Morgunblaðið - 31.08.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Mikil breyting hefur orðið á
dánartíðni Alzheimers-sjúkdómsins
[...] undanfarna áratugi. Þannig var
sjúkdómurinn undirliggjandi dánar-
orsök hjá 12 einstaklingum árið
1996 en í fyrra létust 192 einstak-
lingar með lögheimili á Íslandi úr
Alzheimers. Aldursstöðluð dánar-
tíðni sjúkdómsins var 53,5 á hverja
100.000 íbúa árið 2018 í samanburði
við 5,6 árið 1996.“
Þetta kemur fram í umfjöllun um
dánartíðni og dánarmein í Talna-
brunni Landlæknis. Höfundar
greinarinnar, Hildur Björk Sig-
björnsdóttir og Jón Óskar Guð-
laugsson, hafa unnið úr tölulegum
upplýsingum úr dánarmeinaskrá og
bera saman dauðsföll og dánartíðni
yfir tímabilið frá 1996 til 2018.
Reiknuð er svokölluð aldursstöðluð
dánartíðni til að gera samanburð
yfir tíma og leiðrétta þann mun
sem verður til vegna ólíkrar aldurs-
samsetningar frá einum tíma til
annars.
Í umfjöllun um Alzheimer-sjúk-
dóminn segir enn fremur að aldurs-
stöðluð dánartíðni hafi breyst mikið
hjá bæði konum og körlum á fyrr-
nefndu tímabili. ,,Hjá konum jókst
dánartíðnin úr 6,8 í 60,1 á hverjar
100.000 konur en hjá körlum úr 3,4
í 43,5 á hverja 100.000 karla. Sam-
bærilega aukningu má sjá hjá öðr-
um þjóðum,“ segir í greininni.
Benda höfundarnir á að þessa
aukningu dánartíðni af völdum Alz-
heimers megi að einhverju leyti
skýra með breytingum sem hafa
orðið á skráningu dauðsfalla og ef-
laust sé einhver aukning einnig til-
komin vegna hækkandi lífaldurs
þar sem sjúkdómurinn er líklegri
til að leggjast á fólk með hækkandi
aldri.
Illkynja æxli algengasta orsök
Fram kemur í greininni að af tíu
völdum dánarorsökum sem flokk-
aðar eru hjá embætti landlæknis
var aldursstöðluð dánartíðni karla á
hverja 100.000 íbúa hæst í flokki ill-
kynja æxla á seinasta ári eða 179,7
en þar á eftir kom dánartíðni vegna
hjartasjúkdóma (159,4) og Alzheim-
ers-sjúkdómurinn er í þriðja sæti
(43,5). ,,Á þessu hefur orðið breyt-
ing undanfarna áratugi því aldurs-
stöðluð dánartíðni meðal karla var
lengi vel hæst í flokki hjartasjúk-
dóma en næsthæst í flokki illkynja
æxla,“ segja höfundarnir.
Illkynja æxli hafa um langt ára-
bil verið algengasta dánarmein
kvenna á Íslandi og var það líka í
fyrra þegar reiknuð er aldursstöðl-
uð dánartíðni meðal kvenna. Þar á
eftir koma hjartasjúkdómar og því-
næst er svo Alzheimer-sjúkdómur-
inn.
Lækkun hjá báðum kynjum
Enn fremur kemur fram í grein-
inni að aldursstöðluð dánartíðni
hjartasjúkdóma hefur dregist veru-
lega saman frá árinu 1996, ,,og á
það bæði við um karla og konur,
um tæplega 55% hjá körlum og
46% hjá konum.“ Þá hefur dánar-
tíðni vegna illkynja æxla einnig
lækkað allmikið hjá báðum kynjum
frá árinu 1996.
Dánartíðni vegna Alzheimer hækkaði
Aldursstöðluð dánartíðni Alzheimer-sjúkdómsins var 53,5 á 100.000 íbúa 2018 en 5,6 árið 1996 sam-
kvæmt Talnabrunni Landlæknis Dánartíðni hjartasjúkdóma hefur lækkað verulega frá árinu 1996
3,4
Aldursstöðluð dánartíðni vegna Alzheimers
Dánartíðni á 100.000 íbúa eftir kyni 1996-2018
60
50
40
30
20
10
0
Karlar Konur
1996 2998 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014 2016 2018
Heimild: Embætti landlæknis
Talnabrunnur, ágúst 2019
6,8
60,1
43,5
Fræðslusetur var vígt með viðhöfn í Guðmundarlundi í Kópavogi í gær. Til
stendur að það verði nýtt af leik- og grunnskólum bæjarins til útikennslu
þar sem leggja á sérstaka áherslu á náttúrulæsi, umhverfis- og náttúru-
vernd og áhrif loftslagsbreytinga. Skógrækt hefur verið í lundinum í ára-
tugi og þar er vinsælt útivistarsvæði. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, var við vígsluna og gróðursetti þar tré í góðra vina hópi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tré í Guðmundarlundi fékk sannkallaða forsetameðferð
Fræðslusetur fyrir leik- og grunnskóla var vígt í Guðmundarlundi í Kópavogi í gær
Flokksráðsfundur Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs (VG)
hófst á sjötta tímanum í gær og lýk-
ur í dag. Fyrir fundinn var gefið út
að loftslagsmál yrðu í aðalhlutverki
á fundinum. Þá verða drög að nýrri
matvælastefnu, umhverfisstefnu,
orkustefnu, heilbrigðisstefnu og
jafnréttisstefnu reifuð á fundinum
svo eitthvað sé nefnt.
Fundurinn hófst á ræðu Katrínar
Jakobsdóttur, forsætisráðherra og
formanns VG. Hún fór m.a. yfir
ályktanir landsfundar Vinstri
grænna frá árinu 1999 til 2017.
Erindið brýnna en áður
„Ég hef áhyggjur af þróun lýð-
ræðislegra stjórnmálahreyfinga í
samtímanum og þess vegna er okk-
ar erindi brýnna en nokkru sinni
fyrr. Því er mikilvægt að segja frá
okkar sögu og hvað við höfum verið
að gera,“ sagði Katrín á fundinum í
gær og bætti við: „Þess vegna
skiptir máli að við stöndum með
okkur sjálfum, þekkjum söguna, vit-
um hver við erum og hvaðan við
komum. Ég er mjög bjartsýn fyrir
hönd þessarar hreyfingar og ég
held að saga hennar sýni að hún
mun þora, hún mun geta og hún
mun gera,“ sagði Katrín.
Loftslagsmál í brennidepli
Flokksráðsfundur Vinstri grænna haldinn í Skaftafelli
Ljósmynd/Steinþór Rafn Matthíasson
Forsætisráðherra Katrín Jakobs-
dóttir á flokksráðsfundinum í gær.
Fullar sættir hafa náðst í innsetn-
ingarmáli sem höfðað var gegn
Félagi eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni af kaupendum íbúðar
í fjölbýlishúsi sem félagið lét reisa
við Árskóga. Fjalla átti um frávís-
unarkröfu félagsins fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur í næstu viku.
Fram kemur í tilkynningu frá
félaginu að stjórn þess afturkallaði
í gær nýtingu ætlaðs kaupréttar
félagsins á íbúðinni sem málið
snerist um. Þá samþykktu kaup-
endur íbúðarinnar að draga máls-
höfðun sína til baka og ganga að
því samkomulagi sem félagið hafði
áður boðið þeim sem höfðuðu mál
gegn félaginu.
Í því felst að þeir hafa einnig
skrifað undir skilmálabreytingu
um hærra kostnaðarverð, rétt eins
og langflestir aðrir kaupendur
hafa þegar gert. Ekkert mál er því
lengur rekið fyrir dómstólum.
Trúnaður yfir samkomulagi
„Viðræður fóru fram þar sem
reynt var að finna lausn á málinu.
Trúnaður ríkir um innihald sam-
komulagsins en aðilar náðu saman
að lokum og gengu frá samkomu-
lagi sem felur það í sér að til
stendur að fella niður málið,“ seg-
ir Sigrún Ingibjörg Gísladóttir,
lögmaður hjónanna sem höfðu
höfðað áðurnefnt dómsmál gegn
FEB.
Náðu full-
um sáttum
við FEB
Kaupendur falla
frá málshöfðun
Háhyrningur strandaði innarlega í
höfninni við Þórshöfn á Langanesi
í gærkvöldi. Ákveðið var að láta
dýrið liggja, að sögn Steinars Þórs
Snorrasonar, lögregluvarðstjóra á
Þórshöfn, sem sagði ekki væsa um
það þar sem háflóð væri.
Steinar sagði háhyrninginn vera
5-6 metra langan. Björgunar-
sveitin Hafliði var á vettvangi og
kannaði aðstæður. Þegar Morgun-
blaðið fór í prentun í gærkvöldi
hafði ekki verið tekin ákvörðun
um hvort háhyrningurinn yrði
vaktaður áfram.
Háhyrningur strand í
höfninni við Þórshöfn