Morgunblaðið - 23.08.2019, Síða 32
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
Háþrýstidælur
Háþrýstidælur
Gólfþvottavélar
Háþrýstikerfi
Háþrýstistöðvar
Gufuháþrýstudælur
Sópar
Ryksugur
Sópar
Ryksugur
Ryksugur Ísblástursvélar
Þrjár vesturíslenskar myndlistar-
konur opna sýningu á verkum sín-
um í Borgarbókasafninu í Spöng-
inni í dag kl. 16. Þær JoAnne
Gullachsen og Mabel Sigurdson
Tinguely vinna í ólíka miðla, Mabel
gerir klippimyndir og sækir efnivið
sinn í náttúruna, JoAnne leitar í
bernskuminningar sínar og Inga er
grafíker og leirkerasmiður.
Vesturíslensk myndlist
sýnd í Spönginni
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, vonast til þess að
geta fundið sér nýtt félag sem allra
fyrst. Hann ætli þó að velja vel. „Ég
geri ekki neitt nema ég sé ánægður
með það,“ segir Emil í Morgun-
blaðinu í dag, en hann hefur verið
duglegur að æfa í sumar og er að
eigin sögn í toppstandi fyrir kom-
andi leiki landsliðsins. »25
Vonast til að ganga frá
málunum sem fyrst
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Stefán Pálsson sagnfræðingur leið-
ir sögugöngu á Rauðarárholti á
morgun kl. 15. Gangan hefst við
safnaðarheimili Háteigskirkju.
Svæðið sem gengið verður um
tengist þróunarsögu Reykjavíkur á
ýmsan hátt. Stefán fræðir gesti um
grjótnám, fyrsta mengunarslysið
og vatnssamsærið dularfulla. Áður
leikur söngvaskáldið Svavar Knútur
fyrir gesti í Saltfisk-
móanum, sem
er norðvestur
af Sjómanna-
skólanum.
Tónleikarnir
hefjast kl.
14. Aðgangur
er ókeypis.
Söguganga og tón-
leikar á Rauðarárholti
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ég ætla að tala um allt í kringum
þessa þætti sem mér finnst merki-
legt, til dæmis hversu karllægir
þættirnir eru, enda skrifaðir af
körlum og framleiddir af körlum.
Hreyfiaflið er karlarnir, Jock er
patríarkinn, sterkur föðurlegur leið-
togi sem tekur allar helstu ákvarð-
anir, þó svo að Ellie kona hans
standi ágætlega í lappirnar. Kon-
urnar eru veikar persónur með lítið
vægi. Sue Ellen er alkóhólisti sem
eiginmaðurinn J.R. brýtur stans-
laust niður, en Pam klappar bara
Bobby. Eftir því sem fór að líða á
seríuna voru leikararnir farnir að
leikstýra þáttunum líka, en þegar
Linda Gray sem lék Sue Ellen og
Victoria Principal sem lék Pamelu
báðu um að fá að leikstýra þá fengu
þær það ekki, með þeim rökum að
þá kæmu allar aðrar leikkonur í
kjölfarið og vildu leikstýra. Victoria
Principal neitaði að vera lengur með
árið 1987 af því að hennar persóna í
þáttunum fékk ekkert að þróast.
Linda Gray sagðist hafa verið ná-
tengd persónunni sem hún lék, Sue
Ellen, og að það hefði tekið á til-
finningalega að leika erfiðar senur
þar sem J.R. beitti hana ofbeldi,“
segir Karl Ferdinand Thorarensen,
sem ætlar að vera með örnámskeið í
september um sjónvarpsþættina
Dallas.
„Samfélagið á Íslandi var á þess-
um tíma afar íhaldssamt, en þegar
fólk kveikti á Dallas birtist því
glansheimur ríka fólksins í Texas.
Fólk sem átti allt en var mjög
óhamingjusamt,“ segir Karl og bæt-
ir við að upphaflega hafi þættirnir
átt að snúast um Bobby og Pam,
einhvers konar Rómeó og Júlíu-
sögu þar sem tvær ættir mætast og
berast á banaspjót. „Svo kom í ljós
að vondi karlinn, J.R., var sú per-
sóna sem allir elskuðu að hata og
vildu sjá hvað gerði næst. Þættirnir
fóru því að hverfast um hann. Þess-
ir þættir höfðu allt sem þarf til að
búa til ómótstæðilega þætti, þetta
er fjölskyldudrama þar sem ást og
hatur, peningar og völd, kynlíf og
ofbeldi kemur við sögu. Ég ætla líka
á námskeiðinu að velta upp hvað
það er í mannlegu eðli sem dregur
okkur að slíkum sögum, því okkur
hefur verið sögð sú sama saga í
gegnum aldirnar, í nýjum búningi
hverju sinni.“ »11
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Karl Hann spyr hvað í mannlegu eðli dragi okkur að sögum líkum þeim sem sagðar eru í Dallas-þáttunum.
Ætlar að halda örnámskeið um Dallas-þættina margfrægu
Dallas Hjónin Sue Ellen og J.R.
Fólk elskaði að hata
skúrkinn J.R. Ewing