Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Píanóleikarinn Peter Máté hefur í
kvöld tónleikaröð þar sem hann
spilar verk tónskáldsins Johns
Speights. Hann segir það sérstakt
að efnisskráin sé tileinkuð einu
nútímatónskáldi. „Maður hefur
gert svipað með Chopin, Beet-
hoven eða Bach. Víkingur Heiðar
hefur t.d. spilað eingöngu Bach á
mörgum tónleikum. Þetta er ekki
eins algengt með samtímatónlist.“
Það eru tvö eða þrjú ár síðan
Peter ákvað að leggja í þetta
verkefni, að halda tónleika með
verkum Johns Speights. Hann
segir undirbúninginn hafa tekið
langan tíma, enda sé hann í
kennslustarfi hjá Listaháskólanum
og í fleiri verkefnum samhliða því.
„Nú er þetta loksins komið á
endapunktinn. Ég ákvað loksins
að koma þessu í gang og spila
þessa ferna tónleika í öllum lands-
fjórðungum. Ég fékk ferðastyrk
frá Rannís svo ég færi ekki að
stórtapa á því að koma mér til
Egilsstaða, Eyjafjarðar og Ísa-
fjarðar. Svo verða lokatónleikarnir
í Hannesarholti,“ segir hann.
Í hlutverki leiðsögumanns
Á tónleikunum mun Peter spila
sjö tónverk eftir John. Elsta verk-
ið á dagskránni er 5 pieces frá
árinu 1968 en það yngsta samdi
John í fyrra, fimmtíu árum síðar.
„Það sem er sérstakt við þessi
verk er að þótt fyrsta verkið sé
frá 1968, frá námsárum Johns
þegar hann er 23 ára, eru þar
komin ákveðin einkenni sem hald-
ast í gegnum ferilinn allan. Ein-
hvers konar litbrigði eða samsetn-
ingar af hljómagangi eru orðin til
í þessum litlu verkum sem hann
samdi þegar hann var ungur og
svo kemur þetta aftur fram í verk-
unum sem voru samin á árunum
1996 til 1998. Það er mjög spenn-
andi að bera þetta saman,“ segir
píanóleikarinn.
Verk Johns eru næstum öll það
sem kallast „atonal“, þ.e. án
heimatóntegundar, dúrs eða molls.
„Tónlistin er kröfuhörð bæði við
flytjandann og áheyrandann en við
erum auðvitað komin á 21. öld og
maður verður að halda áfram í nú-
tímanum,“ segir Peter.
Á tónleikunum mun Peter
kynna verkin fyrir áheyrendum
áður en hann sest við píanóið.
„Flestir tónleikagestir þurfa að fá
smá hjálp við að skilja þessa teg-
und af músík sem þeir eru
kannski ekki jafn vanir að hlusta á
og t.d. sinfóníur Beethovens, svo
ég ætla að láta nokkur orð fylgja
til þess að útskýra hvernig þessi
verk eru. Ég tala ekkert um um
hvað tónlistin fjallar heldur ætla
ég að benda á ákveðin litbrigði
eða einkenni sem geta verið
spennandi. Ég get hugsað mér að
vera eins og leiðsögumaður. Ef
maður hefur aldrei komið til út-
landa er betra að hafa leiðsögu-
mann þótt það geti auðvitað verið
gaman að rölta einhvers staðar í
útlöndum án þess að vita neitt.“
Stefnir á gerð geisladisks
Peter mun frumflytja nýtt verk
Johns á tónleikunum. „Það til-
heyrir starfi okkar tónlistarmanna
á Íslandi að frumflytja tónlist vina
okkar og kollega. Það er mjög
spennandi að frumflytja verk. Það
er alltaf ákveðin spenna í loftinu.
Ég get lofað því að þetta síðasta
verk, sem er stutt, er mjög frá-
brugðið hinum. Öll hin eru í hin-
um gamla „atonal“-stíl Johns en
síðasta verkið heitir Hommage á
Brahms og er eiginlega rómant-
ískt.“
Fyrstu tónleikarnir í tónleika-
röðinni verða haldnir í kvöld,
föstudagskvöldið 23. ágúst, kl. 20 í
Egilsstaðakirkju. Á sunnudaginn,
25. ágúst kl. 15, verða svo tón-
leikar í Laugarborg í Eyjafjarðar-
sveit. Tveimur vikum síðar, sunnu-
daginn 8. september kl. 15, verður
leikurinn endurtekinn í tónleika-
salnum Hömrum á Ísafirði. Loka-
tónleikar verða svo haldnir mið-
vikudaginn 11. september kl. 20 í
Hannesarholti í Reykjavík.
Með þessum fernum tónleikum
er verkefninu ekki lokið. „Mig
langar að halda fyrirlestur um
tónskáldið og verk þess í Listahá-
skólanum þar sem ég kenni og
annars staðar ef áhugi er fyrir
því. Svo ætla ég líka að gera
heildarupptöku af verkunum á
geisladisk einhvern tímann seinna
í vetur,“ segir Peter.
„Ákveðin spenna í loftinu“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kollegar Píanóleikarinn Peter Máté mun flytja verk tónskáldsins Johns Speights víðs vegar um landið.
Peter Máté flytur sjö verk tónskáldsins Johns Speights Verk sem spanna
fimmtíu ár „Tónlistin er kröfuhörð bæði við flytjandann og áheyrandann“
Ljóðskáldið
Skarphéðinn
Bergþóruson
opnaði sína
fyrstu einkasýn-
ingu á myndlist í
gær í Gallery
Porti við Lauga-
veg. Skarphéð-
inn er einn af
stofnendum gall-
erísins og hefur
sýnt verk þar á samsýningum. Efni-
við sinn sækir hann í sumrin löngu
um miðjan 10. áratuginn þegar
körfuboltaæði tröllreið öllu hér á
landi. „Sumrin löngu með Sól hf. í
næstu götu. Og Drauminn ekki
langt undan,“ segir í tilkynningu.
Himinstrákablátt
Skarphéðinn
Bergþóruson
Íslensk-breski listhópurinn Huldu-
fugl mun flytja leikverið Kassann á
kvikmyndahátíðinni Raindance
Film Festival sem haldin verður
18.-29. sept. í London. Á dagskrá
hátíðarinnar eru því ekki aðeins
kvikmyndir heldur einnig tónlistar-
myndbönd, stuttmyndir, vefsyrpur
og verk í sýndarveruleika en Kass-
inn er leikverk sem fer fram í sýnd-
arveruleika fyrir einn áhorfanda í
einu og fer leikari með hlutverk
innan þess veruleika í rauntíma.
Kassi Kynningarmynd fyrir Kassann.
Kassinn á Rain-
dance í London
Íslenska hönnunarfyrirtækið FÓLK
frumsýnir nýjar vörur á sýningunni
Maison et Objet í París í byrjun
september. Sýningin er ein sú
stærsta sem haldin er í Evrópu á
innanhúshönnun.
FÓLK er íslenskt hönnunarmerki
sem hefur sjálfbærni að leiðarljósi í
framleiðsluferlinu, allt frá hönnun
og vöruþróun yfir í framleiðslu,
notkun og endurvinnslu.
FÓLK sýnir í París
Skáldsagan Sara er skemmti-leg og spennandi en á samatíma er hún skáldleg útgáfaaf 103 meðvirkni. Þetta var
upplifun rýnis sem átti erfitt með að
láta frá sér bókina. Forvitnin að fá að
vita hver hefði gefið
aðalpersónunnni
Söru hring og orðin
góðu kom í veg fyrir
að rýnir fengi þann
svefn sem hann
hefði þurft tvær
nætur í röð.
Söguþráður Söru
er skemmtilega
hraður og nýir ein-
staklingar kynntir til sögunar í gríð
og erg. Á tímabili fannst rýni full-
mikið af upplýsingum streyma inn en
það gæti hugsanlega stafað af óþreyj-
unni yfir að fá að vita hver gefandi
hringsins var.
Sara er ekkja sem á tvö börn. Hún
stendur á krossgötum þegar hún
heldur upp á 45 ára afmæli sitt. Ein
af afmælisgjöfunum sem hún fær er
demantshringur sem á eftir að hafa
afdrifaríkar afleiðingar fyrir Söru.
Sara fjallar um leitina að gefand-
anum og um leið leitina að því hver
Sara er, hvað hún vill, getur og ætlar
sér. Sara er saga þar sem drauga for-
tíðar þarf að gera upp til þess að
halda áfram og finna þann styrk sem
í einstaklingnum býr. Persónusköpun
bókarinnar er trúverðug, þá sér-
staklega Sara, Vala dóttir hennar,
Alda, vinkonan sem fór öfganna á
milli í lífsstíl, og sonurinn, ungling-
urinn Þórður. Persónuleikar sem Ár-
elía skapar í bókinni eru þannig gerð-
ir að margir ættu að geta kannast við
sjálfa/n sig einhvers staðar í sögunni.
Það var samt ekki laust við að rýni
þættu nokkrar af sögupersónunum
klisjukenndar staðalímyndir. Má þar
nefna íþróttafólkið, fórnarlambið og
fórnfúsu konuna.
Árelía sagði í viðtali við Morgun-
blaðið að það væri svolítið eins og ver-
ið væri að nota vinstra heilahvelið í
skáldskaparforminu og það hægra í
fræðunum. Rýni finnst Árelía nota
bæði vinstra og hægra heilahvelið í
Söru og takast listavel að blanda því
saman; fræða um meðvirkni, alkóhól-
isma, þunglyndi, kvíða, höfnun, full-
komnunaráráttu, minnimáttarkennd
og vanrækta barnið. Á sama tíma gef-
ur hún lesandanum tækifæri á að
gleyma sér í skemmtilegum sögu-
þræði og finna sjálfa/n sig hér og þar
í ýmsum persónum bókarinnar.
Sara er önnur skáldsaga Árelíu
Eydísar Guðmundsdóttur, en fyrsta
skáldsagan, Tapað fundið, kom út
fyrir fjórum árum. Árelía hefur einn-
ig skrifað nokkrar fræðibækur.
Skáldsaga skrifuð með
báðum heilahvelum
Skáldsaga
Sara bbbmn
Eftir Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur.
Veröld gefur út. Kilja, 252 bls.
GUÐRÚN
ERLINGSDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Spennandi „Skáldsagan Sara er
skemmtileg og spennandi en á sama
tíma er hún skáldleg útgáfa af 103
meðvirkni,“ segir um bók Árelíu
Eydísar Guðmundsdóttur.
Midpunkt kynnir pólsk-íslensku listahátíðina Ágústkvöld/
pod koniec sierpnia sem listakonurnar Wiola Ujazdowska
og Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson standa að. Í
kvöld kl. 18 verður haldin opnunarhátíð í Midpunkt og
sýning opnuð um leið. Listamenn hátíðarinnar eru Dom-
inika Ozarowska, Drengurinn Fengurinn, Gabriela Ko-
walska, Hildur Ása Henrýsdóttir, Hubert Gromny, Logi
Bjarnason, Milena Glowacka, Kai Dobrowolska, Kamilla
Einarsdóttir, Kinga Kozlowska, Eilíf Ragnheiður, Sóley
Frostadóttir, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Wiola Ujaz-
dowska og Zofia Tomczyk. Dagskrá hátíðarinnar í heild
sinni má finna á facebooksíðu Midpunkt.
Pólsk-íslensk listahátíð í Hamraborg
Ragnheiður S.
Bjarnarson