Morgunblaðið - 23.08.2019, Side 26

Morgunblaðið - 23.08.2019, Side 26
gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir er ein þriggja markvarða landsliðs- hópsins. Breiðablik má illa við því að mis- stíga sig gegn Stjörnunni á sunnu- dag en Stjarnan siglir nokkuð lygn- an sjó. Þór/KA og nýkrýndir bikarmeistarar Selfoss berjast, ásamt Fylki, um 3. sæti deildar- innar og mætast í mikilvægum slag á Akureyri. Neðstu fjögur liðin mætast svo innbyrðis í leikjum sem koma til með að ráða miklu um það hvaða lið falla niður í 1. deild í haust. Öll töpuðu þau í 14. umferðinni og hafa ÍBV, Keflavík og HK/Víkingur nú tapað fjórum leikjum í röð hvert. KR er með 13 stig, ÍBV 12, Kefla- vík 10 og HK/Víkingur sjö en Keflavík tekur á móti KR á sunnu- daginn og ÍBV mætir HK/Víkingi. Mikilvægir skallar Örnu Arna Sif Ásgrímsdóttir var besti leikmaður 14. umferðar hjá Morgunblaðinu, en hún skoraði tvö marka Þórs/KA í 3:1-sigrinum á Keflavík. Þessi 27 ára miðvörður stóð í hjarta varnarinnar hjá Akur- eyringum en kom fram í horn- spyrnum og skoraði bæði mörkin með skalla. Arna Sif hóf meistaraflokksferil sinn með Þór/KA árið 2007, aðeins 14 ára gömul. Hún var orðin fyr- irliði liðsins þegar það varð Ís- landsmeistari í fyrsta sinn árið 2012 og lék með liðinu út tímabilið 2014 en þá gekk hún til liðs við Kopparberg/Gautaborg. Eftir eitt tímabil í Svíþjóð fór þessi flinki teiknari til Vals og lék þar í tvö ár, var svo um skamma hríð hjá Ver- ona á Ítalíu en yfirgaf félagið sem stóð engan veginn við gerða samn- inga, og kom aftur til Þórs/KA fyr- ir síðasta tímabil. Arna Sif hefur leikið 12 A- landsleiki og 40 leiki fyrir yngri landslið og var meðal annars í landsliðshópnum sem fór á EM í Hollandi fyrir tveimur árum. Nítján ára markadrottning? Hlín Eiríksdóttir er besti ungi leikmaður umferðarinnar en hún skoraði dýrmætt sigurmark fyrir Val með glæsilegu skoti gegn bik- armeisturunum á Selfossi. Markið skilaði Hlín í efsta sæti listans yfir markahæstu leikmenn deildarinnar en þær Elín Metta Jensen hafa skorað 13 mörk hvor. Hlín, sem er 19 ára, hefur leikið 60 leiki fyrir Val í efstu deild og alls skorað 19 mörk. Eftir að hafa svo sannarlega blómstrað í sumar er hún í íslenska landsliðshópnum fyrir komandi leiki í undankeppni EM, en Hlín kom við sögu í einum leik í síðustu undankeppni HM og hefur alls leikið átta A-landsleiki og skorað tvö mörk.  Selma Friðriksdóttir lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki þegar hún kom inn á sem varamaður fyr- ir Selfoss gegn Val. Selma er að- eins 17 ára gömul, frá Hvolsvelli, en hún kom inn á í stöðu bakvarðar eftir að Áslaug Dóra Sigurbjörns- dóttir meiddist.  Mikil spenna er í baráttunni um efsta sætið í M-einkunnagjöf- inni en Sveindís Jane Jónsdóttir úr Keflavík var sú eina af efstu sex í sumar sem fékk M í þessari um- ferð. Hún skoraði mark Keflavíkur í tapinu gegn Þór/KA á Akureyri og átti góðan leik. Cloé Lacasse er enn á toppnum, nú jöfn Sveindísi og Elínu Mettu Jensen, þrátt fyrir að hafa ekki spilað síðustu tvo leiki en Cloé mun ekki safna fleiri M-um þar sem hún er farin til Benfica í Portúgal.  Leikmenn Vals stóðu heiðurs- vörð fyrir Selfyssinga fyrir leik lið- anna á Selfossi. Þetta var fyrsti leikur Selfoss eftir að liðið vann sinn fyrsta titil með því að verða bikarmeistari. Ein af hetjum liðsins úr bikarúrslitaleiknum, Hólmfríður Magnúsdóttir, gat ekki mætt sínu gamla liði vegna meiðsla. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessar eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Cloé Lacasse, ÍBV 15 Elín Metta Jensen, Val 15 Sveindís Jane Jónsdóttir, Kefl avík 15 Natasha Anasi, Kefl avík 14 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 13 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 12 Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki 11 Hlín Eiríksdóttir, Val 11 Berglind Rós Ágústsdóttir, Fylki 10 Fanndís Friðriksdóttir, Val 10 Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 10 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 9 Dóra María Lárusdóttir, Val 9 Hallbera Guðný Gísladóttir, Val 9 Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki 9 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Breiðabliki 9 Lára Kristín Pedersen, Þór/KA 9 Leikmenn með sjö M: Anita Lind Daníelsdóttir, Kefl avík, Anna María Friðgeirsdóttir, Selfossi, Ásdís Karen Halldórsdóttir, KR, Ásta Eir Árnadóttir, Breiðabliki, Betsy Hassett, KR, Birta Elín Metta Jensen, Val 13 Hlín Eiríksdóttir, Val 13 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 12 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 12 Cloé Lacasse, ÍBV 11 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 11 Markahæstar Breiðablik 83 Valur 83 Fylkir 64 Kefl avík 64 ÍBV 58 KR 56 Selfoss 55 Þór/KA 55 Stjarnan 50 HK/Víkingur 45 Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 14. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019 Lið: Guðlaugsdóttir, Stjörnunni, Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, Þór/KA, Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Fylki, Clara Sigurðardóttir, ÍBV, Emma Kelly, ÍBV, Gígja Valgerður Harðardóttir, HK/Víkingi, Grace Rapp, Selfossi, Katrín Ómarsdóttir, KR, Steph- any Mayor, Þór/KA og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Þór/KA 3-4-3 Sandra Sigurðardóttir Val Margrét Björg Ástvaldsdóttir Fylki Sveindís Jane Jónsdóttir Kefl avík Allison Murphy SelfossiHlín Eiríksdóttir Val Andrea Mist Pálsdóttir Þór/KA Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir Stjörnunni Ásta Eir Árnadóttir Breiðabliki Kyra Taylor Fylki Karólína Lea Vilhjálmsdóttir Breiðabliki Lilja Dögg Valþórsdóttir KR 2 3 4 5 3 3 2 Fylkiskonur gætu sett strik í reikninginn  Enn útlit fyrir úrslitaleik Breiðabliks og Vals  Þrjú lið berjast um bronssætið Ljósmynd/Þórir Tryggvason Best Arna Sif Ásgrímsdóttir úr Þór/KA skoraði tvö mörk. Morgunblaðið/Hari Ung Hlín Eiríksdóttir er komin með 13 mörk í sumar og er markahæst. 14. UMFERÐ Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Fyrir utan topplið Vals er það Fylkir sem verið hefur á mestu flugi í úrvalsdeild kvenna í fótbolta undanfarið en Fylkiskonur hafa nú unnið fimm leiki í röð í deildinni og komið sér af fullum þunga í barátt- una um 3. sæti. Árbæingar gætu jafnframt orðið örlagavaldar í hníf- jafnri titilbaráttu Vals og Breiða- bliks. Valur er enn með tveggja stiga forskot á Breiðablik eftir að báðum liðum tókst að kreista fram sigra í 14. umferðinni með nokkrum naumindum. Liðin mætast á Kópa- vogsvelli í næstsíðustu umferð og áfram er útlit fyrir að það verði eins konar úrslitaleikur um Ís- landsmeistaratitilinn, þar sem Val myndi duga jafntefli. Fylkir gæti breytt þessari sviðsmynd. Valur og Breiðablik eiga eftir leiki við tvö lið úr neðsta hlutanum auk leiks við Fylki. Valur sækir Fylki heim á sunnudaginn en Breiðablik fer í Árbæinn, þar sem Fylkir hefur náð í megnið af sínum stigum, í loka- umferðinni. Dregur til tíðinda í fall- slagnum eftir taphrinur Á sunnudag fer fram heil umferð en það er jafnframt síðasta umferð- in fyrir landsleikjahlé, þar sem sjö leikmenn Breiðabliks og sjö leik- menn Vals verða í íslenska lands- liðshópnum sem mætir Ungverja- landi og Slóvakíu í fyrstu leikjunum í undankeppni EM. Fylkir er þriðja liðið í deildinni sem missir leikmann af liðs- æfingum sínum en hin 16 ára 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Enska knattspyrnufélagið Liverpool tilkynnti í gær um fyrirætlanir félagsins að stækka heimavöll sinn, Anfield, svo hann rúmi meira en 60.000 áhorfendur. Félagið hafði áður hug á að stækka völlinn til að rúma 58.000 áhorfendur, í stað 54.074 eins og nú er. Eftir frekari umhugsun ætla for- ráðamenn félagsins að stækka völlinn enn frekar, svo að liðlega 61.000 áhorfendur komist fyrir á leikjum Liverpool. Færri komast að en vilja á heimaleiki Liver- pool, enda gengi liðsins afar gott eftir að Jürgen Klopp tók við liðinu og áhuginn sjaldan verið meiri. Liðið er núverandi Evrópumeist- ari svo dæmi sé tekið. Ætlar félagið að stækka Anfield Road End, stúkuna fyrir aftan annað markið. Hún er beint á móti hinni frægu Kop-stúku. Anfield Road End tekur sem stendur 10.000 áhorf- endur og er minnsta stúkan á leikvanginum. Þar sjá forráðamenn Liverpool því sóknarfæri, en eins og sakir standa eru sex knattspyrnu- leikvangar á Englandi sem taka fleiri áhorf- endur. Ekki er ýkja langt síðan leikvangurinn var síðast stækkaður, árið 2016, og stóðu fram- kvæmdir þá yfir í tæp tvö ár. Anfield var tekinn í notkun árið 1884 og þjónaði Everton fyrstu átta árin. Frá árinu 1892 hefur Liverpool FC hins vegar átt þar heima. Leikvangurinn er í eigu bandaríska fyrirtækisins Fenway Sports Group eins og fé- lagið. Fenway á einnig hafnaboltaliðið Boston Red Sox sem leikur á ekki síður frægum leik- vangi: Fenway Park. Ýmsir andstæðingar Liverpool í ensku úr- valsdeildinni hafa flutt sig yfir í nýja leik- vanga. Má þar nefna Manchester City, Arsen- al, Tottenham og West Ham. Stórveldin í norðrinu, Manchester United og Liverpool, hafa frekar kosið að stækka en flytja. Anfield mun taka 61 þúsund Anfield Ferðamenn sitja í The Kop, stúkunni aftan við annað markið á leikvanginum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þau hafa verið þung sporin út af vellinum hjá íslenska karla- landsliðinu í körfubolta eftir tap- ið fyrir Sviss í fyrrakvöld. Þetta var með því grátlegra sem mað- ur hefur orðið vitni að. Það var engin lygi að liðið var í draumastöðu fyrir leikinn, enda mátti Ísland tapa með 19 stigum en samt vinna riðilinn sinn í forkeppni EM. Sviss er ekki hátt skrifuð þjóð í körfubolta- heiminum en tókst engu að síður að vinna 24 stiga sigur, skora miklu meira en það hefur gert í landsleik í mörg ár og útiloka alla möguleika Íslands á að komast á næsta stórmót. Þessi leikur var algjört skóla- bókardæmi um það hversu mikil- væg andlega hliðin er í íþrótt- unum. Undirbúningurinn fyrir leikinn var eflaust óhjákvæmi- lega öðruvísi en venjulega, þar sem menn hafa vitað af þessari líflínu að mega tapa með 19 stigum. En svo þegar átti að treysta alfarið á hana þá að sjálf- sögðu slitnaði línan og menn lentu harkalega á jörðinni. Haus- inn var bara ekki á réttum stað. Þó að það hafi verið nógu ömurlegt að tapa svona er fram- haldið ekki síður slæmt. Loka- keppni EM fer fram 2021 og Ís- land verður ekki með í undan- keppninni. Fær liðið þá einhvern alvöru landsleik næstu tvö árin eða svo? Svo er það peningahliðin. Þetta mun eflaust hafa neikvæð áhrif á rekstur KKÍ, sem eins og mörg önnur sérsambönd hér heima treystir á allar krónur sem berast í kassann. Þegar Ísland verður svo ekki með í heilli undankeppni hlýtur það að koma niður á framlagi til sambandsins. En það er best að spyrna sér frá botninum. Vonandi er þetta bara lítið bakslag fyrir íslenskan körfubolta á alþjóðavísu. BAKVÖRÐUR Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Lionel Messi, fyr- irliði spænska knattspyrnu- félagsins Barce- lona, sneri aftur til æfinga í gær sam- kvæmt spænskum fjölmiðlum. Messi var ekki í leik- mannahópi liðsins sem tapaði 1:0- fyrir Athletic Bilbao í fyrsta leik spænsku 1. deild- arinnar um síðustu helgi, en hann hefur verið að jafna sig eftir meiðsli. Meiðsli herja á Börsunga þessa dagana, en í gær var tilkynnt að Luis Suárez yrði frá næsta mán- uðinn. Þá verður Ousmane Dembélé einnig frá næstu fimm vikurnar. Messi að jafna sig Lionel Messi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.