gangi hratt fyrir sig í dag. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þrautseigja er aðdáunarverð, en ef þú heldur þig við eitthvað eitt of lengi er hættan sú að þú brennir upp. Hvernig væri að slaka eilítið á? 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það getur verið gaman að fara ótroðnar slóðir en til þess þarf bæði kjark og þrautseigju. Mundu að gera ekki meiri kröfur til annarra en sjálfs þín. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hugsaðu um einn eða tvo hluti sem þú getur gert til þess að bæta heilsu þína. Sættu þig við hvernig aðrir skemmta sér og lyftu þér upp líka. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur þörf fyrir að koma skoð- unum þínum á framfæri. Hertu upp hug- ann og haltu þínu striki. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gættu þess að leggja vel við hlustir í öllum samskiptum þínum við aðra í dag. Vertu skilningsríkur og hlustaðu vandlega. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt þér finnist aðrir afskiptalausir um þína hagi. Gættu athafna þinna af sömu gaumgæfni og ef um mikilvæg við- skipti væri að ræða. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hugurinn ber þig hálfa leið og þú ert oft á undan sjálfum þér þannig að eitt og annað verður út undan. Þetta kann að kalla yfir þig alls kyns vandræði. 22. des. - 19. janúar Steingeit Til að slá í gegn þarf margra ára undirbúning, ekki bara nokkrar klukku- stundir. Láttu ekki ánægjuna af góðum félagsskap gera þig óhóflega örlátan. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er ekkert vit í öðru en að hafa alla hluti á þurru þegar taka þarf ákvörðun í mikilvægu máli. Klappaðu sjálf- um þér á bakið fyrir að vera víðsýnn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú virðist viðra vel til breytinga og því skaltu velta fyrir þér þeim tækifærum, sem þér bjóðast. málum fyrir lífstíð.“ Auður Lilja starfaði sem framkvæmdastýra VG árin 2010-2014. „Þá hóf ég störf hjá Reykjavíkurborg í starfi sem tengist frekar mínu námi þótt vissulega hafi áhugi minn á launajafnrétti haft mik- ið að segja um nýjan starfsvettvang. Þegar flokksráðsfundur VG sam- þykkti svo að hefja ríkisstjórnarsam- starf með Sjálfstæðisflokknum sagði ég skilið við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Ég hef þó ekki slitið öll tengsl. Er ennþá einlæg stuðn- ingskona margra innan VG og á enn félagsfræði, síðan atvinnulífsfræði en lauk BA-námi í stjórnmálafræði 2003. Hún lauk síðan MPA-námi í opinberri stjórnsýslu 2006. Hún var virk í stúdentapólitíkinni og kom ásamt fleirum að stofnun Háskóla- listans, komst inn í Stúdentaráð og í stjórn Félagsstofnunar stúdenta. „Ég byrjaði að feta mig í átt að al- mennari stjórnmálaþátttöku á þess- um árum en varð þó ekki virk fyrr en eftir að ég hætti í stúdentapólitíkinni. Ég er í grunninn mikill friðarsinni og femínisti svo að Vinstri-græn lágu beinast við. Ég starfaði mikið innan þeirra raða. Var formaður ungliða- hreyfingarinnar og sat í stjórn hreyf- ingarinnar. Ég var varaþingkona á árunum 2007-2013, kom oft inn á þing þar sem ég lagði áherslu á rétt- indi námsmanna, friðarmál, trúfrelsi og aðskilnað ríkis og kirkju. Ég eignaðist frumburðinn Freyju Sigrúnu árið 2005 og Erling Kára 2009. Þeirra fyrstu ár einkenndust af mikilli fundarsetu og ég óttast að ég hafi skemmt áhuga þeirra á stjórn- A uður Lilja Erlingsdóttir fæddist 23. ágúst 1979 í Uppsölum í Svíþjóð þar sem foreldrar hennar lögðu stund á nám. Æskuárin voru flest í Einarsnesi í Skerjafirðinum yfir veturinn en á sumrin dvaldi Auður Lilja jafnan í sveit hjá afa sínum og ömmu og öðr- um tengdum ættingjum austur í Breiðdal á sveitabænum Þrastahlíð. „Þegar ég var sjö ára flutti ég í Borgarnes með fjölskyldunni. Pabbi kenndi í grunnskólanum og mamma vann á fræðslumiðstöðinni. Ég tók svo 10. bekk úti í Svíþjóð þegar mamma og pabbi fóru í viðbótarnám. Það var bara í ár og þegar ég kom heim fór ég í beinu framhaldi í Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi. Tók rútuna á milli Borgarness og Akraness í stuttan tíma en komst svo á vistina og leigði úti í bæ síðar. Mamma og pabbi fluttu á þessum tíma á Blönduós og síðar á Húnavelli, þar sem mamma tók við skólaskrif- stofunni og pabbi varð aðstoðar- skólastjóri/skólastjóri. Ég flutti tíma- bundið heim eftir að hafa hætt í skóla, kynntist frábæru fólki á Blönduósi en tók svo fljótt aftur upp þráðinn í námi. Ég plataði eina bestu vinkonu mína, Drífu Baldursdóttur, til að flytja búferlum með mér og við byrjuðum í Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra á Sauðárkróki, þar sem við bjuggum fyrst úti í bæ og síðar á heimavistinni.“ Auður Lilja tók fyrstu skrefin í pólitískum aktívisma á Sauðárkróki. „Einhverju sinni hafði skólayfir- völdum dottið í hug að koma upp eftirlitsmyndavélum um alla heima- vist meðan nemendur voru í fríi. Við söfnuðum undirskriftum, fjölluðum um þetta í skólablaðinu og héldum opinn fund á heimavistinni undir yfir- skriftinni – Hvað næst? Rimlar fyrir gluggana? Málið var síðar kært og mér skilst að Persónuvernd hafi úr- skurðað meginþorra myndavélanna ólöglegan. Á Sauðárkróki kynntist ég barnsföður mínum og fyrrverandi eiginmanni og stóru fjölskyldunni hans í Flugumýrarhvammi.“ Auður Lilja fór beint í Háskóla Ís- lands eftir útskrift úr Fjölbraut á Sauðárkróki 1999. Hún hóf nám í mína kima innan þeirra raða sem ég held tryggð við. Ég er aktívisti í eðli mínu, óháð formlegri stjórnmálaþátttöku. Ég er í Samtökum hernaðarandstæðinga þar sem ég sat í stjórn og gegndi for- mennsku um árabil. Ég er líka í ótelj- andi femínistahópum í raun- og net- heimum þar sem ég fæ útrás fyrir tilraunir mínar til að bæta heiminn.“ Í dag starfar Auður Lilja sem skrifstofustjóri yfir Verkefnastofu starfsmats, en Verkefnastofan vinn- ur að launasetningu, mati á störfum fyrir sveitarfélög í landinu og ráðgjöf um jafnlaunamál til að tryggja fylgni við jafnréttislög. Auður Lilja er einn af lykilstarfsmönnum við innleiðingu jafnlaunastaðals hjá Reykjavíkur- borg. „Í frítíma mínum dreifist tíminn á milli fjölskyldu og margvíslegra áhugamála. Ég les í törnum, reyni að komast reglulega í sjósund, er líka í annars konar hreyfingu – sundi, fjall- göngum o.fl. Ég sinni þjóðmála- umræðu af kappi, gjarnan með Auður Lilja Erlingsdóttir, skrifstofustjóri Verkefnastofu starfsmats – 40 ára Reiðu konurnar Vinkonur Auðar Lilju úr femínískri baráttu á góðri stundu. Femínisti og friðarsinni Á Spáni Auður Lilja ásamt börnum sínum og foreldrum. 30 ára Aron Leví er Reykvíkingur en á ættir að rekja til Reyðarfjarðar. Hann er málarameistari frá Tækniskólanum í Reykjavík og bygg- ingarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Hann er borgarfulltrúi. Aron Leví er í Karla- kórnum Fóstbræðrum og stundar myndlist. Maki: Karitas Harpa Davíðsdóttir, f. 1991, tónlistarkona. Sonur: Hrafn Leví Beck, f. 2019, og stjúpsonur er Ómar Elí, f. 2014. Foreldrar: Rúnar Þór Pétursson, f. 1953, tónlistarmaður, bús. í Reykjavík, og Inga Rún Beck, f. 1970, fjöl- skylduráðgjafi á Reyðarfirði. Aron Leví Beck Til hamingju með daginn Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.