Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Láttu okkur sjá
umþína húð
fyrir haustið
HollywoodGlow | Húðþétting | Húðslípun
„EINU SINNI SAFNAÐI ÉG PÖDDUM. ÉG
KENNI COSTCO UM ÞETTA.”
„MIÐAÐ VIÐ ÚTGANGINN Á ÞÉR GISKA
ÉG Á AÐ KONAN ÞÍN SÉ EKKI MJÖG
SMEKKLEG!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar enginn annar
kemst að.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
OG RÉTTUR
KVÖLDSINS ER …
„hræ gamma-
steik”
NOH!
HVER ÉTUR HVERN
NÚNA, KALLINN?
ÞAÐ ER HÁKARL Í
MATINN Í KVÖLD!
ÉG ELSKA
HÁKARLA!
ÞEIR ERU
BEIN-
LAUSIR!
ÞESSI VAR MEÐ BEIN EN ÉG
FJARLÆGÐI ÞAU!
góðum konum á bar.“ Auði Lilju
finnst einnig gaman að taka þátt í
spurningakeppni á börum, stundum
nefnt barsvar (pub quiz), þá aðallega
á Ölstöfunni og nefnist keppnin þar
Drekktu betur. Hún hefur sjálf oft
verið spurningahöfundur í þeim
keppnum. „Ég er líka einlæg áhuga-
kona um karókí en ég reyni að kom-
ast í karókí í flestum borgum sem ég
heimsæki.“
Fjölskylda
Kærasti Auðar Lilju er Páll Arnar
Þorsteinsson, f. 18. nóvember 1981,
kafbátasérfræðingur. Foreldrar
hans eru hjónin Þorsteinn Jakob
Þorsteinsson sölumaður, f. 17.1.
1953, og Sigríður Þórðardóttir leik-
skólastjóri, f. 29.10. 1957, búsett í
Kópavogi. Fyrrverandi eiginmaður
Auðar Lilju er Freyr Rögnvaldsson,
f. 1. júní 1978, blaðamaður. Foreldrar
hans eru hjónin Rögnvaldur Ólafsson
og Sigrún Þorsteinsdóttir í Flugu-
mýrarhvammi í Akrahreppi í Skaga-
firði.
Börn Auðar Lilju og Freys eru
Freyja Sigrún, f. 14.3. 2005, og Er-
ling Kári, f. 29.8. 2009. Sonur kærast-
ans er Hilmir, f. 20.2. 2013.
Hálfsystkini Auðar Lilju sam-
mæðra eru Gísli Magnússon, f. 9.5.
1974, tónlistarmaður og safnvörður,
og Þórður Magnússon, f. 25.2. 1973,
tónskáld. Faðir þeirra er Magnús
Þór Jónsson (Megas).
Foreldrar Auðar Lilju eru hjónin
Erling Ólafsson, f. 3.3. 1947, kennari,
og Bergþóra Gísladóttir, f. 3.1. 1942,
sérkennslustjóri. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Auður Lilja
Erlingsdóttir
Guðlaugur Hinriksson
húsgagnasmiður í Reykjavík og Hafnarfi rði
Guðrún Þórðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
og Hafnarfi rði
Ólafur Hinrik Guðlaugsson
verkamaður í Reykjavík
Erling Ólafsson
kennari í Reykjavík
Lilja Þórarinsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þórarinn Einarsson
sjómaður á Eyrarbakka
Oddný Magnúsdóttir
húsfreyja á Eyrarbakka
Snjólfur Gíslason rafveituvirki á Breiðdalsvík
Herbjörn Björgvinsson bóndi á Hlíðarenda í Breiðdal
Ásdís Gísladóttir ljósmóðir
og bóndi á Skarði í Breiðdal
Helgi Guðlaugsson sjómaður í Hafnarfi rði
Guðrún Helgadóttir
rithöfundur og fv. alþm.
Hermann Guðlaugsson
húsgagnasmiður í Rvík
Finnbogi Hermannsson rithöfundur
og fv. fréttamaður og varaþingm.
Ingibjörg Gísladóttir bjó í
Þrastahlíð og á Skarði í Breiðdal
Björgvin Jónasson
bóndi á Hlíðarenda
Sigurbjörg Erlendsdóttir
bóndi og húsfreyja á
Hlíðarenda í Breiðdal
Gísli Friðjón Björgvinsson
bóndi á Hlíðarenda og í Þrastahlíð
Sigurbjörg Snjólfsdóttir
bóndi og húsfreyja á Hlíðarenda og í Þrastahlíð í Breiðdal
Snjólfur Stefánsson
bóndi á Veturhúsum
Ásdís Sigurðardóttir
húsfreyja á Veturhúsum í Hamarsdal
Úr frændgarði Auðar Lilju Erlingsdóttur
Bergþóra Gísladóttir
sérkennslustjóri í Reykjavík
Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum fyrir utan Skólavörðu-
stíg 13, þar sem Davíð, einn af fé-
lögunum á Þórshöfn, var ný-
lenduvörukaupmaður þegar ég
var lítill og kvæntur Halldóru –
ungfrúnni góðu sem Laxness seg-
ir frá og fleiri raunar. Um þetta
vorum við að tala, karlinn og ég,
þegar hann hnykkti höfðinu
skyndilega afturábak til vinstri
og tautaði:
Fyrir vestan Trump á tvitter trompar
alla;
ég gaman hef af gaspri slíku.
Og Grænland kaupir Ameríku.
Og var þotinn án þess að
kveðja.
Pétur Stefánsson yrkir:
Hver og einn sinn djöful dregur,
dapurlegt er það að sjá.
Trump er býsna barnalegur,
blöðum um það fletta má.
Björn Ingólfsson segir:
Boðið í partí, vel skal veitt,
veitingar allar á hæsta prís,
en ég er í fýlu og fer ekki neitt
ég fæ ekki að kaupa mér
Grænlandsís.
Hér í Vísnahorni var limra í
gær eftir Pál Imsland, sem Skírn-
ir Garðarsson hefur gefið þá ein-
kunn, að bara snillingar leyfi sér
að ballansera svona á nöfinni,
þessi var tæp, þó vel sé ort.
Síðan kemur Skírnir með ann-
an vinkil:
Á skrúðhúsdyr biskup einn barði,
á barmfagran kvenprest svo starði,
svo hjá sér hann fór,
og hæverskur sór,
„ég hempuna í fer úti í garði“.
Síðan bætti Skírnir við: „Þetta
tengist þeirri nýbreytni að karl-
og kvenprestar þurfa gjarna að
nota sama skrúðhús til fata-
skipta, áður var það ekki vanda-
mál, en með nútímavæðingunni
er þetta orðið þannig.“
Ísólfur Gylfi Pálmason birti
mynd af stórum svepp á facebook
og fylgdu með efasemdir hans
um að óhætt væri að borða hann.
Hann gæti tapað framsókn-
artrúnni og jafnvel orðið mótfall-
inn næsta orkupakka. Fyrrver-
andi samþingmaður, sr. Hjálmar
Jónsson, varaði hann sterklega
við:
Ekki þekki ég þetta kyn
og því er ég hræddur við sveppi.
Ef éturðu gorkúlur, góði vin,
geturðu endað á Kleppi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Grænlandi, prestshemp-
um og framsóknartrúnni